Tíminn - 25.02.1967, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 25. febrúar I9S7
r ” *"""" " —
Hægri akstur
Undanfarið hefur töluvert
verið rætt um toægri akstur
í blöðum og gætir þar ýmiss
konar villu. Þar sem engmn
virðist ætla að leiðrétta þann
misskilning sem þar kemur
fram, ætla ég að árétta hér
nokkur atriði.
Nær allir þeir bálar stórir
og smáir sem fluttir hafa
ff verið til landsins, a.m.k. á
seinni árum, eru ætlaðir til
hægri akstursj og kemur það
aðallega fram í þrennu: í
fyrsta lagi eru bílar með
stýri vinstra megin gerðir
fyrir akstur á hægri vegar-
telmingi. Á það bæði við
um framúrakstur, sem er
alveg augljóst, og eins hitt
að stilling framlhjóla er ekki
sú sama fyrir vinstri og hægri
akstur, því veldur halli vegar
ins. Þess vegna þarf að stilla
þá fólksbíla sem annars eru
stilianlegir fyrir vinstri akstur.
Þó eru aHmargir bílar með
óstillanlegan hjólalhalla og
kannast margir við að þeir
sækja út í vinstri vegarbrún,
eru sem sagt öfugu megin.
Þetta 'hefur líka í för með
sér aukið og misjafnt slit
hjólbarða.
Þá er það alþekkt að fjaðrir
bíla linast fyrr vinstra megin.
Þetta kemur til af því að heild
ar þyngd bílsins ásamt öku
manni, sem oft er einn, hvílir
meira á vinstri hlið vegna
halla akbrautanna. T.d. er
þetta áberandi á leigubílum,
þar sem einn farlþegi sezt
langoftast vinstra megin í
aftursæti, því að öfug hlið
bflsins snýr að gangstétt. Sé
um fleiri farþega að ræða
verða þeir hinsvegar íð fara
út í umferðina til þess að
komast að hægri hlið bílsins, U
en það skapar að sjálfsögðu i
hættu, svo og óþægindi fyiir |
aðra vegfarendur.
Hvað snertir hina stærri 1
bdla, þá aukast sífellt vand S
kvæði á að fá almennings- |
vagna fyrir vinstri aksitur 1
nema sem sérsmíði, en slíkt i
er að sjálfsögðu mikill auka I
kostnaður og allt að því óger |
legt. Nefna má það, að þegar i
Svíar hafa breytt í hægri akst
ur (3. sept. n.k.) verða Bretar
einir Evrópuþjóða fyrir utan
ofekur með vinstri akstur, en
þeir smíða þó fflest sín farar-
tæki sjálfir. Auk þess he-fur
verið talið heppilegra fyrir
okkur að kaupa almennings-
vagna frá öðrum löndum.
Það þarf einnig að vera á
almanna vitorði að ökuljós
flestra bíla eru einungis gerð
fyrir vinstri eða hægri akstur.
Það gæti því komið sér mjög
illa ef við þyrftum að fá sér
framleidd Ijósker í bilana
þegar aðrar þjóðir hætta v.
akstri. Sömuleiðis er þetta
mjög óheppilegt þegar bílar
eru fluttir landa á milli.
Að síðustu má geta þess að
hægri umferð er að verða ráð
andi hvarvetna í heiminum
í lofti, láði og á legi.
Ljóst ætti að vera að hjá
breytingu í hægri akstur verr
ur ekki komizt, þvi fyrr þvi
betra. Það hefur þegar dregizt
alltof lengi.
Björn IndriSason.
TÍMINN
Gunnar Guðmundsson frá Reykjum
Flekaveiðin við Drangey
Samiþyfekt var á Alþingi sdðast-
liðinn vetur með naumum meiri-
hluta þó, að banna fuglaveiði á
fleka við Drangey, Grímsey o. v.
að tilhlutan Dýraverndunarfél. ís-
lands m. m. og er þar margt sagt
af lítilli þekkingu á þeirri veiði
aðferð, svo og fleiru þar að lút-
andi.
En svo er leyft að veiða í háf,
u-m varptímann, að mér skilst,
því fuglinn situr ekki í bjarginu
nema um varptímann. Svo má
skjóta hann (á sjónum) ski-lst mér.
Þá er að líta á þessar undan-
þágur lítið eitt.
Hvað því viðvíkur að veiða . í
háf er tvímælalaus staðreynd, að
það y-rði — að mestu leyti varp-
fuglinn, — kvenfuglinn, sem ligg
ur á eggjunum eða makinn, sem
færir frúnni fæðuna, (dreg-ur í
búið) sem yrði veiddur. En geld
fuglinn, sem er annað hvort of
ungur til að verpa eða vantar
maka, veiðist að mestu á flekana,
því hann er í tugþúsundatali að
flækjast kringum eyjuna, og -gerir
alltaf meiri og minni usla í fugla
bja-rginu. Það er að-alástæðan til
þess að varpið hraðminnkar strax
þegar hætt er, t. d. í árabil
að veiða fuglinn. Kem ég að því
siðar). Þarna stangast friðunarlög
in á við sig sjálf Því það er bann
að með lögum að lóga f-ugli, sem
liggur á eggjum, sem og sjálfsagt
er, og gera það ekki aðrir en vond
ir og miskunnarlausir menn. En
hvaða gagn er þá að þessari und-
anþágu?
