Tíminn - 07.03.1967, Blaðsíða 5

Tíminn - 07.03.1967, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 7. marz 1967 5 mém Otciefandl: PRAMSOKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjórl: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Pórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og IndrlSi G. Þorsteinsson Fulitnl) ritstjórnar- Tómas Karlsson Aug- lýsingastj.: Steingrimur Gjslason Ritstj.skrifstofUT Kddu- hústnu, símar 18300—18305 Skrifstofur: Bankastrætl i Af. greiðslusími 12323. Auglýsingasimi 19523 Aðrar skrifstofur, síml 18300 Askriftargjald kT 105.00 á mán tnnanlands — t lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. t. Örþrifaráð lélegra og hræddra vaidhafa Það er kunnara en rekja þurfi, að ráðherrarnir hafa í seinni tíð notað hin ólíklegustu tækifæri til að koma að áróðri í fréttum útvarpsins. Þeir hafa breytt tæki- færisræðum, sem hafa verið fluttar í sambandi við ópóli- tíska atburði í hápólitískar áróðursræður, til þess að koma áróðri sínum inn í útvarpsfréttirnar. Það hefur ekki verið ráðherrunum nóg að koma áróðri sínum inn í fréttir útvarpsins á þennan hátt. Þeir vilja helzt að fréttastofan verði hrein áróðursstofnun fyrir ríkisstjórnina. Þess vegna halda sum stjórnarblöðin uppi hörðustu árásum á fréttastofuna, ásaka hana um hlut- drægni, undirlægjuhátt við kommúnista o.s.frv. Tilgang- urinn er að hræða fréttamennina og beygja þá til al- gerrar undirgefni. Jafnframt er kappkostað að fylgjast svo með öllum þáttunj útvarpsins, að þar komist að sem allra minnst gagnrýni óháðra cðila. Gleggsta uæmið um þessa afstöðu ríkisstjórnarinnar er fresturinn á útvarpsþættinum Þjóðlíf, þar sem rætt var vifTffinm lækna um heilbrigðismál. Strax og heil- brigðismálaráðherra frétti af þættinum, reis hann önd- verður gegn honum og vildi híndra að nokkuð væri á. mál þessi minnst í útvarpinu. Áður en heilbrigðismálaráðherra hafði þannig hlutast til um að stöðva umræddan þátr, hafði forsætisráðherra hafið sókn gegn þættinum Þjóðlíf almennt. Ráðherrann taldi þættinum það einkum til foráttu, að umsjónar- maður hans, Ólafur Ragnar Grímsson, væri starfsmaður hjá Framsóknarflokknum! Við hitt hafði forsætisráðherra ekki neitt að athuga, að flestir umsjónarmenn annarra hliðstæðra þátta í hljóðvarpi og sjónvarpi, eru starfandi blaðamenn hjá stjórnarblöðunum eða hafa verið það til skamms tíma. Þá reyndi forsætisráðherrann að dylgja um hlutleysisbrot hjá Ólafi, og lét í því tilefni dagskrár- skrifstofuna afrita einn Þjóðlífsþáttinn í eftirvinnu, en fann ekki annað út úr því en að Ólafur hafði spurt út- gerðarmenn í Vestmannaeyjum um afkomu útgerðarinn- ar og fengið svör sem ráðherrann taldi heldur hagstæð ríkisstjórninni! Árangurinn af þessari leit forsætisráðherr ans er bezta sönnun þess, að Ólafur hefur stjórnað þætti sínum samvizkusamlega og allar dvlgjur um hlutleysis- brot af hálfu hans, eru því fullkomlega óréttmætar. Meðal útvarpshlustenda hefur þessi þáttur Ólafs líka unnið sér miklar vinsældir og viðurkenningu. En það má ekki gerast, að dómi ríkisstjórnarinnar, að útvegsmenn, læknar eða aðrir, séu spurðir um ásig- komulag þeirra mála, sem þeir eru kunnugastir. Þjóðin má ekki þannig fá réttar myndir af þjóðlífinu. Það telur ríkisstjórnin sér hættulegl og er hrædd við það. Slíkt verður því aé stöðva. Þannig haga allar hræddar og lélegar ríkisstjórnir sér. Þær grípa til þess að reyna að einoka áróðurstæki þjóðarinnar, hindra frjálsan fréttaflutning og