Tíminn - 07.03.1967, Blaðsíða 14

Tíminn - 07.03.1967, Blaðsíða 14
14 TÍMINW ÞRIÐJUDAGUR 7. marz 1967 SKÁKIN Svart-Reykjavík: Jónas Þorvaldsson Hallur Símonarson Gunnlaugur Guðmunrisson, Margeir Steingrímsson. 12. a2—a4 HERCULES FLUG- VÉLINNI BJARGAÐ EJ-'Reykja'vík, m'ánudag. IHercules-flugvélin, sem undan farna daga faefur verið á Græn- landsjökli, lenti í dag í Syðri- Straumfirði á strönd Grænlands. Gekk vel að ná henni upp af jÖkl inum og fljúga faenni til byggða. Stjórnmálafundur á Húsavík Félag ungra Framsóknarmanna á Húsavík boðar til fundar n.k. miðvikudagskvöld kl. 9 í Hótel nautur, mætir á fundinum og ræðir Jónas Jónsson, jarðræktarfáðu- Húsavík. stjómmálaviðhorfið með tilliti til væntanlegra alþingiskosninga. Allir Framsóknarmenn eru vel- komnir á fundinn. ÞORVALDUR GARÐAR — F-sp|tn'< al t)jí . Þorvaldur Garðar neitaði að taka 3. sæti listans og var þá Ásberg Sigurðsson kjörinn i 3. sætið í hans stað. Mikil átök hafa verið um skipun efstu sæta framboðslista Sjálfstæðisflokksins 'í Vest- fjarða^jördæmi. Hefur Mattlhías Bjarnason sótt afar fast að fá „öruggt sæti“ á listanum, en hann var eins og fyrr sagði í 3. sæti listans við alþingis- kosningarnar 1963 og yar þá kjörinn uppbótarþingmaður á broti úr atkvæði. Vildi ’iann tryggja þingsetu sina betur og hefur nú tekizt það á kostnað Þorvaldar Garðars Kristjánsson ar. Við fyrstu atkvæðagreiðslu í fulltrúaráðinu á laugardaginn hlaut Matthías Bjarnason einu atkvæði fleira en Þorvaldur í 2. sætið á listanum. Var þá gert fundarhlé fram á sunnudag og bætti Matthías hlut sinn í hlé- inu og munaði 4 atkvæðum við aðra atkvæðagreiðslu á honum og Þorvaldi. Þorvaldur Garðar neitaði að taka þriðja sætið á listanum og var Ásberg Sigurðs syni sýslumanni á Patreksfirði þá falið að taka sætið. Þegar að loknum þessum úr- slitum munu Þorvaldur og hans rnenn hafa kært þessar kosning ar í fulltrúaráðinu til flokks- stjórnarinnar í Reykjavík á þeim forsendum að nokkrir þeirra, sem úrslitum réðu á fundinum og í Matthíasarliði voru, hefðu ekki atkvæðisrétt skv. lögum flokksins. Ekki er talið líklegt að flokksstjórnin muni úrskurða kosninguna ólög lega en mjög leggur hún nú að Þorvaldi Garðar að taka þriðja sæti listans en Ásberg Sigurðs- son er fús að rýma sætið fáist Þorvaldur á listann. Þorvaldur hafði engann bilbug látið á sér finna er síðast fréttist og svo mikil var harkan í honum og hans mönnum, að enginn Vest- ur-ísfirðingur (Þorvaldur var fyrst kjörinn á þing sem þing- maður Vestur-ísfirðinga) fékkst til að taka sæti á framboðslista flokksins. Að vonum er þetta nú helzta umræðuefni manna á Vestfjörð um og er nú fylgzt með því af nokkrum spenningi, hvort flokksstjórninni í Reykjavík tekst að fá Þorvald Garðar til að taika þriðja sætið á listanum. EFNI ÞÁTTARINS Framtiald al Dl.s . 1) Jóni Thors, deildarstjóra í iheSlbrigðismálaráðuneytinu var af stjórnanda þáttarins boðið að taka þátt í honum til þess að kynna sjónarmið heilbrigðisviir valda og verja þau, ef þyrfti. Hann þekktist ekki boðið. 2) í þættinum kemur fram ör. juris Gunnlaugur Þórðarson, sem gagnrýnir lækna harðlega m. a. fyrir afskipti eða afskiptaleysi þeirra sjálfra af heilbrigðismálum. 