Alþýðublaðið - 17.10.1987, Page 10

Alþýðublaðið - 17.10.1987, Page 10
10 Laugardagur 17. október 1987 MmiiBUiim Sími: 681866 Útgefandi: Blaö hf. Ritstjóri: Ritstjórnarfulltrúi: Blaðamenn: Umsjónarmaöur helgarblaðs: Ingólfur Margeirsson. Jón Daníelsson. Ingibjörg Árnadóttirog Kristján Þorvaldsson. Þorlákur Helgason. Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson. Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir, Eva Guömundsdóttir, Þórdis Þórisdóttir, Olöf Heiður Þorsteinsdóttir og Guölaugur Tryggvi Karlsson. Setning og umbrot: Filmur og prent, Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent hf., Síöumúla 12. Áskriftarsíminn er 681866. Áskriftargjald 600 kr. á mánuði. í lausasölu 50 kr. eintakiö virka daga, 60 kr. um helgar. Slöpp stjórnarandstaða Fjárlagafrumvarpið hefur nú legið frammi á Alþingi í nokkradaga. Stjórnarandstaðan hefur venjum og hefðum samkvæmt hellt sér yfir fjárfrumvarpið með tilheyrandi hávaða. Að þessu sinni erstjórnarandstaðan óvenjuslöpp. Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru ekki sammála um einstök atriði og hefur það endurtekið sig að þingmenn sama stjórnarandstöðuflokks hrósa og gagnrýna sömu þættina í frumvarpinu til skiptis. Það er oft engu líkara en að menn ræði ekki málin saman innan flokkanna áður en þeir rölta upp í ræðustól á Alþingi. Stjórnarandstaðan hef- ur ennfremur verið óvenju ómálefnaleg að þessu sinni. Miklu púðri er varið í tilfinningalegar upphrópanir og kosningaræður en lítið tekið á málunum af þekkingu, dómgreind og skynsemi. Gagnrýni á alitaf rétt á sér en hana verður að undirbyggja og rökstyðja. Það er ekki nóg að standa í pontu í nýuppgerðum sölum Alþingis og ryðja út úr sér einhverju tilfinningaflæði. En stjórnarandstaðan á auðvitað ekki sjö dagana sæla. Fjölmennasti stjórnarandstöðuflokkurinn, Alþýðubanda- lagið, veltist um í fjörbrotunum, með opnar undir og póli- tískan sótthita. Innanflokksdeilurnar eru að nálgast há- mark í grimmri baráttu tveggja helstu hópanna um for- mannstitilinn. Öll helsta orka flokksins beinist því inn á við. Þettahefureinkum komið fram í kunnáttuleysi og van- þekkingu þingmanna Alþýðubandalagsins á einstökum liðum og þáttum fjárlagafrumvarpsins, bæði í fjölmiðlum og á þingi. Kvennalistinn hefur enn ekki endurheimt tiltrú landsmanna eftir brotthlaup sitt úr stjórnarmyndunarvið- ræðunum sl. vor. Þar sýndu konurnar svart á hvítu ógrund- aða þrjósku við lögbindingu á lágmarkslaunum, vanhæfni til ákvörðunartöku, stjórnleysi og skort á hugrekki til stjórnunar. Þess vegna hefur Kvennalistinn gloprað niður sterkri stöðu fyrir síöustu þingkosningar og á langa leið fyrir höndum áður en hann nær tiltrú kjósenda á ný. Ef Kvennalistinn á að sleppa undan sláturhníf kjósenda við næstu kosningar verður hann eiginlega að taka sér Sæ- unni kú til fyrirmyndar sem flýði frá húsbændum sínum og sýndi það hugrekki og (sjálfstæði að synda .þvert yfirönundarfjörð. Það sund varð henni til lífs. Á sama hátt verða forystumenn Kvennalistans að rífa sig lausar úr múlbandi falskrar samhyggju og hugleysis, og leggjast til sunds i köldum sjó stjórnmálanna, með kúrsinn kláran og fyrirheitna landið f sjónmáli handan fjarðarins. Borgaraflokkurinn, eða stuðningshópur Alberts Guð- mundssonar er kannski sá flokkur sem er í hröðustu, póli- tísku þróuninni. Hins vegar ber flokkurinn enn of mikinn keim af foringjanum og hefur enn á sér yfirbragð póli- tískra flóttamanna úr Sjálfstæðisflokknum. Þannig er Borgaraflokkurinn í hugum margra sem félagsmálapakki sem