Alþýðublaðið - 11.07.1987, Side 7
Laugardagur 11. júlí 1987
7
V
Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra og Jón Sigurðsson, við-
skipta-,dóms-og kirkjumálaráðherraeru aðalhöfundarstefnumálaskrár Al-
þýðuflokksins og skrifuöu ennfremur málefnasamning rlkisstjórnarinnar.
Ekki að furða að málefnasamningurinn sé kallaður „krataplaggið."
MÁLEFNASAMNINGUR
RÍKIS^^nAlARIMMAR
Ný ríkisstjórn !
um í stjórnarr '
I. STEFNUYFIRLÝSING
Sjálfttæðuflokkur, Framjóknarflokkur og Alþýðu-
flokkur hafa náð samkomulagi um myndun nýrrsr rik-
isstjórnar. Helstu verkefni rikitujórnarianar verða a/
stuóla aó jafnvægi, ttöðugleika og nýtkðpun I efnr
hags- og atvinnulffi, bæu Uftkjðr og draga úr verf
bólgu.
Markmið ttjórnarsamstarftiru er að auka einstaf
ingsfrelti og jafnrétti, vinna að valddrci fingu og fálaj
legum umbótum og treysta afkomuöryggi aUra lanr
manna. Rikhstjórnin mun tunda vðrö um efnaha
legt, ttjórnarfarslegt og menningarlegt ijálfstaeði þj
Undirstaða hagsældar er jafnvægi I efnahagsmá
og öflugt atvinnulif. RIkU«jórnin leggur áhen
stöðugt verðlag og atvinnuöryggi. Hún mun nú J
gripa til ráðttafana til þess að draga úr þenslu i þj
búskapnum og sporna við verðbólgu.
Meginatriði I stefnu rikisstjórnarinnar og þing
hluU hennar cru:
• Gengi krónunnar verði haldið stöðugu, stc
hallalausum viðskiptum við utlönd og læk'
lendra skulda I hlutfalli við þjóðarframleiðí
• Jafnvægi I rikisfjármálum veröi nið á næstu n
árum. Tekjuöflun rikisins verði gerð einfald
látari og skilvirluri. Útgjöld rikisins verf
skoðuð þannig að gætt verði fyllsta að
spainaðar og þau vaxi ekki öur en þjd
leiðsla. Skatttekjur nýtist sem best I þág>
ings.
• Eftirlit með framkvæmd sjtatulaga verði
földun við öflun rikistekna mun tjálfku
möguleikum til skattsvika og stuöla að si
grciðslum einstaklinga og fyrírtækja t
legra þarfa.
• Stuðlað að eölilegri byggöaþróun I land
vcislu auðlinda lands og sjávar og skynr
nýtingu þeirra. Fylgt verði byggðastefni
á atvinnuuppbyggingu, átaki I samgönj
ingu þjónustukjarna og bættrí fjárn
heima I héraöi.
• Fylgt verður sjálfstæðrí utanrlkisstef
öryggi landsins og fullveldi þjóðar
AipÍS!/R
--SSXug/jvjv
s*Ul .
SpUNíLcrSÍi^ÍKlSi
m
s>eínurmál wó
S&MÍHNU
ln9ar 1987
; 1987
Stefnumál Alþýðuflokksins við Al-
þingiskosningar 1987 eru nær end-
urprentuð (málefnasamningi nýrrar
rikisstjórnar.
öllum sviðum þjóðlífsins. Alþýðu-
flokkurinn vill stuðla að því, að
aldraðir geti dvalið á heimilum sín-
um svo lengi sem þeir kjósa...“
Punkturinn um húsnæðiskerfið í
málefnasamningnum er tekinn
beint úr stefnumálum flokksins.
Setningin “Valfrelsi verði aukið í
húsnæðismálum," er orðrétt úr
stefnumálum flokksins. Boðaðar
stjórnkerfisbreytingar er einnig úr
stefnuskrá Alþýðuflokksins.
