Alþýðublaðið - 26.02.1987, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 26. febrúar 1987
3
alþýðu-
Umsjón: Jón Daníelsson
SKAGINN —
VESTURLAND
Alþýðusamband Vesturlands:
Meðlimirnir látnir ráða
— Framtíð sam-
bandsins í óvissu
eftir að tillaga um
að teggja það niður
var samþykkt naum-
lega.
Ekki er víst að Alþýöusaniband
Vesturlands verði lagt niður, þótt
tillaga þess efnis væri samþykkt á
þingi sambandsins nú nýlega. Sam-
kvæmt lögum ASÍ þurfa félög á
svæðinu að greiða gjöld til sam-
bandsins þótt þau segi sig úr því og
samkvæmt sömu löguin virðist sein
minni hluti félaga á sambands-
svæðinu geti ákveðið að halda sam-
bandinu áfram.
Guðmundur M. Jónsson, for-
maður Verkalýðsfélags Akraness,
sagði í samtali við blaðið að öll fé-
lögin á Akranesi væru fylgjandi því
að leggja sambandið niður. Hann
kvað 49. grein laga ASÍ, nánast
meina einstökum verkalýðsfélögum
að segja sig úr samböndum af þessu
tagi, vegna ákvæðisins um skatt-
greiðslur og sagði að ef t.d. hans fé-
lag segði sig úr Alþýðusambandi
Vesturlands, þyrfti það eftir sem
áður að greiða skatt til sambands-
ins og væri það þá þeirra félaga sem
eftir yrðu í sambandinu að áætla
skattinn.
í sjálfu sér kvað Guðmundur
ekki vera unr stórar upphæðir að
ræða en sagði að á hinn bóginn virt-
ist sér sem þessir peningar færu ,,út
í vindinn".
„Alþýðusamband Vesturlands
hefur enga skrifstofu og engan
starfsmanný sagði Guðmundur og
kvaðst þeirrar skoðunar að sam-
bandið væri „nánast skrauthúfa“,
enda hefði það engin verkefni og
kvaðst hann ekki sjá að tilvera þess
þjónaði neinum tilgangi.
Jón Eggertsson, formaður verka-
lýðsfélágsins í Borgarnesi, kvaðst
þeirrar skoðunar í stuttu samtali
við blaðið að Alþýðusamband
Vesturlands ætti sér tilverurétt sent
tengiliður á milli félaga á svæðinu.
Hann kvaðst á hinn bóginn ekki
vera fylgjandi því að byggja upp
neitt bákn í kringunr sambandið
með skrifstofuhaldi eða þess hátt-
ar. Sambandið ætti nriklu frenrur
að vera tengiliður milli félaganna á
svæðinu og samstarfsvettvangur
þeirra. Hann nefndi einnig að á
þingum sambandsins kynntist fólk
sem að þessum málum starfaði á
Vesturlandi og það kvað hann af
hinu góða. „Þetta á ekki að þurfa
að kosta mikla peningaý sagði
hann.
Jón Eggertsson kvaðst ennfrem-
ur fagna því að úrslit þessa máls
yrðu ráðin í allsherjaratkvæða-
greiðslu, þanr.ig að það yrðu félag-
arnir sjálfir sem úrslitum réðu.
Hann kvað einsýnt að ef samþykkt
yrði i atkvæðagreiðslunni að leggja
sambandið niður, þá yrði því hiýtt.
Jón kvaðst hins vegar vilja láta það
koma fram að fulltrúar þeir frá
Akranesi sem sæti hefðu átt í stjórn
sambandsins, hefðu starfað þar af
heilindum og sagðist hann vonast
til þess að áfram yrði gott samstarf
með verkalýðsfélögunr á Vestur-
landi, hvort senr úrslit þessa máls
yrðu þau að sambandið yrði lagt
niður eða ekki.
Alþýðusamband Vesturlands var
stofnað árið 1977 eftir að stofnun
þess hafði verið í undirbúningi frá
árinu 1975. Verkalýðsfélag Akra-
ness gekk ekki í sambandið fyrr en
1980. Árið 1983 var sett á laggirnar
milliþinganefnd til að kanna hvort
bæri að leggja sambandið niður, en
hún klofnaði í afstöðu sinni. Á
þingi sambandsins nú nýlega var
svo tillaga um að leggja sambandið
niður samþykkt með aðeins tveggja
atkvæða meirihluta. Áformað er að
láta fara fram allsherjaratkvæða-
greiðslu um málið meðal félaga
sambandsins og verður síðan hald-
ið aukaþing fyrir árslok, þar sem
endanleg ákvörðun verður tekin um
lífdaga Alþýðusambands Vestur-
lands.
