Alþýðublaðið - 16.05.1987, Side 1

Alþýðublaðið - 16.05.1987, Side 1
Stjörnarmyndunarviðræður: „TÍMINN FARIÐ TIL SPILLIS" — segir Jón Baldvin Hannibalsson sem telur aö viðræður við Kvennalistann fyrir alvöru hefðu átt að vera hafnar fyrir viku Jón Baldvin Hannibalsson, for- maður Alþýðuflokksins, telur að tíminn hafi farið til spillis að und- anförnu varðandi tilraunir til stjórnarmyndunar. Hann segir við Alþýðublaðið, að þegar í stað hefði átt að hefja „alvöruviðræður við Kvennalista“ og þær hefðu átt að hefjast fyrir viku. í gær hittust for- menn og varaformenn Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks til við- ræðna um hugsanlega stjórnar- myndun ásamt þriðja flokki. Ekki er talið líklegt að Þorstcini Pálssyni takist að koma saman stjórn á næstu dögum og ólíklegt að hann geri afgerandi tilraunir til þess fyrr Launanefnd ekki búin Launanefnd ASÍ og VSÍ hélt stuttan fund fyrir hádegi í gær um hugsanlegar launahækkanir í Ijósi verðlagsþróunar að und- anförnu. Ekki fékkst nein nið- urstaða í málinu á þessum fundi, enda ekki búist við því fyrirfram. Þegar kjarasamningar voru gerðir í desember sl. var sett svo- kallað rautt strik við 1. maí og annað við 1. september. Fari verðlagshækkanir fram úr þess- um rauðu strikum, er það á valdi launanefndarinnar að ákveða hvort laun skuli hækka til samræmis. Framfærsluvísi- talan er nú ekki einungis komin fram úr því sem áætlað var 1. maí heldur einnig yfir rauða strikið 1. september. en miðstjórnarfundi Alþýðubanda- lagsins lýkur á sunnudag. Ég verð að játa, að timinn hefur farið til spillis að undanförnu,“ seg- ir Jón Baldvin Hannibalsson, for- maður Alþýðuflokksins við Al- þýðublaðið, „Það hefði átt að hefj- ast þegar í stað að ræða stjórnar- myndun af málefnalegri alvöru við Kvennalistann. Og það er augljós- lega verkefni þeirra flokka sem ekki vilja endurreisn fráfarandi stjórnar með aðstoð þriðja aðila. Steingrím- ur Hermannsson fékk umboðið — ég veit ekki af hverju — og hefði getað verkstýrt slíkum umræðum en skilaði umboðinu áður en hann var byrjaður. Það er augljóst að Al- þýðubandalagið má ekki vera að því að stunda umræður um stjórn- armyndun. — Þeir hafa um annað að hugsa. Verkefnið framundan er því alvöruviðræður við Kvenna- lista. Og þær hefðu átt að vera hafnar fyrir viku.“ Jón Baldvin segir ennfremur að Þorsteini sé nú vandaverk á höndum og að staða hans sé erfið: „Það ræðst af því hvort hann ætli í alvöruviðræður við Kvennalistann og hvort Alþýðu- bandalagið verði til viðræðu eftir miðstjórnarfund sinn um helginaþ segir Jón Baldvin. Aðspurður segist Jón Baldvin ekki taka undir þær raddir sem segðu að forseti íslands hefði geng- ið framhjá formanni Alþýðu- flokksins, þegar Þorsteini Pálssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins var afhenturhbO'ð til stjórnarmyndun- ar: „En ég þekki ekki úthlutunar- reglur forseta, og ég hef lýst mig til þjónustu reiðubúinn. Ég veit ekki hvernig Þorsteinn Pálsson hyggst ganga til verks. Ég veit þar af leið- andi ekki hvort umboðið í hans höndum færir okkur nær árangri. “ Um hvaða vonir hann byndi við stjórnarmyndun á þessu stigi máls- ins, segir Jón Baldvin: „Ég hef ákaflega lítið um það að segja. Við- ræður okkar Þorsteins og varafor- manna flokkanna eru fyrst og fremst könnunarviðræður þar sem við berum saman bækur okkar hvort málefnasamstaða sé með flokkunum, könnum ágreining ef einhver er og reynum að Ieysa hann.“ Slödegis ( gær komu saman for- menn Sjálfstæöisflokks og Alþýöu- flokks, Þorsteinn Pálsson og Jón Baldvin Hannibalsson og varafor- mennirnir Friörik Sóphusson og Jó- hanna Siguröardóttir til könnunar- viöræöna um stjónarmyndun þess- ara tveggja flokka ásamt þriðja flokki. A-mynd/Róbert Svavar Gestsson: „Sameiningarafl vinstri manna lífsspursmál" ; Telur það slys að A-flokkarnir hafi ekki snúið sér saman þegar 1985 „Það er lífsspursmál að við eign- umst sterkt sameiningarafl vinstri manna í landinu," ssegir Svavar Gestsson, formaður Alþýðubanda- lagsins í viðtali sem birtist i opnu blaðsins i dag. Aðspurður um hvort flokkarnir á vinstri vængnum taki fljótlega saman höndum um sam- starf, segir Svavar að það velti mik- ið á stjórnarmyndunarviðræðun- um núna, og mönnunum sem bera ábyrgð á vinstriflokkunum og mál- efnum þeirra. Svavar vill ennfremur stjórnarsamstarf Alþýðubanda- lags, Alþýðuflokks og Kvennalista. í viðtalinu segir Svavar ennfrem- ur að hann sé jákvæður gagnvart samstarfi við Alþýðuflokkinn og telji það mikið slys að endurnýjuð forysta Alþýðuflokksins hafi ekki þegar 1985 farið að tala við Al- þýðubandalagið og þá hefðu síð- ustu alþingiskosningar farið öðru- vísi ef flokkarnir hefðu snúið sér saman t.d. með kröfu um nýja jafn- aðarstjórn. Um miðstjórnarfund Alþýðubandalagsins um helgina og formannsstöðu sína segir Svavar að hann hafi aldrei litið á formanns- sæti sitt sem fasteign og aldrei litið á flokkinn sem sitt tæki. Um hug- myndir um samstarf á vinstri væng- num segir Svavar ennfremur: „Eg mun ræða þessar hugmyndir á mið- stjórnarfundinum. Vinnuheiti min- na hugmynda er „Róttækt end- urmat.“ Þá er ég að tala um alla hluti. Og heilagar kýr eiga ekki að vera til. Menn eiga að horfa á hlut- ina eins og þeir séu að koma að nýju landi og skipuleggja málin eins og landnámsmenn gera.“ Sjá viðtal við Svavar Gestsson á bls. 4—5. „Ég hef aidrei litið á formannssæti mitt sem fasteign," segir formaður Alþýöubandalagsins. Svavar og fé- lagar hittast á miðstjórnarfundi flokksins á Varmalandi um helgina. Á-mynd/Róbert.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.