Tíminn - 19.07.1967, Side 2
TÍMINN
MIÐVIKUDAGUR 19. júlí 1967
PÓSTSTJÓRNIN HLÝTUR VERÐ
LAUN FYRIR FRÍMERKJASAFN
•• • '••■•■' f .y~ <- , yfíff
Vestanflug h. f. hélt aðal-
fuad á fsafirði í dag 1. júlí
þar sem framkvæmdastjóri
flutti skýrslu sína og kosning
félagstjómar fór fram.
Félagið var stofnað 19.
nóvember s. L og er tOgangur
j*ess að annast sjúkra- og far-
þegaflug aðallega á Vestfjörð
Flugvél Vestanflugs á ísafjarSarflugvelli nýkomin úr ískönnunar-
flugi I vetur, með fréttamenn, þá Guðbjörn Charlesson, flugmað-
ur, Guðmundur Sveinsson, Högni Torfason, Halldór Ólafsson,
Gunnlaugur Guðmundsson.
Síðan félagið hóf starfsemi
sína sl. áramót til 31. maí sl.
hefur vél þess af Peper-apache
gerð, flutt 739 farþega farið í
13 sjúkraflug auk ferða með
laekna og leitanflugs.
Samþykkt var áskorun til
flugmálastjóra að vinna ötul-
lega að því að aukið fjármagn
fáist tfl að fjölga sjúkraflug-
völlum á Vestfjörðum.
Almennur álbugi riSdr á Vest
fjörðum fyrir starfsemi félags
ins og eiga allir hreppar í
fsatfjarðar, Stranda og Barða-
strandarsýslu aðfld að félaginu
auk Ísafjarðarkauipstaðar og
svo fjöldi einstaklinga og fyrir
tækja víðsvegar um Vestfirði.
Voru fundarmenn einlhuga um
að efia bæri þessa starfsemi
og stuðla að þvi að þjónusta
fyrirtækisins næði sem fyrst
til allra byggðarlaga á Vest-
fjörðum.
í stjórn félagsins voru kjörn
ir Einar Gunnar Einarsson,
sýslutfulltrúi ísafirði formaður
Gunnar Jónsson, ísafirði vara
formaður, Birgir Valdimarsson
ísafirði, sr. Andrés Ólafsson
Hóimavík, Ásmundur Ólsen,
Patreksfírði, Gunnlaugur
Finnsson, Hvilft, Önundarfirði,
og Ásgeir Svanbergsson, Þúf
um.
Framkvæmdastjóri félagsins
er Birgir Valdimarsson, ísaf.
Flugmenn félagsins eru Guð-
björn Charlesson og Einar
Fredreksen.
Stjórn Vestanflugs h.f. eihf-
ir ákveðið að auka hlutabréfa
sölu og hefir af því tilefni
ákveðið að senda sölumann um
alla Vestfirði, og víðar, og
mun selja hlutabréf í Vestan-
flugi úr bíl sínum. Áhugi á
þessum málum á Vestfjörð-
um er mikill, enda hefir flug
vélin leyst úr brýnni þörf í
samgöngumálum Vestfirðinga.
Heildaraílinn 80.539 lestir
í upphafi vikunnar 9. til 15.
júlí voru veiðiskipin stödd á um
það bil 72° n. br. og 3° a. 1. og
var afli þeirra sæmilegur á sunnu
dag, en það sem eftir var vikunn
ar var afli tregur. Færðu skipin
sig enn austur á bóginn og hafa
þau sem lengst hafa komizt farið
norður á 74° n. br. og 11° a. 1.
í vikunni bárust á land 13,545
lest, þar af var um 160 lestum
leiðrétting
rrarn mannsáns, sem beið bana
af voðaskoti á Tálknafirði, misrit
aðist í dagblöðun'um í gær. Var
hann sagður heita Sigurður Kri-st
ínn, en -hans rétt-a natfn er Sigurð
ur Kristján Jóhannesson. Leið-
réttist þetta hér með.
landað í Færeyjum. Heildarafli
vertíðarinnar er orðinn 80.539
lestir og hefur sá afli allur farið
til bræðslu. Á sama tí-ma í fyrra
var aflinn 162.028 lestir og hafði
yerið hagnýttur þannig.
í salt 334 lestir (2289 upps tn.)
í frystingu 22 lestir. í bræðslu
161.672 lestir.
