Alþýðublaðið - 14.02.1987, Page 11

Alþýðublaðið - 14.02.1987, Page 11
11 Laugardagur 14, febrúar 1987 Gallerí Svart á hvítu: Olíiimálverk Kristins Laugardaginn 14. febrúar kl. við Óðinstorg sýning á olíumál- 14.00 opnar í Gallerí Svart á hvítu verkum Kristins Harðarsonar. LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Fóstrur, þroskaþjálfar eða aðrir með uppeldisfræði- lega menntun og reynslu, óskast til stuðnings börnum með sérþarfir á dagvistarheimilum í vestur og miðbæ, heilt eða hlutastarf eftir samkomulagi. Upplýsingar hjá Gunnari Gunnarssyni, sálfræðingi á skrifstofu Dagvistar barna I slma 27277 eða 22360. Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykja- vfkurborgar, Pósthússtræti 9,5. hæð ásérstökum eyðu- blöðum sem þar fást. Auglýsing um sjúkraflutninga Sett hefurverið reglugerð um sjúkraflutninga nr. 503 frá 18. nóvember 1987. Skv. ákvæði reglugerð- arinnar ber þeim sem annast sjúkraflutninga að sækja um leyfi til áframhaldandi starfsemi innan þriggja mánaða frá gildistöku reglugerðarinnar. Umsóknir sendist Skrifstofu landlæknis, Lauga- vegi 116, 150 Reykjavík, fyrir 22. mars 1987. Landlæknir. Laust embætti er forseti íslands veitir Embætti héraðsdýralæknis i Norð — Austur- landsumdæmi er laust til umsóknar. Laun samkvæmt hinu almenna launakerfi starfs- manna ríkfsins. Umsóknir sendist landbúnaðarráðuneytinu fyrir 31. mars 1987. Landbúnaðarráðuneytið, 12. febrúar 1987. Um rannsóknastyrki frá J. E. Fogarty International Research Foundation J. E. Fogarthy-stofnunin í Bandarlkjunum býður fram styrki handa erlendum vlsindamönnum til rann- sóknastarfa við vlsindastofnanir I Bandarlkjunum. Styrkir þessir eru boðnir fram á alþjóðavettvangi til rannsókna á sviði læknisfræöi eða skyldra greina (biomedical science). Hver styrkur er veittur til 6 mánaða eða 1 árs á skólaárinu 1988—89 og á að standa straum af dvalarkostnaöi styrkþega auk ferða- kostnaðar til og frá Bandarlkjunum. Einnig er greidd- •ur ferðakostnaður innan Bandarlkjanna. Til þess að eiga möguleika á styrkveitingu þurfa um- sækjendur að leggja fram rannsóknaáætlun I sam- ráði við stofnun þá I Bandarlkjunum sem þeir hyggj- ast starfa við. Nánari upplýsingar um styrki þessa veitir Atli Dag- bjartsson, læknir, barnadeild Landspítalans (s. 91 — 29000). — Umsóknir þurfa að hafa borist mennta- málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavlk, fyrir 15. júlí n.k. Menntamálaráðuneytið. 12. febrúar 1987. * Útboð Vegagerö ríkisins óskar eftir tilboðum í eftirtalin verk: 1. Norðurlandsvegur um Vatnsskarð 1987. (Lengd 6,4 km, magn 130.000 rúmmetrar). Verki skal lokið 15. október 1987. 2. Vatnsnesvegur, Siðuvegur — Noröurlands- vegur. (Lengd 8,3 km, magn 45.000 rúmmetrar). Verki skal lokiö fyrir 30. september 1987. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rlkis- ins á Sauöárkróki og I Reykjavlk (aðalgjald- kera) frá og með 16. febrúar n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 2. mars 1987. Vegamálastjóri ----------------------------------------------------------> Kristinn er fæddur 1955 og stund- aði nám við MHÍ 1973—1977. Frá 1977 til 1978 var hann við nám í De stichting de Vrije Academie voor Beeldende Kunsten í Haag í Hollandi. Hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlend- is. Af helstu samsýningum má nefna Basel Art Fair 1982, XII Biennale de Paris 1982 í Musée d’art Moderne í París, Museum Fodor Amsterdam 1983, Franklin Furnance New York 1984, Lista- safn íslands 1984 og Malmö Konsthall Malmö 1984. Þá eru verk eftir Kristinn á KEX (konst fran Island och Norge) sem er samsýning ungra myndlistarmanna sem opnaði í Stokkhólmi í lok janúar s.l. Þetta er farandsýning sem sett verður upp á öllum Norðurlöndunum. Fyrstu einkasýningu sína hélt Kristinn í Gallerí Suðurgata 7 árið 1979 en hann hefur einnig haldið einkasýningar í Nýlistasafninu (1983), Gallerí Ganginum (1985), Studio Arti Visive, Siracusa, Ítalíu (1983), Studio Halle de I’lle, Genf, Sviss (1984) og Lenz- rifazioni, Parma, Ítalíu (1986). Kristinn hefur einnig gefið út ljóðabókina „Eilífir sólargeislar" 1986 og unnið fyrir leikhús. Á sýningunni í Gallerí Svart á hvítu sýnir Kristinn olíumálverk frá árunum 1984—1986. Sýning Kristins stendur frá 14. febrúar til 6. mars og er opin alla daga nema mánudaga 14:00—18:00. Halldór Árnason, ríkismatsstjóri: Bein sam- skipti auka skilning „Margir óttast að í kjölfar þess að hætt skuli opinberu ferskfisk- mati muni gæðum landaðs fisks hraka. Reynslan ein mun skera úr um hvernig til tekst. Þeir sem vildu leggja niður ferskfiskmatið töldu hins vegar að það hefði við núver- andi aðstæður sáralitil áhrif til auk- inna gæða og hefði óæskileg áhrif með þvi að rjúfa bein samskipti kaupenda og seljenda varðandi meðferð og gæði afla. Að menn skuli núna bera ugg í brjósti þegar opinberu ferskfiskmati er hætt, er af hinu góða. Menn beina þá athygli sinni í æ ríkari mæli að þessum þætti og verða á varðbergi. Niður- felling ferskfiskmatsins hefur rutt úr vegi hindrun i samskiptum kaup- enda og seljenda.