Alþýðublaðið - 24.10.1985, Síða 13

Alþýðublaðið - 24.10.1985, Síða 13
Fimmtudagur 24. október 1985 13 Sól hf Svalinn útflutnings- vara „Það eru slórframkvæmdir hér á lóðum okkar í nágrenninu núna og eftir að þessum framkvæmdum er lokið verður húslína okkar hér við Þverholtið orðin 140 metrar“. Það er Davíð Scheving Thor- steinsson, forstjóri Sól hf. og Smjörlíkis hf., sem hefur orðið. „í þessari nýbyggingu okkar verður tölvustýrður lager fyrir alla framleiðsluna ásamt nýjum fram- leiðslusölum auk stórbættrar ,að- stöðu fyrir allt starfsfólk. Ég segi þér ekki útí hvaða framleiðslunýj- ungar við erum nú að fara, það er á þessu stigi málsins hreint fram- leiðsluleyndarmál. Jafnvel bank- arnir fá ekki að vita það, þrátt fyrir mikla eftirgrennslan. Ég er núna á leið til stærstu mat- vælasýningar í heimi í Köln í Vest- ur-Þýskalandi, þar sem við hér hjá Sól hf. verðum þátttakendur. Við munum leggja áherslu á kynningu og frekari sölu á drykknum okkar Svala, en nú þegar seljum við tals- vert magn af drykknum til útlanda. Þessi sýning býr við hvorki meira né minna en 227 þúsund fermetra húsakost, það eru sem sagt nær tuttugu og þrír hektarar undir þaki. Þetta hljómar kannski svolítið æv- intýralegt en auðvitað gerist aldrei neitt hjá okkur iðnrekendum í út- flutningsmálum, ef við sitjum bara alltaf heima. Við leggjum áherslu á að kynna Svalann fulltilbúinn en einnig erum við reiðubúnir að selja tækni- kunnáttuna og uppskriftina. Ég fer nú ekki aldeilis einn á þessa sýn- ingu, því með mér verður sterkasti maður heims, Jón Páll Sigmarsson, ásamt þremur undurfríðum meyj- um samtals mælandi á níu þjóð- tungum. Má mikið vera ef okkur tekst ekki að fá einhverja til þess að staldra við básinn okkar. Salan á Soda-Stream hefur geng- ið afburða vel. T.d. var skýrt frá því Davíð Scheving með Jón Pál á stœrstu matvœla- sýningu í heimi. Stórfram- kvœmdir í Þverholtinu. í hinu heimsfræga riti Time að á þremur og hálfu ári hafi 40% heim- ila fengið sér Soda-Stream á íslandi meðan aðeins J2% heimila í Eng- landi hafi fcngið drykkinn, þótt þeir í Englandi hafi haft 12 ár til þess að selja hann. Söluaukningi á Svala er einnig ævintýraleg og aukast vinsældir drykkjarins stöðugt þrátt fyrir harða samkeppni. Fulltrúaráðið á Akureyri: Eingöngu konur kosnar í stjórn Aðalfundur Fulltrúaráðs Al- þýðuflokksfélaganna á Akureyri var haldinn að Strandgötu 9, Akur- eyri, 21. þessa mánaðar. Á fundin- um fór fram stjórnarkjör, og þar gerðust þau undur og stórmerki, að í stjórnina voru eingöngu kosnar konur. Þessi nýja stjórn hefur nú skipt með sér verkum. Herdís Ingvadóttir er formaður, Hulda Eggertsdóttir ritari og Helga Árnadóttir gjald- keri. Endurskoðendur voru kjörnar Anna Árnadóttir og Kristín Gunn- arsdóttir. — Þetta er í fyrsta skipti, að stjórn Fulltrúaráðsins er alfarið skipuð konum, er það vel við hæfi í lok kvennaáratugarins. Nýkjörin stjórn Fulltrúaráðs Alþýðuflokksfélaganna á Akureryi: Taliðfrá vinstri: Hulda Eggertsdóttir, Herdís Ingvadóttir og Helga Árnadóttir. Dönsku sæta áklæðin nýkomin. Glóðarkerti í flestar tegundir bifreiða. Hjólkoppar nýkomnir.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.