Alþýðublaðið - 26.02.1987, Page 11

Alþýðublaðið - 26.02.1987, Page 11
Fimmtudagur 26. febrúar 1987 11 Claus Bang, einn nafntogaðasti frumkvöðull músikterapíu við kennslu heyrnardaufra barna. Við opnun tónstofunnar afhenti Lionsklúbburinn Fjölnir skólanunr að gjöf hljóðfæri og hljómburðar- tæki fyrir hálfa milljón króna. Borgþór H. Jónsson veðurfræðing- ur og formaður klúbbsins afhenti gjöfina en Gunnar Salvarsson skólastjóri tók við henni fyrir hönd Heyrnleysingjaskólans. Tónlist hefur verið í æ ríkara mæli í heyrnleysingjakennsiu á síð- ustu árunt og þykir í dag eitthvert besta hjálpartækið sem völ er á til þess að örva skynjun heyrnardaufra á hljóðum og hljómfalli, gegnum tildæmis hreyfingu, dans og söngva. Músíkterapía hefur verið notuð með góðunt árangri í heyrn- arþjálfun og talkennslu og Heyrn- leysingjaskólinnbindur miklar vonir við þá nýjung i kennslu heyrnar- daufra á Islandi sem felst í opnun tónstofunnar. Claus Bang efndi til námskeiðs urn gildi músíkterapíu í sérkennslu dagana 20. og 21. febrúar og var námskeiðið haldið í Gerðubergi á vegum Heyrnleysingjaskólans og Þjálfunarskóla ríkisins, Safamýri. Um fimmtíu sérkennarar sóttu námskeiðið. Borgþór H. Jonsson afhendir Gunnari Salvarssyni skólastjóra gjöf Lions- manna. Tónstofa opnuð í Heyrn- leysingjaskólanum Fimmtudaginn 19. febrúar síðast- ogsérstakurgesturskólansviðopn- liðinn var formlega tekin í notkun unina var danski heyrnleysingja- tónstofa í Heyrnleysingjaskólanum kennarinn og músíkterapeutinn Svarí á hvítu: — listin að semja án þess að gefa eftir Fyrsta bókin sem Bókaforlagið Svart á hvítu hf. sendir frá sér á þessu ári er bandarísk metsölubók sem í íslenskri þýðingu hefur fengið nafnið: „Já! — Listin að semja án þess að gefa eftir“. Hér er á ferðinni bók um samningatækni eftir tvo Bandaríkjamenn, Roger Fisher og William Ury, sem báðir starfa við sérstaka samningatæknistofnun við Harvardháskólann. Þessi bók er jafnframt fyrsta bókin í nýjum bókaflokki Svarts á hvítu sem hlotið hefur heitið „Versl- un og viðskipti". Með þessum nýja bókaflokki hyggst forlagið bæta úr brýnni þörf og gefa út handbækur um efni tengd viðskiptalífinu, svo sem um stjórnun, markaðssetn- ingu, auglýsingar, sölumennsku, fjármái, tölvuvæðingu fyrirtækja o.s.frv. Alla þessar bækur verða þó þannig úr garði gerðar að þær nýt- ast almenningi ekki síður en stjórn- endum fyrirtækja, stórra sem smárra. í bókinni „JÁ!“ er kynnt einföld en áhrifarík aðferð við gerð samn- inga um ólíkustu málefni. Hún er í stuttu máli fólgin í því að mönnum er kennt að semja á réttum forsend- um og kanna þá hagsmuni sem búa að baki kröfugerð viðsemjend- anna. Aðferðin er fjórþætt: í fyrsta lagi eiga menn að greina að fóík og viðfangsefni, þ.e. deiluaðilar eru að fást við tiltekið ágreiningsmál en ekki hver við annan. í öðru lagi er mönnum kennt að einbeita sér að hagsmunum en ekki kröfum því skilningur á hagsmunum hvors um sig greiðir tvímælalaust fyrir sam- komulagi. í þriðja lagi eiga