Alþýðublaðið - 16.05.1987, Blaðsíða 1
Stjörnarmyndunarviðræður:
„TÍMINN FARIÐ TIL SPILLIS"
— segir Jón Baldvin Hannibalsson sem telur aö viðræður við Kvennalistann fyrir alvöru hefðu
átt að vera hafnar fyrir viku
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins, telur að
tíminn hafi farið til spillis að und-
anförnu varðandi tilraunir til
stjórnarmyndunar. Hann segir við
Alþýðublaðið, að þegar í stað hefði
átt að hefja „alvöruviðræður við
Kvennalista“ og þær hefðu átt að
hefjast fyrir viku. í gær hittust for-
menn og varaformenn Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks til við-
ræðna um hugsanlega stjórnar-
myndun ásamt þriðja flokki. Ekki
er talið líklegt að Þorstcini Pálssyni
takist að koma saman stjórn á
næstu dögum og ólíklegt að hann
geri afgerandi tilraunir til þess fyrr
Launanefnd
ekki búin
Launanefnd ASÍ og VSÍ hélt
stuttan fund fyrir hádegi í gær
um hugsanlegar launahækkanir
í Ijósi verðlagsþróunar að und-
anförnu. Ekki fékkst nein nið-
urstaða í málinu á þessum
fundi, enda ekki búist við því
fyrirfram.
Þegar kjarasamningar voru
gerðir í desember sl. var sett svo-
kallað rautt strik við 1. maí og
annað við 1. september. Fari
verðlagshækkanir fram úr þess-
um rauðu strikum, er það á
valdi launanefndarinnar að
ákveða hvort laun skuli hækka
til samræmis. Framfærsluvísi-
talan er nú ekki einungis komin
fram úr því sem áætlað var 1.
maí heldur einnig yfir rauða
strikið 1. september.
en miðstjórnarfundi Alþýðubanda-
lagsins lýkur á sunnudag.
Ég verð að játa, að timinn hefur
farið til spillis að undanförnu,“ seg-
ir Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins við Al-
þýðublaðið, „Það hefði átt að hefj-
ast þegar í stað að ræða stjórnar-
myndun af málefnalegri alvöru við
Kvennalistann. Og það er augljós-
lega verkefni þeirra flokka sem ekki
vilja endurreisn fráfarandi stjórnar
með aðstoð þriðja aðila. Steingrím-
ur Hermannsson fékk umboðið —
ég veit ekki af hverju — og hefði
getað verkstýrt slíkum umræðum
en skilaði umboðinu áður en hann
var byrjaður. Það er augljóst að Al-
þýðubandalagið má ekki vera að
því að stunda umræður um stjórn-
armyndun. — Þeir hafa um annað
að hugsa. Verkefnið framundan er
því alvöruviðræður við Kvenna-
lista. Og þær hefðu átt að vera
hafnar fyrir viku.“ Jón Baldvin
segir ennfremur að Þorsteini sé nú
vandaverk á höndum og að staða
hans sé erfið: „Það ræðst af því
hvort hann ætli í alvöruviðræður
við Kvennalistann og hvort Alþýðu-
bandalagið verði til viðræðu eftir
miðstjórnarfund sinn um helginaþ
segir Jón Baldvin.
Aðspurður segist Jón Baldvin
ekki taka undir þær raddir sem
segðu að forseti íslands hefði geng-
ið framhjá formanni Alþýðu-
flokksins, þegar Þorsteini Pálssyni,
formanni Sjálfstæðisflokksins var
afhenturhbO'ð til stjórnarmyndun-
ar: „En ég þekki ekki úthlutunar-
reglur forseta, og ég hef lýst mig til
þjónustu reiðubúinn. Ég veit ekki
hvernig Þorsteinn Pálsson hyggst
ganga til verks. Ég veit þar af leið-
andi ekki hvort umboðið í hans
höndum færir okkur nær árangri. “
Um hvaða vonir hann byndi við
stjórnarmyndun á þessu stigi máls-
ins, segir Jón Baldvin: „Ég hef
ákaflega lítið um það að segja. Við-
ræður okkar Þorsteins og varafor-
manna flokkanna eru fyrst og
fremst könnunarviðræður þar sem
við berum saman bækur okkar
hvort málefnasamstaða sé með
flokkunum, könnum ágreining ef
einhver er og reynum að Ieysa
hann.“
Slödegis ( gær komu saman for-
menn Sjálfstæöisflokks og Alþýöu-
flokks, Þorsteinn Pálsson og Jón
Baldvin Hannibalsson og varafor-
mennirnir Friörik Sóphusson og Jó-
hanna Siguröardóttir til könnunar-
viöræöna um stjónarmyndun þess-
ara tveggja flokka ásamt þriðja
flokki. A-mynd/Róbert
Svavar Gestsson:
„Sameiningarafl vinstri manna lífsspursmál"
; Telur það slys að A-flokkarnir hafi ekki snúið sér saman þegar 1985
„Það er lífsspursmál að við eign-
umst sterkt sameiningarafl vinstri
manna í landinu," ssegir Svavar
Gestsson, formaður Alþýðubanda-
lagsins í viðtali sem birtist i opnu
blaðsins i dag. Aðspurður um hvort
flokkarnir á vinstri vængnum taki
fljótlega saman höndum um sam-
starf, segir Svavar að það velti mik-
ið á stjórnarmyndunarviðræðun-
um núna, og mönnunum sem bera
ábyrgð á vinstriflokkunum og mál-
efnum þeirra. Svavar vill ennfremur
stjórnarsamstarf Alþýðubanda-
lags, Alþýðuflokks og Kvennalista.
í viðtalinu segir Svavar ennfrem-
ur að hann sé jákvæður gagnvart
samstarfi við Alþýðuflokkinn og
telji það mikið slys að endurnýjuð
forysta Alþýðuflokksins hafi ekki
þegar 1985 farið að tala við Al-
þýðubandalagið og þá hefðu síð-
ustu alþingiskosningar farið öðru-
vísi ef flokkarnir hefðu snúið sér
saman t.d. með kröfu um nýja jafn-
aðarstjórn. Um miðstjórnarfund
Alþýðubandalagsins um helgina og
formannsstöðu sína segir Svavar að
hann hafi aldrei litið á formanns-
sæti sitt sem fasteign og aldrei litið
á flokkinn sem sitt tæki. Um hug-
myndir um samstarf á vinstri væng-
num segir Svavar ennfremur: „Eg
mun ræða þessar hugmyndir á mið-
stjórnarfundinum. Vinnuheiti min-
na hugmynda er „Róttækt end-
urmat.“ Þá er ég að tala um alla
hluti. Og heilagar kýr eiga ekki að
vera til. Menn eiga að horfa á hlut-
ina eins og þeir séu að koma að nýju
landi og skipuleggja málin eins og
landnámsmenn gera.“ Sjá viðtal
við Svavar Gestsson á bls. 4—5.
„Ég hef aidrei litið á formannssæti
mitt sem fasteign," segir formaður
Alþýöubandalagsins. Svavar og fé-
lagar hittast á miðstjórnarfundi
flokksins á Varmalandi um helgina.
Á-mynd/Róbert.