Tíminn - 07.03.1967, Qupperneq 13

Tíminn - 07.03.1967, Qupperneq 13
ÞRIÐJXJDAGUR 7. marz 1967 ÍÞRÓTTIR TÍMINN 13 Arnór GuSbjartsson, slgurvegari b-flokki. 3. deildar liö sigraöi í bikarkeppni deildaliöa! í 1. deild náðí Liverpool aftur forystu með því að sigra Stoke Ármenningar sigursælir Reykjavíkurmótinu í svigi var fram haldið um helgina og þá keppt í b og c flokki karla, drengjaflokki og telpnaflokki. Ár- menningar urðu sigursælir og unnu í öllum flokkum. Keppnin fór fram í Hamragili, en upphaf lega hafði verið ráðgert, að hún færi fram við Skíðaskálann í Hveradölum. Þegar til kom, var lítffl snjór þar, svo flytja varð mótið- Umsjón mótsins var í höndum Skiðaráðs Reykjavíkur og var Þór ir Lárusson, formaður ráðsins, mótsstjóri. Leifur Gíslason, skíða maður úr KR lagði brautina, sem var erfið, og þurfti þó nokkra kunnáttu til að komast hana niður. Hörðust var keppnin í drengja flokki milli þeirra Tómasar Jóns sonar Árm. og Haralds Haraldsson ar ÍR. f fyrri umferð hlaut Har- aldur Haraldsson tímann 26,8 sek- en Tómas 26,9 sek. f síðari um- ferð fékk Haraldur 26,5 sek., en Tómas ,keyrði“ af miklum hraða og öryggi og náði 24,4 sek. Með því hlaut hann sigur í drengjafl. Reykjavíkurmótsins. Hér á eftir fara úrslit í einstök um flokkum og getið um saman lagðan tíma B. fl. karla 41 hlið, 205 m. löng fallhæð. Arnór Guðbjartsson Á 85,8 Ágúst Björnsson ÍR 102,8 C. fl. karla 36 hlið 180 m. löng fallhæð 115 m. Bergur Einarsson Á. 79,7 Bragi Jónsson Á 81,5 Jóh. Jóhannss. Á 97,4 Drengjafl- hlið 28, 130 m löng og fallhæð 90 m. Tómas Jónsson Á 51,8 Haraldur Haraldss. ÍR 53,3 Þórarinn Harðarson ÍR 85,2 Telpnafl. Áslaug Sigurðard. Á 69,3 Auður Harðardóttir Á 75,1 Jóna Bjarnadóttir Á 94,5 Hundrað þúsund áhorfendur sáu þriðju deildar liðið Queens Park Rangers (fyrsta atvinnuliðið, sem lék hér á íslandi) sigra í bikar- keppni ensku deildaliðanna á Wembley-leikvanginum á laugar- dag, 3-2, í hörku skemmtilegum leik við WBA úr 1. deild og sigur vegara í þessari keppni í fyrra. Þetta er í fyrsta sinn, sem úr- slitaleikur í þessari keppni er hóður á Wem'bley, og það leit sannarlega ekki vel út fyrir QPR eftir fyrri hálfleikinn. Útherjinn Clark, sem QPR seldi til WBA fyrir sex árum, hafði þá tvívegis skorað fyrir lið sitt, og útlit var fyrir stórsigur 1. deildar liðsins. En taflið snérist við í síðari hálf- leik, og QPR réði þá alveg gangi leiksins. Fljótlega tókst þeim Morg an og Marslh að jafna — og átta mín. fyrir leikslok skoraði Lazar us sigurmarkið við gífurlegan fögn uð áhorfenda sem að miklum meiri hluta héldu með QPR, enda liðið frá Lundúnum, auk þess sem Bret ar eru þekktir að halda með þeim sem þeir álíta „minni máttar.“ Sigurvegarar í þessari keppni leika fyrir Englands hönd í borg- arkeppni Evrópu, þó með því skilyrði, að liðið sé annað hvort í 1. eða 2. deild. QPR leikur í 3. deild — og er þar langefst — og ætti því að geta uppfyllt það skilyrði, þar sem allar líkur eru á, að liðið verði í 2. deild næsta keppnistíimabil. Liverpool náði aftur forustu í 1. deild á Englandi á laugardag inn með því að sigra Stoke 2-1 á Anfield Road, en Maneh. Utd. lék í Lundúnum á föstudagskvöld við Arsenal og gerði jafntefli 1-1. Á- horfendur voru 63 þúsund — eða 10 þús fleiri, en á nokkrum leik hjá Arsenal í vetur. Arsenal skor aði úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik en Aston jafnaði fyrir United — !og síðari hálfleikur var líkari I hnefaleikakeppni en knattspyrnu- : leik. Úrslit á laugardag urðu annars þessi. 