Tíminn - 22.04.1967, Blaðsíða 16

Tíminn - 22.04.1967, Blaðsíða 16
DAUDASLYS VARÐ A KEFLAVÍKURVEGINUM GS-Keflavík, föstudag. í gærkveldi laust fyrir klukkan Félag Framsóknar- kvenna í Reykjavík TekifS verður á móti munum á bararinn mánudag og þriðjudag 24. og 25. apríl, kl. 8,30 að Hring braut 30. Forsætisráðherra viðstaddur útför Adenauers t frett frá forsætisráðuneytinu segir. að ákveðið hafi verið, að dr. Biarni Benediktsson, forsætis- ráðhe ja, verði fyrir hönd ríkis- stjórnar íslands, viðstaddur útför dr. F„nrads Adenaiiers, sem fram fer n k. þriðjudag. Rvík, 21. apríl 1967. ellefu varð liarður árekstur á Reykjanesbraut við Njarðvíkur- fitjar, með þeim afleiðingum að maður er var í annarri bifreiðinni lézt í morgun, auk þess sem ann ar maður og kona eru mikið slös- uð. Þarna rákust saman Fólksvagen bifreið og Taunus fólksbifreið Ö-5 og Ö-885. Liggur ekki ljóst fyrir á þessu stigi málsins með hverj um hætti áreksturinn varð, en í Taunus bílnum voru hjón, og í Volkswagenbílnum tveir menn, og það var annar þeirra Adolf Sveins son bifvélavirki Birkiteig 10 sem lézt í morgun, vegna meiðsla er hann hlaut í slysinu. Mennirnir tveir voru báðir meðvitundarlaus ir í gærkveldi er þeir voru flutt ir á sjúkrahúsið í Keflavík, en hinn maðurinn Árni Sigurðsson koms* til meðvitundar í dag. Adolf mun hafa kastazt út úr bílnum við áreksturinn, og hlotið við það mjög slæmt höfuðhögg. Hann læt- ur eftir sig konu og sex börn. FORSTCFUÞJÓFUR Á FFRU K.I-Reykjaví!k, föstudag. Tikuvert hefur borið á því í Hafnarfirði að undanförnu að stol ið hafi verið úr forstofum húsa, og eins hefur á nokkrum slöðum orð- ið vart við mann í húsum sem þótzt hefur verið að leita að ein- j reglunni um grunsamlegar ferðir hverju fólki. 1 manns nokkurs. Er ástæða til að Varð fyrst vart við mann þenn- vara Hafnfirðinga við, og áminna an um klukkan hálf eitt aðfaranótt þá urn að læsa húsum sínum, svo sunnudagsins síðasta, og síðan þá ólboðmr gestir eins og maður hafa nokkrar kvartanir borizt lög- Framhald a bls 15 STÓRÞJÓFNAÐ- UR í EIMSKIP KJ-Reykjavík, föstudag í morgun urðu lögreglumenn þess varir ,að búið var að brjóta rúðu í Eimskipaféagshúsinu þar sem fanþegaafgreiðslan er. Kom í ljós að þarna höfðu þjóf ar verið á ferð og haft á brott með sér 213,700 krónur í reiðufé lir peningahirzlum Eim skip, en látið allt annað vera. 1 Úr farþegaafgreiðslunni logðu þjófarnir leið sína upp á aðra hæð, þar sem þeir kom ust inn í skrifstofusal með því að brjóta rúðu i hurð og í gjald kerastúkunni kipptu þeir upp læstri skúffu, þar sem i var lykill að eldtraustri geymslu á bakvið. í þessari eldtraustu geymslu er peningaskápur og stóð lykillnin í skrá skápsins, cins og venjulega. Þýfið, 213, 700 krónur, var í tveim skúff um í peningaskápnum, og var það að mestu í þúsund króna seðlum. Önnur verðmæti voru og í eldtraustu geymslunni, og þar á meðal skápur með launa umslögum að upphæð 1.6 millj. en þjófarnir hirtu aðeins seðlana úr skúffunum. Síðan haf.a þjófarnir farið út úr hús inu um salernisglugga á ann- arri hæð, niður á skúr og út í Steindórsportið á miili Hafn- arstrætis og Tryggvagötu. Snjó föl var á