Tíminn - 25.07.1967, Blaðsíða 14

Tíminn - 25.07.1967, Blaðsíða 14
TfMINN 14 ÞRIÐJDBAGUK 25. júM 196*7. LOKAUMFERÐIN Á DUNDEE- SKÁKMðTINU TEELDIDAG - Friðrik gerði jafntefli við GBgoric í áttundu umferð, og er í öðru sæti, en Gligoric er efstur. Hsím. — Mánudag. Áttunda umferð á skákmótinu í Dundee var tefld á sunnudaginn og átt ust þá við Friðrik Ólafsson og Gligoric. Friðrik hafði hvítt og fékk heldur betra tafl upp úr byrjuninni. Hann reyndi mjög til að auka frumkvæðið, en Gligoric varðist mjög vel og tókst að halda öllu :í horfinu. Eftir 36 leiki var greinilcga ekkert í skákinni nema jafntefli og sömdu stórmeistaram ir þá. VALUR—AKRANES Framhald at Ois. 13 um, en á 30. mínútu brá Þórður Reyni og upp úr því mun Reynir hafa ýtt harkalega við honum. Þetta sá dómarinn og vísaði Reyni umsvifalaust af velli. Hins vegar sá Grétar dómari ekki, að Þórður hélt Reyni, áður en til átakanna kom, en það er önnur saga. Reyn- ir fer sjálfkrafa í 10 daga keppnis bann, en mun örugglega leika með Val gegn Akurcyri 2. ágúst. Leikur toppliðsins og botn- liðsins var ekki upp á marga fiska. Valur hefði átt að vinna með stærri mun. T.d. hefði Henmann Gunnarsson átt að geta skapað fé lögum sínum góð tækifæri, en hann var eigingjarn í þetta skipti og reyndi markskot sjálfur í verra færi. Það er eftirsóknarvert að vera markakóngur! Með úrslitunuim versnaði staða Skagamanna enn, og hanga þeir nú á bláþræði í deildinni. Á iþrótta síðunni á morgun verður nánar skrifað um stöðu liðanna í mót- inu. Mesta athygli í þessari umferð vakti óvænt tap Bent Larsen gegn Englendingnum Penrose. Larsen, sem hafði tapað fyrir Gíigorie í umferðinni á undan, var allt of ákafur — missteag sig í sókn- inni og fékk tapað tafl. Wade hlaut nú sinn fyrsta vinning, sigr aði Skotann Davie og OTCeDy vann Kottnauer. Biðskákir voru tefldar í gær og þá vann Davie Pritdhett, en þegar blaðið ræddi við Friðrik voru þeir enn að tefla Penrose og Pritchett Penroise, sem hefur lokið öðrum skákum sínum í mótinu, var að reyna að þvinga fram vinning á jafnteflis- stöðu. Síðasta umferðin hefst kl. tvö þriðjudag eftir ísl. tíma og tefla þeir þá saman Larsen-Friðrik og Gligoric-O'Kelly, en staðan fyrir þessa síðustu umferð er þannig. 1. Gligoric 6 v. 2. Friðrik 5Vz v. KULUVARP Framhald af bls. 13. Guðmundur sigrar 18 metrana. Þess má geta, að 17.69 m. er nýtt meistara- mótsmet. Fyrra metið átti Gunnar Huseby, 16.03 m. Mótinu verður haldið áfram í kvöld kl. 20. KR—KEFLAVÍK Framhald af bls. 13. Leikinn dæmdi Steinn Guð- mundsson og skilaði hlutverki sínu mjög vel. Steinn er einlhiver allra bezti dómari íslenzkrar knatt- spyrmu í dag, ef ekki sá bezti. 3. Penroee 4% og bið. 4. —5. Larsen og 0*KeIly 4% 6. Kottnauer 2% v. 7. Devie 1% v. R Pritetoett 1 v og blð. 9. Wade 1 v. Útför móður okkar Rannveigar Gísladóttur, Urriðafossi, sem lézt að heimili sínu fimmtudaglnn 20. þ.m. fer fram að Viilinga- holti laugardaginn 29. þ. m. Haraldur Einarsson, Einar Einarsson. . Eiginmaður minn og faðir, Ólatur Rósinantsson, frá Syðra-Brekkukoti verður jarðsunginn frá Möðruvöllum í Hörgárdal miðvikudaginn 26. þ. m. kl. 2. e. h. Bilferð verður frá Ferðaskrifstofunni Sögu á Akureyri kl. 1,30. Blóm afbeðin en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á líknarstofnanir. 