Tíminn - 31.03.1967, Qupperneq 14
FÖSTUDAGUR 31. marz 1967
TÍMINN
RAUFARHÖFN
Framihald af bls. 2
þessi völlur hefur nú komið í
góðar þarfir. Tiltölulega lítill
snjór var á vellinum.
Flugvél frá Norðurflugi lenti
á vellinum í dag og var ferð
hennar í beinu sambandi við
flug til Akureyrar fná Reykja-
víik. Er ætlunin að ferðir verði
tvisvar í viku í sambandi við
ferðir að sunnan, meðan snjór
er á nýja flugivellinum.
Samgöngur á landi hafa að
sjálfsögðu legið niðri nú um
lanigan tíma og samgöngur á sjó
eru strjálar að því er okkur
hér fyrir norðan finnst. E'sjan
kemur líklega ekki til okkar
fyrr en í sumar, þegar við höf-
um ekkert við hana að gera.
í dag er fyrsti dagurinn, sem
verulega bjart og gott er um
mánaðartíma. Mikill snjór er
yfir öUu og svo mikiU snjór á
söltunarstöðunum, að erfiðleik-
um er bundið að koma afgangin
um af saltsíldinni frá söltunar-
stöðvunum og um borð í skip.
Snjómoksturstæki eru hér hálf
léleg, og þar sem snjórinn er
orðinn harður og samanbarinn
verður erfiðleikum bundið að
koma þessum síldartunnum um
borð í skip.
8 ÓLÖGLEG
t •amhaJO aí bis. 16
sektir. Sagði Magnús, að þessi ólög
legu fyrirtæki hefðu svipaðan eða
jafnvel hærri taxta en önnur og
almenningur hefði vitasikuld yfir-
leitt enga hugmynd um, hvort um
lögleg eða ólögleg fyrirtæki væri
að ræða. Aðspurður sagðist Magn-
ús álíta, að þetta vandamál steðj-
aði almennt að iðnfélögum, þar
sem ekki væri um að ræða lög-
gildingu verkstæða.
SÍLDARSUMUR
Framhals af bls. 1.
í kafla um sumar- og haustsíld
veiði við Suður- og Suðvesturland
segir, að sumargotssíldin hafi ver
ið í meirJMuta í aflanum fyrstu
2/3 hluta ársins, bæði 1965 og
1966, ef miðað er við kyníþroska
síld. Vorgotssíldarinnar gæti í
minna mœli og sé sá hluti stofns
ins því í mjög slæmu ásigkomiulagi
en hann var a. m. k. helmingur
vetrarveiðarinnar á fyrri árum. At
hyglisvert sé, að síðastliðin tvö ár
fari að bera mjög á úkynþroska
síld í veiðinni. Endurheimtur síld
armerkja sunnanlands „eru og
uggvænlega háar, eða a. m. k. 4—5
sinnum hærri hlutfallslega en úr
norska stofninum. Rennir þetta
hvort tveggja stoðum undir þá
skoðun, að svo ískyggilegt ástand
hafi nú skapazt meðal vorgotssíld
arinnar, og raunar íslenzku síldar
stofnanna beggja, að grípa verði
til enn róttækari ráðstafana varð
andi veiðhömtur sunnanlands og
vestan, en þegar hefur verið gert“,
— segir í greininni.
Eftir að þessi grein er rituð, hef
ur síðan verið sett bann við síld
veiðum sunnanlands og vestan og
gildir það bann til 15. maí n. k.
Auk þess er bann við smásíldveið-
um á þessu svæði enn í gildi.
JÓN MEÐ 2V2
Framnaid ai bls. 16
•landi, en hann er líka stórmeistari,
óg tapaði þeirri skák. í þriðju um-
ferðinni mætti hann stórmeistaran
um Minic frá Júgóslavíu og vann
þá skák. Hann vann einnig í þriðju
umferð, en þá tefldi hann við Pól-
verjann Pietrusiak og fimmtu um-
ferð tefldi hann við Ilollending-
inn Kuypers og tapaði henni.
Jón hefur sem sagt 2% vinning
eftir 5 skákir og mun vera með
efri mönnum í mótinu.
ISKÖNNUN
Framhald ai bls. 16
milna hæð og fara umihverfis jörð
ina á 113 mín. eða 12 til 13 hringi
á sólarihring. Taka þeir myndir á
þriggja og hálfrar mínútu fresti.
Hver mynd nær yfir svæði, sem
er 2700 km. á kant. Hér verður
tekið á móti myndum, sem sýna
skýjafar yfir öllu Noregshafi, fs-
landi og norðanverðum Bretlands-
eyjum. Af lögun skýja er hægt að
draga margar ályktanir, svo sem
um loftstrauma og sitthvað fleira,
sem að gagni má koma fyrir veð-
urtsþár.