menn að hugsa upp leiðir sem eru báðum aðilum til hagsbóta, leita allra ráða sem duga til að uppfylla sameigin- lega hagsmuni og sætta þá sem ekki fara saman. í fjórða og síðasta lagi er lögð á það áhersla að menn styðj- ist við hlutlægar viðmiðanir ef ekki tekst að sætta sjónarmiðin, miða samkomulag við t.d. markaðsverð, lög, hefðir, staðla o.s.frv. þannig að hvorugur þarf i rauninni að gefa eftir. Bókin skiptist i 8 kafla. í 1. kafla er rakinn munur á gömlu kröfu- gerðaraðferðinni og nýju forsendu- aðferðinni. í næstu fjórum köflum er nýja aðferðin ítarlega kynnt og í þremur síðustu köflunum er reynt að leita svara við þeim spurningum sem kunna að kvikna við lesturinn. I formála íslensku þýðingarinnar segir Þórir Einarsson prófesor m.a.: „A erlendum málum er mikið úrval bóka um samningaaðferðir. Bókin „Já!“ ber af flestum þeirra. . . . Bókin á ekki einungis erindi til þeirra er viðskipti stunda heldur einnig þeirra sem leysa þurfa ágreining hvort sem hann er í einka- lífi eða fyrir opnum tjöldum þjóð- félagsins!” Þessi aðferð, sem þróuð var við Harvard-háskólann, hefur þegar haft víðtæk áhrif, einnig á alþjóða- vettvangi. Roger Fisher gegndi t.d. lykilhlutverki við lausn glslamáls- ins s.k., þegar íranskir námsmenn héldu bandarískum sendiráðs- mönnum í gíslingu mánuðum sam- an, og hefur hann verið heiðraður fyrir störf sín að friðarmálum. William Ury,; samstarfsmaður hans, átti t.d. ríkan þátt í Camp- David samkomulaginu milli ísraels- manna og Egypta. Hann er oft kvaddur til sem þriðji aðili til að leysa úr smáum sem stórum deilu- málum. „JÁ!“ kom fyrst út i Bandaríkj- unum árið 1981 og hlaut þegar frá- bærar viðtökyjr, ekki aðeins meðal almennings, heldur einnig stjórn- málamanna og þekktra aðila í bandarísku viðskiptalífi. T.d. sagði Elliot Richardson, sem var þekktur samningamaður á sínum tíma, að bókin væri „ . . . áhrifamikil, skil- merkileg og sannfærandi bók. Hún er ekki samsafn af brögðum og brellum heldur heilsteypt samn- ingaaðferð. Ef til vill einhver gagn- legasta bók sem þú átt nokkru sinni eftir að lesa“. Lausar stööur Nokkrar stööur tollvarða eru lausar til umsóknar. Umsóknareyöublöð fást á skrifstofu minni og skulu umsóknir ásamt tilskildum fylgigögnum hafa borist mér fyrir 15. mars n.k. Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli, 23. febrúar 1987. ST. JÓSEFSSPÍTALI Landakoti Starfsfólk óskast á eftirtalda staði: — Skol vinnutími kl. 9—15. — Ræstingu á skurðstofugangi vinnutími kl. 9—13. Upplýsingar veitir ræstingastjóri alla virka daga frá kl. 10—12. Reykjavík, 25. febr. 1987. Náttúruverndarráð auglýsir stöður landvarða á friðlýstum svæðum, sumarið 1987, lausar til umsóknar. Námskeið ( náttúruvernd — landvarðanám- skeið, er skilyrði fyrir ráðningu til landvörslu- starfa á vegum Náttúruverndarráðs á friðlýstum svæðum. Skriflegar umsóknir skulu berast Náttúru- verndarráði, Hverfisgötu 26, 101 Reykjavík, fyrir 10. mars 1987. FÉLAGSSTARF ALÞÝÐUFLOKKSINS Björgvin talar í