“ Svo segir meðal annars í frétta- bréfi Ríkismats sjávarafurða, 1. tbl. 2. árg. 1987. Grein sú sem vitnað er í er eftir Halldór Árnason. Þá segir ennfremur: „Bein samskipti fiskverkenda og sjómanna getur aukið skilning þeirra á aðstæðum og þörfum hvors annars. Hver sá sem vinnur við sjávarútveg þarf að hafa fullan skilning á því hver þáttur hans er í framleiðslukeðju sem nær frá því fiskur lendir i veiðarfæri og þar til hans er neytt. Hagnaður af veiðum og vinnslu og laun þeirra sem við sjávarútveg starfa ráðast þegar til lengri tíma er litið af því hversu ánægðir neytendurnir eru. Það sem þarf síðan að gera er að vekja og auka skilning sjómanna á því að þeirra langtímahagsmunum er best borgið með því að uppfylla þarfir fiskkaupenda svo þeir geti framleitt sem verðmætastar afurðir. Sjó- menn verða að mæta þessum þörf- um með því að skila fiskinum frá sér í því ástandi sem hentar fisk- kaupendum best og um leið stuðla þeir að auknum hagnaði á fisk- vinnslunni. Aukinn hagnaður í fiskvinnslunni mun síðar leiða til þess að hún verður betur í stakk bú- in til þess að borga hærra hráefnis- verðí’ Byggö og atvinnulíf 1985 Ritið Byggð og atvinnulíf 1985 er komið út. í ritinu eru upplýsingar um byggð og atvinnulíf á íslandi einkum fyrir árið 1985. Ritið kemur að nokkru leyti í stað ritraðarinnar Vinnumarkaðurinn sem gefin var út fyrir árin 1980-1984. Fjallað er um stöðu landsbyggðarinnar, birtar upplýsingar um breytingar á fólksfjölda 1970-1985, ársverk og meðallaun 1985 og aflaverðmætil 979-1985 fyrir stærri þéttbýlisstað-ina og framreikningur mannfjöldans eftir héruðum þar sem hliðsjón er tekin af innaniandsflutningum síð-ustu árin. Skýrslan Byggð og atvinnulíf er nú til dreifingar hjá Bóksölu stúdenta, Bókaverslun Sigfúsar Eymunds- sonar, Bókabúö Máls og menningar og Byggöa- stofnun. Byggðastofnun RAUÐARARSTIG Z5 • SlMI 25133« PÓSTHÓLF 5410 • 125 REYKJAVlK Laus staða Laus til umsóknar við Kennaraháskóla íslands staða dósents I uppeldisgreinum. Meginverkefni væntanlegs dósents er kennsla og rannsóknir á sviði sérkennslu- fræða. Gert er ráð fyrir að ráðið verði I stöðuna frá 1. ágúst 1987. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rlkisins. Umsóknirásamt rækilegri skýrslu um vlsindastörf um- sækjenda, rannsóknirog ritsmlðar, svo og námsferil og störf skulu sendar menntamálaráöuneytinu, Hverfis- götu 6, 150 Reykjavlk, fyrir 12. mars n.k. Menntamálaráðuneytið. 12. febrúar 1987. Útboð Innkaupastofnun Reykjavikurborgar fyrir hönd gatna- málastjórans I Reykjavík óskar eftir tilboðum I bygg- ingu skolpdælustöðvarvið Laugalækog Ingólfsstræti. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frikirkju- vegi 3, Reykjavik f rá og með þriðjudeginum 17. feb. n.k. gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboöin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 11. mars n.k. kl. 11. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Póstholf 878 — 101 Reykjavik ST. JÖSEFSSPÍTALI Landakoti Fóstrur Dagheimilið Brekkukot auglýsir eftir fóstru hálfan dag- inn, fyrir hádegi. Upplýsingar veittar í síma 19600/250 frá kl. 9—15 alla virka daga. Reykjavík 14.02.1987. LAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVIKURBORG • Starf fulltrúa áskrifstofu borgarlæknis Starf háskólamenntaðs fulltrúa á skrifstofu borgar- læknis er laust til umsóknar. Starfið felst I skýrslugerð um heilbrigöismál, tölvu- vinnslu upplýsinga, gerð rekstraráætlana og rann- sókna á sviöi heilsuhagfræöi. Æskilegt er að um- sækjendur hafi viðskiptafræði/hagfræðimenntun. Laun samkv. kjarasamningi starfsmanna Reykjavlkur- borgar. Upplýsingar veitir borgarlæknir I slma 22400. Umsóknarfrestur er til 1. mars n.k. Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykja- vlkurborgar, Pósthússtræti 9,5. hæð ásérstökum eyðu- blöðum sem þar fást.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.