Hlynur Sigtryggsson, veðurstofu-
stjóri, sagði í viðtali við Timann
í dag, að myndirnar frá gervihnött
unum breyttu ekki mjög miklu í
sambandi við veðurspár að svo
ÞAKKARÁVÖRP
Innilegustu þakkir vil ég færa Olíufélaginu h.f., sér-
staklega samstarfsfólki mínu á Gelgjutanga, fyrir
höfðinglegar gjafir á 75 ára afmæli mínu. Einnig þakka
ég hjartanlega öðrum vinum og ættingjum hér og á
Akureyri.
Helgi Ágústsson, Skipasundi 78, Reykjavík.
Þakka hjartanlega börnum og tengdabömum mín-
um rausnarlegar gjafir og fjölmörgum vinum mínum
heillaskeyti og hlý handtök á 70 ára afmælinu.
Ingvar Jóhannsson, Hvítárbakka.
Ástkær eiginmaSur minn, faSir okkar, afi og tengdafaðir,
Benedikt Jakobssón,
íþróttakennari, Bólstaðahlíð 10,
andaðist miðvikudaginn 29. marz s. I.
Gyða Erlendsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
Bróðir okkar,
Guðmundur Jónsson,
bóndi, Brjánsstöðum, Skeiðum,
sem lézt í sjúkrahúsinu Selfossi 23. marz verður jarðsunginn laug-
ardaginn 1. apríl frá Selfosskirkju. Athöfnin hefst með húskveðju
frá'helmili hans kl. 1 síðdegis.
Systkini hins látna.
stöddu og að ekki yrði hægt að
spá lengra fram í tímann með til-
komu þeirra en nú er gert. Hins
vegar væri þetta liður í s-tœrri
uppbyggingu alþjóða veðurfræði
og kæmi til með að hafa mikla
þýðingu í framtíðinni. Fjrir ís-
lendinga hefði þessi nýja tælkni
einkum þýðingu í sambandi við
hafís og gæfi meiri og betri upp-
lýsingar um 1-egu hans en unnt er
að fá með ísflugi einu saman, sem
einnig er oft stopu-lt.
iÞá er einnig verið að ljúka við
byggingu fyrir hátoftarannsókn ir.
Byiggingin, þar sem loftbelgimir
eru blásnir upp og einnig stöðin,
sem fylgi-st með og teifcur við upp-
lýsingum frá loftbelgjunum, verða
starfræfctar sameiginlega af starfs
fólki Veð-urstofu íslands og Veð-
urstofu flotans. Byggingarikostnað-
ur er greiddur af jöfnu af ríkis-
stjórnum Bandaríkj-anna og ís-
lands.
Fjórum sinn-um -á dag verða
sendir upp Loftbelgir, sem flytj-a
á loft mælitæ&i oig senditæki, upp
úr meira en 100 þúsund feta hœð
(30.500 metra). Senda tækin til
jarðar uppLýsmgar um hita, raka
og Loftþrýsting í mismunandi hæð.
Með því að fyigjast með hreyfing-
um sendisins er hægt að reilkna út
vindiátt og vindhraða á hinum
ýmsu hæðarstigum. Þessar upplýs
ingar eru svo sendar tll veður-
stöðva út um heim m-eð fj-arritum.
BRAGI SÝNIR
Frambald af bls. 2
ar þeirra upphleyptar. Mál-
arinn festir ýmsa hluti á
myndir sínar sem ekki er al-
gengt að sjá á málverkum,
svo sem snæríshankir, leik
föng og fuglsliami, eða hluta
þeirra. Sýningargestir geta
keypt vandaða sýningarskrá
þar sem Oddur Björnsson
hefur ritað um listferil mál-
arans og viðhorf hans til
verkefna sinna. f skránni er
litprentuð mynd eftir Braga.
DÓMARADANS
Framhald af bls. 16
rétti, en hann nemur 35.000.00 kr.
Tvö mál voru höfðuð gegn Ein-
ari Braga, og er síðara málið nú
komið í gegnum undirrétt.
Þá hafa verið höfðuð sex mál
gegn Bergi Sigurbjörnssyni, sem
ábyrgðarmanni Frjálsrar þjóðar af
sama tilefni. Samkvæmt þeim upp-
lýsingum, sem Tíminn hefur aflað
sér, mun málsvarnarkostnaður
ábyrgðarmannanna tveggja, Ein-
ars Braga og Bergs nema um
ihundrað þúsund krónum í dag, og
er þó aðeins eitt málanna komið
í gegnum bæði dómsstigin. Sjö
eru eftir og er því fyrirsjáanlegt
að um ærin kostnað verður að
ræða áður en lýkur.
