Alþýðublaðið - 08.07.1987, Page 8
Kim Yong-Sam hefur skipulagt andstöðuöflin og aukið mjög á vinsældir Kim Dae-Jung er kallaður Aquino Kóreu, slðan hann var sendur í útlegö til
slðustu vikurnar. Bandarikjanna.
Kim Dae-Jung og
Kim Yong-Sam hafa
gert bandalag gegn
forseta Suður-
Kóreu, Chun Doo-
Hwan, en þó keppa
þeir um að ná völd-
um eftir hann.
Tveir leiðandi menn stjórnarand-
stöðunnar í Suður-Kóreu, þeir Kim
Uae-Jung og Kim Youn-Sam, eru
bæði bandamenn og keppinautar í
baráttunni gegn fyrirhuguðum
breytingum stjórnar Chun Doo-
Hwans á stjórnkcrfi landsins og
valdahlutföllum sem eiga að koma
til framkvæmda á næsta ári.
Eftir tveggja vikna óeirðir í land-
inu, sem hafa þvingað stjórnina til
ýmissa málamiðlana, eru Suður-
Kóreumenn farnir að velta því fyrir
sér hvaða pólitíska valkosti Kim-
arnir tveir geti boðið landsmönnum
í staðinn fyrir stjórn Chuns forseta,
sem haldið er við lýði með tilstyrk
hersins.
Óvinsældir Chun-stjórnarinnar
eru mestmegnis af tvennum toga
spunnar: Suður-Kóreumenn hafa
aldrei fyrirgefið hershöfðingjanum
fyrrverandi það að hann tók völdin
fyrir sjö árum með grimmum og
miskunnarlausum aðferðum —
fyrst herforingjauppreisn og síðar, í
maí 1980, bældi hann niður upp-
reisn í útborg Kwangju með harðri
hendi og miklu mannfalli.
Chung-stjórnin reyndi að gera
Kim Dae-Jung ábyrgan fyrir upp-
reisninni í Kwangju. Hann var
dæmdur til dauða fyrir að æsa til
uppreisnar, þrátt fyrir það að hann
sat í fangelsi þegar óspektirnar
brutust út. En Kim er ættaður úr
nágrenni borgarinnar og nýtur mik-
illa vinsælda meðal hinna fjöl-
mennu stjórnarandstæðinga hér-
aðsins.
Aquina Kóreu
Eftir að Bandaríkjamenn höfðu
beitt þrýstingi, var dauðadómi
Kims breytt í 20 ára fangelsisdóm
árið 1981. Ári síðar fengu þeir því til
leiðar komið að Kim fékk fararleyfi
til Bandaríkjanna til að gangast
undir læknismeðferð. Heilsu hans
var þó ekki mjög ábótavant; raun-
verulega var um að ræða pólitíska
útlegð. Af því tilefni fékk hann við-
urnefnið Aquino Kóreu.
Skömmu fyrir þingkosningar
1985 sneri Kim Dae-Jung aftur til
Seul, en hann hlaut ekki sömu örlög
og Aquino þegar hann sneri aftur
úr sinni útlegð, heldur var hann um-
svifalaust settur í stofufangelsi.
Síðan hefur hann verið tekinn úr
umferð a.m.k. 50 sinnum. í hvert
skipti sem stúdentaóeirðir hafa ver-
ið í uppsigiingu, hefur öryggislög-
reglan umkringt lúxusvillu hans í
Seul og séð til þess að halda honum
í einangrun.
Chun-stjórnin hefur með öllum
ráðum reynt að gera Kim Dae-Jung
tortryggilegan sem þjóðhættulegan
kommúnistavin, en þær ásakanir
eru tilhæfulausar og Bandaríkin,
samherjar Suður-Kóreu, hafa t.d.
neitað að taka það fyrir góða og
gilda vöru. Kim Dae-Jung er lýð-
ræðislegur demókrati og fylgjandi
frjálsu markaðskerfi. Hann hefur
meira að segja viðurkennt að hin
velheppnaða herferð Suður-Kóreu
á útflutningsmörkuðum, sem hefur
fært landinu umtalsverðan hag-
vöxt, sé allra góðra gjalda verð.
Kim Young-Sam sœkir á
í pólitískum óeirðum í Suður-
Kóreu á undanförnum mánuðum,
hefur það komið í ljós að Kim Dae-
Jung hefur tapað nokkru af vin-
sældum sínum til nafna síns, Kim
Young-Sam. Þegar stjórnarand-
staðan klofnaði í apríl s.l. og nýr
stjórnarandstöðuflokkur var
myndaður, varð Kim Young-Sam
formaður hans og á þessum síðustu
óróasömu vikum hefur hann notið
sívaxandi vinsælda.
Kimarnir tveir eru samherjar í
baráttunni gegn Chun-stjórninni,
en þeir draga enga dul á að þeir séu
jafnframt keppinautar. Hvor um
sig styðst við flokksbrot og hags-
munahópa sem hafa barist um áhrif
í Suður-Kóreanskri pólitík síðan á
6. áratugnum.