Þá er að minnast á skotaðferð-
' in-a. Oft á haustin og veturnar er
innfjarðar mikið af svartfugli þeg
ar síli eða smásíld gengur inn í
i fjörðinn. Þá er skotið mikið af
* svartfugli. En ef norðan átt kem
ur strax eftir slíka skotdaga, rek
ur mikið af dauðum og hálfda-uð
i um fuglum inn í fjarðarbotni. Eg
' er ekfei að ásaka skyttur, sem
þetta stunda, um trassaskap í sínu
starfi, heldur veit það hver einasti
maður sem stundar þetta, að úti-
lokað er að koma i veg fyrir að
særðir fuglar sleppj burtu. Þetta
já við um allar fuglategundir, sem
! unnar eru með skotum. Þarna
skildr mjög á milli með flekaveið-
ina, nú eftir að hætt var að nota
hrosshár í snörur, en nylonsnör-
ur eingöngu notaðar, er það að-
eins undantekning að sleppi fugl
af fleka.
! Og þótt það hafi komið fyrir
að fleki eða flekar losni úr tengsl
um at niðurstöðu, eða frá stjóra,
þá er alveg hægt að koma í veg
fyrir það, t.d. með því að
einhver af þeim mönnum,
sem stunda veiðarnar, vœri
! falið það trúnaðarstarf að sjá um
i að allir notuðu aðeins ný fleka-
bönd og örugglega sterfe stjóra-
færi hverju sinni, og um leið
hefði yfirumsjón með að öll veið-
in væri rekin af fyllstu samvizku
semi með tilliti til fuglsins, sem
veiddur er.
Þá er sú hliðin, sem snýr áð
varpinu.
Það var um skeið, eitthvað um
1930—45 að flekaveiði var ekki
stunduð neitt að ráði við Drangey
og féll um skeið alveg niður en
þó var alltaf sigið eftir eggjum.
Það fengust um 12.000, tólf þús.
und egg vor hvert, meðan fugla
veiðin var stunduð jafn-hliða, en
þegar fuglaveiðinni var hætt, þá
hraðminnkaði varpið, ár frá ári og
síðasta árið áður en fuglaveiðin
by-rjaði aftur, voru eggin kom
in niður í 5—6 þúsund yfir vorið.
En um leið og farið var að veiða
fuglinn á flekana aftur, jókst varp
ið og var nú síðustu vor, komið
upp í sömu tölu eggja, eins og
áður, eða um 12 þusund.
Það virðist því ætla að verða
sama útkoma með varpið við
Drangey og æðarvörpin sem hætt
er að stunda, það leggst í auðn.
Það verður líka hætt að síga í
Drangey ef fuglaveiði verði bönn
uð framvegis, því eggjataka verður
það rýr að það svarar ekki kostnaði
að stunda hana.
Það verður hörmuleg auðn,
sem mun hvíla yfir Drangey, sem
hefir um langt skeið verið kölluð
bezta mjólkurkýr Skagafjarðar
sýslu og áreiðanlega bjargaði frá
hungurdauða á mestu harðindaár
um, þrem sýslum. Skagafjarðar,
Vestur-Eyjafjarðar- og Austur-
Húnavatnssýslu, — ef þar sést
i hvorki bátur né menn um kom-
andi framtíð á vorin, þar sem áður
var iðandi athafnalíf frá miðjum
maí þar til um viku af júlí.
! Sú kynslóð, sem nú lifir, virðist
| ákveðin í að láta standa á sínum
söguspjöldum: leggja í eyði —
leggja í eyði og yfirgefa mörg
Framhald á bls. 15.
Undanfarið hefur mjög borið
á góma hér í Danmörku hjð
svonefnda fóstureyðingamál.
Samtök yngri kvenna innan
danska kvennasambandsins
hafa opinberlega vakið athygli
á því óheppilega ástandi, sem
uú er ríkjandi og kemur fram
í því, að árlega fara 15—20
þúsund danskra kvenna þá
leynilegu, oft dýru og alltaf
áhættusömu leið að láta fram-
kvæma ólöglega fóstureyðingu
fremur en eignast barn. Tæp-
æga nokkúrt blað hér hefur
komjzt hjá því að skrifa um
málið, og fyrrgreind samtök
ungra kvenna hafa jafnvel
gengið svo langt, að velta fyrir
sér áformum um skipulagðar
ferðir til Póllands til að láta
tramkvæma fóstureyðingar. —
Þann 25. janúar var afstaða
ríkisstjórnarinnar til fóstureyð-
ingamálsins gefjn til kynna á
danska þjóðþinginu af dóms-
málaráðherranum, K. Axel
Nielsen, er hann svaraði fyrir-
spurn frá frú Violu Nörlöv úr
Sósíaldemókrataflokknum í
fvrirspurnartíma þingsins. —
(Frú Nörlöv hefur í mörg ár
barizt fyrir auknu frelsi tjl
Fóstureyðingarmálið til umræðu í þinginu. - Búizt við geysilegum ferðamanna
straum á 800 ára afmæli Kaupmannahafnar-Ullarverksmiðja á Grænlandi?
