Tíminn - 28.04.1967, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 28. apríl 1967.
TÍMINN
19
Ágúst Þorvaldsson:
BÆNDUR ERU TEKJULÆGSTA
STETT ÞJOÐFELAGSINS
Herra forseti. Heiðruðu áheyr-
endur.
FUestum, nema íþm. Aiþfl., þeim
er hér hafa talað, ber saman um,
að sjaldan eða sldrei í tíð nú-
lifandi manna, hafi náttúran ver-
ið eins gjöful tii iands og sjávar
og sl. 7-8 ár. Hefur það sannast
á þessum árum enn sem fyrr, að
ísland er farsældar frón, sem
bíður börnum sínum nóg starf og
gnóttir lífsins gæða. Jón Ólafsson
vissi hvað hann var að segja, þeg-
ar hann ikvað hina bnáðsnjöllu
stöku
Hér er nóg um björg og brauð
berirðu töfrasprotann.
Þetta iand á ærin auð
ef menn kunna að nota bann.
Síðan þetta var kveðið höifum
við eignast töfraspnotann, þar
sem er síaukin vísindaieg þekk-
ing, tækni og verkmenning. Með
þessum töfrasprota hefur verið
slegin mikil björg úr ísl. auð-
lindum á yfirstandandi góðæris-
tímabili. Saga 'landsins vitnar um
það, að góðæristímabilin hafi á
iiðnum öldum styrkt bændastétt
þessa lands. Á igóðæristímum hafa
bændur eflst efnalega, jarðir
hafa hækkað í verði og byggðum
býlum fjölgað. Hvernig hefur
þetta verið á því góðæristímabili,
sem nú gengur yfir landið? Hefur
bændum fjöigað? Hafa jarðir
hækkað í verði? Hefur fólki fjölg-
að í sveitúm? Er áhugi fyrir
sveitabúskap að glœðast? Því
miður verður að svar_ ölium þess
um spurningum neitandi. Jarð-
irnar fara í eyði jafnvel í miðj-
um góðsveitum. Bændum fækkar
og meðal aidur bænda er ískyggi-
lega hár, sem auðvitað leiðir brátt
til þess, að margir hverfa úr
bændatöiunni á næstu árum.
Hvernig stendur á þessari þróun
í góðæri? Sjálfsagt ber margt
til, en ein meginástæðan er við-
'horf og afstaða ríkisstj. til land-
búnaðarins og bændanna. Tekj-
um bænda er haldið niðri. Þeir
eru enn lang tekjulægsta starfs-
stétt j-jóðfélagsins, skv. opinberum
skýrslum Hagstofunnar fyrir ár-
ið 1965. Meðal tekjur fram-
teljanda í landinu voru á því
ári 248 þús. kr. en bænda ekki
nerna 199 þús. kr., er það 25%
fyrir neðan meðallag. Raunveru-
lega er þetta þó meira, ef tillit
er tekið til þess, að af þessum
tekjum eiga bændur að borga
vexti af skuldum vegna bús síns,
fyrninga og fasteignagjöld úti-
búsa
Ekki eru þessar tekjur bænda
þó svo litlar vegna þess
að þeir eða þeirra fólk vinni
minna en aðrir, framleiðsluafköst
bænda eru mjög mikil, og fram-
leiðniaukning í landbúnaði hefurl
vaxið hröðum skerfum. Meðal i
bóndinn framleiðir yfir 20 tonn j
af nýmjólk, yfir 2 tonn af kinda-j
kjöti, rúmlega 1/2 tonn af/ stór-
gripakjöti, 1 tonn af kartöflum,
auk þess talsvert magn af ull,
gærum o.fl. Þetta er gert með
mjög lítilli aðkeyptri vinnu, en
auðvitað er hjálp tækninnar not-
uð. enda hefur landbúnaðarfram-
ieiðslan fimmfaldast á síðustu
þremur og hálfum áratug um leið
Og fólki við þessi störf hefur fækk
Upp úr feni verðbólgunnar verður aldrei komizt nema eftir
leiðum aukinnar tækni og vélvæðingar og með nýrri peninga
pólitík, sem við þetta er miðuð.
