Alþýðublaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 11
Laugardagur 4. október 1986
11
Viðtal við Alan Garcia Perez, forseta Perú:
„Ef við værum veik
ríkisstjórn sem fólk-
ið hataði yrðum við
að leita skjóls bak
við víggirðingar og
vélbyssuhreiður."
Eftir eitt ár við völd stendur Alan
Garcia, forseti Perú, frammi fyrir
dýpstu pólitísku kreppunni á
skömmum valdaferli. Fyrst beitti
forsetinn hernum til að brjóta á bak
aftur uppreisn fanga í ríkisfangels-
um í Perú. Uppreisnin var skipu-
lögð af „maóískum" skæruliða-
samtökum sem kenna sig við „stíg
hins skínandi ljóssí* í þessum
vopnaviðskiptum voru hundruð
fanga teknir af lífi, eftir að þeir
höfðu gefizt upp.
Alan Garcia brást við hart og hélt
því fram að herlögreglan hefði gert
sig seka um agaleysi og brot á fyrir-
mælum og setti 100 yfirmenn af.
Jafnframt fyrrskipaði hann
rannsókn málsins sem skyldi fara
fram á vegum þingnefndar annars
vegar og hæstaréttar hins vegar.
Ennfremur bauð hann fulltrúum
líknarsamtaka eins og Rauðakross-
inum og Amnesty International að
koma til Perú og rannsaka málið á
eigin spýtur.
Margir sérfræðingar í málefnum
S-Ameríku héldu, að með þessum
aðgerðum hefði forsetinn gengið of
langt. Herinn mundi ekki líða þessa
lítillækkun og láta til skarar skríða
og svipta hann völdum. Það hefur
ekki gerzt — enn að minnsta kosti.
Skoðanakannanir i Perú á ársaf-
mæli valdatöku jafnaðarmanna-
flokksins og Garcia forseta sýna að
hann nýtur feikna vinsælda; nýtur
stuðnings um 70% þjóðarinnar.
Garcia vakti heimsathygli þegar
hann lýsti því yfir við valdatöku
sína að ríkisstjórn hans mundi neita
að greiða meira en sem svaraði 10%
af gjaldeyristekjum landsins í af-
borganir og vexti af skuldum við
Alþjóðabankann og alþjóðlega
fjármagnsmarkaði.
Þá var hann einnig mikið í sviðs-
ljósinu sem gestgjafi Alþjóðasam-
bands jafnaðarmanna, sem hélt 17.
alþjóðaþing sitt í Líma, í fyrsta sinn
á meginlandi Suður-Ameríku, og
greinilega í þvi skyni að veita hinum
unga forseta siðferðilegan stuðning
í baráttu hans við hið alþjóðlega
auðvald.
Alan Garvia er 37 ára gamall.
Nýlega birti bandaríska vikuritið
Newsweek viðtal við hann og fer
það hér á eftir:
NEWSWEEK: Að loknu fyrsta
árinu virðast hveitibrauðsdagarnir
búnir. Á þessu fyrsta ári hefur þú
notið fádæma vinsælda, góðra
samskipta við fjölmiðla og að því er
virðist trausts eða a.m.k. hlutleysis
hersins. Hafa aðgerðir hersins eftir
fangauppreisnina breytt þessu öllu
saman?
GARCIA: Samskipti mín við
þjóðina hafa ekkert breytzt. Ríkis-
stjórn mín er umsetin hrikalegum
vandamálum. Hörmulegir atburðir
geta gerzt, líka í lýðræðisþjóðfélög-
um. En að svo miklu leyti sem ríkis-
stjórnin getur unnið bug á erfið-
leikunum, réttarríkið fær að starfa
og unnt er t.d. að koma lögum yfir
valdamikla herforingja, þá standa
vonir til að við getum komið í veg
fyrir að slíkir atburðir endurtaki
sig. Og þar með fest lýðræðið í
sessi.
Hvernig eru samskipti þín við
herinn?
Menn verða að gera sér ljóst að í
Perú er aðeins ein ríkisstjórn, að-
eins eitt ríkisvald. Og það er nú lýð-
ræðislegt ríkisvald, sem sækir um-
boð sitt til fólksins. Ég er sannfærð-
ur um að „atburðirnir“ hafa engu
breytt um samskipti mín við yfir-
völd hersins. Það er engin hætta á
valdatöku hersins hér.
„Eg mun ævinlega setja á odd
inn þá kröfu, að lýðræðisríki
sýni virðingu fyrir lögum“
Heimildir okkar herma að sam-
skiptin við herforingjana hafi
versnað mjög við ákvörðun þína
um að sækja þá sem báru ábyrgð á
fjöldamorðunum til saka. Geta þeir
ekki haldið þvi fram að þeir hafi
verið að fylgja fyrirskipunum for-
setans?
Ríkisstjórnin ákvað að bregðast
hart við og kveða niður uppreisnar-
tilraun og stjórnleysi í fangelsum í
Perú. í reynd höfðu fangarnir sjálf-
ir stjórnaö fangelsunum innan frá
og þannig haft lög og reglur hins
lýðræðislega ríkið að háði og
spotti. Þegar réttmætar aðgerðir
hersins snerust upp í forkastanleg-
an glæp, þá var ég, forseti fólksins,
fyrstur manna til að fordæma þær.
