Alþýðublaðið - 13.10.1987, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 13.10.1987, Blaðsíða 4
4 Þriðjudagur 13. október 1987 mrœða Guðmundur Einarsson skrifar Nú verður Þorsteinn að sýna röggsemi „Nú veröur horft til þess hvort hinn ungi forsætisráðherra gangi kröftuglega til verka við aö tryggja fjárlagafrumvarpi slysalausa ferö um þingið," skrifar Guðmundur Einarsson m.a. i grein sinni. Nú reynir á ríkisstjórnina. Fjárlaga- frumvarpiö er prófsteinn á það hve lík- leg stjórnin er til aö geta tekist á við vandamálin í framtíðinni. Samning frumvarpsins hefur verið erfið. Á síð- ustu misserum ríkisstjórnar Stein- gríms var eytt um efni fram enda verð- ur mikill halli í ár og allt stefndi í enn meiri halla á næsta ári. Þess vegna þurfti að taka rösklega til hendinni í fjármálaráðuneytinu og fjárlagafrum- varpið sýnir að svo hefur verið gert. En þetta tafl er rétt að byrja. Ábyrgö forsætisráöherra Á formönnum flokkanna þriggja hvílir nú sú skylda að fylgja frumvarp- inu eftir af fullum þunga. Forysta þeirra verður að birtast i því að þeir neiti sér um að skara eld að eigin ráðuneytum eða kjördæmum. Forsætisráðherrann verður að minn- ast þess að hann er nú leiðtogi rikis- stjórnarinnar fremur en flokks og kjör- dæmis. Við samningu frumvarpsins hefur hvílt á honum sú skylda að stýra leit- inni að málamiðlun og samkomulagi um frumvarpið. Hagsmunagæslu fyrir Suðurland hljóta aðrir þingmenn kjör- dæmisins að hafa orðið að gegna. Forsætisráðherra getur ekki leikið sér i sandkassanum með hinum strákun- um. Á sama hátt hvílir á honum sú skylda nú að gæta þess að samstaða um frumvarpið rofni ekki vegna múr- brjóta fyrir einstaka málaflokka eða kjördæmi Djarfleg tilraun Sama verkefni bíður utanríkisráð- herrans, þegar hann lítur næst við hjá okkur. í frumvarpinu er loksins af al- vöru mörkuð sú stefna að venja at- vinnuvegina af fíkniefnanotkun í formi ríkisstyrkja, ókeypis þjónustu og nið- urgreiðslna. Það eru illar fréttir ef rétt- ar reynast að landbúnaðarráðherra hafi samþykkt meö fyrirvörum þær nauðsynlegu breytingar, sem frum- varpið krefst á framlögum til landbún- aðar. Þá þarf utanríkisráðherra að sýna húsbóndavald sitt í flokknum, því annað bæri vott um agaleysi og lít- ilsvirðingu gagnvart þeim meðráðherr- um sem án undansláttar ætla sér að berjast fyrir frumvarpinu irinan þings og utan. Framgangur fjárlagafrumvarpsins verður því metinn með tvennt í huga. í fyrsta lagi munu menn fylgjast með afdrifum þeirra fjölmörgu breyt- inga, sem það leggur til. Munu menn heykjast á því að breyta verkaskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga til aukins sjálfstæðis þeirra síðar'nefndu? Standa menn við áformin um arð- greiðslur ríkisfyrirtækja og skattlagn- ingu hermangsgróðans? Láta menn undan grátkórum hagsmunahópanna, sem verða sviptir ívilnunum og ríkis- styrkjum? Frumvarpið úir og grúir af stefnu- markandi nýmælum, sem munu breyta högum einstaklinga, fyrirtækja og heilla atvinnugreina. Líklega er hér á ferðinni einhver djarflegasta tilraun til kerfisbreytinga í mörg ár. Þess vegna verður fylgst vel með framgangi frum- varpsins. í öðru lagi verður lika fylgst með frumvarpinu til að meta pólitískan styrk þeirra sem að því standa. Pólitísk áhætta Formaður Alþýðuflokksins á mikið undir því. Flokkur hans á mikið undir því. Formaðurinn hefurtekið pólitíska áhættu með því að