Alþýðublaðið - 29.08.1987, Page 1
SÖLULISTIJÓNS BALDVINS
Fjármálaráðherra vill m.a. selja Rafmagnsveitur ríkisins,
Bifreiðaeftirlitið, Sementsverksmiðjuna og Skipaútgerð ríkisins.
Jón Baldvin Hannibalsson fjár-
málaráðherra hefur lagt fram til-
lögu til ríkisstjórnarinnar um
stefnumörkun við undirbúning
fjárlaga fyrir 1987. Meðal tillagna
fjármálaráðherra er sala á ríkisfyr-
irtækjum og eignarhluta ríkisins í
ýmsum fyrirtækjum. Á þann hátt
vill fjármálaráðherra draga ríkið úr
atvinnustarfsemi og afla fíkissjóði
tekna. Ennfremur hefur fjámála-
ráðherra lagt til að ákvæði um ýmis
lögboðin fjárframlög verði afnum-
in og sömuleiðis ákvæði um ýmsa
markaða tekjustofna.
Á sölulistanum er m.a. að finna
Rafmagnsveitur ríkisins, Menning-
arsjóð, Bifreiðaeftirlit ríkisins og
Skipaútgerð ríkisins. Alþýðublaðið
birtir sölulista fjármálaráðherra í
heild sinni.
Ferðaskrifstofa ríkisins.
Fóður og fræframleiðsla
Gunnarsholti.
Gutenberg, ríkisprent-
smiðja.
Laxeldisstöð í Koliafirði.
Lyfjaverslun ríkisins.
Sementsverksmiðja rík-
isins.
Síldarverksmiðjur ríkis-
ins.
Skipaútgerð ríkisins.
Póstur og sími (valdir hlut-
ar)
Áburðarverksmiðja ríkis-
ins.
Bankar.
Rafmagnsveitur ríkisins.
Menningarsjóður.
Bifreiðaeftirlit ríkisins.
Af hlutafélögum og sameignarfé-
lögum vill fjármálaráðherra selja
hlut ríkisinsíeftirfarandi fyrirtækj-
um:
Jarðboranir hf. (50%)
Steinullarverksmiðja hf.
(40%)
Slippstöðin hf. (54%)
Orkustofnun erlendis
hf. (100%)
íslenska járnblendifé-
lagið hf. (55%)
Hitaveita Suðurnesja
(20%)
Hólalax hf. (40%)
Skallagrímur hf. (65%)
Þormóður rammi,
Siglufirði (71%)
Orkubú Vestfjarða
(40%)
Landsvirkjun (50%)
Þróunarfélag íslands
(29%)
Kísiliðjan (51%)
Skýrsluvélar ríkisins
(50%)
Sjóefnavinnslan hf.
(ca. 90%)
Áframhald hvalveiða:
Beðið eftir viðbrögðum
Eysteinn Helgason, forstjóri lceland Seafood sölufyrirtækis SÍS í Banda-
ríkjunum, segist lítið hafa orðið var við þrýstihópana að undanförnu. —■
Ekki borist hótunarbréf í 1—2 ár.
„Við höfum ekki orðið varir við
neinn þrýsting frá náttúruverndar-
samtökum undanfarna mánuði og
viðskiptavinir okkar hafa ekki orð-
ið fyrir neinum óþægindum,“ sagði
Eysteinn Helgason forstjóri lceland
Seafood í Bandaríkjunum í samtali
við Alþýðublaðið í gær. Eysteinn
viWi ekkert segja um þá ákvörðun
ríkisstjórnarinnar um að halda
áfram hvalveiðum í vísindaskyni.
„Ég vil ekkert segja fyrr en búið er
að tilkynna ákvörðun ríkisstjórnar-
innar.“
Á ríkisstjórnarfundi á fimmtu-
dag var ákveðið að hefja hvalveiðar
að nýju í Iok næstu viku, en veið-
arnar hafa legið niðri í rúman mán-
uð vegna þvingana Bandaríkja-
manna. Samkomulag ríkisstjórnar-
innar felur í sér að 20-30 sandreyðar
verði veiddar fram að áramótum en
engar hrefnuveiðar leyfðar.
Ákvörðunin verður ekki gerð opin-
ber fyrr en eftir helgi.
Mikil óvissa ríkir um viðbrögð
bandarískra stjórnvalda sem í við-
ræðum sínum við sjávarútvegsráð-
herra hafa lagt þunga áherslu á að
veiðunum verði hætt. Svokallaðir
náttúruverndarhópar í Bandaríkj-
unum munu því beita sér af fullum
þunga fyrir því að gripið verði til
viðskiptaþvingana, en slíkar að-
gerðir eiga sér stoð í lögum þar í
landi.
Eysteinn Helgason sagði að s.l.
1-2 ár hefðu engin bréf borist frá
náttúruverndarhópum, né annars
konar hótanir. Hann sagði hins veg-
ar ógerning að segja til um við-
brögðin á næstunni og ítrekaði að
enn ætti eftir að tilkynna ákvörðun
ríkisstjórnarinnar.
Fjármálaráðherra vill ennfrem-
ur afnema ákvæði um löebundin
útgjöld til ýmissa verkefna eins og
Stofnlánadeild landbúnaðarins,
Iðnlánasjóðs, Fiskveiðisjóðs,
Framkvæmdasjóðs fatlaðra, Lána-
sjóðs ísl. sveitarfélaga og Kvik-
myndasjóðs.