Lárus Jóhannesson krafðist
hálfrar milljónar í miskabætur í
málinu, sem þegar hefur verið
i dæmt í Hæstarétti þannig, að
jhann fær fjörutíu þúsund. Um
I bankaviðskiptin segir í forsend-
um Hæstaréttar m. a.:
„Svo sem getið er í héraðsdómi
rak gagnáfrýjandi um áratuga
skeið umfangsmikla lögmannsskrif
stofu hér í borginni. Hann hefur
skýrt sv-o frá, að um langt skeið
hafi fcann haft fjármálaviðskipti
við Búnaðarbanka fslands, og
-hafi bankinn keypt af honum víxla
og önnur viðskiptabróf og hann
ábyrgzt bankanum skilvísa
greiðslu þeirra. Kveðst gagnáfrýj
andi hafa hætt öllum viðskiptum,
er hann var skipaður hæstarétta-
dómari 1. maí 1960, en það hafi
tekið um hálft'annað ár að ljúka
þeim viðskiptum að mestu, sem
þegar hafi verið stofnað til.
Gagnáfrýjandi hefur í málflutn
ingi lýst því, að hann hafi, eftir að
hann varð hæstaréttardómari, selt
Búnaðarbanka íslands víxla fyrir
nafngreindan s-on sinn, sem rek
ur lögmannsskrifstofu hér í borg. j
Víxiana seldi gagnáfrýjandi í
skjóli „kvóta“ síns í bankanum og
í því skyni, að lögmaðurinn fengi
venjulega þóknun af miðlarastarf
semi. Þannig hafi þetta verið með
víxil að fjánhæð kr. 150.000.00,
samþykktan af Ágústi Sigurðssyni
sem seldur hafi verið bankanum
hinn 23. febr. 1961.
Við úrlausn krafna um refs
ingu og fébætur ber að hafa í
huga þessa forsögu blaðaskrifa
þeirra, sem mál þetta er risið af
og að ekki var viðeigandi, eins og
á stóð að gagnáfrýjandi stofnaði
til siðastgreindu bankaviðskipta,
Hins vegar ber að gæta þess, að
veizt var harkalega að gagnáfrýj-
anda með margendurteknum stór-
yrðum í nefndum blaðagreinum.
Þegar þetta er virt, þykir mega
staðfesta ákvæði héraðsdóms um
refsingu aðal-áfrýjanda Einars
Braga Sigurðssonar, þó svo, að
frestur til greiðslu sektar velði
4 vixur frá birtingu dóms þessa."
Til að standa straum af þeim
miklí málarekstri, sem skrif
Frjálsrar þjóðar um víxlaviðskipti
Lárusar Jóhannessonar, fyrrver-
andi hæstaréttardómara hafa haft
í för með sér, hafa ýmsir menn
st-ofnað svonefndan Málsvarnar-
sjóð, en fé það, sem safnast, verð-
ur notað til að greiða sektir og
málsvarnarkostnað, vegna þess
máls, sem nú er lokið, og einnig
þann kostnað, sem fyrirsjáanlegt
er að fylgir í kjölfar þeirra sjö
mála, sem þegar hafa verið haf-
in og eru á mismunandi stigum.
Fyrir utan bein fjárframlög í þenn
an sjóð, hefur hann fengið ágóð-
ann af bókinni Dómaradans, sem
þrjátíu og fjórir rithöfundar og
skáld skrifuðu sjóðnum til styrkt
ar. Ótölusett eintök eru til af þess
ari sérkennilegu bók og kostar
eintakið 250 kr. Tímanum er ekki
kunnugt um, hve mikið fé hefur
komið í Málsvarnarsjóð, en eftir
auglýsingum í blöðum að dæma
vantar enn mikið á, að nægt fé
hafi fengizt. Er varla við því að
búast, þar sem sjóðurinn mun
þurfa all verulega fjárhæð, ef
hann á að geta þjónað því hlut-
verki sínu að létta fjárgreiðslum
af fjárvana blaði og þeim einstakl
ingum, sem hafa hvorki „kvóta“
né reiðufé til að leysa sig frá átta
meiðyrðamálum.
ÍSINN
Framhald af bls. 16
ísinn dálítið þéttari. Þar voru
dreifðar spangir og nokkuð rek
ið á fjörur. ísspöng var inni á
Homvík, og fyrir austan Horn
voru dreifðir jakar og nokkrar
span-gir.
Mistur var til hafsins og sást
því ekki vel, en annars var
glaða sólskin og logn, og, flug
ið mjög ánægjulegt í al'la staði.