3) f þættinum lýstum við á lilutlausan hátt því ástondi, sem nú . ríkir í heilbrigðismálum þjóð arinnar, hvaða hættum það býður heim, hversu áríðandi er, að úr því verðj bætt tafarlaust og með hverjum hætti það skuli gert. Við teljum okltur hafa nokkra raun sanna þekkingu á þessum málum og ef staðreyndir þessara nvála eru árásir á þá aðila, sem áður eru upp taldir, eru lieilbngðismál þjóðarinnar greinilega og því mið ur í enn alvarlegra ástandi en við hefðum þó haldið. 4) Við lýstum viðhorfum ungra lækna. Okkur er legið á hálsj fyr ir vanrækslu og vanþakklæti gagn vart eigin þjóð. Við lýstum á fag legan hátt og með áróðurslausum rökum þeim raunverulegu ástæð- um, er til þess liggja, að ungir læknar fást ekki heim, vilja ekki fara út í héruð o. s. frv. Hér er ekki um óleysanlegt vandamál að ræða og við bentum á lausn þess, sem byggist á að- stöðu lækna til þess að nýta þekk ingu sína og fylgjast með hinum öru framförum á sviði læknisfræð innar. Þetta varðar alla þjóðina og er hvorki harkaleg gagnrýni né árásir. Andsvör yrðu væntanlega fá af hálfu leikmanna, enda óþörf og yrðu af vaniþekkingu einni fram sett. 5) Við fórum auðvitað ekki dult með það, að einhver hlyti að vera ábyrgur fyrir þvi vandræða- ástandi, sem skapazt hefur. Við viljum ekki líta svo á, að þjóðinni FaSir okkar Jón Jóhannsson, húsasmiöur, Efstasundi 31, andaSist aS heimili sinu aSfaranótt *5. þ. m. Börn og fengdabörn. sé svo vanstjórnað, að enginn sé ábyrgur. Við viljum vekja at- hygli á því, að allir þeir aðilar, sem við erum taldir gagnrýna svo harkalega, hafa haft aðstöðu til þess að koma sjónarmiðum sín um í þessum málum á framfæri á opinberum vettvangi og hafa gert það og hreint ekki hirt um, þótt enginn væri til and9vara að hálfu lækna. Læknar hafa svo sannarlega mátt þola óvægilegar yfirlýsingar og túikanir af hálfu þesi.sara aðila og nægir þar að benda á síðustu fjórlagaræðu hæsfcv. fjármálaráðherra. Fullyrð ingar misstórra spámanna . um heilbrigðismál á opinberuin vett vangi eru orðnar æði margar og sumar liæpnar. Það er vanrækslusynd læknanna að bafa ekki sjálfir fyrir löngu tekið af skarið og sagt frá hlutunum eins og þeir eru, en þegar það gerist er skrúfað fyrir þá. Nú hefur mikið vatn runnið til sjávar fró því er meirilhluti út- varpsráðs samþykkti að „fresta" þættinum. í öllu því flóði dag- blaðaskrifa, sem orðið hefur, mó greina hinar raunverulegu ástæð ur fyrir frestun þáttarins. Við vilj um í því sambandi vekja afchygli á eftirfarandi: í Mbl. 4. marz s. 1. er viðta'l við Jóihann Iíafstein, heilbrigðismála- ráðherra um afskipti hans af út varp9þætlinum, sem hann viður- kennir og segir m. a.: „Ég var strax þeirrar skoðunar, að kjara- mál lækna væru viðkvæmari en svo, að þau ættu að ræðast í slíkum útvarpsþáttum . . . og síð ar . . . þessa skoðun mína lét ég í Ijós við úfcvarpsráð án þess ég vissi nokkuð um, hvað í þessum fyrirhuigaða þætti yrði sagt.“ Það kemur glögglega fram í viðtalinu við ráðherrann, að með orðinu kjaramál á hann við Iaunamal sér staklega. Rétt er að benda ráð- herranum á, að launamál Iækna voru ekki rædd í þættinum a. ö. 1. en því, að formaður Læknafélags Reykjavíkur sagði, að hann teldi laun Iækna nægjanleg eins og á stæði. Vart ætti það að vera rík- isstjórninnj óhagstætt. Eftir við talinu við ráðherrann að dæma, var því ekki ástæða til að fresta þættinum og vonandi, að ekki hafi átt sér stað neinn misskilningur milli hans og manna hans í út- varpsráði. Hins vegar er greinilegt, að ráðherrann þekkir sitt hús- bóndavald og annmarka