frjálsa skoðanamyndun. Óttinn knýr þær í fang einræðisins. Einræðishneigðin, sem hér kemur svo glöggt fram hjá ráðherrunum Bjarna og Jóhanni, sýnir bæði, að stjórnin óttast verk sín og hvað í vændum er, ef núverandi stjórn- arsamsteypa fer með völdin áfT-am. Ofbeldið er örþrifa- ráð lélegra og hræddra valdhaía. TÍMINN Gísli Guðmundsson, aiþm. Þjóðvöxtur á Islandi Margir fræðimenn, íslenzkir og erlendir, hafa gert tilraun til að áætla mannfjölda á ís- landi fyrstu aldirnar eftir að landið var fuilbyggt talið. Björn M. Ólsen nefndi m. a. þessar tölur Árið 1095: 77520, árið 1311: 72428 Jón Sigurðsson og Arnljótur Ólafsson, sem voru fyrr á ferð- inni, nefndu hærri tölur, sn nú munu fræðimenn vera þeirr ar skoðunar, að tölur B.M.Ó. séu helzt til háar. Ólafur Lár- usson heldur sig við 50 þús. og færra í hallærum og drep- sóttum. En sú var fólkstalan við hið fyrsta manntal, sem tek ið var hér á landi 1703. Svo leið 18. öldin, og í oyrj- un hinnar 19. var þjóðin álíka fjölmenn og nál. 100 árum fyrr heldur fámennari þó. (rúml. 47 þús.) Á árunum 1801—40 fjölgaði um 0,48% að meðal- tali á ári, 1840—60 um 0,81% og 1860—80 um 0,40%. Á ára- tugnum 1880—90 fækkaði liins vegar um 0,21% og stafaði sú fækkun af flutningi fólks til Vesturheims. Síðan hefur mannfjölgun verið, sem hér segir að meðaltali á ári, miðað við 1. des. 1890—1901 0,92%; 1901— 1910 0,91%; 1910—1920 1,06%; 1920—1930 1,40%; 1930—1940 1,10%, 1940—1950 1,70%, 1950 —1960 2,06%; 1960—1966 1,85%. Þegar fimmti tugur þessar- ar aldar var hálfnaður, hafði mannfjölgunin á síðustu 5 ár- um reynzt 1,4% að meðaltali á ári. Á árunum 1946—50 kemst hún upp í rúml. 2% að meðaltali og hélzt sú fjölgun eða um það bil áratuginn 1950- 60. Á tímabilinu 1960—66 hef- ir hún reynzt heldur minni en Iþó ekki mikið minni. I árslok 1945 voru hér á landi rúml. 129 þús. manna en nál. 194 þús. í árslok 1965. Fjölgun 65 þús. eða rúml. 50% á 20 árum. Gísli GuSmundsson Ef svipuð fjölgun heldur áfram, ætti mannfjöldinn í landinu að aukast um rúml. 97 þús. á öðrum 20 árum og verða kominn yfir 290 þús. í árslok 1985. Tölurnar hér að franian segja mikla sögu, sem ekki verður nánar rakin hér. Nú flytja þær stórtíðindi, boða ný viðfangsefni og nýja mögu leika. Hin íslenzka smáþjóð sem í aldaröð stóð í stað, er alt í einu farin að vaxa hratt. Ég hygg að þessi hraði is- lenzku þjóðarinnar síðustu 20 árin sé einhver sá mesti, sem nú er um að ræða í heiminum. f Noregi virðist fólksfjólgun- unin um þessar mundir ekki vera nema ca. l%á ári, en hér er hún nál. 2%, eins og fyrr var sagt. Þetta að þjóðinni byrjaði að fjölga svona ört fyrir 20 árum, þýðir m.a. það, að nú erú fyrstu fjölmennu árgang- arnir komnir á þann aldur að geta innt af hendi fullt starf. Árið 1985 verða 24 slíkir árgangar komnir til starfa ef að líkum lætur. Ekki má láta það villa sér sýn, þó að um stundarsakir liafi skort vinnuafl vegna metafla á sjón um. íslenzka þjóðin á 1985 að geta leyst miklu meira verk af hendi en hún getur nú, að öðru óbreyttu, hvað þá með aukinni tækni. En þá þurfa gagnleg verkefni líka að auk ast að sama skapi til þess að allir liafi slík verk að vinna, þá þarf líka að vera búið að koma upp nýjum íbúðum fyrir 90-100 þús. manns auk nauð- synlegrar endurnýjunnar og viðhalds. Skólahúsnæði og margt annað þarf að yaxa að að sama skapi. Ný landnámsöld er hafjn, landnám þeirra, sem að óbreytt um lífsmöguleikum fyrri alda hefðu dáið fyrir aldur fram, en nú fá að lifa og starfa í landi