Einn og sami penninn
Þegar starfsáætlun ríkisstjórnar
Þorsteins Pálssonar er lesin er
greinilegt hverjir eru höfundar
plaggsins. í innganginum að efna-
hagsstefnunni segir: „Markmið
efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar
eru að örva hagvöxt og framfarir í
atvinnulífinu á grundvelli aukinnar
framleiðni og nýsköpunar, að bæta
lífskjör, tryggja jafnvægi í viðskipt-
um við útlönd, sem stöðugast verð-
lag og fulla atvinnu.“ Þetta er
reyndar almennt orðalag en alla
þessa punkta er að finna í stefnu-
málum Alþýðuflokksins. Síðar seg-
ir: „Afskipti rikisins af einstökum
atvinnugreinum og fyrirtækjum
verði sem minnst.“ í stefnumálun-
um stendur: „Hlutverk ríkisins
verði takmarkað við að bæta mark-
aðsumhverfi fyrirtækja, en horfið
verði af þeirri braut ríkisafskipta og
forsjár einstakra rekstraraðila sem
dregur úr nauðsynlegu aðhaldi.“
Áfram segir í málefnasamningn-
um: „Fjárlögum, lánsfjáráætlun,
peninga- og gengismálum verður
markvisst beitt til þess að draga úr
sveiflum og treysta jafnvægi í þjóð-
arbúskapnum.“ í stefnumálum AI-
þýðuflokksins stendur: „Ríkið á að
beita framsækinni hagstjóm,þann-
ig að fjárlögum, lánsfjáráætlun,
peninga- og gengismálum sé mark-
visst beint að því að draga úr sveifl-
um og treysta jafnvægi.“
I málefnasamningi stendur:
„Stjórn peningamála mun miða að
jákvæðum en hóflegum raunvöxt-
um.“ í málefnasamningi Alþýðu-
flokksins stendur ritað: „Vaxta-
stefna og stjórn peningamála mið-
ist við jákvæöa en hóflega raun-
vexti...“ í málefnasamningi segir
áfram: „Lánastofnanir munu njóta
frjálsræðis en verður veitt aðhaid
frá ríki og Seðlabanka innan
ramma gildandi laga. Ríkisstjórnin
mun stuðla að jafnvægi á lána-
markaði og lækkun vaxta.“ í
stefnumálum Alþýðuflokksins fyr-
ir kosningar stendur orðrétt:
„Lánastofnanir njóti frjálsræðis
innan ramma strangs aðhalds frá
ríki og Seðlabanka. Ríkisvaldið
stuðli að lækkun vaxta...“ Og enn
stendur í málefnasamningnum:
„Gengisákvarðanir munu miðast
við að veita aðhald af verðlagsþró-
un innanlands og tryggja jafnvægi í
utanríkisviðskiptum. Dregiö verði
úr crlendum lántökum hins opin-
bera.“ í stefnumálum Alþýðu-
flokksins segir: „ Gengisákvarðanir
miðist við að tryggja hagsmuni
undirstöðugreina og jafnvægi í ut-
anríkisviöskiptum, en jafnframt að
veita eðlilegt aðhald af verölagsþró-
un innanlands. Nauðsynlegt veröur
að setja strangar takmarkanir við
erlendar lántökur hins opinbera."
Efast einhver um, að þarna sé
einn og sami penninn á ferðinni?
Sama atvinnustefna
Of langt mál yrði að bera nákvæm-
lega saman hinn 24 siðna málefna-
samning og stefnumál Alþýðu-
flokksins. En gegnum allan mál-
efnasamninginn er að finna orða-
lag, svipmót og hugmyndir krat-
anna sem þeir birtu í máiaskrá sinni
fyrir kosningar.
Atvinnustefna hinnar nýju ríkis-
stjórnar ber yfirskriftina „Efling
atvinnuvega — nýsköpun atvinnu-
lífs?“ sem er einmitt slagorð krat-
anna úr kosningunum. Og reyndar
er upphaf atvinnustefnu ríkis-
stjórnarinnar í málefnasamningi
alveg orðréttur úr stefnumálum Al-
þýðuflokksins: „Markmið atvinnu-
stefnunnar er að búa atvinnulifinu
sem best vaxtarskilyrði." Mikil-
vægir þættir í atvinnustefnu ríkis-
stjórnarinnar eru unnir beint úr
plaggi Alþýðuflokksins; fríverslun,
fyrirgreiðsla við stofnun og starf-
semi smáfyrirtækja á sviði fjar-
skipta og upplýsingatækni, og
sama gildir um fyrirtæki á sviði
nýrrar tækni sem líf- og rafeinda-
tækni, (eitt af áherslumálum Al-
þýðuflokksins) frjálsari gjaldeyris-
verslun og fjármagnshreyfingar
milli íslands og annarra landa, end-
urskoðun á lögum og reglum um er-
lent fjármagn í íslensku atvinnulífi,
átak til styttingar vinnutíma.