að um 40 af hundraði. Bændur
ha'fa ekki haidið að sér höndum
um umbætur og tækniúfibúnað á
búum sínum og í því að rækta
o'g bæta iandið. Hafa bændur var-
ið til slikra frambvæmda mörgum
hundruðum mfflj. 'kr. á ári af
eigin fé og eigin vinnu sinni.
Margt hefur áunnizt í kjarabar-
áttu bænda. Þar hafa stéttarsam-
tök þeirra unnið mikið og gott
starf. Einkennilegt var að heyra
hv. 3. þm. Austuri., Jónas Péturs-
son, þak'ka allt, sem þannig hef-
ur áunnizt, landbrh. Þar er þó
fyrst og fremst bændasamtökun
um að þákka, þeim .gleymdi þm„
þegar þabklætisti'Minnin'gunni
iskaut upp í huga hans. Það sem
gerir bændum, eins og öðrum
framleiðendum hér á landi, nú
sérstaklega erfitt og áhættusamt
fjáihags'lega að starfa við fram-
kvæmdir og framleiðslu, er hinn
óhóflegi fjármagnskostnaður sem
'genigislækkanir og dýrtíð hafa
valdið. Bændastéttin var öðrum
fremur hlunnfarin í sambandi við
'hina miklu gengislæbkun 1960. Þá
var stofnaður sérstakur sjóður,
gengistapssjóður, til þess að borga
töp ýmissa lánasjóða, vegna geng-
islækkananna. En svo var mikið
ranglæti framið, að lánasjóðir
bænda, ræktunarsjóður og
byg'gingarsjóður sveitabæja, sem
tekið höfðu erient fé að láni, svo
að þeir gætu fulinægt lánsþörf
bænda, voru látnir bera gengis-
töpin sjálfir og einir slíkra storn
ana, þegar allir aðrir fengu
sín töp bætt. Með slíku bola-
bragði setti núverandi ríkisstjórn
lánasjoði bændanna á hausinn
og fann síðan upp það ráð, sem
landbrh. hefur verið mjög drjúgur
af síðan, að láta bændastéttina
sjálfa borga þessi töp, og raunar
miblu meira með því að leggja
sérstakan skatt á bændur til Stofn
lánadei'ldar landbúnaðarins, sem
jafngildir um 2% af launum
þeirra. í sömu lotu var vísitala
á jarðræktarframlag sett föst í 4
ár, og þannig haft af bændum
stórfé. Fyrir harða baráttu fram-
sóknarmanna fékst þetta þó lagað
þega- jarðræktarlögunum var
breytt. Ræktunar- og byggingar-
kostnaður hefur margfaldast, svo
og verð véla og tækja, vextir hafa
hækkað um fullan þriðjung. Skv.
verðlagsgrundvelli landbúnað-
arafurða skuldar meðal bóndinn
stofnlánadeild landbúnaðarins 80
þús. og 500 kr. og greiðir af því
vexti 4 þús. 428 kr„ og þar að
auki í stofnlánadeiidarskatt af
framleiðslu sinni 3 þús. 600 kr.