f óstureyðinga). Dómsmálaráð-
herrann upplýsti, að ríkisstjórn
in myndi skipa nýja nefnd, sem
á að starfa í samvinnu við
sænska nefnd, sem nú fjallar
um fóstureyðingar þar. Því
næst er stefnt að því að gera
á næsta þingi breytjngu á
dönskum lögum varðandi þetta
efni. Ríkisstjórnin er bundin
af því, að ætlunin er að koma
á sams konar reglum varðandi
fóstureyðingar í Danmörku og
Svíþjóðl Dómsmálaráðttierrann
sagði m.a.: Sameiginleg nor-
ræn löggjöf varðandi fóstureyð
ingar verður á dagskrá bæði á
næsta fundi laganefndar Norð
urlandaráðs, sem verður hald-
inn í Ringsted dagana 9.—10.
febrúar, og á fundum Norður-
landaráðs, sem verða í apríl
næstkomandi. Að lokum sagði
iómsmálaráðherrann: Breyting
ar á núgildandi reglum munu
að sjálfsögðu stefna í átt til
meira frjálsræðis um þessi
efni. Hins vegar mun ég bíða
með að taka afstöðu tjl þess,
hversu langt við eigum að
ganga, þar til hinir dönsku og
sænsku sérfræðingar hafa fjall
að um málið.
Búizt er við geysimiklum
ferðamannastraumi til Kaup-
mannahafnar í tilefnj af 800
ára afmælishátíðinni. Ferða-
málafulltrúinn Sven Acker hef
ur fyrir löngu vakið athygli
á því, að hinar mörgu ráð-
stefnur, sem venjulega eru
haldnar í Kaupmannahöfn yfir
sumarmánuðina, verður að
flyta til, og er þá um það að
velja að halda þær snemma
vors eða í mánuðunum okt.—
des., því að yfir sjálfa sumar-
og haustmánuðina eru öll hótel
full. Sem stendur er sá mögu-
lejki í athugun hjá borgar-
stjórninni að fá staðsett í Kaup
mannahöfn eitt af ferðamanna-
skipunum til að taka við
nokkru af hinum væntanlega
ferðamannastraumi, sem sjálf-
sagt slær öll met, en jafnvel
bótt afmælishátíðin drægi enga
ferðamenn að, myndi skipið
ekkj leysa fyrirsjáanleg vand-
ræði. Ástandið er svona alvar-
legt, en á sama tíma reka dansk
«• ferðaskrifstofur mikinn á-
róður út um heim með góðum
K. Axel Nielsen
árangri og það sem gerir að
verkum, að raunverulegur ár-
angur áróðursherferðarinnar
verður takmarkaður, er skort-
urinn á hótelrúmum, en í Kaup
mannahöfn ráða hótelin nú
yfir a. 12.000 rúmum. Þegar
áður en auglýsingarnar um
afmælishátíðjna eru farnar að
oera verulegan árangur út um
heim, hefur mörgum fjölmenn
um heimsóknum amerískra
ferðamannna verið aflýst, ein-
iingis með tilvísun til ríkjandi
skorts á þaki yfir höfuðið og
svefnstöðum. — í þessu sam-
bandi má benda á, að Banda
ríkin eru orðjn eitt helzta tak
mark ferðamanna frá Norður-
löndum. Þetta kemur fram
skýrslu, sem forsvarsmenn
ferðamála í Bandaríkjunum
sendu nýlega út varðandi árið
1966. Skýrslan sýnir, að s.l. ár
heimsóttu samtals 46.139 manns
frá Norðurlöndunum Bandarík
in, en árið áður var talan
38.000 manns. Efst á blaði er
Svíþjóð með 21.312 ferðamenn,
þá Danmörk með 10.683, Noreg
ur með 8.360, Finnland með
3.824 og loks fsland með 1.960.
Hjá stjórn konunglegu Græn
'andsverzlunarinnar er nú til
vfirvegunar tillaga um að koma
á fót verksmiðju í Suður-Græn
landj til að framleiða prjóna-
garn og teppi úr ull græn-
ienzka fjárins. Tillagan er kom
in frá Erik Egede í Narssaq,
meðlimi landsráðsins, sem hef
ur lagt áherzlu á, að fjárrækt
m sé nú næststærsti atvinnu-
vegur Grænlendinga, enda séu
nú um 40.000 ær í Suður-Græn-
landi. Á hverju ári eru send
til Danmerkur rúmlega 30 tonn
af ull til vinnslu. Erik Egede
teiur, að vinna megi ullina
með hagnaði i Grænlandi, þar
sem sífellt er verið að svipast
um eftir nýium framleiðslu-
greinum. — íslenzkur sérfræð-
ingur hefur ferðast um sauð-
fjárræktarhéruð Grænlands, —
iafnframt því, að sýnishorn af
Framhald á bls. 15.