Tíminn - 25.02.1967, Page 8
8
TÍMINN
LAUGARDAGUR 25. febrúar 1967
Sigurður Vilhjálmsson:
Lftíí til baka -
en horfíð fram
I.
Þa5 má víst óhætt fullyrða að
ein aðalhvötin til landnáms á fs-
landi var frelsisþrá þeirra manna,
ssm tóku sig upp frá heimilum
sínum til að setjast að í ónumdu
landi þar sem þeir óháðir gætu
lifað lífinu og „unað glaðir við
sitt“.
Ekki höfðu menn þó lengi átt
hér heima þegar þeim varð ljóst
að reglur um samskipti og sambúð
varð að setja. Þá varð til það þjóð-
félag á íslandi sem stóð með mikl-
um blóma í f-ullar þrjár aldir. Þjóð-
félag sem stóðst alla ásælni. Af
fornritum er kunnugt um að yfir-
gangsmenn á konungsstól í Nor-
egi gerðu tilraunir til að fá fs-
lendinga til að játa yfirráðum sín-
um. Svo var um Harald hárfagra,
sem sendi Una Garðarson, og Ólaf
helga, þegar hann fékk Þórarinn
Nefjólfsson til að flytja erindi
sitt. Svör íslendinga við erindum
þessara sendimanna eru öllum
kunn er lesið hafa íslendingasögur.
Landnámsmenn áttu haffærandi
skip, sem þeir notuðu til aðdrátta
meðan þau entust til hafsiglinga.
Fæstir endurnýjuðu þau ,þó er
getið nokkurra manna sem áttu
skip sem þeir sigldu á í verzlunar
erindum fram eftir tíundu öld og
jafnvel um aldamótin þúsund.
Vafalaust ætluðu fslendingar að
vera frjálsir menn í frjálsu landi.
Utanferðir voru algengar eftir að
þeir hættu sjálfir siglingum og
verzlun. Flestir fóru til að sjá
siði og hætti annarra og eyða pen-
ingum rétt eins og nú tíðkast.
Nokkrir nutu hollustu konunga og
þáðu af þeim virðingu og gjafir.
Æði oft kom það fyrir að Noregs-
konungar hindruðu ferðir manna
og létu þá sæta afarkostum. Þess-
ar ferðir voru því oft áhættusam-
ar og leiddu að lokum til þess að
sjálfstæðið fór út í veður og vind.
Einstöku menn fóru þó utan
annarra erinda en til að hitta kon-
unga og eyða peningum. Þeir leit-
uðu uppi þær beztu menntastofn-
enir sem völ var á í Þýzkalandi,
Frakklandi og Englandi og e.t.v.
viðar. Það voru þessir menn sem
lögðu grundvöll að menningu þjóð
arinnar á þjóðveldisöld- Þeirri
menningu eigum við það að þakka
að við erum aftur „frjálsir menn
í frjálsu landi“.
II.
Nú eru aðrir tímar en voru á
þjqðveldisöld. Hraðinn er marg-
faldur og notkun allskonar tækja
og véla hefur leyst af hólmi svo
til allar aðferðir sem töldust not-
hæfar f fortíð nær og fjær. En
mennimir eru enn um margt furðu
líkir því sem þeir voru. Auður og
völd hafa svipað aðdráttarafl eins
og löngum áður og aðrar tilihneig-
ingar svipaðar, siðir og hættir eru
aðrir. En eru þeir betri nú? Þvi
læt ég hvem og einn um að svara.
Velgengni þjóðarinnar fram á
þrettándu öld virðist hafa orðið
mörgum örfun til ásælni og of-
beldishneigðar, sem varð þjóðinni
dýrkeypt. Siglingar og verzlun sem
\ oru komnar í hendur Norðmanna
og efnahagsástandið fór versnandi
eftir því sem lengra leið. Þetta
atriði ætti að vera nútímamönnum
bending og viðvörun. Menn munu
aegja að það sé allt annað nú. Nú
eigum við skip og siglum og verzl-
um sjálfir, við eigum flugvélar og
við eigum mikið af allskonar bíl-
nun og öðrum véiknúnum tækjum-
Við eigum útvarp og sjónvarp. Og
nú hðfum við forseta, Alþingi og
ríkisstjóra og við erum meðlimir
Sameinuðu þjóðanna' og þátttak-
endur í fleiri alþjóðasamtökum.
Við erum sjálfstæð þjóð. — En
við höfum aldrei eytt eins gegnd-
arlaust í allskonar óhóf og munað
eins og nú. Glæpir og margháttuð
óreiða veður uppi ef treysta má
fréttaflutningi útvarpsins og blað-
anna. Allt eru þetta viðsjárverð
tímanna tákn á sjöunda tug tutt-
ugustu aldar.
f III.
