Alþýðublaðið - 17.10.1987, Side 14
14
Laugardagur 17. október 1987
IÞROTTIR
Umsjón:
Halldór Halldórsson
Ætlum að verða
meðal sex efstu liða í Seoul
FRAMMISTAÐA íslenska landsliðsins í handknattleik hef-
ur um árabil vakið mikla athygli í heimi íþróttanna. Liðið
hefur ávallt verið mjög eftirsótt til keppni í hinum ýmsu mót-
um sem haldin hafa verið víða eriendis, — Óþarft er að tí-
unda náið þann árangur sem strákarnir okkar hafa náð, það
er alþjóð kunnugt.
Um þessar mundir er undirbúningur í fullum gangi og enn
eitt stórverkefnið framundan, þ.e. ðlympíuleikarnir í Seoul í
S-Kóreu á nœsta ári. — Að vinna til þátttökuréttar í
Ólympíuleikum geta aðeins þeir bestu.
AB hafði samband við Jón Hjaltalín Magnússon formann
Handknattleikssambands íslands af þessu tilefni og spurði
hann um gang mála varðandi Ólympíuleikana og fleira er
varðar íslenskan handknattleik.
Heildarkostnaöur
20 milljónir
— Nú hefur undirbúningur
íslenska landsliðsins í hand-
knattleik fyrir Ólympíuleikana
í Seoul staðið yfir lengi og
hlýtur að vera kostnaðarsamt
fyrirtæki. Hvernig er staðið
að fjáröflun? Ná endar sam-
an?
„Áætlaður heildarkostnað-
urvið undirbúning landsliðs-
ins í handknattleik fyrir
Ólympíuleikana í Seoul er
um 20 milljónir króna á tíma-
bilinu júní 1986 til september
1988. Innifalið í þessum
kostnaði eru 14 keppnisferðir,
æfingabúðir hér á íslandi og
erlendis, móttaka erlendra
landsliða og greiðsla afreks-
styrkjatil landsliðsmanna.
Landsliðið mun leika tæp-
lega hundrað landsleiki á
þessu tímabili.
Fjáraflanir HSI vegna
landsliðs karla svo og hinna
sex landsliða HSÍ verða eink-
um með auglýsingasamning-
um við fyrirtæki og lands-
hapþdrættum, en landsmenn
hafa stutt ótrúlega vel við
landsliðið með því að kaupa
happdrættismiða HSÍ. Þá eru
tekjur af landsleikjum,
greiðslur fyrir sjónvarpssend-
ingar og auglýsingasamninga
mikilvægur liður.
Þá fékk HSÍ 5 milljón
króna stuðning frá Alþingi
eftir frammistöðu landsliðs-
ins á Heimsmeistarakeppn-
inni I Sviss 1986, sem kom
sér vel til að greiða þann
mikla kostnað sem lagt var í
fyrir þá keppni.
Ólympíunefnd íslands
styður landsliðið á þessu ári
með 1.5 milljón króna og von-
ast er eftir verulegum stuðn-
ingi frá Ólympíunefnd á
næsta ári.
HSÍ fær verulega upphæð
frá Lottóinu á þessu ári, en á
síðasta ársþingi HSÍ ákváðu
aóildarfélög HSÍ að 50% af
tekjunum skyldi renna til
þeirra í formi niðurfellingar á
þátttökugjöldum og beinna
greiðslna til félaganna. Þessi
ákvörðun félaganna var gegn
vilja meirihluta stjórnar HSI,
sem þarf þess vegna að
leggja ennþá meira á sig til
að afla fjár til öflugrar starf-
semi sambandsins.
Það er markmið stjórnar
HSÍ að leggja allt undir til
þess að landsliðið okkar
verði sem best undirbúið fyr-
ir Ólymþíuleikana og nái sem
bestum árangri þar. Við von-
um aö sem flestir vilji taka
þátt í þessu verkefni með
okkur og veita stuðning
sinn.“
Höföum rétt fyrir
okkur
— Þú hefur verið gagn-
rýndur af sumum fyrir að láta
landsliðið sitja i fyrirrúmi, fé-
lagsliðið verði illa úti og að
íslandsmótið sé nánast auka-
atriði. Hvað vilt þú segja um
þetta?
„Það er mikill munur á því
að vera að kepþa um efstu
sæti í deildarkeppni eða um
efstu sæti í heimsmeistara-
keppni og Ólympíuleikum.
Það hefur ávallt verið mark-
mið stjórnar HSÍ að eiga
landslið sem telst með A
þjóðum í handknattleik og
vinni sér rétt til þátttöku í A-
heimsmeistarakeppni og
Ólympluleikum. Þetta hefur
tekist undanfariö og um leið
hefur áhuginn á handknatt-
leik aukist stórlega hérlendis
eins og sést best á auknum
áhuga á íslandsmótinu núna.
Ég hef ekki orðið var við
þessa gagnrýni núna og ég
vona að þeir sem börðust
hvað mest á móti stjórn HSÍ
og áherslu landsliðsnefndar
á undirbúning landsliðsins
séu farnir að átta sig á því,
að við höfðum rétt fyrir okk-
ur.“
Endurskipulagt
mótshald yngri flokka
— Er ekki uppbyggingar-
starf innan félaganna áhuga-
vert verkefni? Hvað hefur HSÍ
á prjónunum í þeim efnum?