þess lýð ræðis, er mest er hampað á tyllidögum. Öllu alvarlegri er önnur i'rá sögn Mbl. af frestun þáttarins, sem birtist sama dag og viðtalið við ráðherrann. Þar segir: Fyrirsögn: Launaður erindreki Framsóknar- flokksins reynir að misnota Rík- isútvarpið og síðar segir í grein inni: „Á fundi úfcvarpsráðs i fyrra dag var samþykkt að fresta þætti fyrrgreinds erindreka Framsókn- arflokksins, en í honum var rætt um heilbrigðismál á mjög ein- hliða hátt og sérstaklega um kjaramál lækna“ . . . og enn segir: „. . . því auðvitað eiga öll sjónarmið rétt á að koma fram í útvarpi, en ekki aðeins þau, sem erindreki Framsóknarflokksins tel ur sér henta.“ Þessi skrif eru vægast sagt óheiðarleg. Ileilbrigðismál þjóð- arinnar eru dregin niður í hið póli tíska svað og hlutlaus lýsing á ástandinu talin erindrekstur á- kveðins stjórnmálaflokks. Þetta er vítavert og ábyrgðarlaust. Við hljótum einnig að fordæma þær árásir, sem stjórnandi þáttarins, Ólafur R. Grímsson, hefur orðið fyrir. Hann gerði engar tilraunir til þess að koma fram flokkssjón armiðum og gerði raunar allt til þess, að gagnrýni sú, sem t’ram kom, væri sem mildust. Við telj- um hann hafa unnið starf sitt sem hlutlaus spyrjand- ug lítt geta ráð ið við allt það, sem fram hlaut I að koma. Sigurður Bjarnason, alþm., er einn ritstjóra Mbl. Hann á einnig sæti í útvarpsráði og gekkst fram í því að þættinum yrði frestað. 'Hann hlýtur sem ritstjóri að vera ábyrgur fyrir skrifum blaðs síns.j Hann hefur enga tilraun gert til þess að leiðrétta þau. Megi af því dæma sanngirni hans og víð- sýni þykir okkur illa farið. Við viljum að lokum segja þetta. Okkur þykir mjög miður far ið og óskiljanlegt, faverja af- greiðslu þáttur okkar fékk hjá meirihluta úfcvarpsráðs. Við 'höfum okkar skoðun á því, hvernig túlka ber þau vinnubrögð, og að hverju er með þeim vegið í lýðræðisþjóð félagi. Hitt er þó sorglegast og veitir nokkra innsýn í pólitíska siðfræði, að efni þáttarins skuli vera talinn pólitískur áróður. Það er fulUangt gengið, að lýsing lækna á hejlbrigðismálum ásamt tiUögum þeirra til úrbóta skuli vera talin árás á einn flokk og erindrekstur fyrir annan. Við viljum trúa því, að heil 'brigðism'álaráðherra og aðrir for ysfcumenn heilbrigðismála vilji koma þessum málum í gott horf. Afskipti heilbrigðismálaráðherra af þættinum kemur okkur raunar á óvart, þar sem hann hefur frem ur fyrirrennurum sánum leitast við að eiga gott samstarf við læknasamtökin um heilbrigðismál. Við erum ekki þeirrar skoðunar, að alger þögn um þessi mál, að- stöðu og viðhorf muni hjálpa ráða mönnum bezt. Miklu fremur mætti ætla, að umræður þeirra, er gerzt þekkja af eigin raun, yrðu þeim vopn í baráttunni. Við teljum því, að frestun þátt arins vegna þess, að enginn var til andsvara sé misskilinn greiði við þá, sem verja átti og heil- Ibrigðismálum þjóðarinnar sízt til gagns.