Alþýðublaðið - 14.02.1987, Blaðsíða 6
6
Laugardagur 14. febrúar 1987
Elín Alma
Arthúrsdóttir
skrifar um
KAUPLEIGUmUÐIR
Fátt hefur verið meira rætt í
kringum kosningar en húsnæð-
ismál. Meðal annars lagði Sjálf-
stæðisflokkurinn sérstaka
áherslu á þann málaflokk fyrir
kosningarnar 1983. Árangur
stjórnarflokkanna í húsnæðis-
málum, þetta kjörtimabil, hefur
ekki reynst eins mikill og vænta
mátti eftir öll fögru orðin. Regl-
ur þær sem nú eru gildandi eru
gallaðar og útiloka t.d. stóran
hóp frá lánsréttindum, sem þó
hafði réttindi áður. Hér er auð-
vitað átt við þá sem ekki eru í
lífeyrissjóði eða hafa ekki öðl-
ast þar tilskilin réttindi. Fyrir-
sjáanleg bið eftir lánum er sér-
stakur kapituli, og spyrja má
hvort kerfið skilar fólki hærri
lánum en það átti kost á áður?
Alþýðuflokkurinn leggur
mikla áherslu á húsnæðismál.
Þess vegna hafa þingmenn
flokksins lagt fram á Alþingi
þingsályktunartillögu um kaup-
leiguíbúðir.
En hvað er kaupleiguíbúð?
Samkvæmt tillögunni á Bygg-
' ingarsjóður ríkisins og Bygging-
arsjóður verkamanna að fá
heimild til að veita sveitarfélög-
um eða félagasamtökum lán til
byggingar eða kaupa á íbúðum,
sem fólk gæti valið uni að Ieigja
eða kaupa. Þar með yæri kom-
inn algjörlega nýr válkostur í
húsnæðismálum. Ein af ástæð-
um þess hvernig nú er komið í
þessum málum, er sú að fólk
hefur ekki átt neinna kosta völ.
Það hefur oft verið knúið til
þess nauðugt viljugt að eignast
eigið húsnæði, án þess að hafa
til þess fjárhagslegt bolmagn.
Mjög lítið framboð hefur verið
á leiguhúsnæði. Til dæmis má
nefna að frá og með árinu 1981
til 1. apríl 1986 voru byggðar og
keyptar 67 leiguíbúðir á vegum
sveitarfélaga.
í tillögunni er gert ráð fyrir
að Byggingarsjóður ríkisins láni
80% byggingarkostnaðar til 40
ára, verðtryggt með 3.5% vöxt-
um. Byggingarsjóður verka-
manna láni 85% byggingar-
kostnaðar til 40 ára, verðtryggt
með 1% vöxtum, til byggingar
íbúða sérstaklega ætluðum lág-
launafólki og öðrum sem af fé-
lagslegum ástæðum þarfnast
aðstoðar við húsnæðisöflun.
Það sem á vantar, annars veg-
ar 20% byggingarkostnaðar og
hins vegar 15%, Ieggi sveitarfé-
lögin og/eða samstarfsaðilar
þeirra til. Gert er ráð fyrir að
ríkissjóður láni sveitarfélögum í
gegnum Jöfnunarsjóð sveitar-
félaga til að auðvelda þeim að
hrinda af stað byggingu slíkra
íbúða.
Sveitarfélögin og/eða sam-
starfsaðilar þeirra teljast eig-
endur íbúðanna og ráðstafa
þeim. Óski leigjandi slíkrar
íbúðar eftir að kaupa hana, á
hann rétt á því. Er gerður sér-
stakur samningur þar um, þar
sem samið er um endurgreiðslu
þess fjár sem sveitarfélagið
lagði fram. Greiðslutími þess
má vera allt að 30 ár.
Leigjandi greiðir fasta húsa-
leigu sem getur verið á bilinu
5.400—7.900 krónur, á mánuði,
fyrir 100 m2 íbúð í sambýlishúsi.
(Mismunurinn liggur í úr hvor-
um sjóðnum lánað var til bygg-
ingarinnar). Ef leigjandi vill
kaupa íbúðina greiðir hann við-
bótargjald mánaðarlega, sem
getur verið á bilinu 1.700—
5.400 krónur, eftir endur-
greiðslutíma til sveitarfélagsins.
Samtals þyrfti þá sá sem vildi
kaupa slíka ibúð að greiða
7.100—13.300 krónur mánaðar-
lega. Þetta er mun lægri upp-
hæð en algeng leiga er í dag. Á
þessum tölum má sjá að þarna
er kominn viðráðanlegur kost-
ur, hvort heldur fólk vill leigja
eða eignast eigin íbúð.
Eitt veigamikið atriði sem
ekki hefur verið drepið á hér að
ofan, er að flytja má áunnin
réttindi á milli sveitarfélaga og
innan sama sveitarfélags. Með
þessu móti er fólki auðveldað
bæði að stækka og minnka við
sig íbúðir, sem og að flytjast
milli sveitarfélaga ef svo ber
undir.
Að lokum
Við sem búum á Norðurhveli
jarðar þurfum að leggja meira
uppúr því húsnæði sem við bú-
um í, en þeir sem sunnar búa.
Það er þess vegna meginkrafa á
íslandi að fólki verði gert kleift
að koma sér upp þaki yfir höf-
uðið án þess að leggja líkamlega
og andlega heilsu sína í hættu.
Kaupleiguíbúðir eru vænlegur
kostur, með tilkomu þeirra ætti
enginn að þurfa að reisa sér og
sínum hurðarás um öxl, og
hverjum og einum yrði frjálst að
velja það sem honum hentaði
best.
„Sækið
um“
„Það er lykilatriði, að fólk
drífi inn umsókn til Húsnæðis-
stofnunar, ef fólk er að hugsa
sér til hreyfingsþ sagði Jón
Bergsson, framkvæmdastjóri
Samtaks á Selfossi. Samtaks-
menn byggja sumarbústaði og
íbúðarhús. Sagði Jón að nóg
væri að gera út apríl, og síðan
væri hin hefðbundna vertíð, svo
að menn væru bjartsýnir. „En
fólk sem kemur til okkar til að
forvitnast t.d. um raðhúsin sem
við viljum byggja hér á Selfossi,
hefur enga hugmynd um nýju
húsnæðisreglurnar.“
Við byggjum viðskipti okkar á
gagnkvæmu trausti og
góðri þjónustu.
Traust bankastarfsemi er nauðsynleg hverju byggðarlagi. Ekki aðeins fyrir
fyrirtækin og uppbyggingu atvinnulífs, heldur einnig fyrir einstaklingana.
Hjá okkur átt þú greiða leið að góðum viðskiptum.
Leitaðu upplýsinga um þá möguleika sem við bjóðum þér til þess að ávaxta
peningana þína og vinna lánstraust.
Sparivelta og Launavelta eru
kostir sem vert er að kanna!
Samvinnubankinn
Utibú Selfossi - Austurvegi 3 - sími 2177