dottið hefurúrSjálfstæðisflokknum. En Ijóst erað sú mannúðar- og félagshyggjustefna undir regnhlíf athafna- frelsis höfðar til margra þjóðfélagsþegna. Hins vegar stendur Borgaraflokkurinn á hugmyndafræðilegum sandi og einkennist öðru fremur af lífsfílósóffu og lífshlaupi Alberts Guðmundssonar. Ræðuhöld Alberts Guðmunds- sonará Alþingi þarsem hann gagnrýndi fjárlagafrumvarp- ið, ber ennfremur þess merki, að honum sé tamara að vísa til tilfinninga fólks en að rökstyðja mál sitt með haldfestu og skynsemi. Það ætti eiginlega að vera ríkisstjórninni áhyggjuefni að fá ekki meira aðhald frá hinni máttlausu stjórnarandstöðu. ÖNNUR SJÓNARMIÐ ÞAÐ er gaman að lesa greinar um fagleg efni í dag- biöðum eftir fólk sem maður hélt að reri á allt önnur mið en um er fjallað. Þannig er t.d. skemmtilegt að lesa af reynsluakstri gamals maóista sem eyðir heilli helgi meö Toyota Corolla. Ásgeir Sigur- gestsson, sálfræðingur þeys- ir um í þessum vagni og má lesa niðurstöðuna í síðasta hefti Þjóðlífs. Ásgeir kemst m.a. að því að bílinn vanti hávaða, líkt og Flosi taldi um daginn að ófarir Alþýðu- bandalagsins i síðustu kosn- ingum hafi kannski stafað af „skorti á reynsluleysi" Eftir að hafa kynnst þessum skorti á hávaða kemst bíla- dómarinn að þessari niður- stöðu: „Að þessu leyti er hrein unun að aka bílnum á jöfnum hraða á góðum vegi, hávaðinn angrar a.m.k. eng- an; hitt er annað mál að mig syfjaði undir þessum kring- umstæðum. En það verður vist ekki á allt kosið i þess- um heirni!" Og hvernig lýst ykkur á eiginleika bílsins: „Það er sama hvort ekið er á rammíslenskum vegi með öll- um hugsanlegum þjóðarein- kennum (þvottabretti, lausa- möl, hvörfum, stóru eða smáu grjóti), olíumöl sem virðist hafa verið lögð beint ofan á kargaþýfi ellegar á rennisléttu malbiki- bíllinn rann Ijúflega yfir þetta allt saman....“ Líklega hefði Maó formaður getað tekið undir það með Asgeiri að fátt sé Ijúfara en að aka um í Toyota Corolla Liftback XL. ÞJÓÐVILJINN erágóðri leið með að verða málgagn Svavars Gestssonar eftir að formaðurinn fráfarandi dust- aði rykið af gömlum skóla- bróður sínum, Óttari Proppé og kom honum gegnum flokksbakdyrnar í fram- kvæmdastól og síðan vænt- anlega ritstjórastól. Enn skemmir Össur Skarphéðins- son nokkuð fyrir flokkseig- endafélaginu, en hann mun nú vera á förum af blaðinu og yfir á hinn kapítalíska fisk- eldismarkað þar sem feitari laxar synda en á mögaim síðum málgagnsins. Óttar Proppé hefur nú lært á skæri og tekinn að klippa nokkuð óstyrkum höndum út úr blöð- um sem hann telur til and- stæðinga Þjóðviljans og hef- ur Alþýðublaðið oftast lent milli eggjanna. Allt er það gott og vel. Þjóðviljinn hefur litið Alþýðublaðið mjög horn- auga eftir það tók að dafna og meira að segja ásakað það fyrir að safna auglýsing- um sem er náttúrlega af þvf vonda; bæði spillt og kapíta- llskt. En stundum falla Þjóð- viljamenn I eigin grafir og birta auglýsingar og jafnvel skrumtexta með. Undarlega fyrirsögn var að finna i föstu- dagsblaði Þjóðviljans en þar Maó formaður hefði áreiðanlega þegið að fara rúnt með Ásgeiri. stóð: „Jeppi blundar í hverj- um manni.