Tíminn - 19.03.1967, Blaðsíða 4
16
TÍMINN
SUNNUDAGUR 19. marz 1967
f hænungana þarf þykkan telknipappír og fyrir hvern unga klipp-
ið þið tvo helminga. Vængirnir og fæturnir eru beygðir út á við,
en að öðru leyti eru hlutarnir límdir saman. Kambinum sem má
vera úr rauðu fflti, er stungið inn á milli. Augað er teiknað með
svörtu bleki eða lit og síðan er unginn litaður gulur og kamburinn
hárauður, ef þið hafið ekki átt rautt fflt. Eggiaskurnirnar mega
vera f öllum regnbogans iitum. Þessa unga er líka hægt að klippa
út úr efni og sauma saman að ofan og nota sem eggjvermi, en
þá verða þeir auðvitað að vera það stórir að þeir komist utan yfir
eggíð i eggjabikarnum.
☆
★ *
ÖRN RAUÐI SEGIR FRÁ:
HVERNIG FÉKK SKJALD-
BAKAN SKJÖLD SINN?
_ „Ég er þreyttur og svangur.
Ég þarf að fá mér eittlhjvað
að borða,“ sagði Manaboaho
við sjálfan sig og gekk í áttina
að tjaldlbúðum einum. Fyrir
framan eitt tjaldið iá lítið
Indíánabarn með augu eins og
svartar perlur og tinnusvart
hár. Barnið lá á bakinu og lék
sér að því að stinga tánum á
sér upp í munninn. Manaboaho
' hló og hló. Hann hafði aldrei
séð barn sjúga á sér tærnar
fyrr og honum fannst mikið til
um, hve barnið var liðugt.
Hann hugsaði: „Þetta er
skemmtilegur leikur. Ég get
alilt, sem aðrir geta. Ég ætla
að leika þetta eftir.“
Hann settist hjá barninu og
tók af sér vinstri fótar skóinn.
Hann reyndi að koma stóru
tánni upp í munninn, en hann
var of stirður í hnjánum og
fótunum. Hann reyndi aftur og
aftur og í tilraunum sínum
datt hann aftur á bak og meidii
sig í höfðinu um leið. Hann
néri aumt höfuðið um stund,
en byrjaði svo á nýjan æik.
í þetta! sinn reyndi hann að
koma stórutá hægri fotar upp
í munninn, en það ge.ek engu
betur. Manabozího var svo feit-
ur og klunnalegur, að hann
valt um koll hvað eftir annað.
Indíánabarnið horfði á Mana-
bozho stórum augum og þótti
þetta athæfi auðsjáanlega mjög
kostulegt, því að barnið skelli-
hló.
Manaboziho reiddist mjög og
setti á sig skóna í skyndi og
flýttir sér á brott. Hann var
reiður, því að bæði var hann
sársvangur og honum gramd-
ist auk þesis mjög að geta ekki
leikið það. eftir, sem smábarn
var fært um að gera.
Hann haltraði áfram, stirður
Framhald á bls- 23.
* *
ÚR NÁTTÚRUGRIPASAFNINU í NEW YORK
PÁSKAFÖNDUR
Þessi mynd er tekin í miklu
náttúrufræðisafni í New York
borg. Á miðju gólfi í salnum,
á upphæfckuðum paili, stendur
fíláhjörð. Þetta eru Afríku-fíl
ar, og þegar við horfum á
myndina, sjáum við, að þ-jir eru
á flótta undan einhverri ósýni-
legri hættu. Ungfílarnir eru í
skjóli við eldri fílana og stærstu
02 sterkustu . fílarnir reka lest-
Við getum Öll hlakkað til
þess, að Náttúrugripasaín ís-
xands opni sýningarsali sína.
Þótt við fáum ekki að sjá þar
fílahjarðir eins og 1 mörgum
söfnum erlendis, verður þar
mjög margt fróðlegt að sjá.
Sjón er sögu ríkari og óneit-
anlega er skemmtilegra að sjá
undur náttúrunnar en lesa um
ina, reiðubúnir að snúaast tii
varnar.
Úti við veggina sjáuro vii
stóra sýningarkassa, þar sen
ýmsum dýrum er komið fyrii
með sitt eðlilega umhverfi
baksýn, allt svo lisdlega gert
að gestir safnsins bíða oft efth
að sjá einhverja hreyfingu i
dvrunum.
Páskarnir eru alveg á næstu grösum og þið verðið að láta hendur
standa fram úr ermum til þess að eiga eitthvað til að skreyta með
páskaborðið eða i herbergið ykkar.
Þessi hænungaórói er búinn til úr teiknipappír, mjóum trépinn-
um eða vír og nælonþráð eða tvinna. Þið litið ungana auðvitað gula
og ef þið búið svo vel að eiga perlur í augun og pallíettur í væng-
broddana verður óróinn auðvitað enn fallegri.
BARNA-TIMINN
Verðlaunakeppni Barna-Tímans
Á sunnudaginn var hófst
verðlaunasamkeppni Barna-
Tímans „Teiknið pabba og
mömmu".
Vegna þess, hve erfitt er
um samgöngur víða utan af
landi þessa dagana, verður
fresturinn til að skila teikn
ingum framlengdur til
5. apríl. Úrslit verða þá birt
í blaðinu 9. apríl. Þið megið
senda fleiri en eina teikn-
ingu, litaðar eða ólitaðar. —
Sjálfsag-t getið þið fengið
leyfi hjá teiknikennaranum
ykkar til þess að vinna að
myndinni í teiknitíma, en
ef þið þurfið að fá hana
endursenda, þá munið að
faka það fram. Utanáskrift
in er: Barna-Tíminn, Dag-
blaðinu Tímanum, Reykja-
vík.
Frímerkjaverðlaun
'Fyrir ráðningar á gátum i
Barnatímanum 12. febr. hlutu:
Hannes Ólafsson, Auðsvaðsholti,
Landi, Rang.
Tryggvi Axelsson,
Elísabet Þórarinsdóttir,
Vogsósum, Selvogi Árnessýslu
Randver Ásgeir Elísson
Randversstöðum, Breiðdal,
S.-Múlasýslu.
Kletti v. Kleppsveg, Rvík.
I.,
iTSfSð