Var það skynsamlegt yfirleitt a’ð
kveðja herinn til?
Hið lýðræðislega ríki hefur rétt
til þess að verja sjálft sig gegn vopn-
uðu ofbeldi. Éf við værum veik rík-
isstjórn, ríkisstjórn sem fólkið
hafnaði eða í gíslingu hjá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum, þá yrðum við
að leita skjóls bak við allsherjarvíg-
girðingar.
Þú minntist á IMF, Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn. Mun Perú greiða
skuldir sínar á réttum gjalddögum?
Perú mun mæta skuldbindingum
sínum um að borga það sem það
getur.
Hvað er að segja um þá stefnu
þína að greiða lánardrottnum að-
eins 10% af gjaldeyristekjum þjóð-
arinnar?
Sögusagnir herma að vegna þess
að heimsmarkaðsverð á málmum
og olíu hefur lækkað, munir þú
minnka greiðslurnar enn frekar?
Perú mun verja 10% af útflutn-
ingstekjum sínum til þess að greiða
afborganir og vexti af erlendum
skuldum, þ.m.t. skuldum sínum við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Hvaða árangri náðir þú fyrsta ár-
ið?
í upphafi var þessi ríkisstjórn
eins og flugvél í hvirfilvindi. Við
tókum við siðferðilega og fjárhags-
lega gjaldþrota þrotabúi. Verðbólg-
an var stjarnfræðileg, gengisfelling-
ar vikulegar, og stjórnvöld höfðu
algerlega brugðizt öllum trúnaði
fólks.
Við höfðum komið verðbólgunni
úr 900% niður í 65—67%. Við höf-
um létt verstu efnahagspressunni af
fátæklingunu. Gjaldmiðill okkar er
nú stöðugur gagnvart dollar, einka-
neysla hefur aukizt. Hagvöxtur hef-
ur aukizt verulega, t.d. 13% vöxtur
iðnaðarframleiðslu á fyrsta árs-
fjórðungi þessa árs.
Félagsmálastefna okkar er í þágu
smábænda. Við höfum gefið þeim
viðurkenningu ríkisins á söguleg-
um kröfum þeirra til landeignar.
Við höfum tryggt íbúum fátækra-
hverfanna grundvallarréttindi sem
eru að fá vatn og rafmagn. Við
höfum sannað að það er hægt að ná
tökum á hagkerfinu án þess að
fylgja óaðgengilegum fyrirmælum
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Þess vegna nýtur ríkisstjórn mín
stuðnings þjóðarinnar.
Þú kallar þig byltingarsinnaöan
jafnaðarmann. Hefur þá ekki
hvarflað að þér að leggja skærulið-
um lið?
Ég tilheyri millikynslóð í sögu
Perú. Minn aldurshópur er á milli
eldri, miðstéttarmanna, sem voru
rómantískir byltingarsinnar sem
trúðu á el Che (Ernesto C. Guevara,
kúbanska byltingarleiðtogann). Og
þeirrar kynslóðar sem nú fetar slóð
hins skínandi stígs. Ég var sjálfur'
mikill aðdáandi el C. Ég get skilið
ástæður fyrir ofbeldi þeirra, sem
eru reiðubúnir að láta lífið í baráttu
fyrir málstað. En ég skil ekki of-
beldi þeirra, sem fyrst og fremst
vilja fórna öðrum og saklausum
mönnum fyrir málstað, sem þeir
hafa aldrei gert öðrum skiljanleg-
an. Terroristar hins skínandi stígs
eru stjórnleysingjar, grimmdar-
seggir, af sama sauðarhúsi og Pol
pott og aðrir þjóðarmorðingjar og
ég fyrirlít þá af dýpsta hjarta.
Ætlarðu að grípa til harðari að-
gerða framvegis gegn skæruliða-
hreyfingunni?
Nei. Ég mun ævinlega setja þá
kröfu á oddinn að lýðræðisríki sýni
virðingu fyrir lögum. Sumir i kring-
um mig eru óþolinmóðir. Sumir
spyrja, hvers vegna við höfum ekki
fyrirskipað allsherjar húsrannsókn
í Líma eða sett af stað hernaðarleg-
ar hreinsunaraðgerðir í sveitum.
Sem dæmi má nefna að mánuðum
saman hef ég neitað beiðni frá Iög-
reglunni um að ráðast inn í háskóla-
hverfið. Við vitum að heimavistir
háskólans eru undirlagðar af áróð-
ursmönnum „hins skínandi stígs“.
Ég hef neitað að fyrirskipa slíkar
aðgerðir. Þær myndu leiða ríkis-
stjórn mína til allsherjar uppgjörs
við námsmannakynslóðina og
vafalaust hafa í för með sér missi
mannslífa hundruða ef ekki þús-
unda. Ég hef ekki hugsað mér að
stunda fjöldamorð á stúdentum.
Við heyrum lögregluforingja
kalla þig raggeit?
Jæja. Það var nú samt ég sem
vann kosningarnar en ekki þeir.
Það er ég sem ræð.
Höggdeyfa