Alþýðublaðið - 14.04.1987, Síða 8

Alþýðublaðið - 14.04.1987, Síða 8
Þriðjudagur 14. april 1987 Hugmyndasamkeppni Útflutningsráós íslands Á undanförnum árum hafa íslenskir útflytjendur að mestu leyti unnið hver í sínu lagi að kynningarmálum fyrir íslenskar vörur og þjónustu á erlendum mörkuðum. Samstarf hefur helst verið í formi sérstaks kynningarátaks á ákveðnum mörkuðum. Útflutningsráð fslands var stofnað skv. lögum 1. okt. 1986. Eitt af markmiðum með stofnun ráðsins er að leiða saman hina ýmsu aðila sem þurfa á kynningarátaki erlendis að halda og vinna skipulega að undir- búningi og framkvæmd slíkrar kynningar. Liður í undirbúningi þessa starfs er hugmyndasamkeppni sem ráðið efnir nú til. Samkeppnin er í tveimur liðum: A. Merki Merki þetta verður í senn tákn Útflutningsráðs íslands og allsherjarmerki fyrir sameiginlegar markaðs- og kynningaraðgerðir erlendis. Merki þetta verður notað á bréfhaus ráðsins, á bækl- inga og kynningarefni á vegum ráðsins og í sameiginlegum aðgerðum fyrirtækja. Það verð- ur notað sem sameiningartákn fyrirtækja á sýn- ingum. Einnig verða gefnir út límmiðar með merkinu. B. VíGORÐ Vígorðið á að vera setning á íslensku og ensku sem aðilar í útflutningi á vöru, þjónustu og ferðamálum geta sameinast um. Vígorði þessu er ætlað að lýsa þeirri sameigin- legu ímynd sem íslendingar vilja koma á fram- færi við erlenda viðskiptaaðila, neytendur og ferðafólk. Æskilegt er að bæði merki og vígorð beri íslensk sérkenni. Samkeppnin er haldin sam- kvæmt reglum FÍT, Félags íslenskra auglýs- ingateiknara og er öllum opin. Verðlaun Veitt verða ein verðlaun fyrir tillögu sem dómnefnd telur þess maklega. a. Fyrirmerki kr. 250.000 b. Fyrirvígorð kr. 150.000 Tillögur að merki skulu vera 10-15 sm í þver- mál, þeim skal skila í svörtum lit á hvítan pappír, pappírsstærð 21,0 x 29,7 (A-4). Ein- kenna skal tillögurnar með dulnefni, en nafn höfundar og heimilisfang fylgi með í lokuðu umslagi. Þátttakendum er heimilt að senda fleiri en eina tillögu. Skal hver tillaga þá hafa sérstakt dulnefni og henni fylgja sér umslag með nafni höfundar. Fyrir merki: Ágúst Ágústsson, Póls-tækni hf. Einar Hákonarson, listmálari Erlendur aðili Fanney Valgarðsdóttir, FÍT Gylfi Þór Magnússon, S.H. Sigfús Erlingsson, Flugleiðum hf. Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs íslands. Fyrir vigorð: Benedikt Sveinsson, S.Í.S. Davíð Scheving Thorsteinsson, Sól hf. Erlendur aðili Kristín Þorkelsdóttir, SÍA Magnús Oddsson, Arnarflugi Sigurður G. Tómasson Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs íslands. Ritari dómnefndar og jafnframt trúnaðarmaður keppenda er: Elín Þorsteinsdóttir Útflutningsráði íslands Þátttaka er öllum heimil og geta þátttakendur snúið sér til hennar og fengið frekari upplýsing- ar um samkeppnina og um Útflutningsráð íslands. Síminn er 91-688777. SKILAFRESTUR er til 1. júní 1987. Tillögur má setja í póst eða koma til Útflutn- ingsráðs merktar: Útflutningsráð íslands Hugmyndasamkeppni b.t. Elínar Þorsteinsdóttur Lágmúla 5, Pósthólf 8796,128 Reykjavík. SÝNING Dómnefnd skal skila niðurstöðum innan eins mánaðar frá síðasta skiladegi. Efnt verður til sýningar á tillögunum og þær síðan endur- sendar. Verðlaunaupphæðin er ekki hluti af þóknun höfundar. Dómnefndir Tvær aðgreindar dómnefndir hafa verið skipað- ar: Útflutningsráð áskilur sér rétt til að nota þær tillögur sem dómnefnd velur. Jafnframt áskilur ráðið sér rétt til að kaupa hvaða tillögu sem er. LÁGMÚLI 5 108 REYKJAVÍK Keflavíkurflugvöllur Ný flugstöð Veitingarekstur — Útboö Flugmálastjóm á Keflavíkurflugvelli býður út veit- ingarekstur í nýju flugstöðinni. Um er að ræða allan veitingarekstur í flugstöð- inni, þar með talið mötuneyti starfsfólks, frá júní 1987 og fram til ársloka 1990. Eftirtalin svæði samtals 1.114 fermetrarog búnað- ur tilheyra veitingarekstrinum: 1. Aðaleldhús á2. hæð, 387 fermetraralls, meðtil- heyrandi búnaðim til matargerðarog uppþvott- ar, kælum, frystum og öðrum geymsium og að- stöðu fyrir starfsfólk. 2. Mötuneyti starfsfólks á 2. hæð, 321 fermetrar alls,. með afgreiðsluborðum og tilheyrandi búnaði, og borðum og stólum fyrir 190—200 manns. 3. Veitingaafgreiðsla og bar við biðsal á 2. hæð, 133 fermetrar alls, með tilheyrandi búnaði, en aöliggjandi er veitingarými með borðum og stólum, um 275 fermetrar alls. 4. Aðstaðafyrirtakmarkaðaveitingaþjónustu við útsýnisstaðá2. hæð, 23 fermetrar, meðtilheyr- andi búnaði, en aðliggjandi er veitingarými með borðum og stólum, um 68 fermetrar. 5. Veitingabúð í gróðurskála á 1. hæð ásamt búri, 250 fermetrar ails, með tilheyrandi búnaði. Lágmarksgjald fyrir aðstöðuna er kr. 10.600.000,- á ári. Útboðsgögn verða afhent á Almennu verkfræði- stofunni, Fellsmúla 26 Reykjavík, frá og með mánudeginum 13. apríl gegn 5.000 kr. skilatrygg- ingu. Fyrirspurnirog óskirum upplýsingarskulu berast Almennu verkfræðistofunni eigi síðaren 29. apríl 1987. Tilboðum skal skilað til Almennu verkfræðistof- unnar fyrir kl. 14.00 föstudaginn 8. mai 1987. Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli. - "" Útboö Þingvallavegur, Litla-Sauðafell Stóralandstjörn Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum i ofangreint verk. Lengd vegarkafla 1,5 km, fylling og burðar- lag 28.000 m3, tvöfalt slitlag 9.200 m2 og yf- irlögn 22.000 m2. Verki skal að fullu Iokið 15. júlí 1987. Útboðsgögn verðaafhent hjá Vegagerð rik- isins í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 14. þ.m. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00 þann 4. maí 1987. Vegamálastjóri. FERMINGARTILBOÐ FRÁ ÍJJ SAMSUIVIG Laugavegi 63 (Vitastigsmeginj — Sími 62 20 25 WIP-380: 2x20 w magnari, með 5 banda tónjafnara, FM útvarp, tvö- falt kassettutæki, hálf sjálfvirkur plötuspilari og tveir 25 w hátaiarar. WIP 380 Fermingarverd kr. 19.980g

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.