Ekki virðist erfitt m-eð sigl-
ingar á þessu svæði. Við sáum
flutningaskip, sem var á leið-
inni austur, og eins var Óðinn
að koma inn hingað núna, og
virtist ekki hafa neinn trafala
af ísnum. Aðalísinn er um 20
mílur úti, en frekar líti-11 ís
er nær landinu.
Ekki háir ísinn heldur bát
um að ráði, því þeir róa dag-
lega. Em þeir út af B-arða og
Kóp aðallega og fiskað upp í
11 lestir af steinbít. >á komu
bátar undan Jökli, eftir páska
hretið, með 20 og upp í 40 tonn
af fiski, en hann var mikið til
skemmdur.
Samkvæmt fregnum, er veð-
urstofunni barst í dag, er
dreifða jaka að sjá um allan
sjó frá Galtarvita, Hrauni, Siglu
nesi, Mánáribakka Skoruvík og
Grímsey.Frá Hornbjargi virð-
ist samfelldur ís 10—12 sjómíl
ur úti, en minni spangir innar.
Siglingarleið fyrir Horn var
greið.
Samkvæmt því sem sást í ís-
könnunarflugi Landhelgisg-czl-
unnar var ís 4/10 að þéttleika
eða meir næst landinu um 25
sjómílur út af Hor.ni og um 30
sjómílur norður af Skaga. Þar
fyrir innan var ís að þéttleika
1/10—3/10 allt inn að 5—10
sjómilum f-rá annesum, allt
austur að Langanesi.
Meginísinn virðist vera dá-
lítið vestan við Jan Mayen, svo
að ísrekið er ekki eins breitt
n-orðanað eins og það var í hitt
eðfyrra, — sagði Jónas Jakobs
son, veðurfræðingur við blaðið
í dag.
Hann sagði að ágætisveður
hefði yfirleitt verið fyrir norð
an í dag — norðangola um aust
anvert landið, en hægviðri vest
antil.
Guðmundur í Bæ í Trékyllis
vík símaði blaðinu í dag að ís
væri þar úti fyrir öllu, og tals
vert hefði rekið af jökum upp
að landinu. Hafa lendingar/hér
lokast, og því engir flutningar
getað farið fram á sjó. Núna í
dag hefur brugðið til vestanátt
ar eftir langvarandi norðanátt,
og hefur ísinn borist frá landi.
Norðan úr Skagafirði ticrast
þær fréttir að nokkur ís sé í
mynni fjarðarins og auk þess
hefur einsíaka jaka rekið inn
fjörðinn og allt inn í fjarðar-
botn, eins og jakarnir fimm
sem strönduðu við Borgarsand
á mdlli Hegranes og Sauðár-
króks, í dag.
WILLY BRANDT
Framhals af bls. 1.
Willy Brandt er fædd-ur árið
1913. Hann stundaði í.ám við há-
•skólann í Liibeck og Osló. Árið
1933 fluttist hann til Noregs og
starfaði við blaðamennsfcu þar í
landi og síðar í Sviþjóð til. ársins
1945, er hann fluttist til Vestur-
-Berlínar, starfaði þar fyrst í stað
sem fréttaritari fyrir blöð á Norð-
urlöndum. Þegar hann kom tiL
IBerMnar eftir stríð hóf hann þeg-
-ar þátttöku í þýzkum stjómmálum
og varð fljótlega einn af forustu-
mönnum Sósíaldemokrata í Vestur
'Þýzkailandi o-g átti sæt: á Sambands
iþinginu í B-onn 1949—57, er hann
varð borgarstjóri Vestur-Berlínar.
Willy Brandt hefur unnið mikið
að ritstörfum. Hann var aðalrit-
-stjóri Berliner-Stadtblatt 1950—
51 og hann hefur skrifað nokkrar
'bækur, stjórnm-álalegs eðlis. Willy
Brandt er kvæntur norskri konu.
SJÚKRAFLUG
KBG-Stykkishólmi, fimmtudag.
Þyrla Landlhelgisgæzlunnar kom
hingað í morgun rétt fyrir hádegi
og tök héraðslækninn og flaug
með hann vestur í Látur. Þangað
var náð í veikan dreng, tveggja
ára að aldri. Komið var með hann
hingað til Stykkishólms og var
hann lagður inn á sjúkrahúsið.
Ekki var möguiegt að koma öðr
um íarartækjum en þyrlu við til
að ná- í drenginn. Vegir á landi eru
allir tepptir vegna snjóa og sjó-
leiðiii er lokuð af ís.
ÖKUKENNSLA
HÆJHNISVOTTOKI) TÆKNI
NÁM íNNUAUÐ
Gísli Siqurðsson
Stlttl 11271.
Auglýsið í ÍI1VIA!NU1VI