Alþýðublaðið - 14.04.1987, Page 2
2
Þriðjudagur 14. apríl 1987
HIPYDIÍBÍIBHI
Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík
Slmi: 681866
Útgefandi: Blað hf.
Ritstjórar: Árni Gunnarsson og Ingólfur Margeirsson
Blaðamenn: Örn Bjarnason, Ása Björnsdóttir,
Kristján Þorvaldsson og
Jón Danlelsson
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir
Setning og umbrot: Alprent hf., Ármúla 38
Prentun: Blaðaprent hf., Slðumúla 12
Áskriftarsíminn er 681866
Breytt Alþýöublaö
I dag kemur Alþýðublaðið út í nýjum búningi. Haus
blaðsins hefur verið hannaður að nýju og útliti blaðs-
ins breytt. Samfara útlitsbreytingum er miðað að því,
að bæta efni blaðsins og skrif. Þetta tölublað er i 24
síðum og prentað í 77 þúsund eintökum sem er
stærsta upplag sem prentað hefur verið af dagblaði á
íslandi. Ekki erþó þarmeð sagt að Alþýðublaðið muni
vera gefið út daglega í slíku upplagi heldur er hér um
viðhafnar- og kynningareintak að ræða sem dreift
verður ókeypis um land allt. Þessar breytingar á Al-
þýðublaðinu er liður í átaki að skipa blaðinu afturá til-
hlýðilegan sess meðal dagblaða á íslandi en á undan-
förnum árum hefur útgáfa blaðsins verið í láginni og
hefur það varla farið framhjá lesendum og almenn-
ingi. Útgáfa Alþýðublaðsins verðurekki bætt og aukin
áeinni nóttu. Breytingarmunu standafram eftirsumri
og vonum við að endurbætt útgáfa Alþýðublaðsins
mælist vel fyrir hjá lesendum blaðsins.
Alþýðublaðið á sér langa sögu. Það hefur komið
samfellt út í 68 ár. í leiðara fyrstatölublaðs sem birtist
þ. 29. október 1919 stóð m.a.: „Blað þetta er langtum
minna en þurft hefði að vera en Alþýðuflokkurinn
verður að sníða sér stakk eftir stærð sjóðs síns og
alltaf er opin leiðin til að stækka blaðið, þegar hagur
þess vænkast.“ Það kom einnig í Ijós að svo varð. Á
fjórða áratugnum þegar Finnbogi Rútur Valdemars-
son ritstýrði blaðinu, varð Alþýðublaðið að stórveldi.
Síðan hefur saga þess verið æði misjöfn og skipst á
skin og skúrir. Annað glæsilegt tímabil hófst í sögu
blaðsins i lok sjötta áratugarins þegar Gísli Ástþórs-
son tók við blaðinu. í þessu tölublaði segir Gísii ein-
mitt frá þeim árum þegar hann ritstýrði Alþýðublað-
inu. Það er vonandi að með auknu fylgi jafnaðarstefn-
unnar vaxi Alþýðublaðinu fiskur um hrygg'og það
þurfi ekki lengur að „vera langtum minna en þurft
hefði að vera.“
Alþýðublaðið hefur ávallt verið málsvari jafnaðar-
stefnunnar og á því verður engin breyting. í fyrsta leið-
ara blaðsins sem vitnað var til að framan segir m.a.:
„Alþýðuflokkurinn berst fyrir málstað alþýðunnar, en
það er I raun og veru sama sem að berjast fyrir mál-
stað íslenzku þjóðarinnar, því alþýðan og þjóðin ereitt
og sá sem berst á móti alþýðunni, eða i eiginhags-
munaskyni, af afturhaldssemi eða nýfælni, leggur
stein í götu áleið hennarmót betri lífskjörum, hann er
óvinur íslensloj . þjóðarinnar, hversu hátt svo sem
hann hrópar um ættjarðarást og verndun þjóðernis-
ins.“ Þessi orð eru undarlegafersk enn þann dag í dag.
Fyrir utan að vera málgagn jafnaðarstefnu er Alþýðu-
biað^íðjafnframt opið fréttablað sem mun leitast í rík-
ari mæli við að varpa Ijósi á baksvið atburða í stjórn-
málum, menningu og þjóðlifi.
Dagblöð eru menningarsaga. Þau mótast mikið af
ritstjórum og ritstjórnum en kannski mest af lesend-
um og kröfum þeirra. Alþýðublaðið er engin undan-
tekning frá þessari reglu. Það er blað með langasögu
menningar og baráttu að baki. Alþýðublaðið er stofn-
að í kringum hugsjón jafnaðarstefnunnar, og er —
eins og heiti þess bendirtil — blað alþýðunnar. Þær
breytingar sem unnið er að, miða fyrst og fremst að
því að gera blaðið aðgengilegra, áhugaverðara og
skemmtilegrafyrirlesendurna, því þaðeru kaupendur
blaðsins sem ritstjórnin á fyrst og fremst að þjóna.
Þess vegna vonum við að lesendur okkar taki breyt-
ingum á Alþýðublaðinu með jákvæðu hugarfari og
hjálpi okkur með ábendingum og skrifum að stuðla að
bættu og efnisríkara blaði. l.M.
fæst
verslunum
• • •
r r •
i ar!
KruUujárn og hárblásari í einu og
sama tækinu. Þú kemur úr baði eða
sundi og þerrar hárið að mestu. Síð-
an bregður þú kruUublásaranum í
hárið og lýkur við lagningu og
þurrkun hársins. Tvær hitastilhngar
- létt og þægilegt! Verð kr. 2.580
og 2.180 (án aukahluta).
ÖU\
erslunín
PFAFF
Borgartúni 20
Sími 26788
Hille-stóllinn loksins á Islandi
Komdu og skoðaðu nýja skrifstofustólinn frá Hille, sem
farið hefur sigurför um heiminn.
Það er þess virði.