í sumar eru löndunarstaðtir
síldarinnar þessir: Lestir
Reykjavík 6.410
Bolungarvík 82
Siglufjörður 11.722
Ólafsfjörður 190
Krossanes 704
Húsavík 522
Raufarhöfn 18.198
Þórshöfn 324
Vopnafjörður 6.428
Seyðisfjörður 21.898
Neskaupstaður 8.112
Eskifjörður 3.733
Reyðartfjörður 942
Fáskrúðsfjörður 274
Stöðvarfjörður 362
Færeyjar 638
Síldveiðarnar sunnanlands vik-
una 9. til 15. júlí 1967.
í síðustu viku v-ar landað 8,421
lest Suðurlandssíldar og er heild
araf-linn á þem veðum orðinn 30.
564 lestir. Á sama tíma í fyrra
var aflinn 19.667 lestir.
Löndunarstaðir síldarinnar eru
þessir:
Lestir
Vest-mannaeyjar 8.860
Þorlákshöfn 3.350
Grindavík 4.108
Sandgerði 2,228
Keflavík 4.377
Hafnarfjörður 1.226
Reykjaví-k 3.444
Akranes 2.971
í gær var staddur hér á landi
N. Politop forstjóri American
Express í ‘Kaupmannahöfn og
framkvæmdastjóri frímerkasýning
arinnar Norden ‘67 sem haldin
var í Kastrup dagana 1. — 3 april
sl. Meðan hann var staddur hér,
afhenti hann Gunnlaugi Briem
póst- og símamálastjóra gylltan
skjöld sem verðlaun sýningarinn
ar fyrir safn það .er Póststjórnin
sý-ndi þar. Viðstaddir afhending-
una voru fulltrúi sýningarinnar
hér á landi Sigurður H. Þorsteins
son, Sveinn Sæmundsson blaða
fulltrúi Flugfélags íslands, en
Politop var hér í boði þess, og
Rafn Júlíusson póstmálafulltrúi.
Sýning þessi er einn liður í
því að koma upp siíkum nor-
rænum frímerkjasýningum ár-
lega í einhverju Norðurlandanna.
Er áætlað, að slík sýning verði
haldin í Reykjavík árið 1970, en
þá eru 100 ár liðin frá því að
fyrstu tvö pósthúsin á íslandi
voru opnuð í Reykjavík og á
Seyðisfirði. Framkvæmd sýningar
innar hér á landi mun Skandinavíu
klúbburinn annast, en fiann er
jafframt íslenzki aðilinn, sem er
meðlimur alþjóðasamtaka frí-
merkjasafnara. Sigurður H. Þor-
steinsson er formaður klúb-bsins,
en aðrir í stjóm eru Bjö-rn
Gunnarsson ritari og Aðalsteinn
Sigurðsson gjaldkeri. Sigurður H.
Um símamálin
í Borgarfirði
FB-Reykjavík, þriðjudag.
í tilefni af frétt í blaðinu fyrir
skömmu um símamálin í Borgar-
firði snerum við okkur í dag til
Karls Hjál-marssonar símstöðvar
stjóra og spurðum hann nánar
um hvernig símaþjónustunni væri
nú háttað, eftir að sjálfvirka stöð
in tók til starfa á Borgarnesi.
Karl sagði, að eftir að sjálf-
virka stöðin hefði verið tekin í
notkun, hefði verið breytt þeim
tíma, sem skiptiborð s-töðvarinn
ar er starfræ-kt. í því sambandi
hefði hann átt viðræður við
Braga Kristjánsson forstjóra hjá
hagdeild Póst- og símamálastjórn
Framhald á bls. 15.
Þorsteinsson er jafnframt fullt-rú
íslands hjá alþjóðasamtökunum.
Milli 20 og 30
hestar á kapp-
reiðum i Ölveri
jES-Reykjavík þriðéudag.
Kappreiðar voru háðar að Ölver
sl. laugardag. Um 30 hestar tóki
þátt í hlaupunum, og 20—30 hes
ar komu fram í góðhestakeppni
Fjölmenni var og veður gott, oj
fóru kappreiðarnar vel fram.