1. deild Aston Villa—Tottenham 3-3 Blackpool—Nottm. Por. 1-1 Ohelsea—Fulham 0-0 Leicester—Everton 2-2 Maneh. City—Burnley 1-0 Southampton—Leeds 0-2 Sunderland—Newcastle 3-0 2. deild Blackburn—Birmingham 1-0 Framhald á bls. 12. Rvíkurmótið í badminton Reykjavíkurmótið i badmin- ton fer fram í Valshúsinu 18. og 19. marz. Þátttöku ber að til- kynna til Kristjáns Benjamins- sonar í síðasta lagi fyrir 14. þ.m. í síma 24368. Birgir Jakobsson undr körfunni. Til vinstri er Einar Bollason, sem skora'ði flest stig fyrir Reykjavík. Óvænt úr- slit í 1. deild kvenna Alf — Reykjavík. Mjög óvænt úrslit urðu f leikjum 1. deildar kvenna í hand-, knattleLk, sem háðir voru á sunnud. Fram gerði jafn- tefli við Rjvíkur- og íslands- meistara Vals 7:7, í jöfn- um leik, og er þetta í fyrsta skipti í langan tíma sem Val ur tapar stigi. Fram-stúlkurn ar með Geirrúnu Theódórs- dóttur í broddi fylkingar, náðu í byrjun 3-0 forskoti, en í hálfleik var staðan 4-3 Fram í vil. f síðari hálfleik jöfnuðu Valsstúlkurnar og komust tvívegis yfir, en leiknum lauk 7-7, eins og fyrr segir. Má segja, að það hafi verig sanngjörn úrslit eftir gangi leiksins. Sóknar leikur Vals var slakur og vantaði allan hreyfanleika. Skoraði Valur aðeins 2 mörk úr langskotum e® 3 úr skyndiupphlaupum og 2 af línu. Sigrún skoraði 4 mörk, Erla 2 og Ragnheið ur 1. Hjá Fram var Geirrún virkust og skoraði 4 mörk. Svandís skoraði 2 og Hall- dóra 1. Helzti keppinautur Vals um fslandsmeistara.titilinn, Framhald á bls. 12 J Varnarliðsmenn séttu sig und- ir iokin en tókst ekki að jafna Alf.-Reykjavík. — Rcykjavíkur- liðið í körfuknattleik sigraði úr- valslið varnarliðsmanna af Kefla- víkurflugvelli 54:51 í leik sem háður var á sunnudaginn. Allan tímann var Reykjavífeur-IiðiJ sterkari aðilinn og hafði forustu. Staðan í hálfleik var 31:21, en undir lokin sóttu varnarliðsmenn sig og tókst að minnka bilið nið ur í 3 stig, 52:49. Þá hafði Helgi Jóhannsson, landsliðsþjálfari, hald ið Einari Bollasyni, Agnari Frið rikssyni og Gunnarj Gunnarssyni, út af og gefið yngri leikmönnuni tækifæri til að reyna sig. Þetta kom ekki að sok og urðu lokatölur 54:51. í rauninni þurfti Reykjavíkur-liðið ekki að leggja mikið á sig til að vinna. Lið Frambald á bls. 12. Erm einu sinni er ísland sett i riðil með austantjalds-landi íslenka unglingalandsfiðið í knattspyrnu í riðli með Pólverjum og Svíum Alf-Reykjavík. — Samkvæmt upplýsingum, sem íþróttasíðan fékk hjá Björgvini Schram, for- manni Knattspyrnusambands ís- lands, mun ísland taka þátt í Norðurlandamóti unglinga, sem háð verður í Finnlandi í júli n.k. Er þetta í þriðja sinn, sem ís- land tckur þátt í keppninni, og jafnframt er þetta i þriðja sinn, sem ísland er sctt j riðil með austantjalds-landi í keppninni. Sá háttur hefur verið hafður á, að Norðurlöndunum 5, þ.e. Dan mörku, Svíiþjóð, Noregi, Finn- landi og íslandi, hefur verið skipt í tvo riðla, og til þess að fylla upp í annan riðilinn hefur einu austantjalds-landi jafnan verið boðin þátttaka. í fyrsta skipti var Rússum boðin þátttaka og lenti ísland þá í riðli með þeim og Dönum. í annað skipti var 'Pólverjum boðin þátttaka og lenti ísland í riðli með þeim og Svíum. Og í þriðja skipti, þ.e. í keppn inni, sem fram á að fara í ár, ] er ísland enn setl í riðil með ;austantjalds-landi. Pólverjar sig‘ urvegarar j síðustu keppni, verða aftur með nú, og er ísland í riSIi með þeim og Svíum. Björgvin Sdhram sagði, að KSÍ hefði gert athugasemd út af bessu enda ekki einleikið, að ísland lendi alltaf í riðli með sterkustu Iþjóðunum. Fyrir bragðið hefur Island ekki enn leikið gegn Finn um og Norðmönnum í keppninni. tr&OatiSr--

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.