Báðir eru með hagfræðimenntun
og bakgrunn í viðskiptalífinu. Kim
Dae-Jung er kaþólskur og ættaður
frá hinu mótþróafulla Cholla-hér-
aði, en Kim Young-Sam er mót-
mælandi frá milljónaborginni Pus-
an í Kyongsang-héraði. Aldagömul
togstreita og tortryggni ríkir milli
þessara tveggja héraða og hefur það
jafnan sett mark sitt á innanríkis-
pólitík í Suður-Kóreu.
Bæði Chun Doo-Hwan og fyrir-
rennari hans eru frá suðurhluta
landsins og það er þar sem blómleg-
um iðnfyrirtækjum hefur verið
komið á fót. Landbúnaðarhéruðin
á heimaslóðum Kim Dae-Jungs
hafa verið skilin útundan og barátt-
an stendur ekki hvað síst þess
vegna.
Verslunarstéttin og hin menntaða
miðstétt veðjar á Kim Young-Sam
og telur hann hógværari og líklegri
til samninga en Kim Dae-Jung. Ur-
slitin ráðast þó fremur af því hvor-
um þeirra heppnast betur að veita
uppreisnaröflum stúdenta í skyn-
samlegan farveg. Hvorugur þeirra
er sjálfkjörinn foringi þess hóps.
Beinar forsetakosningar
Stjórnarandstöðuforingjarnir
tveir eru sammála um að í næstu
forsetakosningum, sem verða að
líkindum í nóvember, eigi að kjósa
forseta beinni kosningu. Öðrum
kosti verði Suður-Kórea einræðis-
ríki langt fram á næsta áratug. Það
var þessi krafa sem olli því að
stjórnarandstaðan klofnaði í vor og
nýr flokkur var myndaður.
Nú þegar hefur Chun-stjórnin
orðið að láta undan síga á mörgum
sviðum og má teljast völt í sessi eins
og er. Kim Young-Sam hefur lýst
því yfir að engin málamiðlun komi
til greina. Líklegast er talið að sá
verði endirinn á, einkum m.t.t. þess
að Olympíuleikarnir verða haldnir í
Seoul á næsta ári, sem beinir aug-
um heimsins mjög að Suður-Kóreu.
Chon Doo-Hwan forseti er harð-
ur í horn að taka eins og vænta má
af fyrrverandi herforingja. Hann
Laugardaginn 4. júlí voru 5 ár
liðin frá upphafi áætlunarflugs
Arnarflugs frá íslandi til Evrópu og
var þar með enn einu sinni brotið
blað í litríkri flugsögu okkar ís-
lendinga.
Arnarflug var stofnað í Þjóðleik-
húskjallaranum 10. apríl 1976 af
um það bil 700 einstaklingum og
fyrirtækjum, gagngert til þess að
rjúfa það einokunar mynstur sem
myndast hafði í samgöngumálum
íslendinga eftir sameiningu Loft-
leiða hf. og Flugfélags íslands hf.
Frá stofnun félagsins var talið að
áætlunarleyfi til millilandaflugs
væri frumskilyrði fyrir flugrekstri
til einhverrar framtíðar. An þess
yrði ekki hægt að reka flugfélag
með því jafnvægi og þeim stöðug-
leika sem nauðsynlegur er öllum
flugrekstri.
I desember 1976 sótti því Arnar-
flug um leyfi til áætlunarflugs frá
hefur haft unun af að vera í hlut-
verki hins stranga skólameistara, en
nú hefur hann sjálfur verið settur í
skammarkrókinn. Enn hefur hann
ekki lært lexíuna sína til fullnustu,
en nú vonast menn til að hann geri
það áður en meiri skaði skeður.
Islandi til fimm borga í Evrópu.
Staðirnir sem félagið sótti þá um
voru Kaupmannahöfn, Dublin,
Amsterdam, Dússeldorf og Zúrich.
Svo sem að líkum lætur hefur
verið vindasamt um flugrekstur
Arnarflugs allt frá upphafi og sáu
stjórnvöld þessa tíma sér ekki einu
sinni fært að svara þessum leyfis-
umsóknum, þrátt fyrir ítrekanir að
hálfu Arnarflugs.
Það var ekki fyrr en tæplega 6 árum
síðar eða í mars 1982 að framsýnir
ráðamenn veittu formlega leyfi til
Arnarflugs um áætlunarflug til
þriggja borga í Evrópu, þ. e.
Amsterdam, Zúrich og Dússeldorf,
sem síðar fluttist yfir til Hamborgar
að ósk Arnarflugs.
Fyrsta áætlunarferð Arnarflugs
milli landa varð að veruleika 4. júlí
1982 til Zúrich í Sviss og síðan til
Amsterdam og Dússeldorf 7. júlí
1982.
Arnarflug
Fimm ár í áætlunarflugi