Samanlagt eru þetta rúmlega 8
þús. kr. og jafngiidir um 10%
vöxtum af fjáríestingarlánum
bóndans, sem eiga að greiðast
upp á 15-20 árum. Sé gert ráð
fyrir því, að meðal búskapartími
bóndans, 30 ár, sem ekki mun
vera fjarri lagi, borgar meðal
bóndinn á þessu tímabili um 110
þús. kr. í skatt af tekjum sínum
ti'l stofnilánadeild'ar landbúnaðar
ins. Ef gert er ráð fyrir, að fram-
ieiðslan og verð hennar verði
allan tímann, eins og verðlags-
grundvöllurinn á þessu ári segir
til um. Slíka leigu af lánsfé hygg
ég, að bændur í öðrum löndum
þebki ekki. Og ég fúllyrði, að sá
framleiðsluatvinnuvegur er ekki
til, sem þolir svo 'háa leigu aí
lánum til fjárfeistingar, og allra
sízt landbúnaður, því að í landibún
aði getur aldrei verið um skjót-
fenginn gróða að ræða, sem hægt
er að nota til að borga lánin
með. Nú munu sumir í hópi nú-
verandi vaidhafa tedja, að sú þró-
un, sem átt hefur sér stað á land-
búnaðarsviðinu síðustu 7—8 ár
fyrir þeirra tilverknað, að bænd-
um hefur fækkað, jarðir farið í
eyði og ræktað land fallið í ó-
rækt, að þetta sé nauðsynlegt frá
þjóðhagslegu sjónarmiði, til þess
m.a. að losa vinnuafl í sveitum, svo
frernur verði eftirspurn eftir
vinnu á hinum a'lmenna vinnu-
markaði í bæjum, því að þá verði
'hægara að standa gegn auknum
kaupkröfum. Slíkur er hugsunar-
háttur þeirra sem vilja að stór-
kapitaliskt samkeppnisþjóðfé-
lag þróist hér með sterku auð-
valdi annars vegar, sem ráðandi
•afli, en hins vegar sundraðri og
vei'kri stétt launþega og bænda.
Slíka þróun þjóðfélagsins teljum
við framsóknarmenn mjög hættu-
lega. Við teljum, að borgarar
þjóðfélagsins þurfi og eigi að
vera sem óháðastir ríkisvaldinu,
'það séu þeir, sem eigi að móta
ríkisvaldið og ráða stefnu þess
til að efla land og lýð. Til þess,
að £sl. þjóðin geti í nútið og
framtíð átt við farsæld að búa
þarf m.a. að rækta og bæta land-
ið og vernda landkostina. Við
vitum, að forfeður okkar urðu af
illri nauðsyn að ganga mjög
á landgæðin. Vísindamenn telja,
að gróið land hafi minnkað síð-
an á Iandnámsöld um helming.
Þá hafi um 50% af yfirborði
landsins verið gróið, en nú séu
aðeins orðin eftir 25% af yfir-
borði þess, sem eigi að heita gróið
land og árlega fari það minnk-
andi. Túnræktin er nú frá 3-4
þús. ha. á ári. Þetta finnst ýms-
um mikið. Þó er þetta ekki meira
en svo, að það vegur ekki á móti
því, sem árlega tapast vegna upp-
blásturs. Stærra gróðurland blæs
upp árlega og skolast fyrir
vatni og vindum á haf
út, heldur en það, sem ræktað er.
Þetta er álit þeirra fræðimanna,
sem gerrzt mega um þetta vita,
og bezt þekkja til um náttúrufar
landsins. Alls staðar er það hlut-
skipti bændanna öðrum fremur
að rækta landið. Allar menningar-
þjóðir vita, bvaða þýðingu slíkt
starf hefur fyrir nútíð og fram-
tíð, og þess vegna er það alls
staðar talin fávísleg ráðstöfun að
veikja bændastéttina. Menn skilja
hvaða gildi það hefur að hafa
.. ;
Ágúst Þorvaldsson
öfluga bændastétt og þess vegna
styðj a stjórnmálaflokkar' með ’ Öðr
um þjóðum bændur þar í starfi
sínu og telja þá kjölfestu þjóð-
anna. Það er nokkuð annað en
hæstv. menntamrh., Gylfi Þ. Gdsla
son, vffl, eins og fram fcom í ræðu
hans hér áðan. Hann mun því
halda áfram að þjarma að bænd-
um og fækka þeim, ef hann fær
í kosningunum meiri hl. með
Sjálfstfl., en þá fara þeir áfram
með völdin. Framsóknarfl. skilur
þýðingu öflugrar bændastéttar
betur en aðrir flokkar hér á
landi og telur, að bændum megi
ekki fækka, frá því, sem orðið er.
