Alþýðublaðið - 24.10.1985, Síða 1
I
alþyðu-
Fimmtudagur 24. október1985 Blað 2 203. tbl. 66. árg.
25
þúsund
eintök
í dag er Alþýðublaðið gefið út í25þúsund eintök-
um. Því er dreift ókeypis um Reykjavík, Hafnarfjörð
og Akureyri. Hluti blaðsins er helgaður síðasta degi
kvennaáratugarins, en íþessu blaði er að hluta fjallað
um atvinnulífið og stjórnmálin. Noesta stóra blað
kemur út að hálfum mánuði liðnum.
Hver er réttarstaða
heimavinnandi fólks?
Verðbólgu-
spilavítinu
sagt stríð
á hendur
Sjá bls. 4 og 5
Hver er réttarstaða heimavinn-
andi fólks? Á Alþingi hefur Al-
þýðuflokkurinn flutt tillögu um
að leitast verði við að svara þess-
ari spurningu. Þar er ríkis-
stjórninni falið að skipa sjö
manna nefnd, sem hafi það
verkefni að meta þjóðhagslegt
gildi heimilisstarfa og gera út-
tekt á hvernig félagslegum rétt-
indum og mati á heimilisstörf-
um er háttað, samanborið við
önnur störf í þjóðfélaginu. Nið-
urstöður og tillögur til úrbóta
eiga að liggja fyrir Alþingi eigi
síðaren 1. janúarnæstkomandi.
Flutningsmenn tillögunnar
eru Jóhanna Sigurðardóttir,
Kjartan JóhannsSon, Eiður
Guðnason og Jón Baldvin
Hannibalsson.
í greinargerð segir m.a.:
1. Ekki liggur Ijóst fyrir um hve
stóran hóp þjóðfélagsþegna
er að ræða sem eingöngu
vinnur heimilisstörf, en á ár-
inu 1982 voru 80% kvenna 16
ára og eldri með einhverja
vinnu utan heimilis.
2. Heimavinnandi fólk hefur
ekki aðgang að lífeyrissjóði
og því mjög takmörkuð líf-
eyrisréttindi.
3. Störf heimavinnandi fólks
eru eina vinnuframlagið í
þjóðfélaginu sem ekki eru
greidd laun fyrir, og sjálf-
sögð félagsleg réttindi eins og
Framh. á bls. 14.
Kvennaverkfall:
Sést á
blöðum
Kvennaverkfallið í dag mun m.a.
setja mark sitt á útkomu dagblaó-
anna á morgun. Þegar Alþýðublað-
ið kynnti sér þetta mál í gær, lá Ijóst
fyrir að Alþýðublaðið og Þjóðvilj-
inn kæmu ekki út en meiri óvissa
ríkti um liin Reykjavíkurblöðin
þrjú. Blöðin eru að langstærstum
hluta sett af konum þannig að þær
konur sem vinna við setningu hafa
í flestum tilvikum í hendi sér að
stöðva útgáfuna.
Á DV var í gær ekki talið að sam-
staða myndi nást um að þær konur
sem þar vinna við setningu, legðu
niður vinnu og voru því allar horfur
á að DV muni koma út á morgun. Á
NT höfðu konurnar ekki enn tekið
ákvörðun, þegar Alþýðublaðið
hafði samband þangað í gær en gert
var ráð fyrir að þar yrði tekin sam-
eiginleg ákvörðun í málinu.
Á Morgunblaðinu lá ljóst fyrir
að auglýsingadeildin yrði Iokuð í
dag, en þar vinna einvörðungu kon-
ur í móttöku. Konur þær sem vinna
við setningu á blaðinu höfðu hins
vegar ekki tekið endanlega ákvörð-
un í málinu en bjuggust við að
vinna annað hvort alls ekki eða fara
heim um hádegi. Morgunblaðið
hefur hins vegar þá sérstöðu að
blaðamenn setja greinar sínar sjálf-
ir beint inn á tölvu. Engu að síður er
stór hluti efni Morgunblaðsins sett-
ur af konum og gæti því blaðið orð-
ið með þynnra móti á morgun, auk
þess sem auglýsingar verða trúlega
færri en venjulega.
GOTTADMETA
Ánægjuleg niðurstaða fyrir íslenska ostameistara ogneytendur.
Á mjólkurvörusýningu sem nýlega var haldin í Herning í Danmörku voru íslenskir ostar
metnir ásamt dönskum ostum. Er skemmst frá því aö segja aö íslensku ostarnir gáfu þeim dönsku
ekkert eftir, enda fengu þeir sambærilega meöaleinkunn í gæðamati dönsku sérfræöinganna, eöa
rúmlega 11 af 15 mögulegum.
Danir eru annálaðir fagmenn í ostagerð og því er útkoma íslensku ostanna mjög uppörvandi
fyrir íslenska ostameistara. Hún er um leið skýring á því hvers vegna íslendingar hafa skipað sér
á bekk meö mestu ostaneysluþjóöum heims.
íslensku ostarnir sem fengu hæstu einkunn voru:
Mysingur sem fékk 12,8 í einkunn.
^ Framleiöandi er Mjólkursamlag KEA á Akureyri
f|Jf wB Wm 09 ostame'star' er Oddgeir Sigurjónsson.
Æm ■: á.''' llr . 45% Maribóostur sem fékk 12.5 í einkunn.
MpCTLi A Framleiðandi er Mjólkursamlag K.S. á Sauðár-
\ "ík króki og ostameistari er Haukur Pálsson.
^ ]■ í *
r&zzM á %• Smurostar frá Osta- og smjörsölunni sem fengu
12,51 e‘nkunn- Ostameistari er Guðmundur Geir
( Kð \ Gunnarsson.
S$ femu ó áw