Alþýðublaðið - 29.08.1987, Blaðsíða 4
4
Laugardagur 29. ágúst 1987
Fríverslun er kjörorð dagsins
Á kynningarfundi um nýjungar í toliamálum flutti Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra
eftirfarandi ávarp. Aö fundinum, sem haldinn var i Háskólabíói 20. ágúst s.l., stóöu Samstarfs-
ráö verslunarinnar, Verslunarráö íslands og Félag íslenskra iðnrekenda.
Tollar hafa löngum þótt tyrfið
umræðuefni. Tollheimtumenn hafa
sjaldan safnað vinsældum í hlut-
falli við tekjur, þótt þeir hafi að vísu
hlotið nokkra uppreisn æru með
boðskap meistarans frá Nasaret.
Annars er skemmtilegt til þess að
hugsa að ensku orðið „duty“ þýðir
ýmist „tollur“ eða „skylda"; þeir
sem tollinn greiða hafa með öðrum
orðum gert skyldu sína — greitt
skatta sína og skyldur. Það heitir að
gjalda keisaranum það sem keisar-
ans er.
Oft er gaman að velta fyrir sér
hvernig orðaval lýsir viðhorfum.
Orðið „tollmúr" setur hroll að
mönnum — kallar fram í hugann
mynd af Berlínarmúrnum, a.m.k. i
hugum bissnessmanna. Fríverslun
lætur hins vegar ljúflega í eyrum.
Frelsi er gott þangað til athafna-
frelsi þitt nálgast nefið á náungan-
um — eða fjármálaráðherra.
Fríverslun er kjörorð dagsins og
tolimúrar freista pólitískra múr-
brjóta samtíðarinnar. Samt stenst
ég ekki þá freistingu að minna á að
þessar sýnilegu andstæður rúmast
oft í einum og sama manninum:
frægasta dæmið um það er sjálfur
Adam Smith, fyrsti fríverslunartrú-
boðinn og hugmyndafræðingur
markaðshyggjunnar. Hann var
nefnilega tollvörður að starfi, eins
og við, sem numið höfum fræði
okkar í skóla hans, Edinborgarhá-
skóla, vorum gjarnan rækilega
minntir á.
Hugmyndir í stefnuyfir-
lýsingu og starfsáætlun
ríkisstjórnarinnar
Hér er rétti staðurinn og stundin
til að rifja upp fyrir mönnum, hvers
konar hugmyndir um samskipti rík-
isvalds og atvinnulífs endurspeglast
í stefnuyfirlýsingu og starfsáætlun
núverandi ríkisstjórnar. Leyfist mér
að nefna ykkur nokkur dæmi:
1. dæmi: „Markmiðum sínum
hyggst ríkisstjórnin ná með því að
móta meginreglur um efnahagsleg
samskipti og umgjörð atvinnu- og
efnahagslífs, sem tryggi eðlilega
samkeppni og samkeppnishæfni ís-
lenskra atvinnuvega. Afskipti ríkis-
ins af einstökum atvinnugreinum
og fyrirtækjum verði sem minnst."
2. dæmi: „Markmið atvinnu-
stefnunnar er að búa atvinnulífinu
sem best vaxtaskilyrði. Allar at-
vinnugreinar njóti sem jafnastra
starfsskilyrða. Hlutverk ríkisins er
að tryggja að almenn skilyrði fyrir
atvinnulífið séu stöðug að því er
varðar gengi, skatta og lánakjör.
Ríkisafskipti og rikisrekstur á at-
vinnufyrirtækjum verði sem
minnst."
3. dæmi: „Opinber afskipti af
verðlagningu verði sem minnst.
Stuðlað verði að aukinni sam-
keppni og verðgæsla efld, þar sem
samkeppni er ófullnægjandi. Lög-
gjöf gegn hringamyndun, sam-
keppnishömlum og óeðlilegum við-
skiptaháttum verði endurskoðuð."
4. dæmi: „Fríverslun verður meg-
instefnan í viðskiptum."
5. dæmi: „Aðhald að verðmynd-
un í innflutningsverslun verði aukið
með bættri verðgæsiu og saman-
burðarathugun á verði hér á landi
og öðrum löndum.“
í kaflanum um heildarendur-
skoðun skattakerfis segir m.a.:
„Tekinn verði upp ný, samræmd
og einfölduð gjaldskrá aðflutnings-
og vörugjalda, sem gæti komið til
framkvæmda á árinu 1988. Virðis-
aukaskattur, eða nýtt og endurbætt
söluskattskerfi, verði komið í var-
anlegt horf 1989.
Undanþágum frá núverandi
söluskatti verður fækkað í áföng-
um sem aðdraganda að breyttu
skattkerfi. Fyrsta skref í þessa átt
kemur til framkvæmda um mitt ár
1987 og annað í ársbyrjun 1988.
Þetta stendur skrifað. Nú er eftir
að sjá hvernig til tekst við að þýða
þessi orð á blaði yfir í athafnir í
hversdagslegu amstri okkar. Þessi
kynningartundur um nýjungar í
tollamálum er þáttur í því starfi.
Ný tollalög
I mars s.l. voru samþykkt á Al-
þingi ný tollalög sem taka gildi 1.
sept. n.k. Þessi lög leysa af hólmi
þrjá lagabálka sem gilt hafa um
tollamál: Þ.e. lög um tollheimtu og
tolleftirlit, lög um tollvörugeymslur
og lög um tollskrá — með veiga-
miklum undkntekningum þó. Toll-
Um næstu helgi átt þú von á fólki
sem mun bjóða þér svona penna
Getur þú séð af
fimmtíu krónum?
Allur ágóðinn mun
renna til starfsemi
SÁÁ.
í 10 ár hefur SÁÁ
byggt upp þessa
starfsemi til þess
að byggja upp fólk.
Við erum ennþá að
en þurfum á þínum
stuðningi að halda.