Alþýðublaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 17

Alþýðublaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 17
Laugardagur 4. október 1986 17 Markmið Framh. af bls. 19 eigur bera sömu byrðar hlutfalls- lega og þeir eignaminni, þ.e. hann fer ekki stighækkandi. í þriðja lagi eru skattfrelsismörkin of Iág, þ.e. greiddur er eignarskattur af tiltölu- lega litlum eignum. a) Fyrir einstaklinga. Tillögur Alþýðuflokksins ,D Eignarsk.stofn millj. króna 0.0— 1.6—5.0 m. 5.0—7.5 m. 7.5 og þar yfir 2) skatthlutfall 0.0% 1.2% 2.4% 3.6% b) Fyrir lögaðila. Tillögur Alþýðuflokksins 1) 2) Eignarsk.stofn skatthlutfall millj. króna 0.0—5.0 m 1.2% 5.0—7.5 m. 2.4% yfir 7.5 m. 3.5% Niðurstaða útreikninga er að heildarálagning eignarskatta hefði orðið samkvæmt frumvarpinu við álagningu 1985 kr. 1.032 m. kr. Hér er um að ræða hækkun eignar- skatta um 435 m. kr. frá álagningu 1985 eða 7.3% hækkun. Hér er gert ráð fyrir, að eignarskattsauki sbr. lög nr. 48 24. júní 1985 (og síðar eignarskattsauki vegna Þjóðarbók- hlöðu) verði lagður á áfram. Við álagningu 1985 er gert ráð fyrir að eignarskattsauki nemi allt að 110 m. kr. Tillögur Alþýðuflokksins fela í sér, að eignarskattur lögaðila (fyrir- tækja) myndi hækka úr 244 m. í 755 m., en eignarskattur einstaklinga myndi lækka um 76 m. kr. Við álagningu 1985 greiddu lög- aðilar 40.9% eignarskatta og ein- staklingar 59.1%. Útreikningar sýna, að skv. tillögum Alþýðu- flokksins myndu lögaðilar (fyrir- tæki) greiða 73.2% eignarskatta, en einstaklingar 26.8%. Við álagningu 1985 var eignar- skattshlutfall einstaklinga að með- altali 0.29%, en tillögur Alþýðu- flokksins fela í sér að meðalhlut- fallið yrði 0.22%. Tillögur Alþýðu- flokksins fela jafnframt í sér að dreifing eignarskatta einstaklinga myndi gjörbreytast. Þannig myndu eignarskattar ein- staklinga með eignarskattstofn allt að 3,975 m. kr. greiða lægri eignar- skatt en skv. álagningu 1985. Eign- arskattar þessara einstaklinga myndu lækka úr 264 m. kr. í 120 m. kr. eða um 144 m. kr. og meðal- skatthlutfall mundi lækka úr 0.24% í 0.11%. Hins vegar myndur eignarskattar einstaklinga með eignarskattstofn yfir 4.0 m. kr. hækka um 67 m. kr. Meðalskatthlutfall lögaðila mundi hækka úr 0.82% í 1.4%. Samkvæmt gildandi lögum um eignarskatta fyrirtækja eru þeir hlutfallslegir, þ.e. ein skattprósenta og engin skattfrelsismörk. Tillögur Alþýðuflokksins gera ráð fyrir, að í stað beinnar skattprósentu komi hækkandi skatthlutfall i þremur þrepum. Útreikningar sýna, að eignarskattar fyrirtækja myndu hækka um 511 m. kr., og að meðal- skatthlutfall mundi hækka úr 0.95% í 2.9%. Langstærstur hluti hækkunarinnar legðist á lögaðila með eignarskattstofn yfir 7.5 m. kr., en eignarskattar þeirra mundu 3.5-faIdast. 4. Söluskattur/Virðisaukaskattur. Rætt hefur verið um upptöku virðisaukaskatts hér á landi, en það kerfi er ráðandi í nágrannaiöndum okkar. Virðisaukaskattinum er ætlað að koma í stað söluskatts- kerfisins, sem hefur marga og veigamikla galla. Það er flókið, fullt af undanþágum og er því öll framkvæmd þess og eftirlit veru- lega erfitt. Það raskar samkeppnis- aðstöðu framleiðslugreinanna og hefur óeðlileg áhrif á neyzluval. Veigamesti gallinn eru uppsöfn- unaráhrif skattsins, sem hafa tilvilj- Breytingartillögur til umhugsunar. 1. Afnám skattfrelsis sparifjár. 