taka að sér það ráðuneytið, sem að jafnaði á flest óvinsælu verkin. Formaður Sjálfstæðisflokksins þarf líka á því að halda að frumvarpið fari í gegn án þess að gliðna á saumum. Mörgum hefur þótt á það skorta að hann héldi af nægilegum styrk um stýrið í Sjálfstæðisflokknum. Þar hafa fjölmörg dæmi verið nefnd. Síðast eru deilurnar um forseta sameinaðs þings, sem tóku tíma, orku og athygli þegar stærri verkefni voru knýjandi. A sama hátt má telja að skort hafi á forystu fyrir rfkisstjórninni í sumar. Glöggt dæmi er Útvegsbankamálið, þegar forsætisráðherra hefði átt að ganga fram fyrir skjöldu umsvifalaust og kveða niður allt tal um stjórnarslit í stað þess að magna óvissu og örygg- isleysi með skoðanakönnun í flokks- kerfi sínu. Annað dæmi tengist þeim umræö- um um gengisfellingu, sem hafa verið uppi frá 1. okt. Það er tvímælalaus skylda forsætisráðherra að koma í veg fyrir magnaðar vangaveltur af því tagi. Að öðrum kosti æsist spákaup- mennska og brask af því tagi, sem ýtir undir þenslu og verðbólgu. Nú verður horft til þess hvort hinn ungi forsætisráðherra gangi kröftug- lega til verka við að tryggja fjárlaga- frumvarpi slysalausa ferð um þingið. Slík röggsemi og festa væru líkleg til að treysta stjórnina og besta lífsvon Þorsteins Pálssonar í íslenskri pólitík er trúlega sú að þessi stjórn verði langlíf og fái bærilegan dóm. ERLENDAR BÆKUR HEIÐURINN AÐ VEÐI Heiðurinn að veöi heitir nýjasta metsölubók Jeffrey Archers, sem áóur skrifaöi metsölubækurnar Kane og Abel og Fremstur meðal jafn- ingja, svo aðeins tvær séu nefndar af heimsfrægum bókum hans. En frá því í október 1986 og þar til í ágúst I sumar var Heiðurinn að veði meira en nafn á bók hvað Jeffrey Archer varðar. Þetta átti við um líf hans. Sl. haust komst sú saga á kreik að hann hefði keypt gleði- konu til ásta við sig. Blöðin gerðu sér úr þessu glaðan dag og Archer varð að segja af sér aðstoðarformennsku í íhaldsflokknum. En afsögn var ekki ný reynsla fyrir hann, þvl einum áratug áöur hafði hann sagt af sér þingmennsku í breska þinginu. Þá lauk þingmanns- ferli sem virtist ætla að verða glæstur. Jeffrey Archer, sem hálf- fimmtugur hefur náð því að verða heimsfrægður stjórn- málamaður, heimsfrægur rit- höfundur og margmilljónir, er óvenjulegur náungi. Hann lærði við Oxford háskóla og var spretthlaupari á heims- mælikvarða á námsárum sín- um. Honum gekk afburðavel I skóla, var áberandi í félagslífi og lífið blasti við honum. Ár- ið 1969 var hann kosinn á þing aðeins 29 ára gamall og yngstur þingmanna. Hann varð fljótlega atorku- samur í þinginu, tókst að vekja athygli á sér og skapaði sér miklar óvinsældir eldri samþingmanna íhaldsflokks- ins, sem fyrirlitu þennan ætt- lausa, auralausa og taktlausa montrass. Þeir grétu heldur ekki með honum þegar kanadískt fyrir- tæki, sem hanri hafði fjárfest í, fór á hausinn 1974. í Ijós kom að fyrirtækið var tóm svik og prettir og Archer stóð uppi með um fjörutiu mill- jóna íslenskra króna skuld á núvirði. Hann sagði af sér þing- mennsku og ákvað að greiða skuldina. Það gekk illa með eigin launum og eiginkon- unnar og því ákvað hann að fara að skrifa. Á sex vikum skrifaði hann bókina Ekki eyri meir, ekki eyri minna. Hann sló í gegn og peninga- málunum var bjargað. Siðan skrifaði hann Eigum við að segja forsetanum, sem er stórgóð spennusaga og fjall- ar um samsæri um að drepa Bandarfkjaforsetann