Hér munu nú vera um 12—13%
af þjóðinni, sem heíur fram-
færslu sína við búskap og ræktar
jörðina. Það er svipuð hlutfalls-
tala og rneðal þeirra þjóða, þar
sem fæst fólk vinnur að þessum
störfum. Hér þarf því að spyrna
fast við fótum, svo að ekki fæfcki
meira bændastéttinni. Tekjur
bænda verða að nækka. Það er
fyrsta takmarkið, og það, sem
næst þarf að gera bændastéttinni
til viðreisnar, er að afnema þann
þátt í landbúnaðarlöggjöfinni,
sem núverandi stjórn hefur sett,
að skuldugir og þjakaðir bændur
af oiÉmikildi vinnu, eru skattlagð-
ir til lánastofnana. Slíkur skattur
er í ætt við miðaldafjötra, eins
og t.d. aflausnargjald til páfa, ef
að menn áttu að geta fengið inni
í himnaríki. Það munar um minna
fyrir lægst launuðu stétt landsins
í viðbót við okurvexti að verða
að láta á þessu ári, af lágum
tekjum, um 20 millj. kr. í aflausn
argjaldið, svo að þeir megi fá
fyrirgreiðslur í lánastofnun til
þess að rækta og bæta ísland
fyrir núlifandi og komandi kyn-
slóðir. Það var þetta, sem hv. 3.
þm. Austurf., Jónas Pétursson,
lýsti gieði sinni yfir hér áðan,
og taldi eitt hið farsælasta spor,
sem stigið hafi verið. Sá er frjáis-
lyndur gagnvart skattheimtu af
lágum tekjum bænda. Mér finnst,
að þar höggvi sá, er hlífa skyldi.
Ég hef ebki getað drepið hér
á nema fátt eitt á þessum mín-
útum, og nú er minn ræðutími að
verða búinn. Ég tel, að obkar
'góða landi hafi verið ilia stjórn-
að á gjöfulu tímabili frá náttúr-
unnar hendi, og að miklum auði
hafi verið sóað, sem betur hefði
verið varið tii að efla atvinnu-
vegi þjóðarinnar og tryggja þegn
um landsins jafnari lífskjör og
traustari framtíð. Það er ekki nóg
fyrir þjóðina, að eiga gott land
og hafa í höndum töfrasprota
vísinda og tækni, þjóðin þarf
einnig að eiga yfir sér stjórnvald,
sem kann og viU þjóna landi og
þjóð með almannahagsmuni efst í
'huga. Þeir, sem nú standa við
stýrið á þjóðarfleyinu, hafa ekki
siglt beitivind heldur slegið und-
an verðbólgusjó og vindi. Verð-
bólgualdan hefur risið hærra og
'hærra. Ráðh. eru hræddir við, að
stjórnars'kútan brotni undan þeim
Verðstöðvunarlögin eru sá báru-
fleygur, sem þeir ætlast til að
lægi svo óiguna, að þeir fái tekið
land, og geti búið skip sitt til
nýrrar ferðar. Ég ráðlegg þjóð-
inni að afmunstra þessa stýri-
menn í vor.
RADIONETTE
tækin henta sveitum
landsins.
Með einu handtaki má
kippa verkinu innan úr
tækinu og senda það á
viðkomandi verkstæði
— ekkert hnjask með
kassann — auðveldara
í viðhaldi.
Radionette-verzlunin
Aðalstræti18 sími 16995
ÁRS ÁBYRGÐ
Aðalumboð: Einar Farestveit & Co. hf. Vesturgötu 2