Sjávarútvegsstefnan er einnig
orðin gegnsósa af kratatexta. Þar er
stefnumál Alþýðuflokksins inni að
binda veiðiheimildir ekki alfarið
við skip. Byggðarsjónarmiðin eru
einnig á pappírnum og heimild að
gefa fiskverð frjálst. Þá verða und-
irbúnar reglur til frambúðar um
starfsemi fiskmarkaða hérlendis —
punktur tekinn beint úr stefnumál-
um Alþýðuflokksins.
Meira að segja
landbúnaðarstefnan
Meira að segja landbúnaðar-
stefnan sem flestir telja að kratar
hafi þurft að gleypa hráa frá Fram-
sókn, hefur fengið ábót úr stefnu-
málaskrá Alþýðuflokksins. í inn-
gangsorðum landbúnaðarkafla
málefnasamningsins segir: „Mark-
mið landbúnaðarstefnunnar verður
að tryggja þjóðinni fjölbreytt og ör-
uggt framboð á búvörum með
minnstum tilkostnaði, treysta
starfsskilyrði í landbúnaði og bæta
hag bænda. Átak verður gert til að
stöðva gróðureyðingu, græða ör-
foka land og auka skógrækt." 1
stefnumálum Alþýðuflokksins
stendur skrifað: „Markmið land-
búnaðarstefnunnar veröi að skapa
viðunandi starfsskilyrði stétt bjarg-
álna sjálfseignarbænda, tryggja
þjóðinni nægjanlegt framboð mat-
væla með sem minnstum tilkostn-
aði, stöðva gróðureyöingu og
græða örfoka land. Gerð verði sér-
stök landgræðsluáætlun sem m.a.
byggist á víðtækri friðun afréttar-
landa."
Og meira að segja hinn illræmdi
búvörusamningur er kominn í
hættu eftir að kratarnir skrifuðu
eftirfarandi punkt í málefnasamn-
inginn: „Ríkisstjórnin taki upp við-
ræður við Stéttarsamband bænda
um framkvæmd á samningi um
verðábyrgð rikisins á landbúnaðar-
afurðum með það að markmiði að
hún verði sem hagkvæmust og
ódýrust.“
Það er ekki nema von að þing-
flokkur Framsóknar hafi gengið af
göflunum þegar þeir lásu landbún-
aðarkaflann í málefnasamningn-
um.
Veigamesta
kosningamálið
Utanríkisstefnan er í takt við
stefnumál Alþýðuflokksins og end-
urskipulagning á ríkisbúskapnum
er nær orðréttur úr stefnumálum
flokksins. Þar þekkjum við aftur
kosningaslagorð krata sem heildar-
endurskoðun skattakerfisins," sam-
ræma og einfalda löggjöf um tekju-
öflun ríkisins,“ „staðgreiðsla
skatta“, og ekki síst punkturinn
sem Svavar Gestsson sá ekki eða
vildi ekki sjá þegar hann gagnrýndi
hina nýju stjórn og sérlega Alþýðu-
flokkinn sjónvarpi fyrir að hafa
hlaupið frá sköttum á stóreigna-
menn: „Athuguð verður skattlagn-
ing fjármagns- og eignatekna og
samhengi slíkrar skattlagningar og
eignarskatts af öðrum tekjum."