Edward Kennedy. Siðan komu fleiri bækur og frægastar urðu - Kane og Abel og Fremstur meðal jafningja. Sú síðar- nefnda er stórskemmtilegur pólitiskur reyfari úr nútíman- um og fjallar um fjóra jafn- aldra, sem berjast til áhrifa í breskri pólitík. Umboðsmaður og bók- menntalegur ráðgjafi Archers hefur verið bandarisk kona, sem búsett er í London og heitir Debbie Owen. Hún þyk- ir afburðasnjöll í að skipu- leggja frægðarferil skjól- stæðinga sinna og frægastur þeirra er trúlega eiginmaður hennar, Dr. David Owen, sem þar til i haust var formaður breska Jafnaðarmannaflokks- ins; Árið 1985 var liðinn áratug- ur frá því að Archer sagði af sér þingmennsku og þá þótti Margrét Thatcher tími til kominn að veita honum póli- tiska náðun. Hún gerði hann að aðstoðarformanni íhalds- flokksins og hugðist nota at- orku hans og auglýsinga- kúnst til að búa flokkinn und- ir kosningar. En í september 1986 kom annað reiðarslagið. Bresku blöðin The Star og News of the World birtu fréttir um að Archer hefði keypt þjónustu' mellu að nafni Monica Coghlan. Þau birtu úrdrætti af segulböndum meö símtöl- um hennar við Archer eftir at- burðinn og myndir af því er Archer lét afhenda henni fjár- fúlgu á Viktoríujárnbrautar- stöðinni til að þagga niður í henni. Þetta varð hið versta mál fyrir Archer. Hann sagðist aldrei hafa hitt eða átt mök við konuna en kvaðst hafa látið kúga sig til að greiða þetta fé vegna hótana um að tilbúinni sögu af kynnum þeirra yrði lekið i fjölmiðla. í annað sinn neyddist hann til að segja af sér pólitískri áhrifastöðu og sagði það merki um dómgreindarleysi að láta pína sig til fjárgreiðsl- unnar. Fjölmiðlar bentu á þá kald- hæðni að i bókinni Fremstur meðal jafningja lætur Archer einn fjórmenninganna kauþa sér hóru til lags við sig. Þeim náunga auðnaðist hins vegar að bregðast við af meiri myndarskap við fjárkúgunar- tilraunum hennar. Snúist til varnar En Jeffrey Archer snerist til varnar. Hann stefndi blöð- unum fyrir meiðyrði og sak- aði blaðamenn þeirra um að hafa egnt sig í gildru í þeim tilgangi að geta skrifað æsi- fréttirog selt blaðasnepla sína. Málið var tekið til dóms í júlí og ágúst í sumar og vakti feikna athygli . í vitnastúku stóð gleðikonan Monica Coghlan og lýsti meintum ástarleik þeirra, en í réttar- salnum sat eiginkona Archers, Mary, laut höfði og skrifaði hjá sér athugasemd- ir. Lögfræðingurinn Robert Alexander sótti mál Archers gegn blöðunum af gífurlegri hörku. Áður en yfir lauk sner- ist málið ekki eingöngu um mannorð Archers. Fyrir rétti voru Ifka aðferðir og siðgæði æsifréttablaðakóngsins Ruperts Murdochs. Urslit málsins urðu þau að Archer vann. Blöðunum var gert að greiða háar skaða- bæturog ummæli þeirra dæmd ómerk. Þessi niður- staða var mikill sigur fyrir rit- höfundinn. Margrét Thatcher hefur lent í vissum erifðleikum með eftirlætisdrengina sína. Cecil Parkinson gerði einka- ritara sinn ófrískan og þrætti fyrir i fyrstu. Járnfrúin náðaði hann í sumar og tók hann inn i stjórnina. Það er hins vegar óljóst hvort hún endurreisir Archer einu sinni enn. Hann þarf hins vegar ekki að hafa áhyggjur af aurum á meðan, því auk skaðabót- anna frá blöðunum á hann von á ávísun frá Steven Spiel- berg, sem er að spá í að kvik- mynda Heiðurinn að veði. Þannig hefur „heiðurinn" orðið honum að margfaldri féþúfu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.