Dalasýsla:
MEIRIHLUTINN
VILL SAMEININGU
. . ^ ' js' ourri-
emmgu sveitarfélaga
jsyslunni. Bcendur
bfa ekki affullvirð-
isréttinum.
Yfirgnæfandi meirihluti Dala-
manna vill sameiningu sveitarfé-
laga í sýslunni í einhverri mynd.
Þetta kemur Ijóslega fram í niður-
stöðum skoðanakönnunar sem
framkvæmd var á dögunum á veg-
um atvinnumálanefndar sveitarfé-
laga í Dalasýslu. í könnuninni kom
ennfremur í ljós að meirihluti
bænda á svæðinu telur sig engan
veginn geta lifað á þeim fullvirðis-
rétti sem þeim hefur verið úthlutað,
samkvæmt nýju búvörulögunum.
Atvinnumálanefnd hefur verið
starfandi í Dalasýslu síðan í haust
og er hún skipuð fulltrúum allra
sveitarfélaga í sýslunni. í kjölfar
könnunarinnar boðaði nefndin til
fundar fulltrúa allra sveitarfélaga í
Dalasýslu og Austur Barðastrand-
arsýslu í desember sl. og var þá
komið á laggirnar samstarfsnefnd
um samstarf eða hugsanlega sam-
einingu sveitarfélaganna í sýslun-
um tveimur. í könnuninni sem hér
um ræðir var aflað upplýsinga um
afstöðu fólks hvað varðar ýmis at-
riði atvinnu- og byggðamála og
kom meðal annars í ljós að af þeim
117 bændum á svæðinu sem spurðir
voru, töldu 102 sig ekki geta lifað af
fullvirðisréttinum sem þeim hefur
verið úthlutað.
í könnuninni var m.a. spurt um
afstöðu fólks til stækkunar og sam-
einingar sveitarfélaga og í ljós kom
að yfirgnæfandi meirihluti var
fylgjandi stærri einingum og sam-
einingu sveitarfélaganna í einhverri
mynd, þótt nokkuð væri misjafnt
hvaða skoðanir fólk hefði á þessum
málum að öðru leyti, t.d. hversu
mörg sveitarfélögin ættu að vera.
Sameining sveitarfélaga hefur
Iengi verið til umræðu í Dölum, eins
og reyndar víða annars staðar, þótt
ekki hafi enn orðið úr neinum
framkvæmdum í þá átt. Þess má
geta að nú eru alls 8 sveitarfélög í
Dalasýslu, en íbúar í sýslunni munu
nú losa þúsundið og þar af býr tals-
verður meirihluti utan þéttbýlis.
Væntanlega verður nánar fjallað
um niðurstöður skoðanakönnunar-
innar í næsta blaði.
Stykkishólmur:
Skiptar skoðanir
um hafnarmálin
Skiptar skoðanir eru manna á
meðal í Stykkishólmi um nýjar
skipulagstillögur að hafnarsvæð-
inu. Þessar skipulagstillögur sem
nú liggja frammi til sýnis fyrir íbúa
staðarins gera ráð fyrir talsverðu
raski á gamla hafnarsvæðinu og
þykir mörgum sem breytingar á
náttúrufari hafnarsvæðisins verði
allt of miklar, ef skipulagstillagan
verður framkvæmd.
Allsterkar raddir eru uppi í
Stykkishólmi á móti þessari skipu-
lagstillögu og vilja margir að í stað-
inn verði bætt aðstaða í Skipavíkur-
höfn. Innan sveitarstjórnar mun
hins vegar vera nokkur samstaða
um skipulagstillöguna.
Hvernig sem á málið er litið, er
hins vegar augljóst að aðgerða er
þörf í hafnarmálum staðarins, því
bæði er viðlegurými orðið of lítið
og sömuleiðis vantar aðstöðu fyrir
smærri báta. Má í því sambandi
nefna að á þessu ári mun trillum í
Stykkishólmi hafa fjölgað um milli
20 og 30.
besta
samloka sem þér býöst
ídag-úr steinsteypu!
Einingahúsin frá LOFT ORKU eru úr vönduðum steinsteyptum einingum,
sem ekki springa, brenna eða fúna. Einingarnar eru vel einangraðar samlokur sem
falla þétt saman og ytri og ynnri áferð þeirra er varanleq.
Einingarnar frá LOFT ORKU má auðveldlega aolaga hvaða húsateikningu
sem er.
LOFT ORKA skilar þér traustu og vönduðu eininga húsi á því byggingarstigi,
sem þú ákveður.
Q-QPÍJ1 Skipholti 35, 13“ 91-84090 • 105 Reykjavík
•RKA Engjaási 1, ® 93-7113 • 310 Borgarnesi