Það var -hestamannafélagií
Dre-yri á Akranesi, sem stóð fyru
kappreiðunum, og fóru -þær frare
-á skeiðvellin-um við Ölver. Keppi
var í 300 m skeiði, 300 og 350 m
stökki og 250 m folalhlau-pi. Einnig
fór fram góðhestakeppni, sem 20
30 hestar tók-u þátt í. Nokk-uð
spillti fyrir, að völl-urinn var frek
ar laus og þurr, og náðu hestarn-
ir því ekki jafn góðum tí-ma á
hlaupunum og ella. Um 300—400
mann-s komu á kappreiðarnar, og
mikið a-f hestum. Veður var gott,
vestan gola o-g hægviðri, en heldur
kalt. Kappreiðarnar fóru vel fram,
og enginn drykkj-u-skapur var sjáan
legur á samkomunni.
Úrslit í ein-stökum greinum urðu
sem hér segir. í 300 m skeiði varð
fyrstur Hrollur Sigurðar Óla-fs-son
ar á 26,6 sek. í 300 m stökki varð
fyrstur Mláni (7 vetra) Sigurð-ar í
Sólheimatungu á 25 sek., annar
Blakkur (7 vetra) Jóhönnu Krist-
jónsdottur úr Reykjavík á 25,2
sek og þriðja Gula-Gletta Erlings
Sigurðssonar, Reykjavík, á 25,7
s-ek. í 350 m stökki varð fyrstar
Reykur (7 vetra) Péturs Jónsson
ar, Skeljabrekku á 28,4 sek., ann
ar Alvaídur (8 vetra) Si-gurðar í
SóLheimatungu á 2-8,6 sek. og þriðji
Reykur (7 vetra) Jóhönnu Krist-
jónsdottur, Reykjavík í 29,6 sek. í
folahlaupi sigraði Konni (5 v-etra)
Sæmund-ar Ólafss-onar á 21,2 sek.
í góðh-estakeppni varð hlutskarp-
astur Blossi (9 vetra) Dagbjarts
Dagbjartss-onar á Akranesi, sem er
al-hliða gæðing-ur, en af klárhest
um með tölti varð hl-utskarpastur
Glói (16 vetra) Jóns Albertssonar
á A-kranesi.
Námsstyrkir til háskólakvenna
Samtök háskólakvenna í Bandg
rikjunum veita, eins og fyrri ár
allmarga styrki til framhald-snám’s
við háskóla, fyrir ko.nur utan
Bandaríkja'*.ia. Eru styrkirnir alls
um 50 í ár, og eru af þremur gerð
um. Styrkirnir eru fyrir skóláárið
1968—1969.
Svokallaðir almennir styrkir
eru flestir og eru þeir að upphæð
2.500 dollarar. Umsækjendur
þurf-a að uppfylla eftirfarandi
skilyrði:
1. Að hafa svo góða ensku-
kunnáttu að málið hái þeim ekki
við nám.
aftur heim til iands síns að námi
loknu.
Þá eru veittir þrír vísind-astyrk
ir, til náms í náttúruvísindum,
svo sem líffræði, efnafræði, eðlis
fræði o. fl. Þeir eru að upphæð
5,000 dollarar og er doktorspróf
skilyrði fyrir að sækja um þá.
Loks veita samtökin sex
styrki til rannsóknarstarfa, og er
hver styrkur að upphæð 2,500
dollarar. Um þessa stfyrki geta
einungis sótt þær konur, sem eru
meðlimir í félagi háskólakvenna
sem er aðili að Alþjóðasamtökum
háskólakvenn-a (International
Federation of University Women)
Þess má geta að Félag íslenzkra
2. Hafa bachelorsgráðu eða hlið í Háskólakvenna er aði-li að Al-
stæða menntun frá viðurkenndum j þjóðasamtökum háskólakvenna.
háskóia, svo að þær geti komizt
í fyrsta flokks skóla.
3. Hafa námsáætlun um að
bæta yið fyrri kunnáttu, t. d. á
sviði kennslu, læknisfræði,
heilsngæzlu og öðrum sviðum,
sem lúta að velferðarmálum.
Ekkert svið menntamála er þá
undanskilið, nema listir.
Allir þessir styrkir miðast við
að styrkþegi stundi nám heilt
skólaár.
Umsóknir um styrkina þurfa
að berast sem fyrst og eigi sið
ar en 1. desember 1967. Allar
frekari upplýsingar um styrki
þessa eru veittir hjá Upplýsin-ga
þjónustu Bandaríkjanna og liggja
4. A8 pmsækjandi ætli að snua bar frammi umsóknareyðublöð
Myndina tók Dússi á kappreiðunum um helgina.