Tíminn - 31.03.1967, Qupperneq 16
...................................... .................................. . ... .....
Lárusi dæmdar 40 þús. kr. í miskabætur
Málsvarnarsjóð-
ur auglýsir nú
Dómaradansinn
IGÞ-Reykjavík, fimtudag.
Fyrir nokkru féll dómur í
Hæstarétti í máli, sem Lárus
Jóhannesson fyrrverandi hæsta-
réttardómari höfðaði gegn Einari
Braga. ábyrgðarmanni Frjálsrar
þjóðar vegna skrifa í blaðinu um
víxlaviðskipti Lárusar við Búnað
arbankann. Var Einari Braga gert
að greiða Lárusi 40,000,00 kr. í
miskabætur (75.00.00 kr. í undir
rétti;, 7.500.00 kr. í sekt í ríkis-
sjóð og 7.000.00 kr. vegna kostnað
ar við birtingu dómsforsenda og
dómsorðs. Þá er Einari Braga
gert að greiða gagnáfrýjanda máls í
kostnað í liéraði og fyrir Hæsta-
Framhald á 14. síðu.
Félag bifreiðasmiða reynir að vernda iðngreinina:
8 ÚLÖGLEG VERKSTÆÐI
VORU DÆMD S.L ÁR
lOOtn.bátur
fékk 68 tonn
GTMBíldudal, fimmtudag.
í morgun kom mb. Andri
með metafla hingað til
Bíldudals, 68 tonn, sem
hann hafði fengið í net, en
báturinn er sjálfur 100
tonn að stærð.
Þetta er sami báturinn
og varð fyrir barðinu á
brezkum togara hér á dög-
unum en togarinn eyðilagði
þá miikið af netum frá bátn
um. Skipstjóri á Andra er
Snæbjöm Árnason og
sagði hann, að um 1200
fiskar hefðu fengizt úr
trossu, er var eins nátta,
en um sjö hundruð fiskar
Framhald á bls. 15.
GÞE-Reykj avík, fimmtudag.
Á síðasta aðalfundi Félags bif-
reiðasmiða kom fram, að félagið
liafði á síðasta ári lagt fram kærur
á hendur 8 ólöglegum verkstæðum
og höfðu þau öll hlotið dóm og
sekt. í viðtali sem Tíminn átti við
Magnús Gíslason, formann Félags
bifreiðasmiða, kom fram, að fjöl-
mörg ólögleg verkstæði eru starf-
rækt hér í borginni og ekkert eft-
irlit virðist vera með því, að ófag
lærðir menn stundi ekki þessa iðn
grein.
Sagði Magnús, að lærðum bif-
reiðasmiðum væri mjög erfitt um
vik að vernda iðngrein sína, og ár-
lega væru lagðar fram kærur á
hendur ólöglegum venkstæðum.
Á hinn bóginn liði yfirleitt mjög
langur thni þar til málin yrðu af-
greidd og sektirnar, sem hlutað-
eigandi verkstæði væru dæmd til
að greiða, væru mjög lágar og
yfirleitt héldi starfræksla venkstæð
anna áfram, þrótt fyrir dóma og
Framnalri á bls 14
Fá veðurmyndir hér frá gervihnöttum í maímánuði:
Fær einkum þýðingu viö ískönnun
OÓ-Reykjavík, fimmtudag.
í maímánuði verður tekið í
notkun á Keflavíkurflugvelli tæki,
sem tekur við myndum frá gervi-
hnöttum, sem fást við veðurathug-
anir. Verið er að koma tækjunuin
fyrir en þau eru sett upp á vegum
veðurstofu flotans. Veðurstofa fs-
lands mun einnig hafa aðgang að
þcssum myndum og nota þær við
veðurrannsóknir.
Veðurathugunarhnettir senda
sjólfkrafa myndir og er hægt að
taka þær upp meðan hnötturinn
er innan sjónlínu. Hnötturinn hef-
ur myndavél og sendi, sem sendir
myndir af skýjafari fyrir neðan
hann. Tækin munu taka við mynd
um þann tíma, sem bjart er á
svæðinu sem þeir fara yfir en inn-
an skamms verða sett upp mót-
tökutæki sem tafca við infrarauð-
um geislum og verður þá hægt að
ta'ka á móti myndum jafnt í björtu
og í myrkri.
Veðurhnettirnir eru í um 715
Framhald á 14. síðu.
\
Isinn engin hindrun
á siglingaleiðunum
EJ-KJ-Reykjavík, fimmtudag. 4/10 að þéttleika eða meir er norður af Skaga. Þar fyrir inn
Lítil breyting hefur verið á næst landinu um 25 sjómílur an er ís að þéttleika 1/10—3/10
ísnum fyrir norðan landið. fs út af Homi, og um 30 sjómílur allt inn að 5—10 sjómílum frá
Á /t
*. o '
• ro;' ?‘o • o .
ískort þetta var gert eftir ísflug á miSvikudag. ís, að þéttleika 4/10 eða meir, er næst landinu um 25
sjómílur út af Horni. Yfirleitt er aðeins um a8 ræSa jakahrafl á svæðinu 5—10 sjómílur frá annesum.
annesum allt frá Vestfjörðum
og austur að Langanesi. Dreifð
ir jakar og ísspangir eru víða
nær landinu og inni í fjörðum
en vestanáttin í dag hefur að-
eins þokað ísnum frá Ian4i á
Ströndum.
Vestanflug bauð fréttamönn-
um útvarps og blaða í ískönnun
arflug kl. 13.15 í dag og var
Guðbjörn Oharlesson flugmað-
ur. Guðmundur Sveinsson,
fréttaritari blaðsins á ísafirði,
fór í flug þetta og sendi eftir
farandi frásögn.
Flogið vpr frá ísafjarðarflug
velli vestur yfir fjöllin og út
að Sauðanesi. Voru þar dreifðir
jakar og smáspangir.
Síðan var fiogið austur yfir
Djúpið. Þar er ísspöng föst í
Stigahlíð. en út af Djúpinu voru
dreifðir jakar og fáeinar spang
ir. Við Straumnes á Kögur var
Framhalri á 14. síðu.
Bjarmi II. frá Dalvík
sigldi inn í Reykjavíkur-
höfn um þrjúleytið í gær.
Báturinn var tekinn í slipp
strax og hann kom í höfn.
Ekld er vitað með vissu hve
skemmdir eru miklar eftir
strandið í fjörunni austan
við Stokkseyri.
(Tímamynd GE)
Tekið á móti mynd frá veðurhnetti.
Skákmótið í Halle:
Jón með 2Vi
vínning eftir
5 umferðir
EJ-Reykjaví'k, fimmtudag.
Jón Kristinsson hefur staðið sig
vel á svæðismótinu í skák í Ilalle
í Austur-Þýzkalandi. Eftir fimm
umferðir hafði hann 2V2 vinning.
Mótið var sett 18. marz, en fyrsta
uinferðin tefld þann 19. Alls munu
tefldar 19 umferðir á mótinu, en 3
efstu menn fá rétt til þátttöku í
millisvæðamótinu í Alsír síðar á
þessu ári. Sex efstu menn á því
móti tefla síðan sín á milli um
rétt til að tefla við heimsmeistar-
ann í skák um heimsmeistaratitii-
inn.
í fyrstu umferð tefldi Jón Krist
insson við stórmeistarann Ciocal-
tia frá Rú,..„níu og gerði jafntefli
ivið hann. í annarri umferð maetti
hann Ulhmann frá Austur-Þýzka-
Framhaid á 14. siðu.