Tíminn - 31.03.1967, Page 5
FÖSTUDAGUR 31. marz 1967
TIMINN 5
Miðvikudaginn 22. marz s. 1.
bauð stj'órn KEA fréttariturum
blaða, sjónvajrps og hljóðvarps á
sinn fund, ásamt fjölda gesta, m.
a. Ingólfi Jónssyni landjbúnaðarráð
herra, Svanibirni Frímannssyni
bankastjóra og fulltrúnm frá SÍS.
Opnunin hófst með kynningarferð
um Kj ötvinnslustöðina, undir leið
sögn Einars Sigurðssonar kjötiðnað
armeistara, leiðbeindi hann og út
skýrði fyrir viðstöddum hinar fjöl
breyttu vinnstovélar og hvernig
þáer breyttu hráefninu í neytenda
vörur. Þá voru skoðaðir frysti- og |
kæligeymslur, reykofnar og hið I
fulkomna loftræstingakerfi. Kjöt!
iðnaðarstöð KEA er stærsta og j
bezt búna fyrirtæki sinnar tegund :
ar hérlendis og stenzt fyllilega sam j
anburð við þekktar erlendar kjöt-;
vinnslustöðvar. Bygging stöðvar- i
innar hófst 1963 og va r að fullu I
lokið 1967. Vinnsla hófst í október
s. 1. og hefur síðan verið unnið að
því að koma henni í fu'llan gang, j
bæði hvað snertir vinnslu og dreif i
ingu.
Svanbjörn Frimannsson, Jakob 'Frímannsson og Sigurður O. Björnsson.
KJÖ TIÐNA ÐA RS TÖÐ LANDSiNS
Að lokinni skoðun stöðvarinnar
var boðið til hádegisverðar að Hót
el KEA. En þar voru eingöngu á
boðstólum kjötvörur frá hinni
nýju kjötvinnslustöð. Mjög glæsi-
legt borð. Jakob Frímannsson,
kaupfélagsstjóri flutti stutt á-
varp, útskýrði ýmis atriði varð
andi rekstur og fyrirkomulag nýju
stöðvarinnar, sagðist hann vona
lað landsmenn tækju þessu nýja
fyrirtækd vei, yrðu duglegir við
!að kaupa vÖrur þess og styrkja
þannig rekstrarmöguleika þess.
Að loknu ávarpi kaupfélgasstj.
var hrópað ferfalt hurra til heilla
kjötv.st.
Þá tók til máls landbúnaðarmála
ráðherra Ingólfur Jónsson, óskaði
hann hinu nýia fyrirtæki velfarn
aðar og fór viðurkenningarorðum
um starfsemi KEA og hinna blóm
legu byiggða urruhverfis Akureyri.
Þá töluðu Valgarður Baldvinsson
settur bæjarstjóri, Kristinn Þor-
steinsson deiidarstjóri, Guðmund-
ur Ketilsson deildarstj. og Jóhann
Þorkelsson héraðslæknir.
Bygging Kjötiðnaðarstöðvar
KEA hófst haustið 1963 og var í
ársbyrjun 1967 að fullu lokið. Byrj
að var að vinna á staðnum um
miðjan októher s. 1.
Kaupfélag Eyfirðinga hóf rekst-
ur Pylsugerðar 1934 í samhandi
við kjötbúð félagsins. Fyrir 17
árum flutti Pylsugerðin í húsnæði
það í Grófargili, er hún hefir fram
til þessa haft tíl umráða, en mörg
hin síðari ár hefur allri starfsemi
hennar þar verið svo þröngur
stakkur skorinn, vegna húsnæðis
skorts og takmarkaðs vélakosts, að
hún gat hvergi nærri fullnægt eft
irspurn á flestum af framleiðslu-
vörum sínum og því síður aukið
fjölbreytni þeirra að ráði. Ýar því
bygging hinnar nýju Kjötiðnaðar
stöðvar knýjandi nauðsyn til hag
ræðis bæði fra-mleiðendum og
neytendum.
Verksmiðjubyggingin, sem er
gerð úr strengjasteypu, er 1800 fer
metrar að stærð eða 10000 rúm-
metrar. Byggingin er að mestu á
einni hæð, þar sem öll vinnsla fer
fram, en á efri hæð er vélasalur
fyrir loftræstingar-, frysti- og
rafmagnskerfi auk umbúða-
geymslna. öll gólf eru flísalögð
svo og veggir upp í 1,8 m. hæð.
Allt húsnæðið er mjög bjart og
vistlegt, enda miðað við ströng-
ustu hreinlætiskröfur til matvæla
iðnaðar.
Allt skipulag og flestar teikn-
ingar af Kjötiðnaðarstöð KEA
eru gerðar af danska verkfræði-
fyrirtækinu N. E. Wernberg, sem
hefir um langt árabil unnið að
skipulagningu og teikningu kjöt-
| iðnaðar- og matvælamiðstöðva víða
| um heim, en mikið af teikningun-
■ um var síðan nánar útfært hér á
Akureyri. Má þar einkum tilnefna
hústeikningar eftir Mikael Jó-
hannesson, allt rafkerfi hússins,
seni var teiknað og skipulagt af
Aðalgeir Pálssyni, rafm.verkfræð-
ingi og Magnúsi J. Kristinssyni,
rafvélavirkjameistara, en hinn síð
amefndi var eftirlitsmaður með
ölium raflögnum fyrir hönd KEA,
Einar Sigurðsson sýnir Ingólfi Jónssyni, landbúnaðarráðherra, vinnslusalinn.
' vatns- og gufulagnateikningar frá
j teiknistofu Sig. Thoroddsen og
; frumteikningar af lofthitunar- og
i kælikerfum eftir Pétur Valdiimars
' son.