Er það verðbólgan og þá um
leið stjórnarfarið í landinu sem
veldur því, sem aflaga fer? Er
uppeldi þjóðarinnar ábótavant? Eg
óttast að hvorttveggja sé. Það er
að vísu ánægjulegt að við höfum
nóg að bita og brenna og getum
látið okkur líða vel, en „maður
lifir ekki af einu saman brauði“
Alþingi og ríkisstjóm virðist vera
önnum kafið við allskonar laga-
smíði, og þar að auki þurfa þeir
vísu menn, sem þar ráða allskon-
ar ráðunauta og nefndir til að
koma lagi á starfsemi sína. Öll
þessi starfsemi miðar að því að
gera sem flðknast samfélag í land
inu. Afleiðingan ar láta þá heldur
ekki á sér standa. Nú um nýliðin
áramót hafa borizt og eru enn að
berast út um landsbyggðina ýms-
ar skýrslur og frásagnir, sem sýna
að þjóðfélag okkar er meira og
minna af göflum gengdð. Það verð '
ur naumast komist hjá að álykta
að Alþing og ríkisstjórn sé alls
ekki þeim vanda vaxið að skapa
heiðarlegt og siðað þjóðfélag í land
inu. Ólíklegt er að meiri hluti þjóð
arinnar vilji halda áfram á þeirri
óheillabraut, sem fgrin er. Okkur
er sagt að hérlendis sé stjórnað á
líkan hátt og í öðrum siðmennt-
uðum löndum, sömu hagstjórnar-
aðferðir séu notaðar hér og vel
gefist þar. Ef þetta er rétt, gefur
auga leið að það á ekki það sama
við á íslandi og í þéim löndum,
sem þetta gefur góða raun. Hér
fer það ekki milli mála, að sá at-
vinnurekstur, sem ætlað er að
standa undir gjaldeyrisverzlun
þjóðarinnar er rekinn með veru-
legu tapi.
Verðstöðvun sú, sem nú er ráð-
gerð, hefur engin áhrif í þá átt
að bæta rekstraraðstöðu útgerðar-
innar þar sem verðlagið eins og
það var orðið var henni ofvaxið.
Með verðuppbótum úr ríkissjóði er
þó að líkindum hægt að jafna eitt
hvað metin í bili.
IV.
Reynslan ætti að hafa kennt okk
ur að hér henta ekki sömu hag-
stjórnaraðferðir og notaðar eru
hjá stórþjóðum, sem búa við jafn-
ari framleiðslumöguleika en jiér
eru. Hagkerfi okkar verður því
að miða við þær staðreyndir. Auð-
vitað verðum við að fylgjast vel
með því sem gerist hjá öðrum þjóð
um, en alltaf verður að miða við
aðstæðumar eins og þær eru hér
og haga framkvæmdum eftir því.
Við verðum að leggja rækt við
hinar fornu dyggðir, hófsemi, hag-
sýni, yfirlætisleysi o.fl. hégóma-
skap og tildur, eftirhermur og of-
læti verðum við að forðast. Al-
þing og æðstu valdamenn eiga að
hafa þar frumkvæði og forystu-
Vegna fámennis þjóðarinnar er
hver einstaklingur enn þýðingar-
Framhald á ois. 12.
Ekki er hægt að segja að
neinn tilraunablær hafi verið
yfir íslenzka sjónvarpinu síð-
astliðna viku. í því voru sýnd
ir ýmsir ágætir innlendir þætt
ir, sem hefðu sómt sér vel í
Keflavíkursjónvarpinu, sem
virðist vera að dómi ákveð-
inna aðila það tæki, sem miða
skal við þegar á að dæma um
hvort við séum enn á ti’rauna
stiginu eða ekki.
Á föstudaginn var sýndui
umræðuþáttur með þeim Magn
úsi „Austra“ Kjartanssyni og
séra Sigurði Pálssyni. Magnús
kemur mjög kristilega fyrir i
sjónvarpi, og ætti það að
verða honum til hagnaðar. tak
ist að koma honum ofar en
í fjórða sæti Alþýðubandalags
listans í Reykjavík í vor. Ann
ars er Magnús ekki eins krist
inn og hann er biblíufróður.
Séra Sigurður var ekkert nema
ljúfmennskan, svo beztu eigin
leikar Magnúsar fengu ekki not
ið sín. Varð niðurstaðan því
engin og hinn æðsti vakir yfir
mönnum eftir sem áður og
sá i neðrá blæs í glæðumar.
Þarf líklega nokkra sjónvarsp-
þætti í viðbót til að fá þessu
breytt.