kosningamiðstöðinni Á laugardaginn þ. 28. þ.m. verður opinn fundur í kosninga- miðstöð Alþýðuflokksins, Síðu- múla 12. Þar mun Björgvin Guðmundsson, sem skipar 6. sælið á lista Alþýðuflokksins í Reykjavík, fjalla uin efnið: „Ný viðhorf í markaðsmálum". Fundurinn hefst klukkan 14:00 og er öllum opinn. Reykjaneshátíð A-listans, Stapa A-listinn á Reykjanesi efnir til stórhátíðar í Stapa, laugar- daginn 28. þessa mánaðar. Hátíðin stendur frá klukkan 22:00 til klukkan 3 eftir miðnætti. Á hátíðinni verða frambjóðendur A-listans kynntir. Kristján Jóhannsson óperusöngvari syngur. Spaugstofan kemur öllum i gott skap. Ríó-tríó leikur. Guðmundur Oddsson flytur ávarp. Hljómsveitin Klassík leikur fyrir dansi. Rúllugjald er 500 krónur. Sætaferðir: Upplýsingar í simum 44700 — 50499 — 689370. Sætaferöir frá: Þverholti Mosfellssveit kl. 20:50 Nýjabæ Seltjarnarnesi kl. 20:45 Kosningamiðstöðin Siðumúla 12, Rvik kl. 21:00 Hamraborg 14 Kópavogi kl. 21:10 Goðatúni 2 Garðabæ kl. 21:20 Alþýðuhúsinu Strandgötu 32, Hafnarfirði kl. 21:30. Nánari upplýsingar í síma: 44700, 50499 og 689370. Um hvað verður barist? Borgarafundur á Akureyri Alþýðuflokksfélögin á Akureyri efna til borgarafundar í Al- þýðuhúsinu á Akureyri sunnudaginn 1. mars klukkan 15.00. Rseðumenn á fundinum verða: Árni Gunnarsson, sem fjallar um efnið: „Vandi landsbyggð- arinnar". Hreinn Pálsson, sem fjallar um „Örlagaríkar kosningar". Jóhanna Sigurðardóttir, sem talar um „Húsnæðismálin". Jón Sigurðsson, sem ræðir um „Stjórnmálin við upphaf kosningabaráttu". Að framsöguerindum loknum verður ríflegur tími til fyrir- spurna. Akureyringar eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega. Alþýðuflokksfélögin á Akureyri. Flokksstjórnarfundur og árshátíö á Akureyri Flokksstjórn Alþýðuflokksins kemur saman til fundar á Ak- ureyri laugardaginn 28. febrúar. Flokksstjórnarmenn, sem fara frá Reykjavík, fara með flugvél frá Reykjavíkurflugvelli föstudaginn 27. febrúar klukkan 19.00 (Mæting klukkan 18.30). Dagskrá flokksstjórnarfundarins á laugardag, verður á þessa leið: Kl. 11.00: Fundurinn settur í Alþýðuhúsinu. JóhannaSigurðar- dóttir, varaformaður flokksins, setur fundinn. Kl. 11.15: Staðfesting á framboðslistum Alþýðuflokksins vegna væntanlegra aiþingiskosninga. Kl. 12.00: „Málefni landsbyggðarinnar“ — Árni Gunnarsson, ritari flokksins, og efsti maður á lista hans í Norðurlandskjör- dæmi eystra, flytur framsögu. Kl. 12.35: Matarhlé. Létt máltið á staðnum. (250 kr.) Kl. 13.00: „Málefni landsbyggðarinnar". Umræður. Kl. 14.30: Onnur mál. Kl. 15.00: Fundarlok. Að loknum flokksstjórnarfundinum býður fulltrúaráð Al- þýðuflokksfélaganna á Akureyri flokksstjórnarmönnum og mökum þeirra I skoðunarferð um Akureyri. Að ferð lokinni verða veitingar I boði fulltrúaráðsins I skrifstofu flokksins að Strandgötu,9. ÁRSHÁTÍÐ Alþýðuflokksfélaganna á Akureyri verður síöan I Alþýðuhúsinu um kvöldið, og hefst með borðhaldi klukkan 19.30.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.