; Byggingarframkvæmdir, þ. e.
j allt múr- og tréverk, annaðist
! Dofri h. f., Ljésigjafinn h. f. sá
! um allar raflagnir, Jón A. Jónsson,
j málarameistari, annaðist málningu,
Vélsmiðjan Oddi h. f. ásamt Sam-
einuðu verkstæðunum Marz h. f.
sáu um uppsetningu allra véla,
tækja og loftræstingarkerfa undir
stjórn Péturs Valdimarssonar,
framkv.stj., sem og hafði tæknium
sjón með verulegum hluta verks-
ins. Pípulagninganmeistararnir Ól-
afur Magnússon og Jónas Jóhanns
son sáu um vatnslagnir. Ýmsir aðr
ir aðilar hafa og komið við sögu
byggingarinnar. Eftirlit fyrir kaup
félagsins hönd annaðist Stefán
Halldórsson, byggingkrmeistari.
Auk véla úr gömlu Pylsugerðinni
er Kjötiðnaðarstöðin búin nýjum
vélum og tækjum af fullkomnustu
gerð, aðallega frá Danmörku og
Þýzkalandi, og má þar nefna hrað
hakkara, pylsusprautu, hakkavél-
ar, áleggsskurðar-, og „vacuum“
pökkunarvél heitreykingar- og
kaldreykingarofna auk ýmsra nið
ursuðuvéla. í stöðinni er mjög
fullkomið loftræstingar- og hitun
arkerfi, sem teiknað var og fram
leitt að hluta af Nordisk Ventilat
or A/S í Danmörku, auk frysti-
og kælikerfis, en mjög rúmgott
kælirými er í stöðinni fyrir unnar
og óunnar vörur.
Pvisueerðin hefir svn sem
kunnugt er, framleitt margskonar
varning úr kindakjöti, stórgripa
kjöti og svínakjöti, svo sem ýms
ar tegundir af pylsum og bjúgum,
margar tegundir af áleggi bæði úr
nýju kjöti og reyktu auk niður
suðuvarnings. Kjötiðnaðarstöðin
mun halda áf-ram allri þessari
framleiðslu og auka fjölbreyttni
hennar simátt og smátt. En mest
framleiðsluauknin-g er samt fyrir
huguð á niðursuðuvörutn, en þeirxi
framleiðslu hefir ekki til þessa
verið mögulegt að sinna sem skyldi
vegna slæmrar aðstöðu. Kjötiðnað
arstöðin mun framleiða eftirtald
ar vörur niðursoðnar: Bæjara-
bjúgu, smásteik, nautakjöt, kinda
kjöt, kjötbúðing, svið, steikta Iifur,
lifrakæfu og kindakæfu, en einnig
á þessu sviði fara fram frekari at
huganir, t. d. með niðursuðu á
slátri. Mjög hefir verið vandað til
allra umbúða t. d. niðursuðuvarn
ings, þ. e. vörumiðanna, setn
munu vera með því glæsilegasta
sinnar tegundar hér á landi. Út-
lit óg prentun þeirra annaðist
Prentverk Odds Björnssonar, en
um uppsetningu þeirra sá Kristján
Kristjánsson, forstöðumaður
Teiknistofu POB með aðstoð ljós
mynda auglýsingadeildar danska
samvinnusambandsins í Kaupm.h.
Einnig sá Teiknistofa POB um út-
lit „vacuum“ umbúða o. fl. Þá
mun Kjötiðnaðarstöðin annast
dreifingu á öllum kjötvörum, eggj
um og grænmeti til allra matvöru
verzlana kaupfélagsins bæði bér
í bænum og út með firðinum, á
sama hátt og Pylsugerðin áður.
Markaður Pylsugerðarinnar hefir
til þessa að mestu verið á Norður
og Austurlandi en með þeirri stór
auknu framleiðslugetu, sem nú
er fyrir hendi, verður lögð á-
herzla á að koma framleiðsluvör
um Kjötiðnaðarstöðvarinnar sem
víðast um land.
Danskur pylsugerðar- og niður-
suðumeistari, Kurt Strand, hefir
verið ráðinn um nokkurra mán-
aða skeið sem ráðunautur um
framleiðsluaðferðir, nýjar fram-
leiðslugreinar og vörugæði. Hin
nýja Kjötiðnaðarstöð verður und
ir yfirstjórn Hau-ks P. Ólafsgonar,
slátur- og frystihússtjóra, en kjöt
iðnaðarmeistari er Einar Sigurðs
son. Starfsmenn stöðvarinnar eru
um 30 talsins.
Er þess að vænta, að með bygg
ingu þessarar stærstu og nýtízku
legustu kjötiðnaðarstöðvar lands-
ins, megi takast að framleiða vör
ur á borð við það bezta, sem fram
leitt er erlendis. Hér á Akureyri
höfum við jafnan viðurkennt ágæt
is kjöt, hvort sem er kindakjöt,
nauta- og kálfakjöt eða svínakjöt
og með þeim vélakosti og húsnæði,
sem nú er fullbúið, ásamt reynslu
vel menntaðs og öruggs dansks
sérfræðings, treystum vér því, að
áður en langt líður verði fram-
leiðsluvörur verksmiðjunnar komn
ar á matborð a-lls þorra neytenda
í landinu.
Kaupfélag Eyfirðinga.
FJÖUOJAN • ÍSAFIRÐI
5ECURE
EINANGRUNARGLER
KlMJVl AKA AHYRGÐ
Söluumboð'
SANDSAI.AJ\ s.f.
Elliðavo0 115,
slmi 30120. pósth. 373