Alþýðublaðið - 14.04.1987, Síða 3
Þriðjudagur 14. apríl 1987 3
Raunsæisstefna
er okkar pólitík
Texti:
Ingólfur Margeirsson
Ljósmyndir:
Gunnar Gunnarsson
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðu-
flokksins svarar spurningum um vakningu og
stefnu Alþýðuflokksins, spyr sjálfur margra
spurninga og svarar þeim einnig.
Jón Baldvin segist
vera svangur. Og þá
er Isfirðingurinn Jón
Baldvin “svangur“ en
ekki “svángur.“ Enda
ekki að undra. Stöð-
ugur þeytingur und-
anfarnar vikur og
mánuði milli Alþing-
is, vinnustaða, funda-
herbergja og kosn-
ingaskrifstofa hefur
raskað hefðbundnum
tíma svefns og matar.
Og reyndar hefur
fleira raskast síðan
Jón Baldvin tók þá
afdrífaríku ákvörðun
að bjóða sig fram til
formanns á flokks-
þingi Alþýðuflokks-
ins 1984. Hann tók
við flokki í molum og
endurreisti hann í
eina sterkastu stjórn-
málahreyfingu á ís-
landi. Enduruppbygg-
ingin kostaði Jón
Baldvin blóð, svita og
tár — og talsverðan
húmor. En honum
tókst það sem flestall-
ir höfðu spáð að vœri
ógjörningur: Að sam-
eina jafnaðarmenn
undir einum fána. En
Jón Baldvin veit, að
það er of snemmt að
hrósa sigri. Alþingis-
kosningarnar eru
framundan og óvœnt-
ir atburðir í Sjálf-
stœðisflokknum hafa
riðlað allri hefðbund-
inni flokkaskipan.
Hann harmar lítt var-
anlegan klofning
íhaldsins í tvo flokka;
það opnar leiðina fyr-
ir stóran jafnaðar-
flokk sem öflugasta
stjórnmálaafl Islands.
Og Jón Baldvin er
svangur.
Á stormasömu síðdegi yfirgefum
við hringjandi síma, starfsmenn