Alþýðublaðið - 14.02.1987, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 14.02.1987, Blaðsíða 5
Laugardagur 14. febrúar 1987 5 Jón Baldvin Hannibalsson Magnus H. Magnússon Elín Alma Arthúrsdóttir Happdrættisvinningur eða búhnykkur Frá fundaherferð Alþýðuflokksins — Brjótum múrinn — í Þorlákshöfn Landsbanki íslands Stærsta einstaka innlánsformið Jón Baldvin Hannibaisson, formaður Alþýðuflokksins, og efstu menn á lista Alþýðu- flokksins í Suðurlandskjör- dæmi hafa verið á yfirreið um kjördæmið og haldið fundi í Þorlákshöfn, á Selfossi og Hellu. Á fundum hefur verið lögð áhersla á meginlínurnar í stefnu Alþýðuflokksins fyrir næstu kosningar, og fjallað um skilyrði þess að flokkurinn færi í ríkisstjórn að loknum kosning- um. „Ríkisstjórnin státar af góð- æri til sjávar og sveita,“ sagði Jón Baldvin, „en hverjir hafa notið góðærisins og í hverju feist góðærið? Þjóðin fékk 6—7 milljarða króna upp í hendurnar 1986. Og hvers vegna? GOÐÆRIÐ Engum þykir mikið, þó að Framsókn vilji helst koma út í renusnum í landbúnaðarvist- inni, sem fólki er boðið upp á. Fara þeir nú allir saman um hér- uð og hafa Unni með sér í eftir- dragi. Hvað ætli þeir framsóknar- feðgar segi t.d. við bændur og búalið, sem gert er að lifa af kvóta, sem veitir 30 þúsund krónur í aðra hönd af innlagðri mjólk á mánuði. Dæmið er að vísu af 4ra manna fjöiskyldu og þetta er ekkert einsdæmi. Aust- ur í kjördæmi Jóns Helgasonar heldur kerfið uppteknum hætti og skerðir kvótann niður úr öllu og niður fyrir lægstu mörk. Það er skömm að þessu. Þorrablót Hvergerðingar, vinir og vandamenn skemmtu sér kon- unglega á fyrsta þorrablótinu, sem Hótel Örk hélt á föstudags- kvöldið. Þykir ekki dónalegt að blóta á Örkinni. Árið 1986 var — næst mesta aflaár ís- landssögunnar — mesta verðmætaár sjávar- afla (vegna hækkandi verðs á erlendum mörk- uðum) — „hagstætt" á erlendum lánamarkaði með lækk- andi vöxtum. í dag stefnir því miður í vax- andi verðbólgu. Ríkisstjórnin kyndir undir með því að hafa stórfelldan halla á ríkisrekstrin- um 1987. Það er því allsendis óvíst, hvort þjóðin naut einungis happdrættisvinnings í fyrra, sem brenna mun upp á verð- bólgubáii, eða við njótum var- anlegs búhnykks. Til þess að fá því framgengt sem að er stefnt, verður Alþýðu- flokkurinn að fá mikilvæg ráðuneyti í næstu ríkisstjórn: — Félagsmálaráðuneyti til þess að ná fram breytingum í húsnæðismálum og á stjórn- kerfinu (m.a. vegna breyttra samskipta ríkis og sveitarfé- laga). — Fjármálaráðuneyti vegna nauðsynlegra umbóta í skatta- kerfinu og á lífeyrissjóðum (með sameiningu þeirra). — Atvinnumálaráðuneyti. Eins og kunnugt er, hefur Al- þýðuflokkurinn lagt til að ýms- um ráðuneytum verði steypt saman í eitt ráðuneyti atvinnu- mála (og skipstjórinn í brúnni verði Jón Sigurðsson, fyrrum Þjóðhagsstjóri). Á fundunum á Suðurlandi var mönnum tíðrætt um kvóta- kerfi landbúnaðar og sjávarút- vegs. Er Alþýðuflokkurinn ekki hlynntur kvótakerfi, spurði fólk á fundunum. Bændur vildu fá að vita hvað væri til bragðs að taka í landbúnaði. Er „vandi“ landbúnaðar söluvandamál fremur en fram- leiðsluvandi??? Kjörbækur Landsbankans eru stærsta einstaka innláns- formið í bankakerfinu í dag og fyrirmynd bóka, sem sumir aðr- ir bankar bjóða. Bókarformið er þægilegt og einfalt í notkun og eigendur njót ávallt mjög góðra kjara. Kjörbókin hentar fyrir allan sparnað til lengri tíma en eins tii tveggja mánaða. Kjörbókin er með háa nafnvexti og verðtryggingarviðmiðun að auki. Innstæður á Kjörbókum Landsbankans eru nú rúmlega 6 milljarðar króna. Nú er boðið upp á ný viðbót- arkjör, sem nýtast öllum sem vilja. Þau kallast: Tvö ný þrep úr beinhörðum peningum, í því kynningarefni, sem birtist í fjöl- miðlum á næstunni. í þeim felst að sá hluti innstæðu, sem ekki er hreyfður fær viðbótarvexti eftir 16 mánuði frá s.l. áramót- um eða stofndegi sé hann síðar og enn hærri viðbót eftir 24 mánuði. Hærri vextirnir gilda þá fyrir allt tímabilið. Með þessu er ennfrekar kom- ið til móts við óskir sparifjáreig- enda um einfalt form og háa ávöxtun. Kjörbókin leysir nú einnig af hólmi bundna reikn- inga til 18 mánaða eða lengri tíma. Innstæðueigendum er ekki mismunað eftir því hve há- ar innstæður þeir eiga en ávöxt- un hækkar því lengur sem pen- ingarnir liggja inni. Kjörbókar- eigandi hefur eftir sem áður ávallt aðgang að innstæðu sinni, fær ávöxtun í hlutfalli við sparnaðartíma og skerðir ekki ávöxtun þess hluta sem óhreyfð- ur er. Núgildandi vextir á kjörbók- um eru 19,25%, 16 mán. þrep 20,9% og 24 mán. þrep 21,5% á ári. Vaxtaleiðrétting við úttekt er 0,7% af útborgaðri fjárhæð að undanskildum vöxtum síð- ustu tveggja vaxtatímabila. Á þriggja mánaða fresti er gerður samanburður við ávöxtun 6 mánaða verðtryggðra reikninga og ávöxtun Kjörbóka hækkuð ef sú ávöxtun reynist hærri. Sjúkrahúsið í Húsavík Sjúkraliðar Sjúkraliði óskasttil starfaviðSjúkrahúsið I Húsa- vlk. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri ( sima 96—41333.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.