2. Um stigbreytilegan eignarskatt. Alþýðuflokkurinn leggur til að eignarskattsprósenta verði stig- hækkandi. Alagningarbil og skatt- hlutfall verði samkvæmt tillögum Alþýðuflokksins eins og fram kem- ur á eftirfarandi töflu. Til saman- burðar eru sýnd ákvæði gildandi laga um eignarskatt. Gildandi skattalög 3) 4) Eignarsk.stofn skatthlutfall millj. króna 0.0—0.975 0.0% 0.975 og yfir 0.95% Gildandi skattalög 3) 4) Eignarsk.stof n skatthlutfall millj. króna yfir 0.0 0.95% unarkennd áhrif á framleiðsluað- ferðir og samkeppnisaðstöðu at- vinnugreinanna. Sérstaklega baga- leg eru áhrif uppsöfnunarinnar á samkeppnisstöðu íslenzkra fram- leiðsluvara gagnvart erlendum, bæði á erlendum og innlendum mörkuðum. Virðisaukaskattur bætir úr meg- ingöllum söluskattskerfisins, en forsendur þess eru þó þær að við upptöku hans verði skattskyldusvið víkkað verulega og nær allar und- anþágur núverandi kerfis felldar niður. Því hefur verið haldið fram að virðisaukaskattur yrði flóknari og dýrari í framkvæmd en núverandi söluskattskerfi. Þetta er sjálfsagt rétt en óraunhæfur samanburður. Ef ætti að fullnægja lágmarkskröf- um um öryggi og eftirlit með nú- verandi söluskattskerfi þyrfti marg- falt meira fé en nú er varið og það yrði örugglega dýrara vegna virðis- aukaskattsins. Engin ástæða er til þess að hann verði flóknari en sölu- skattskerfið. Þetta eru sambærileg kerfi. Það sem skiptir máli í þessu sambandi er að hafa undanþágur sem fæstar. Það neikvæða við upp- töku virðisaukans og afnám á und- anþágum er að verð á ýmsunr mat- vælum mundi hækka. En eins og kunnugt er eru matvörur nú undan- þegnar söluskatti. Þeim tekjulægri verður að bæta þetta upp á einhvern hátt, t.d. með hækkun bóta al- mannatryggingakerfisins. Þá gæti hugsast að taka þyrfti upp svo- nefndan neikvæðan tekjuskatt. Þá er ónefndur einn helzti kostur þess að taka upp virðisaukaskatt og fella niður söluskattinn í núverandi mynd. Enn auðveldara á að vera að fylgjast með og korna í veg fyrir undandrátt. í dag er viðurkennt af öllum að verulega vantar á að allur söluskattur skili sér, bæði vegna þess hve kerfið er flókið og undan- þágur eru margar, auk þess sem al gengt er að söluskatti er hreinlega sleppt í viðskiptum manna á milli og þykjast báðir hagnast. Talið er að virðisaukaskatturinn skili sér mun betur. Ef virðisaukaskattur verður ekki tekinn upp er mikið verk óumflýjanlegt við það að end- urskoða söluskattslögin. 5. Skattundandráttur. Einfalda skattakerfið. Herða viðurlög. Gera það réttlátara og auðskildara. Svört neðanjarðarstarfsemi. Þjónustufyrirtækjum fer fjölg- andi. Erfitt er að fylgjast með þeim. LÝKUR 31. OKTÓBER ||U^EF®AF Heitavatnið er ekki óþrjótandi nema Sum lífsþægindi eru svo samtvinnuð daglegu lífi okkar að við tökum naumast eftir þeim. Þannig finnst okkur heita vatnið ósköp hversdags- legt og lítilvægt, nánast jafn- sjálfsagt og andrúmsloftið. Ekkert er t.d. eðlilegra en að geta skotist í heitt og notalegt bað hvenær sem er nema... nema ef lokað er fyrir heita vatnið. Þá vekur köld gusan okkur til umhugsunar og skyndilega er smáatriðið orðið að aðalatriði. Allt í einu jafnast ekkert á við heitt vatn. Heitt vatn úr iðrum jarðar er auðlind sem mikilvægt er að nýta. Hitaveita Reykjavík:ur kappkostar að miðla þessari verðmætu orku skilvíslega og hnökralaust til notenda. Til að það sé unnt verða orkukaup- endur að greiða skilvíslega fyrir þjónustuna. Hafðu hug- fast að heita vatnið er ekki óþrjótandi nema þú greiðir orkureikninginn. Láttu orkureikninginn hafa forgang. RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR SUÐURLANDSBRAUT 34 SÍMI686222 • ••

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.