jörðu, og sáust spor eftir tvo menn í snjónum, en ekki var hægt að rekja þau. Það voru iögreglumenn er voru á eftirlitsferð um bæinn sem uppgötvuðu þjófnaðinn, en sem kunnugt er þá er Eim- skipafélagshúsið næsta hús við lögregluslöðina, og í kvöld hafði ekki tekizt að hafa upp á þjófunum. Hákur, HiS nýja dýpkunartæki Vita- og hafnarmálastjórnarinnar. Myndin er tekin þegar dælurnar voru reyndar í fyrsta sinn. (Tímamynd GE) Nýtt dýpkunartæki tekiö í notkun OÓReykjavík, föstudag. Vita og hafnarmálastjórnin hef ur nýlega keypt nýtt dýpkunar- tækh sem tekið verður í notkun naesfu daga. Tæki þetta er 14 þumlunga sanddæla á flotpramma. Meðaiafköst dælunnar eru 250 rúm metrar á klukkustund, en þau fara eftir aðstæðum á hverjum stað. Sand.’num eða leðjunni er hægt að dæla a land eða í pramma, eftir því hvort æskilegra þykir hverju sinni. Pramminn hefur hlotið nafnið Hákur. Mesta grafdýpi tækisins eru 10 metrai. P’raman á prammanum er sogleiðsla sem tengd er við skera sem tætir upp jarðveginn um leið og dælt er. Eínið flytzt í þrýsti- leiðsiunum érá prammanum á þann stað sem því er ætlað að fylla upp, en leiðslurnar liggja á flúíholtum. í prammanum eru tvær diselvélar af Caterpillargerð. Önnur þeirra er 747 hestöfl og kný” dæluna, hin vélin knýr spil Framhald a bls. 15. Ekki var spurt um týnt barn í hálfan sólarhring KJ-Reykjavík, föstudag. Á miðvikudagsmorgunin fundu lögreglumenn 3 ára barn rangl andi eitt sér á Sundlaugavegi, og var barnið í gæzlu lögreglunnar eða á vegum hennar þangað til klukkan átta um kvöldið, og fannst mörgum undarlegt. Hér er um að ræða barn sem á íslenzka móður, en faðir þess er banda rísfcur og barnið því bandarískur ríkisboraari. Einhverjir aðstand endur barnsins munu hafa verið byrjaðir að leita þess, en ekki hugkvæmzt að hafa samband við lögregluna. Mál þetta hefur verið afhent barnaverndarnefnd • til at- hugunar, en áður fjallaði rann- sóknarlögreglan lítillega um málið. Framhald á bls. 15. Alfreð Gíslason alþm. segir sig úr Alþýðubandalaginu EJ-Reykjavík, föstudag. Aifreð Gíslason, alþingismaður, | hefur sagt sig úr Alþýðubandalag- inu, vegna yfirgangs Sósíalista- félagsins innan bandalagsins nú að undanförnu, einkum þó í sam- j bandi við framboðsmálin hér í Reykjavík. Afhenti hann stjórn bandalagsins úrsögn sína á mið- vikudaginn. Alfreð Gíslason var einn aðal- maðurinn á bak við stofnun Al- þýðubandalagsins og hefur setið á þugi fyrir bandalagið frá því það var stofnað. Þess er skammt að minnast, að Magrús Kjartansson, sem er nú í efsta sæti á þeim lista Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík, sem þeg ar er fram Jcominn, ritaði um Alfrefi i forustugrein í Þjóðvilj- anum daginn eftir fundinn fræga í Tór.aibíó: - „Alfreð Gíslason lagði til einn af hornsteinum Al- þýðubandalagsins, þegar það var stofnað 1956, og hefur síðan verið fulltrúi þess á þingi, vel verki farint, einarður og hugkvæmur. Sem betur fer mun Alþýðubanda- lagið áfram njóta starfskrafta þessara ágætu forustumanna (Al- freðc og Einars Olgeirssonar) . . . “ Eka: reyndist ritstjórinn þar sannspár.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.