Alþýðublaðið - 14.02.1987, Qupperneq 12
alþýðu-
blaöið
Laugardagur 14. febrúar 1987
Alþýöublaöið, Ármúla 38, 108 Reykjavík
Sími: (91) 681866, 681976
Útgefandi: Blaö hf.
Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.)
Blaöamenn: Örn Bjarnason, Ása Björnsdóttir, Kristján Þor-
valdsson og Jón Danielsson
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guömundsdóttir
Setning og umbrot Alprent hf., Ármúla 38
Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12
Áskriftarsíminn
er 681866
Stærsti líkbrennsluofn í
— segir forstjóri brunavarna í Englandi um göngin undir Ermasund
Miklar deilur hafa staöiö um fyr-
irhugaðar framkvæmdir viö neðan-
jaröargöngin milli Englands og
Frakklands og hafa margir lýst yfir
vantrú á fyrirtækinu. Einna
ákveðnust mótmæli komu fram íút-
varpsviðtali viö Miki Fordham, for-
stjóra brunavarna á Bretlandseyj-
um fyrir skemmstu, þar sem hann
líkti göngunum við risavaxinn lík-
brennsluofn. Áður hefur fram-
kvæmdin verið umtöluö sem „gjöf
Allah til hermdarverkamanna“.
Göngin verða 36 km löng og með
þeim lengstu í heimi. Tvær bílalestir
munu fara um göngin, sín í hvora
áttina. Lestirnar keyra á allt að 160
km hraða á klst. í hverri lest verða
250 bílar og húsvagnar og um 1000
farþegar sem munu halda kyrru
fyrir í farartækjum sínum í þær 35
mínútur sem ferðin tekur.
Andstaðan gegn göngunum hef-
ur fram að þessu aðallega verið frá
ferjueigendum, sem sjá að mestu
um fólksflutninga á þessari leið.
Þeir hafa bent á fjöldann allan af
tæknilegum vandkvæðum til að
sýna fram á að þetta sé hættulegt
fyrirtæki sem eigi að stöðva þegar í
stað.
Dauðagildra
Mike Fordham segir að göngin
verði dauðagildra, þar sem hver
bensíntankur sé eldsprengja og í
hverjum bíl séu plastefni sem gefi
frá sér eitraðar gastegundir við
íkveikju. Hann segir að ef eldur
verði laus muni hann breiðast út
með eldingarhraða og það muni
taka a.m.k. 90 mínútur að ráða nið-
urlögum elds með þeirri aðstöðu
sem gert er ráð fyrir í þjónustumið-
stöðvunum sem eiga að vera á milli
Iestarganganna tveggja. Ef háhýsi
yrði byggt með sambærilegu bruna-
varnarkerfi, yrði það talið óðs
manns æði, segir hann.
Fordham segir að ekki sé hægt að
geragöngin fullkomlega örugg. Áð-
ur hefur brunavarnareftirlitið bent
á að hvert minnsta óhapp á lestar-
sporinu geti orsakað neistaflug og
bensínleka og þá sé stórbruni nán-
ast óhjákvæmilegur.
Mikil áhætta
Yfirmenn brunavarna benda
ennfremur á hættuna á því að fólk
brjóti bann við reykingum á leið-
inni og noti e.t.v. tímann til að fylla
Þjóðleikh úsið:
Rympa
á rusla
haugnum
Rympa á Ruslahaugnum, nýtt
barnaleikrit með þulum og söngv-
um eftir Herdísi Egilsdóttur verður
frumsýnt á stóra sviði Þjóðleik-
hússins á laugardag kl. 15. Leik-
stjóri er Kristbjörg Kjeld, hönnuð-
ur leikmyndar og búninga er
Messíana Tómasdóttir, dansahöf-
undur Lára Stefánsdóttir, ljósa-
hönnuður Björn Bergsteinn Guð-
mundsson en Jóhann G. Jóhanns-
son útsetur tónlistina og stjórnar
hljómsveit á sviðinu.
Tónlist og dans setja mikinn svip
á leikinn. Leikritið gerist á ösku-
haug, sem er iðandi af lífi og munu
rúmlega 20 ungir ballettdansarar
sjá til þess. Sigríður Þorvaldsdóttir
leikur skemmtilega skassið Rympu,
sem býr á ruslahaugnum með haus-
lausa tuskukarlinum, Volta.
á bensíntanka bílanna úr brúsum
eða hita te á gastækjum í húsvögn-
unum. Engin Ieið er að hafa eftirlit
með slíku.
Að sögn þeirra fyrirtækja sem
munu væntanlega sjá um byggingu
gangnanna, þá er þetta öruggasti
ferðamátinn yfir sundið. í því sam-
bandi er vitnað til þess að í Ölpun-
um hafa göng svipuð þessum verið
í notkun í langan tíma, án þess að
þar yrðu slys af völdum elds. Full-
komnustu öryggisráðstafanir verða
gerðar, m.a. með því að nota eldföst
skilrúm og háþrýstibúnað sem fjar-
lægir gas og önnur eiturefni á auga-
bragði ef íkveikja verður.
Biðstaða
Fyrirtækjasamsteypan sem mun
væntanlega sjá um framkvæmdir, á
heimi
nú þegar í erfiðleikum með að út-
vega nægilegt fjármagn til þeirra.
Fjármagnseigendur eru hikandi við
að leggja mikið fé í ævintýrið, vit-
andi það að stórslys eða aðgerðir
hryðjuverkamanna á þessari sam-
gönguleið getur auðveldlega fælt
alla viðskiptavini frá og þá verður
ekkert framundan nema gjaldþrot.
ATVINNULIFINU
Dr. Jón Bragi Bjarnason
sem skipar 5 sætiö
heldur opinn fund í Kosningamiöstööinni
laugardaginn 14. febrúar kl. 14.00
Ð • S • T • O • Ð
K*S • I • N•S