Tíminn - 10.06.1967, Page 16
B*"
Nasser segir af sér - og
NTB—Kaíró, Tel Aviv,
New York, föstudag.
Gamal Abdel Nasser, forseti
Arabiska sambaudslýðveldisins
lýsti því yfir í útvarps- og sjón
varpsræðu í dag, að hann hefði
ákveðið að segja af sér og um
leið viðurkenndi hann algeran
ósigur Egypta í stríðinu við
ísraelsmenn. Nokkrum klukku-
stundum síðar sendi hann út
yfírlýsingu, þar sem segir, að
hann hefði ákveðið að fresta
iWs^is&SswEBiaBá íiii «' n i iiiiÍnÍwi1
ákvörðuninni um afsögn þar til
liann hefði rælt málið við þjóð
þingið á morgun. f hinni nýju
yfirlýsingu, sem kom mönnum
ekki síður á óvart en sú fyrri,
segist Nasser hafa tekið hina
nýju ákvörðun vegna hinna stór
kostlegu aðgerða fólksins lion-
um til stuðnings, strax eftir að
hann flutti fyrri tiikynningu
sína. Skoraði Nasser á fólk í
Kairó að sýna stillingu og bíða
ró.egt til morguns.
í fréttum frá Kaíró í kvöld
segir, að egypzki^ þjóðin hafi
orðið gersamlega miður sín
vegna tilkynningar Nassers um
afsögn og mátti ekki við miklu,
eftir að ljóst var orðið, hvilíkt
gílurlegt afhroð Egyptar höfðu
beðið í stríðinu við ísraels-
menn.
Frá Beirut og Amman bárust
fregnir um svipuð viðbrögð
fólks þar og nær samtimis skor
aði yfirmaður egypzka sjóhers
ins. Suleiman, á Nasser að taka
ákvörðun sína til nýrrar yfir-
vegunar, vegna öryggis lands-
ins.
í útvarps- og sjónvarpsræð-
unni fyrr í dag viðurkenndi
Nasser algeran ósigur lands
síns ísitríðinu og lýsti ha-rmi
sínum þess vegna, um leið og
hann þakkaði öðrum Arabaríkj
um stuðning og hetjulega bar-
áttu. Hann sagðist láta af öll-
Fnamihald á bls. 14.
Nasser
128. tbl. — Laugardagur 10. júní 1967. — 51. árg.
SJALFBO0ALIDAR
Á KJÖRDAG
Þeir, sem vilja starfa fyrir B-listann í Reykjavik á kjördag,
hafi vinsamlegast samband við hvertaskrifstofui nar og aðal-
skristofu flokksins í Tjarnargötu 26.
Símanúmer hverfaskrifstofanna auglyst á bls. 28.
NÚ ERU ÞEIR HRÆDDIR!
Ríkisstjórnin auglýsir rækilega misbeitingu
sína á valdi sem hún er að missa úr greipum
TK-Reykjavík, föstudag.
Undanfarið hefur ríkisstjórn
in auglýst stór og smá embætti
tugum saman.Oft hefur mönnum
blöskrað en nú tekur út yfir
þjófabálk og öll fyrri met sleg-
in. Nú liafa verið augiýst í Lög
birtingarblaðinu, scm dagsett
er 31. maí, cn borið út þessa
daga, embætti hagsýslustjúra
ríkisins og skattstjórans í
Rcykjaneskjördæmi og var um-
sóknarfrestur um þessi embætti
að nafninu til ein vika, þ. e.
rann lit 8. júní um sömu mund-
ir og blaðið barst lesendum.
Þetta er hið grófasta brot á lög-
um um réttindi og skyldur op-
inberra starfsnianna.
í lögunum segir í 5. grein,
að stöður skuli auglýsa í Lög-
birtingarblaði með fjögurra
vikna fresti. Er hér því greini-
lega um valdníðslu að ræða til
að tryggja fallandi og duglítilli
stjórn veitingavald embætta
ríkisins, som henni ekki ber
samkvæmt lögum. Svo eru þess
ir menn að væna aðra um mis-
ferli í mannaíhaldi og atvinnu-
kúgun og hafa það sem uppi-
stöðu í málflutningi sínum í
kosningabaráttunni.
Furðu hefur vakið, að dóms-
málaráðuneytið hefur neitað
að gefa upp nöfn umsækjenda
um bæjarfógetaembættið á
Aknanesi, en frestur rann út
fyrir heilli viku. Telst þetta til
einsdæma, að neitað ,sé að gefa
upp nöfn umsækjenda um opin-
bert trúnaðarstarf, þegar um-
sóknartfrestur er úti, enda hef-
ur kvisazt, að stjórnarflokkarn
ir ætli að nota þetta líka í póli-
tásfcu skyni tjl að leyisa fram-
boðsvandræði Sjálfstæðistflokks
ins á Vestfjörðum o>g Vestur-
landi.
Bæjanfógetaembættið á Ak-
ureyri losnar efcki fyrr en 1.
október, en því á að úthluta
skv. auglýisingu ríkisstjómar-
innar, í vikunni eftir kosningar.
Bílar á kjördag
Þeir, sem vilja lóna B-listanum bíla á kjördag, eru beðnir að
hafa samband við hverfaskrifstofurnar og aðalskrifstofu Fram
sóknarflokksins í Tjarnargötu 26, sem fyrst
Sjá auglýsingar um símanúmer hvertaskrifstof-
anna á bls. 28.
Sjálfboðaliðar
í Kópavogi
Og þeir, sem vilja lána
bíla á kjördag.
Af hverju eru menn allt-
aí að tala um hvað eigi
að aera i haust?
Þeir, sem vilja lána bíla á kjör
dag, hafi sambánd við kosninga j
skrifstofu B-listans í Kópavogi,!
Neðstutröð 4, sími 41590, sem j
fyrst. Þeir, sem viija starfa fyrir
flokkinn á kjördag, eru beðnir að j
hafa cinnig samband við skrifstof i
una sem fyrst.
Sjá auglýsingu um aðrar kosn-|
ingaskrifstofur í Reykjavíkj
á bls. 28. I
NÝJA ENGEYJARLAGIÐ
^ ( mimuMBmRBm)
DREGIÐ í KVÖLD
Dregið verður í Ferðahappdrætti B-listans í Reykjavík i kvöld. (VIJÖG ÁRÍÐANDI ER, AÐ
ALLIR GERI FULL SKIL NÚ ÞEGAR. Afgreiðsla happdrættisins er að Hringbraut 30,
sími 12942. Einnig tekur afgreiðsla TÍMANS, Bankastræti 7, við greiðslum fyrir miða.
HAPPDRÆTTISNEFNDIN