Þá leggur fjármálaráðherra til
afnám ýmissa markaðra tekju-
stofna eins og skemmtanaskatts til
Sinfóníunnar, flugvallaskatts og
skil aðflutningsgjalda til Ríkisút-
varpsins.
Útvegsbankinn
almenningshlutafélag?
„Viö höfum hugsað okkur að um
1000 manns taki sig saman og kaupi
bankann. Þetta er það sem menn
vildu upphaflega, — að hlutabréf í
bankanum dreifðust á margar
hendur,“ sagöi Skúli Ólafs starfs-
maður í Útvegsbankanum í samtali
viö Alþýöublaöiö í gær. Skúli og
Garðar Garðarsson, lögfræðingur í
Keflavík, gengu í gær á fund við-
skiptaráðherra og kynntu sér hvort
Útvegsbankinn væri enn til sölu,
með það fyrir augum að ná saman
stórum hópi einstaklinga sem
áhuga hefði á hlutabréfakaupum í
Útvegsbanka íslands.
„Það er mikill áhugi fyrir þessu
innan bankans, en þetta er ekkert á
vegum starfsmannafélagsins. Hug-
myndin kemur hins vegar fyrst og
fremst frá starfsmönnunum sem
vilja fara að róa mál í bankanum.
— Þetta er að slíta allan bankann í
sundur og starfsfólkið, sérstaklega
eftir að pólitíkin kom inn í þetta,“
sagði Skúli. Hann vildi ekki útiloka
að aðilarnir tveir sem þegar hafa
gert tilboð í bankann taki einnig
þátt í þessu.“ Við viljum sameina
þessi tvö öfl, en styðjum hvorugt
þeirra og vinnum ekki með þeim
nema þau standi bæði með okkur í
þessu.“
Seinnipartinn í gær ætlaði hópur
fólks að hittast og ræða hugsanleg
kaup á bankanum. Skúli sagðist
einnig búast við frekari fundahöld-
um um helgina. Hann sagði einnig
að áhugamenn um kaupin væru
víða um land og þyrfti að hafa sam-
band við þá yfir helgina.
Það hefur mikiö mætt á Jóni Sigurðssyni viöskiptaráöherra vegna útboös
á hlutabréfum rikissjóðs i Útvegsbanka íslands. Síöast f gær gengu tveir
einstaklingar á hans fund og lýstu yfir áhuga sýnum fyrir kaupum. Þessir
einstaklingar vilja að Útvegsbankinn veröi gerður að almenningshlutafé-
lagi. A-mynd/Róbert.
Miklar umbætur í húsnæðismálum öryrkja
Lottóhagnaði hefur verið varið til kaupa á fjölda íbúða og hafnar eru stórtækar
byggingaframkvæmdir.
Hússjóður Öryrkjabandalagsins
hefur á undanförnum mánuðum
keypt fjölda íbúða og hafið stór-
tækar byggingaframkvæmdir fyrir
ágóða af Lottóinu. Lottóið hefur
því valdið þáttaskilum í húsnæðis-
málum öryrkja og auðveldar sjóðn-
um að takast á við gífurleg húsnæð-
isvandræði sem öryrkjar hafa lengi
átt við að stríða.
í nýju fréttabréfi frá íslenskri
Getspá, aðstandenda Lottósins,
kemur fram að íbúðarhúsnæði sem
hússjóðurinn eignast er leigt ör-
yrkjum á viðráðanlegu verði.
Leigjendur hafa litlar eða engar
aðrar tekjur en örorkubætur og því
ekki bolmagn til að leigja á almenn-
um Ieigumarkaði.
Sjóðurinn hefur undanfarið fest
kaup á 13 íbúðum á höfuðborgar-
svæðinu, auk þriggja einbýlishúsa
fyrir sambýli. Til viðbótar þessu er
sjóðurinn að byggja fimm íbúða
hús á Selfossi. Áformað er að
kaupa hús á Akureyri fyrir fimm til
sjö fatlaða og búið er að sækja um
lóð undir 30 íbúðir í Reykjavík. Þá
er í ráði að kaupa á næstunni íbúðir
víðs vegar um landið, eftir þörfum
á hverjum stað.
Stefna sjóðsins er að fatlaðir geti
í sem flestum tilfellum búið í heima-
högum sínum, en þurfa ekki að
flytja langan veg að heiman vegna
húsnæðisvandræða.
Öryrkjabandalagið á 40% í ís-
lenskri Getspá, sem rekur Lottóið,
og fær því 40% ágóðans. Vegna gíf-
urlegs húsnæðisvanda ákvað Ör-
yrkjabandalagið að næstu 3 árin
skyldu 80% af hlut bandalagsins
renna til byggingar íbúðarhúsnæðis
fyrir öryrkja og 20% til að efla aðra
starfsemi þess.
Að sögn Arnþórs Helgasonar
formanns Öryrkjabandalagsins
verður nú einnig hægt að snúa sér
að öðrum þjóðþrifamálum, sem
varða almennan hag öryrkja, svo
sem í atvinnu- og félagsmálum, sem
vegna fjárskorts hafa setið á hakan-
um frá stofnun þess.