“ MAROKKÓBÚI Framhald af bls. 1 á frumstigi í dag og voru miklar og langar yfirheyrsl- ur. Marokkóbúinn mun hafa barið stúlkuna áður, en hann þá hótað henni öllu illu ef hún kærði hann. Á laugar- daginn kærði svo faðir stúlk unnar mann þennan fyrir líkamsárás á sfcúlkuna, en hún hafði m.a. farið úr kjálkaliðnum. Lögreglan handtók svo Marokkóbúann og hafa yfirfaeyrslur staðið í máli hans í dag. Maður- inn hefur verið úrskurðaður í gæzluvarðhald á meðan mál hans er í rannsókn. ÓVÍST UM BJÖRGUN Framivi' ! jt bls. 2 þeim afleiðingum að það brotnaði og vængurinn lagðist niður á hjólið. — Hvernig var vistin í veð urafchugunarstöðinni? — Það var ekkert undan henni að kvarta, því við höfð um það alveg ágætt í mat og öllum aðbúnaði. Þarna er sér stakur matsveinn, og furðan lega mikil fjölbreytni í mat, villibráð meðal annars. — Stunduðuð þið veiðar þarna? — Jú við fórum á rjúpna- skytterí, og höfðuin nokkrar rjúpur. en það er misskiluing ur sem .komið hefur fram að við höfum skotið þarna bjarn dýr eða moskuxa. Aftur á móti var nýbúið að skjóta bjarndýr þegar við komum, og fjórir veðurafchugwnarma’in anna voru í veiðiferð er vjði komum, og komu úr henm dagj inn sem við fórum frá Dan' markshavn. Þei-r fara í veiði- ferðir öðruhvoru til að afla sér villibnáðar, og hafa veiði- kofa á nokkrum stöðum. f þessar veiðiferðir fara þeir á hundasleðum. — Voruð þið þá rneð skot vopn með ykkur? —■ Nei við fengum byssur lánaðar til að fara á skytterí, en aftur á móti höfum við alltaf með okkur stóra og mikla riffla í Grænlandsferð- nar í því tilfelli að við þyift um að nauðlenda, og arnað hvort verja okkur gegn 's- björnum eða afla okkur mat ar. — Eru sömu mennirn’r lengi í einu í veðurathugunar stöðinni? — Það er nú misjafut held ég, en þrír menn voru með o’kkur í vélinni þegar óhappið varð, og áttu þeir að leysa þar af. Þá var í veðurafchugun arstöðinni maður sem hefur þann starifa með höndum að fara á hundasleða meðfram ströndinni, með vissu milli- bili, og mun það vera í þeim tilgangi að Danir haldi land- inu. Þessi maður var í einni slfkri yfirreið í endaðan nó- vember, er það óhapp henti að hundasleðanum hvolídi yfir manninn í um 20 km. fjarlægð frá veðurat.hugunar- stöðinni í Danmarkshavn. Sleð ar sem þessir eru á annað hundrað kiló að þyogi ng tókst manninum að veita sleð anum ofan af sér. Og það sem meira er hann xomst til veðurathugunarstöðvsr- inanr, þar sem í ljós kom að hann var fótbrotinn, en veður afchugunarmennirnir gerðu að brotinu. Hann var orðinn það hress núna að hann gekk með okkur á skytterí. í dag unnu þeir að skýrslu gerð um skemmdífcnar á Gló- faxa 'sem fórtí séfstaklega til að afihuga þær. fjr enn óvíst um hvort flugvéiinni verður bjargað, en björgunarleið- angur yrði geysidýr og erfiður. Er á'kvörðunar um hvað gert verður í málinu, að vænta á morgun eða næstu daga. GIó faxi hefur verið í eigu Flug- félags íslands i um tuttugu ér og búin að leysa mikið og gott verk af hendi á þeim tíma, eins og aðrar flugvélar af þessari gerð sem Flugfélagið 'hefur starfrækt. AUKIÐ VALFRELSI Framhald af bls. 2. nr. 70, 28. apríl 1962, um te.kju- og eignaskatt: I. Stofnliánasjóðsinnstæður j samvinnufélögum og mjólkurbú- um, framlög til þeirra, svo og vextir verði skattfrjálst, eins og sparifé. n. Hamarksákvæði 3. gr. laga frá 28. apríl 1962 um frádrátt frá tekjum vegna vinnu eiginkvenna bænda við búrekstur verði afnum ið. Á fundi Búnaðarþings urðu miklar deilur um afgreiðslu álykt unar frá Búfjárræktarnefnd varð andi útrýmingu á hringormasýkli. Afgreiðslu málsins var frestað, því sumir búnaðarþingsfulltrúar kröfðust þess, að fyrir iægi álit yfirdýralæknis varðandi aðgerðjr í þessu máli. Næsti fundur Búnaðarþings er í dag kl. 9.30. COLFTEPPI WILTON TEPPADREGLAR TEPPALAGNIR EFTIR MÁLI iLaugavegi 31 - Simi 11822.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.