sínu. Hvar verður hið nýja iand- nám, nýju heimilin og allt hitt sem þau byggja tilveru sína á eða af þeim leiðir? Það er hægt að koma þeim öllum fyrir í einni borg. Vera má, að það verði gert. En hitt er augljóst, að möguleikarnir til að byggja ísland allt eru vaxandi. Enn er í óvissu hvort stórborgarstefnan eða lands- byggðarstefnan verði ráðandi í landinu. Það getur veríb gaman að halda áfram að láta sig dreyma inn í framtíðina. Horfa á sí- vaxandi fylkingar óhorinna kynslóða streyma fram á vett vang lífsins hér á þessu ey- landi, þar sem áður bjó dverg þjóð, sem var hætt að vaxa. Miðað við reynslu síðustu 20 ára lætur nærri að mannfjöld- inn tvöfaldist á hverjum fjór um áratugum. Land er hér nóg og náttúr unnar auður lientar starfsamri og stækkandi þjóð. Á árinu sem nú er að líða kemst íbúatala landsins væntanlega yfir 200 þúsundir. Líkur benda til, að barn, sem fæðist í ár — og svo langs lífs verður auðið — verði um nírætt, þegar íhúatalan kemst yfir eina milljón. G.G ÞRIÐJUDAGSGREININ Enn um gæðamat Hr. ritstjóri, í blaði yðar 26. febrúar s.l. er grein á forsíðu, undir fyrirsögn- inni: „Iðnaðarmenn í Hafnar- firði og á Suðurnesjum vilja koma á fót gæðamati." Þar segir orðrétt: „Þetta er ný- mæli, að iðnaðarmannafélag beiti sér fyrir að koma á fót gæðamats- nefnd sem þessari, og kemur þann ig á móts við viðskiptavininn, svo að honum sér tryggt að verkið sé sem bezt af hendi leyst og eins og hann vill hafa það.“ Af þessu tilefni viljum sér vekja athygli yðar á því, að 29. apríl 1965 undirrituðu Félag fsl. raf- ivrkja og Félag löggiltra rafvirkja meistara í Reykjavík, samning um ákvæðisvinnutaxta. f 17. gr. þess samnings eru eftirfarandi atriði: 1. „f ákvæðisnefnd eiga sæti þrlr menn, F.L.R.R. og F.Í.R. nefna hvort um sig einn aðalmann, og annan til vara, til þriggja ára í senn. Félögin leita sameiginlega tilnefningar Iðnaðarmálastofnun- ar íslands á þriðja nefndarmann- inum og skal hann jafnframt_vera formaðurthéfnðarlnnar.11 2. lið e) „Telji nefndin ástæðu til, hefirjhún if5tf !til á(5. rarinsaka eða meta verk;' sem unnin hafa verið.“ g) „Leiki vafi á, að vsrkgæði séu fullnægjandi, og uppfylli kröf ur um vinnugæði, sbr. ..F’yrirsögn um vinnubrögð“, getur ne^ndin látið fara ■ fram athugun á þvi. Lætur hún hlutaðeigandi aðiium í té umsögn sína, ef óskað er.“ 4. „Hejmilt skal rafvirkjum, og öðrum aðilum að leita úpplýsinga og fyrirgreiðslu hjá skrifstofunni innan þeirra takmarka sem nefnd in ákveður í starfsreglum sínum “ Hinum almennu ákvæðum taxt ans Fyrirsögn um vinnuhragð; en þar segiy í upphafi: „Öíl vinna skal uniýn saotMíæmLíteYíöÖMm. reglugerðár úm raforkúvirki og skulu verk uppfylla fyllstu örygg- is kröfu. Eftirtaldir eru hér upptaldir til áð' gefa nokkra nánari skilgrein- ingu á góðum eða a.m.k. viðun- andi vinnuhrögðum og frágangi við raflagnavinnu. Þessir liðir eru ekki tæmandi, en sýna til hvers er ætlast." Síðan koma vinnubragðafyrir- mæli í fjórurn köflum, semtals í 32 Jiðum. Ákvæðisnefndin á að gæta hags- muna allra þeirra aðila, sem hlut eiga að máli, enda er formaður hennar ekki rafvirki, og ekki fjár- hagslega háður félögunum. Nefndin starfar sem gæðamats- nefnd þegar þess þarf með, og byggir mat sitt á hinum skráðu gæðamatsreglum. Menn munu fljót lega átta sicr á, að én slikra regina er mjög eríitt að meta vinnu- gæði, svo ólíkar sem skoðanir manna eru á því hvað telja megi góð vinnubrögð. Framhald á bls. 15.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.