“ Gefum þessum sjónarmiðum lausan taum- inn. Fréttin er um fyrirhugaða jeppasýningu i Reiðhöllinni og Þjóðviljinn skrifar: „Tvö ár eru síðan haldin var alvöru jeppasýning hér á landi. Síöan hafa komið fram margar nýjungar, stærri hjól- barðar og nýjar jeppategund- ir teknar og búin til úr þeim torfærutröll. Vídeó- og slidesmyndir frá ferðum fé- lagsmanna gefa gestum kost á að sjá, hvernig torfærutæk- in eru notuð og hvert nota- gildi þeirra er í ám, snjó og annarri ófærð. Það fer enginn ósnortinn heim eftir að hafa séð slíka sýningu. Sérstök torfærubraut verður með fjar- stýrðum rafmagnsjeppum þar sem gestir geta spreytt sig á torfæruakstri. Tvisvar á dag munu íslandsmeistarar í tor- færuakstri reyna með sér á rafmagnsjeppunum. Þess vegna verður eitthvað við allra hæfi hvort sem menn leita að nýjum óbreytt- um jeppa, huga að breyting- um á fjölskyldubílnum eða vilja bara sjá hvernig búið er að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn í breytingum. Allir landsmen eiga erindi á svona sýningu. Reynslan hefur sýnt að það blundar jeppamaður í öllum íslend- ingum.“ Jahá. Nú fer maður að skilja. Stefnuskrá Alþýðui- bandalagsins höfðar fyrst og fremst til torfærutrölla. En þaö verður nú að segjast um forystumennina I Alþýðu- bandalaginu að það vantar drifið undir þá. Nokkuð sem jeppamenn flokksins ættu að tékka á í næstu skoðun. Þau sjónarmið ríkja á síðum Þjóðviljans að það blundi jeppamaður í hverjum Islendingi. Hins vegar virðist Ijóst að drifið vantar undir foryst- una í Alþýðubandalaginu. Alpýðnblaðið Vegagerð. (Frh.) I fyrri kaflanum mintist ég á það, hvernig farið heföi verið að þvi að gera götutroðninga. Þá sömu aðferð i vegagerð er nú ve.rið að taka upp aftur, alveg eins að öðru leyti en þvi, að þessir nýju troðningaj hafa næga breidd fyrir bifreiðar, enda er þeim ætiað að fara þá, þegar aö- alvegurinn Iiggur undir snjó. Þaö er kátbroslegt, að landsverkfræð- ingurmn skuli opinbera svo at- hugaleysi sitt um vegagerð, sem hér er raun á orðin. Sjáiö út- skotshringbrautina hjá Lögbergi, og sjájð fyrirmyndar-útslkotshrmg- brairtina neðanhaft 5 Hveradöium! Til VMilsstaða fer bttreið alla vlrka daga kL 3 siðd. AUa aonnadaga kl. 12 og 3 frk BiírelðaitBA Stelndóra. Staðið Vlð h.lm»Alrii»rtim»nii. SitXli 581. ' ------------------------ Doktor i islenzkri hljóOfræSi er Stefán Binarsson melstari ný- lega orðinn. Vnrði hann doktors- ritgerð sina ViD háskólann I Osló. Stefán ér BUBtan úr Skaftafells- sýslu. Bamaskóli Reykjavikor. Jóhannes Ltndal Jónasson og Ingibjörg Guðmundsdóttir hafa veriö skipuð fastir kennarar við hann og lsak Jónsson settur þetta skólaár. Útsalan í KLÖPP selur kavlmaBnatöt á kr. 23,50 settiO, gMa rykfrakka á karl- menn frá kr. 88,50. Kven- kápnr seljast fyrir kr. 25,00, kveakjólar (cheviot) kr. 9,90, góOir kvenbolir (ull) kr. 1,35, ||6ðir terðajakkar frá kr. 7,85. SkoðiO góðu og ódýru naerlfitin,settið innan við kr. 5,00 á karlmenn. Morgunkjólaetni 8 krómir i kjólinn. 8aengnr- veraetni, 5 krónnr i verið. Léreft, flúnel og plusstau seljast ódýrt. Þetta er að eins sýn- Ishorn. Allar vörnr með laskknðn verði f KLÖPP, Laugavegi 28. Frlðun gegn ölæði. Að tilhlutun dómsmálaráðherr- ans hefir skipstjóranum á „Esju", sem er eina fólksflutningaskipiö, sem ríkiö á, verið falið að láta setja ölvaða rnenn. sem fyrir finn- þst á skipinu, í land á næstu höfn. Á öðrum skipum þarf nauðsyn- lega aö taka upp sömu reglu, svo aö farþegur geti verið i friði og óáreittir af fylliröftum. • Erlend símskeytí. Khöfn, FB„ 15. okt Endurrelsn páfariklslns. Frá Berlin er simaö: Út af tii- raunum J>eim, sem gerðar hafa verið til þess gö kotna á sátt- um milli italska rikisins og páfa- stóisins, hefir aðaimálgagn páf- Bns sagt, aö það sé óhjákvæmi- legt slnlyrði, til þess að sættir komist á, að páfastóllinn fái yf- irráð yfir einhverju landssvæði, svo að hægt verði að endurreisa IdrkjuríkiÖ.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.