Þorkell Sigurbjörnsson kom
fram með nýjan þátt á föstu
dagskvöldið „í tali og tónum“,
og ræddi þar m. a. um þá
Sveinbjörn Sveinbjörnsson og
Eyþór Stefánsson. Var gaman
að heyra farið viðurkenningar
orðum um Eyþór á þessu þingi,
en hann er mikill listamaður
þótt hljóðlega fari. Söngurinn
var mjög góður og tilbreytni í
búningum skemmtileg. Yfirleitt
var þessi fyrsti þáttur vel
heppnaðar. Að vísu finnst
manni að gera megi meira af
því að bregða upp kyrramynd
um af mönnum, þegar um þá
er fjallað, en þarna var gert,
Eyþór Stefánsson
og kyrramyndum af handrit
um þeirra o. s. frv. Þorkell er
nýjabrumsmaður í tónlist, samt
urðu engar „happenings" á
skerminum í þetta sinni og eng
ar tíu ryðgaðar Wikkdósir
hengdar í skottið á kettinum.
Á sunnudaginn tókst enn
vel með barnaþáttinn. Sögukon
ur segja frá af mikilli konst í
þessum þáttum, en spuming er
hvort ekki megi fjörga frá-
sögnina enn meir með því að
bregða upp teiknimyndum
öðru hverju, og myndskreyta
þannig frásögnina. Á mánu-
daginn kom hasarþáttur, sem
er ágætur og síðan framhald
ið á Öld konunganna. Þetta er
dæmigerð sýning handa leikur
um og snobbfóLki. Almenning
ur nýtur hennar ekki sem
skylldi vegna þess að Shake
speare skrifaði ekki á íslenzku
illu heilli. En það er einkum
(orðgnó'ttin og málfegurðin,
Isem hefur svona þátt yfir all
an hvunndag. Og lítið bætir úr
skák langur formáli með rétt
um andardrætti.
Á miðvikudaginn var kvik
myndin hið eftirtektarverðasta
í dagskránni. Hún hét „And-
lit í hópnum“, og er eitthvert
faið mesta grín sem gert hef
ur verið að amerískri aug-
lýsingastarfsemi.
í dagskrá næstu viku er
einkum ástæða til að benda á
þáttinn með Arihur Rubin
stein ki. 21.20 á mánudags-
kvcldið. — Þá verður
sýndur merkur þáttur, M. 20.
55 á miðvikudagstovöld um
Byron og Shelley við Genfar-
vatn. Slíkur þáttur sýnir okk
ur m. a. hve íslenzkur skáld-
skapur hefur verið afskiptur í
sjónvarpinu til þessa. Það þýðir
þó ekki að þættir eins og þessi
séu ekki sjálfsagðir og etftir-
tektarverðari en annað etfni.
Sama kvöld M. 21.55 koma svo
Gög og Gokke og eru skemmti
legir.
□
NY BOK
Afreksverk aldraðs glímumanns
íslenzka glíman (gamlar minn-|
ingar og nýjar) heitir nýútkomin1
bók eftir gamla glímukappann,
Emil Tómasson, frá Situðlum, sem
nú er orðinn meira en hálfníræð
ur. Þessi bók er sannfcallað af-
reksverk, þegar aldur höf. er hafð
lur í huga. En auðvitað hefur
|það teMð höf. mörg ár, að viða
áð sér öllu því fjölbreytta efni, (
isem bókin flytur. Og þá hefur|
Iþað verið ekki minni fyrirhöfn,!
að safna og tína saman allar þæri
Ijósmyndir sem eru í bókinni og
gefa henni ómetanlegt gildi, þær
eru víst alls upp undir 50 að
tölu og hafa tekizt vel.
Athyglisvert er það, hversu
höf. hefur tekizt, að koma fyrir
miklu efni þarna í stuttu og skiru
máli, þvi að hann er alveg sér-
stakur snillimgur í þeirri ljst. að
segja mikið i fáum orðum, og
segja þó allt sem þarf. Er það
ómetanlegur kostur hjá hverj-
um höfundi. Þá er málið létt og
fagurt, svo að af ber. Þarna eru
margvíslegar upplýsingar að
Emil Tómasson
finna um íslenzku glímuna. Og
sumar þessar upplýsingar er
hvergi annarsstaðar að finna, eftir
því sem ég bezt veit, og er það
ómetanlegt. — Bók þessi verður
áreiðanlega vinsæl, m. a. vegna
þess, að allir dómar höf. og
ályktanir eru bornar fram af sér-
stakri gætni og hófsemi, en allir
sleggjudómar eru höf. víðs-
fjarri.
Prófarkalestur bókarinnar er
með því bezta, sem maður sér nú
á dögum. Og villur nygg ég að
finnist varla, nema ef telja
skyldi eina ættfræðivillu, sem er
sögu glímunnar óviðkomandi, og
skiptir engu máli í því sambandi.
Það er spá mín, að bók þessi
seljist vel, enda bætir hún úr
brýnni þörf. — Ég óska svo hin
um aldraða höfundi til hamingju
með þetta afreksverk, að skila til
núlifandi kynslóðar þessari ágætu
bók.
Séra Sveinn Víkingur hefur skrif
að ágætan formála að bókinni sem
eykur mjög á gildi hennar.
Benjamin Sigvaldason.