'Fyrir hönd vandamanna Sigríður Sigurðardóttir, Sveinn Ólafsson. Móðir okkar Ingibjörg Jónsdóttir Garði Stokkseyri. lézt á EIIi- og hjúkrunarheimilinu Grund hinn 23. þ.m. Börnin. Þökkum af alhug auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður, sonar og bróður Steinars Björnssonar lyfsaía Vigdís Sigurðardóttir. i og börn. Björn Björnsson, systkin og tengdasystkin. SJÓMAÐUR Framhalda af bls. L síðiast til hans kL 1 aðfaranótt laugardags og var hann þá um borð í Haraldi Ótafssyni, en hann var háseti á þebn báti. Hafði hann ráðgert að fara beim til sín og sofa þar u«n nóttina og bað einn af skiips- félögmm sínuim að vekja sig snemma á laugardagsmorgni, því að þá átti að hefjast vinna við löndun úr bátnuan. Eng- inn svaraði, þegar bankað var upp á hjá Halldóri um morgun- inn og mætti hann ekki til vinnu' um borð. Þegar leið að hádegi og ekki hafði spurzt til Halldórs, fóru skipsífiélagar hans að óttast um að eitthivað hefði kornið fyrir hann, og grunaði menn að Halldór hefði fallið í höfnina, og var hafin leit að honum. Síðar um dag- inn fannst lík hans í höfn- iimi á þeim stað, er báturinn hafði legið kvöldið áður, en hann hafði verið færður til um morguninn þegar löndun hófst. Halldór var með nokkr- um skipsfélögum sínum um borð i Haraldi Ólafssymi kivöld ið áður, og var síðast vitað um hann, er hann var einn um borð kl. 1 um nóttina. Virðist allt benda til, að Halldór hafi fallið milli skips og bryggju, er hann ætlaði frá borði, en eins og fyrr er sagt, voru engir sjónarvottar að þeim atburði. GOLFMÓT Framihald af bis. 13 5. Jóhann Eyjólfsson GR 310 h. (Með forgjöf): 1. Elías Kárason GS 246 h. 2. SiguTður Matth. G<N 250 h. 3. Sverrir Guðmundss. GR 254 h. 4. —5. Þorgeir Þorst.son GS og Eiríkur Helgason GiR 257 h. SONUR SVETLÖNU Framihalda al L/ls 1. ent, sagði í viðtalinU, að hann og systir 'hans, Ekaterina, hefðu skrif að Svetlönu sl. vor og gagnrýnt hana fyrdr að flýja til Bandaríkj- anna. Þau hafa ekki haft samband við móður sína eftir flóttann, fyrir utan eitt símtal, þegar hún var í Sviss. í símaviðtali, og síðar í grein í bandaríska tímaritinu „Atlantic Monlíhly" sagði Svetlana, að hún væri þess fullviss, að hvað svo sem börn hennar segðu opinberlega, þá væru þau henni sammála í hjarta sínu'. Jósef varð reiður, er hann var beðinn að segja álit sitt á þessum ummæluim móðurinnar. — „Ég er á allt öðru tnáli‘‘, — sagði hann. — „Ég get alls ekki komið auga á að hún hefði ástæðu til að yfir- gefa okkur. Ég skil ekki alveg, hvers vegna hún gerði það.“ Jósef sagði, að systir hans, sem er 17 ára, sakni rnóður sinnar. „Ég reyni að komast hjá því að tala við hatia um þetta leiðinlega mál.“ Islenzk fegurí / dönsku bluSi Ekstrablaðiö birti þessa mynd nú um helgina, og í mynda- textanum segir, að tómstunda gaman þessarar stúlku séu hesíar, reyndar hafi hún gaman af smásiglingum á sumrin, en liún sé rúmlega átján vetra, íslenzk í húð og liár og heiti Anna Andrcsdóttir, og vinni á skeiðvelli. Dönsku blaðamönn unum varð að orði, þegar þeir sáu myndina, að því er segir í myndatextanum, að rennilás- arnir séu ekki orðnir eins góð- ir og áreiðaniegir og þeir voru fyrrum. — íslenzkar stúlkur koma nú æ oftar í dönsku blöð unum, og er þetta að minnsta kosti önnur stúlkan, sem birtist mynd af á\hálfum mánuði. Urn móður sína sagði Jósef einnig, m.a., að hún ætti til að skipta oft um skoðun og vera sjálifri sér ósamkvæm. Sem dæmi nefndi hann, að í Bandaríkjunum hefði Svetlana hrósað Andrei Sinjavsky, rússn- eska rithöfundinum, sem nú af- plánar sjö ára fangelsisdóm fyrir að hafa látið prenta verk eftir sig, fjandsamleg Sovétrikjunum í öðrum löndum. „Hún og Sinjavsky voru alls ekki góðir vinir, eins og látið er lífca út fyrir í blaðagreinum, að- eins kunningjar," sagði hann. ' Þegar réttarhöldin gegn hon- um stóðu yfir í febrúar 1966, bætti Jósef við, „ræddum við, ég og móð ir mín, málið, og hún fordæmdi Sinjavsky harðlega fyrir þá tvö- feldni, að skrifa eitt fyrir sovézka lesendur og hið andstæða fyrir les endur erlendis.“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.