Tíminn - 25.07.1967, Blaðsíða 1
Auglýsing í TÍMANUM
kemur daglega fyrir augu
80—100 -þúsund -iesenda.
Gerist áskrifendur að
riMANUM
Hringið i síma 12323
165. tbl. — Þriðjudagur 25. júlí 1967. — 51. árg.
' 1
Detroit logar í óeirðum — herlið sent á staðinn
MESTU EYÐILEGGINGAR í
OEIRÐUM SOGU U.S.A.!
NTB—Washington og Detroit, mánudag.
★ Lyndon Johnson, Bandaríkjaforseti, fyrirskipaði í dag 5000 mönnum
úr landher Bandaríkjanna að fara til Detroit „höfuðborgar" bílaiðnaðar-
ins, og vera þar reiðubúnir að aðstoða yfirvöld borgarinnar við að
bæla niður óeirðir, ef nauðsyn krefur. George Romney, ríkisstjóri í
Michigan, hafði fyrr um daginn sagt forsetanum, að ástandið gæti orðið
svo alvarlegt, að lögreglan og þjóðvarðliðið gæti ekki bælt niður kyn-
þáttaóeirðirnar, sem í kvöld höfðu kostað sjö manns lífið.
•k Skömmu síðar var flogið með hermennina 5000 til Selfridge-flug-
vallarins, sem er um 48 kílómetra frá Detroit, fimmtu stærstu borgar
Bandaríkjanna, þar sem 1000 lögreglumenn og 6000 þjóðvarðliðar hafa
reynt árangurslaust í tvo sólarhringa að bæla niður óeirðir. Þykkur
reykjarmökkur hvílir yfir borginni, þar sem hundruð elda loga. Úr lofti
að sjá er engu líkara en borgin hafi orðið fyrir loftárás. Síðastliðna nótt
fóru hópar blökkumanna um götur borgarinnar, kveiktu í húsum ogi
rændu jafnt einkahús sem stórverzlanir.
Þrír þeirra, sem fallið höfðu
í kvöld, voru hvítir, en hinir
blökkumenn. A.m.k. 450 manns
höfðu slasazt, og í dag hafði
slökkvilið borgarinnar orðið
vart við 260 bruna. Um 1000
verzlanir voru rændar s.l. nótt,
en eyðileggingarnar í borginni
eru metnar á yfir 100 milljónir
dollara (4300 millj. ísl. kr.).
Slökkviliðsstjóri borgarinnar,
Charles Quinland, sagði I dag,
að hann teldi, að óeirðirnar
í Detriot hefðu valdið meiri eyði
leggingu en nokkrar aðrar óeirð
ir í sögu Bandaríkjanna, þótt
’tiltölulega fáir hefðu misst
lífið.
Hátt á annað þúsund manns
voru handteknir í borginni. Lög
reglumenn og hermenn áttu í
sftöðugum bardögum við ^ópa
blökkumanna á Grand River
Avenue, einni helztu götu borg
arinnar. Lögreglumenn, búnir
sjálfvirkum skotvopnum, fiugu
í þyrlum yfir götur og húsþök,
og skutu á leyniskyttur.
Romney ríkisstjóri fór í gær
,í eftirlitsferð yfir borgina í
þyrlu, en'í dag ók hann imi
gotur borgarinnar í brynvörð-
um bíl. Bftir þá eftirlitsferð
bað hann Johnson forseta að
senda herlið til borgarinnar. í
s-keyti sínu til Hvita hússins,
sagði hann, að margir lögreglu
menn og þjóðvarðliðar væru ör-
magna eftir margra sólarhringa
átök.
Talsmaður Hvíta hússlns
sagði í dag, að herliðið, sem
sent hefði verið til D'etriot, ætti
ekki að halda inn í borgina fyrr
en fyrirskipanir væru gefnar
um það. Auk þess hafa herdeild
ir, sem staðsettar eru í mágrenni
borgarinnar, fengið fyrirskipan
ir um að vera við öllu búnar.
Kynþáttaóeirðirnar í Detroit
hófust fyrir alvörii snemma á
sunnudag, þegar lögreglan lok-
aði vínverzlun, sem ekki hafði
fylgt lokunarreglum borgarinn
Framhald á bls. 15.
Sjómaður
drukknar
á Hofsósi
OÓ-Reykjavík, mánudag.