Fjöldi annarra þátta eru samhljóða
í málefnasamnmgiogstefnumálum
Alþýðuflokksins eins og tekju-
álagning atvinnurekstrar verði ein-
földuð og samræmd, virðisauka-
skattur leysi söluskatt af hólmi eða
til komi nýtt og endurbætt sölu-
skattskerfi, og ekki síst heildarend-
urskoðun á tekjustofnun sveitarfé-
Iaga. Kaflinn um heildarendur-
skoðun skattakerfisins er afar mik-
ilvægur, því hann var helsta bar-
áttumál Alþýðuflokksins í kosn-
ingunum og það veigamesta. í mál-
efnasamningum birtist stefnuyfir-
lýsing flokksins í þessum mála-
flokki nær óbreytt og fjármála-
ráðuneytið þar að auki í höndum
Alþýðuflokksins. Þetta tvennt
tryggir að Alþýðuflokkurinn er
kominn með stjórntæki í hendurnar
til að fylgja á eftir sínu stærsta
kosningamáli.
Nœr orðrétt
Um aðra málaflokka í málefna-
samningi er sömu sögu að segja;
orðrétt eða líkt orðalag úr stefnu-
málum Alþýðuflokksins. Þetta á
við banka- og lánamál; „dregið
verður úr ábyrgð ríkisins og afskipt-
um af bankarekstri og lánastarf-
semi,“ og „stefnt verður að sam-
runa banka með því að setja um
það almennar reglur.“ Um sam-
ræmt lífeyriskerfi og almennar
tryggingar þarf ekki að fjölyrða,
það eru gamalkunn stefnumál
krata. „Byggðarstefna og sam-
göngumál" heitir einn kaflinn í
málefnasamningnum.Þar eru heilu
kaflarnir orðréttir úr stefnumálum
Alþýðuflokksins. Menningar- og
menntamál ríkisstjórnarinnar eru
ennfremur í meginatriðum þau
sömu og Alþýðuflokksins, og hús-
næðismálin með hina sterku
áherslu á kaupleiguíbúðir er á tíð-
um eins og klipptur út úr stefnu-
málum krata.
Ríkisstjórnin eyðir heilum kafla
undir heitinu? „Fjölskyldu- og
jafnréttismál." þennan kafla er
ennfremur að finna nær orðréttan
úr stefnumálum Alþýðuflokksins.
Sömu sögu er að segja af heilbrigð-
ismálunum og umhverfismálunum.
Fyrirhugaðar stjórnkerfisbreyting-
ar rikisstjórnarinnar eru hugmynd-
ir krata i hnotskurn: Ný reglugerð
um verkaskiptingu ráðuneyta, ný
kosningalög, aðskilnaður dóms-
starfa og stjórnsýslustarfa, sett
verði stjórnsýslulöggjöf sem tryggir
óhlutdræga málsmeðferð í opin-
berri stjórnsýslu.
En verður
Jónsbók
framkvœmd?
Margir kynnu að spyrja sig eftir
þennan lestur: Hvernig má það vera
að Sjálfstæðisflokkurinn og Fram-
sóknarflokkurinn skrifuðu undir
málefnasamning sem er saminn
beint og oft á tíðum óbreyttur upp
úr stefnumálum Aþýðuflokksins?
Mín skýring er eftirfarandi: í fyrsta
lagi höfðu Sjálfstæðis - og Fram-
sóknarmenn lítið sem ekkert fram
að læra í stjórnarmyndunarviðræð-
unum og þeir lögðu ekki fram neinn
skrifaðan texta. Alþýðuflokkurinn
hafði hins vegar lagt geysilega
vinnu í textagerð við samningu
stefnumála fyrir kosningar og sú
vinna skilaði sér aftur í stjórnar-
myndunarviðræðunum. Eftir að
Jóni Baldvin var falið umboð
höfðu kratar tögl og hagldir í við-
ræðunum. Margir kvörtuðu sáran
yFir öllu pappírsflóðinu. Og
kannski voru menn ekki nógu vel að
sér; höfðu ekki lesið stefnumál Al-
þýðuflokksins og áttuðu sig ekki á
að sömu mennirnir skrifuðu
stefnumál flokksins og málefna-
samninginn. Og áður en þeir vissu
voru sjálfstæðismenn og fram-
sóknarmenn búnir að skrifa undir
stefnumál Alþýðuflokksins.
En við skulum muna að málefna-
samningurinn er víða opinn í orða-
lagi og framkvæmdir ráðast í ráðu-
neytum. Reynslan fær því úr því
skorið hvort að Jónsbók reynist
vera krataplagg í framkvæmd.
Fylgist með . Lesið áfram Al-
þýðublaðið.