Alþýðublaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 2
2 Laugardagur 4. október 1986 í * I alþýðu- Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík Sími: (91) 681866, 81976 Útgefandi: Blað hf. Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.) Blaðamenn: Jón Daníelsson og Ása Björnsdóttir Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot: Alprent hf., Ármúla 38 Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12 Askriftarsíminn er 681866 ■ n „Maðurinn er gullið" 5JMaðurinn ergullið." Eft- ir þessari grundvallarreglu þarf skipan mannfélags- málanna að mótast á kom- andi árum. Við eygjum nú þá möguleika, sem mann- kynið hefur hingað til að- eins séð í hillingum ævin- týra sinna og drauma. Svo er tækninni fyrir að þakka. jj 1 'ram til þessa hefur skortur stafað af ónógri framleiðslu lífsnauðsynja. í þjóðfélagi nútímans er þeirri orsök ekki til að dreifalengur. Skorturstafar þvert á móti nú af offram- leiðslu að jafnaði — vegna þess að gullið er rétthærra en maðurinn.11 ,,Verða möguleikar tækn- innar aðeins tækifæri fárra manna — örfárra sérstakra útsjónar- og dugnaðar- manna, nokkurra heppinna en miður vandaðra ein- staklinga — til þess að velta peningunum, eða verða þeir tækifæri fjöld- ans til sæmilegra kjara, til menningarlífs?" Þannig spurði séra Sigur- björn Einarsson, fyrrum • • KJORBOKINA SEMUR ÞÚ SJÁLFUR 26,3 MILUÓNUM ÚTHLUTAÐ I VIÐBÓTAR- HÖFUNDARLAUN NÚ UM MÁNAÐAMÓTTN n ÉM&sM rið 1986 ætlar að verða Kjörbókareigendum sérstaklega hagstætt og greinilegt að þeir eiga skemmtilega og spennandi lesningu í vændum. Reyndar vissu þeir að Kjörbókin ber háa vexti. Þeir vissu líka að innstæð- an er algjörlega óbundin. Og þeir vissu að saman- burður við vísitölutryggða reikninga er vöm gegn verðbólgu. En ætli nokkurn hafi grunað að ávöxtun Kjörbókar fyrstu níu mánuði þessa árs samsvaraði 20,7% árs- ávöxtun. Það jafngildir verðtryggðum reikningi með 6,19% nafnvöxtum. Svona er Kjörbókin einmitt: Spennandi bók sem endar vel. Við bjóðum nýja sparifjár- eigendur velkomna í Kj örbókarklúbbinn. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna KJÖRBÓK biskup, í bæklingnum „Hvers vegna kýs ég Al- þýðuflokkinn?11, sem kom út fyrir réttum 40 árum. Þessi orð hans eru nú rifjuð upp í tilefni flokksþings Alþýðu- flokksins, sem háð er um þessa helgi í Hveragerði. Alþýðuflokkurinn, eins og aðrirjafnaðarmannaflokkar um heim allan, bera fyrir brjósti þá stefnu, sem boð- ar, að maðurinn sé rétt- hærri en gullið, — að af- rakstur tækniframfara og framleiðniaukningar eigi að koma öllum til góða; ekki aðeins fáum útvöld- um, og að kjörorðin um frelsi jafnrétti og bræðra- lag séu enn í fullu gildi. Baráttan gegn misrétti óheftrar markaðshyggju, sem stundum er nefnd ný- frjálshyggja, og tekur gullið fram yfir manninn, er bar- átta mannúðarstefnu gegn því frumskógarlögmáli, að sigurinn skuli vera hins sterka. Gegn þessu frum- skógarlögmáli berjast jafn- aðarmenn um leið og þeir hafna ómanneskjulegu og helköldu alræði kommún- ismans. Jafnaðarstefnan er hvar- vetna í sókn. Samstöðu- hugsjónin, sem byggir á nýjum hugmyndum um efnahagslegar framfarir, réttlátari skiptingu þjóðar- auðs, fullri atvinnu fyriralla og ábyrgð manns á manni frá vöggu til grafar, á stöð- ugt meiri hljómgrunn, eink- um meðal ungu kynslóðar- innar. I nokkrum Evrópuríkjum hafa menn orðið vitni að af- leiðingum þeirrar stjórnar- og efnahagsstefnu, sem byggir á óheftri markaðs- hyggju. Þær eru hörmuleg- ar. Velferðarkerfið er að hruni komið, atvinnuleysi er gífurlegt og efnaleg mis- skipting brýtur gegn öllum reglum og lögmálum um jöfnuð og réttlæti. - Um ástandið íkommúnistaríkjun- um þarf ekki að fara mörg- um orðum. Gegn þessum stjórnkerf- um snúast nú verkalýðs- hreyfingar og jafnaðar- mannaflokkar af fullri hörku og boða nýjar leiðir. Alþýðuflokkurinn er þar engin undantekning, enda hafa íslendingar orðið harkalega fyrir barðinu á fylgisspekt núverandi ríkis- stjórnar við stefnu frjáls- hyggjumanna, sem taka gullið fram yfir manninn. 43. flokksþing Alþýðu- flokksins verður tímamóta- þing. Ný samtök jafnaðar- manna ganga til liðs við flokkinn; klofningsiðju for- tíðarinnar er lokið og við taka nýir tímar samstöðu og öflugrar sóknar jafnað- arstefnunnar. — Maðurinn er gullið! Þörfin fyrir áhrif jafnaðarstefnunnar hefur aldrei verið meiri en nú. Öfl- ugur íslenskur jafnaðar- mannaflokkur er markmið í sjónmáli.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.