Alþýðublaðið - 14.02.1987, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 14.02.1987, Blaðsíða 8
8 Laugardagur 14. febrúar 1987 „Mjög hentugt fyrir fundi og ráðstefnur“ Mikið hefur verið rætt um framtíð Hótel Sel- foss. Tíðindamaður hitti Björn Lárusson hótel- stjóra að máli. Af hverju stafa þessir erfið- leikar í rekstri hótels Selfoss, Björn? í fyrsta lagi vil ég taka fram að hér er ekki um neitt skipbrot eða gjaldþrot að ræða enda stendur stærsta ferðaskrifstofa landsins að baki rekstrinum. Hótel úti á landi og jafnvel í Reykjavik hafa alltaf átt í erfið- leikum yfir vetrarmánuðina og þetta hefur verið spurning um að finna hentugt rekstrarform yfir veturinn. í meginatriðum eru þessir erfiðleikar okkar nú til komnir vegna þess hve við byrjuðum seint á okkar sókn inn á markaðinn. Samningur Samvinnuferða/Landsýnar og bæjarstjórnar Selfoss var gerð- ur 16. janúar 1986 en starfsemi hófst seint í júní. Það tekur mörg ár að byggja upp við- skiptavild, og markaðssókn er ekki einfaldur hlutur sem gerist á einni nóttu. Samvinnuferð- um/Landsýn var þetta ljóst og í framhaldi af því að reksturinn yrði gífurlega erfiður á samn- ingstímabilinu sem nær til 1. okt. í ár. Vegna þessa er ákvæði í samningnum um að bæjar- sjóður felli niður húsaleigu og orkukostnað ef um taprekstur yrði að ræða. Langur tími fer í að aðlaga reksturinn að þeim markaði sem fyrir hendi er auk þess sem samkeppnin á þeim markaði sem við helst getum unnið á er gífurlega hörð. Hver verður svo framtíðin? Það hafa verið gerðar ýmsar ráðstafanir til hagræðingar í rekstrinum nú undanfarið. Regluleg matsala er í kaffiteríu frá 10—20 virka daga og frá 10—18 um helgar. Norðursalur hótelsins er opinn um helgar frá kl. 18 og matur framreiddur til kl. 21 en barinn opinn til kl. 03 nema þegar um einkasam- kvæmi er að ræða. Þessi um- ræða um hótelið hefur haft sín- ar jákvæðu hliðar. Menn eru að uppgötva að hér er stærsti salur utan Reykjavíkur sem auk þess er hægt að skipta niður í minni Mjólkurbú Flóamanna Selfossi sali sem gerir hann mjög hent- ugan fyrir fundi og ráðstefnur. Bókunum á sölum hótelsins fjölgaði verulega í kjölfar um- ræðunnar um hótelið auk þess sem setustofa hótelsins er orðin mjög vinsæl fyrir smærri fundi. Ekki sakar að geta þess að við erum orðin heimsfræg á Selfossi fyrir góðan mat, þess má einnig geta að það er frekar orðið vandamál að koma fyrir þeim fundum og ráðstefnum sem bókaðar eru auk þorrablóta og árshátíða. Sumarið verður ekkert vandamál þvi Iangt er síðan bókanir fóru yfir 60% á her- bergjunum enda eru þau frekar fá. Hvað svo við tekur eftir að samningstímabilinu lýkur hinn 1. okt. er óráðið þó Samvinnu- ferðir/Landsýn eigi forleigurétt að hótelinu. Nýtt rit frá Byggðastofnun: Byggö og atvinnulíf ’85 Samkvæmt launamiðavinnslu frá Byggðastofnun voru skráð árs- verk á vinnumarkaði hér á landi 119.125 árið 1985 og hafði fjölgað um nær 4.200 frá árinu áður. Þessi fjölgun er 3,6%. Fjölgun starfa kom nær öll fram í þjónustugrein- um. Þetta kemur meðal annars fram í tilkynningu Byggðastofnunar til fjölmiðla, en Byggðastofnun hefur gefið út ritið Byggð og atvinnulíf 1985. í ritinu er fjallað um stöðu landsbyggðarinnar, um þróun vinnumarkaðarins árið 1985 og sýndur er framreikningur á íbúða- fjölda fyrir einstaka landshluta fram til ársins 2000. Þá er í ritinu sýnd íbúaþróun, atvinnuskipting og aflaverðmæti á þéttbýlisstöðum sem hafa yfir 1.000 íbúa. í inngangskafla er fjallað um stöðu landsbyggðarinnar í ljósi þeirra upplýsinga sem koma fram í ritinu. Einnig er fjallað um vinnu- markaðinn á árinu 1985. Þá er í rit- inu sýndur framreikningur íbúa- fjölda fyrir einstaka landshluta þar sem tekið er tillit til innanlands- flutninga.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.