HaUdór Jóhannesson, sjó
maður drukknaði í höMnni
á Hofsósi laugardaginn 15. júlí
sl. Halldór var 66 ára gamall
og var skipverji á Haraldi Ól-
afssyni SK-19. Var hann bú-
settur á Hofsósi, ókvæntur og
barnlaus.
Enginn varð var við, þegar
Halldór féll í höfnina og sást
Framhald á bls. 14.
3ja ára barn fyrir bíl við Kýrholi í Viðvíkursveit:
Fannst meðvitundarlaust á
veginum—lézt á sunnudug
OÓ-Reykjavík, mánudag.
Þriggja ára gamalt barn lézt
í gær á sjúkrahúsinu á Sauð-
árkróki af völdum áverka sem
þaá hlaut í bílslysi í gærmorg
un. Slysið varð hjá bænum
Kýrholti í Viðvíkursveit, en
þar eru foreldrar barnsins
búsettir.
Ekki liggur Ijóst fyrir með hvaða
hætti slysið varð. En áætlunar-
bíll, sem var á leið til Sauðár-
króks, stanzaði við Kýrholt. Þegar
hann.ók frá bænum hefur barnið
á einhvern hátt orðið fyrir bílnum
12 ÁRA DRENGUR
UNDIR DRÁTTAR-
VÉL - BEID BANA
OÓ-Reykjavík; VV-Kirkju-
bæjarklaustri, mánudag.
Tæplega 12 ára gamall
drengur varð undir dráttar-
vél s.l. föstudagskvöld og beið
bana. Atburður þessi skeði á
bænum Hæðarskarði í Land-
broti. Drengurinn hét Vigfús
Adólfsson og var frá Vest-|inn undir dráttarvélinni og beið
mannaeyjum.
samst.undis bana.
Vigfús ók sjálfur dráttarvélinni
og var á þjóðveginum skammt
írá Hæðarskarði. Var hann á leið
frá heyskap og átti stuttan spöl
eftir að afleggjaranum, sem ligg
ur heim að bænum, þegar dráttar
vélin valt út ai vegarkantinum,
sem barna er allihar. Varð piltur-
| Talið er að Vigfús hafi blindazt
| at soj sem orðin var lágt á lofti
og farið of nálægt vegarbrúninni,
sem er laus í sér og kanturinn
gefiö eftir þunga vélarinnar.
Foreldrar Vigfúsar eru Ásta
Vigfúsdóttir og Adólf Óskarsson,
Heiðarvegi 50, Vestmannaeyjum.
Er betta þnðja sumarið sem Vig-
fús dvaldi að Heiðarskarði.
eða hlaupið á hann, en engin
sem . áætlunarbílnum var varð
var við er slysið skeði, og ók
hann sína leið. Rilstjórinn sá til
ferða tveggja barna er hann ók
af stað en varð ekki var við hið
þriðja, sem fannst liggjandi með
vitundarlaust skömmu eftir að
áætlunartoíllinn ók burtu. Sýni-
legt er að ekki hefur verið ekið
yfir barnið, en annað tveggja hef
ur barnið lent framan á bílnum
og kastazit til hliðar við hann eða
að það hefur hlaupið á hlið hans
er bíllinn ók af stað.
Samkvæmt upplýsingum Jóibanns
Salbe’’gs, sýslumanns á Sauðár-
króki, leikur enginn vafi á að
það yar áætlunarbíllinn sem barn
ið varð fyrir, þar sem önnur
Framhald á bls. 15.
Verkfall í
Straumsvík
EJ-Reykjavík, mánudag.
Verkfall það, sem Verka-
mannafélagið Hlíf hafði boð-
að frá og með deginum í dag,
hófst á miðnætti, þar sem
j samningar náðust ekki. Samn
mgafundur hefur ekki verið
I boðaður.
Jósef Alliujef
Sonurinn
gagnrýnir
Svetlönu
EJ-Reykjavík, mánudag.
Dóttursonur Jósefs Stalins, Jos-
ef Alliujef, gagnrýndi móður sína
Svetlönu Stalin harðlega í við-
tali við fréttamann United Press
International fyrir helgina fyrir
að hafa leitað hælis í Bandaríkj-
unum. Sagði hann, að orsök þess-
arar ákvörðunar móður sinnar
væri „jafnvægisleysi í skapgerð
hennar.“ Hann kvaðst ekki sakna
Svetlönu, og sagði, að orð þau,
sem hún hefði látið hafa eftir sér
á prenti um seinni eiginmann
sinn, væru „ósæmandi.“
Jósef, sem er 22 ára læknastúd
Framhald á bte. 14.