„Markmið stjórnar HSÍ er
að vinna að eflingu hand-
knattleiksíþróttarinnar og
íþrótta almennt á ísíandi.
Upþbyggingarstarf í félögun-
um er lykilatriði í þessu sam-
bandi.
Stjórn HSÍ telur að lands-
lið á heimsmælikvarða hvetji
unglinga til íþróttaiðkunar og
bæjarfélög til að byggja fleiri
íþróttahús fyrir unglingana
og starfsemi félaganna. HSÍ
vinnur auk þess að því að
stórefla fræðslustarfsemi
sambandsins og auka mennt-
un þjálfara og þá sérstaklega
fyrir yngri flokkana. Móta-
nefnd HSÍ hefur endurskipu-
lagt mótahald fyrir yngri
flokkana og gert það áhuga-
verðara. Þá vinnur HSÍ að því
að efla áhuga stúlkna á hand-
bolta, en vandamálið liggur
hjá félögunum, sem hafa allt
of fáa æfingatíma fyrir stúlk-
ur og yngri kynslóðina. Því
telurstjórn HSÍ mikilvægt að
átak sé gert í byggingu
íþróttahúsa um land allt.“
40 landsleikir
framundan
— Undirbúningur fyrir
Ólympiuleikana i Seoul, að
ári. Hvað er framundan?
„Landsliðið mun leika um
40 landsleiki fram að
Ólympíuleikunum í Seoul
1988. í lok október fer það í
kepþnisferð til Sviss. í nóv-
emþer verður alþjóðlegt mót
á Islandi með Póllandi, ísrael
og Portúgal. í byrjun desem-
ber er tekið þátt í alþjóðlegu
móti í Noregi, síðan koma
landslið Júgóslava og Suður-
Kóreu til íslands i desember.
í lok desember fer landsliðið
á mót i Danmörku og um
miðjan janúar á World Cup i
Svíþjóð.
Lokaundirbúningur lands-
liðsins hefst hefst svo í júní
1988 og stendur fram til 12.
september, þegar liðið fer til
Seoul.“
— Hverjir eru að þínu mati
raunhæfir möguleikar íslands
i Seoul?
„Ég tel að landsliðið okkar
í handknattleik eigi mesta
möguleika að ná góðum
árangri í Seoul af þeim þátt-
takendum sem verða i
Ólympíuliði íslands um leið
og ég vona að hann verði
sem bestur hjá öllum þátttak-
endum.
Markmið handknattleiks-
landsliðsins er að gera sitt
besta eins og alltaf og fara í
hvern leik með það fyrir aug-
um að sigra. Landsliðsnefnd-
in og leikmennirnir hafa sett
sér það markmið að ná einu
af sex efstu sætunum í
Seoul og vinna sér rétt til
þátttöku í A-heimsmeistara-
keppninni 1990. Þegar ég var
beðinn um að taka að mér
formennsku HSÍ i maí 1984
fyrir Ólympíuleikana i Los
Angeles, þá setti ég mér það
markmið að landsliðið skyldi
keppa um verðlaunasæti á
Ólympíuleikunum í Seoul
1988. Ég hef mikla trú á
landsliðinu okkar, þjálfara
þess, stjórn HSÍ og öllum
þeim sem standa með okkur
og vinna að því að þetta geti
orðið veruleiki í Seoul.
Landsliöiö okkar getur unnið
hvaða lið sem er. Karlarnir
okkar hafa undanfarið sýnt
það og sannað. íslenska
handknattleikslandsliðið
verður lang leikreyndasta
landsliðið á Ólymþíuleikun-
um með um 150 landsleiki að
meðaltali á hvern leikmann.
Þeir verða mjög vel undirbún-
ir fyrir keppnina og eru stað-
ráðnir í að gera sitt besta.“
Svíar einangraðir í
norrænni samvinnu
— Nú ríkir nánast styrjald-
arástand milli Svía og Islend-
inga um mótshald heims-
meistarakeppninnar 1994.
Svíar hafa i tvigang séð um
þá keppni, en Islendingar
aldrei. Eru þetta gamlar erj-
ur? Eru Svíar að launa okkur
lambið gráa fyrir eitthvað?
Sérðu einhverja lausn á
þessu máli?
íslenska liðið það
leikreyndasta í Seoul
Eftirtaldir 21 leikmaður fyll-
ir landsliðshópinn þessa
stundina. Að sögn Jóns
Hjaltalíns Magnússonar for-
manns HSÍ mun íslenska lið-
ið verða það lang leikreynd-
asta á Ólympíuleikunum með
um 150 landsleiki að meðal-
tali á hvern leikmann. Að
sögn Guðjóns Guðmunds-
sonar liðsstjóra íslenska
landsliðsins munu 20 leik-
menn fylla þann hóp sem
heldur til Seoul.
Einar Þorvaröarson, Valur
Brynjar Kvaran, KA
Guðmundur Hrafnkelsson, UBK
Kristján Sigmundsson, Vikingur
Þorgils Óttar Mathiesen, FH
Þorbergur Aðalsteinsson, Saab
Bjarni Guðmundsson, Wanne-Eigel
Karl Þráinsson, Víkingi
Sigurður Gunnarsson, Víkingur
Alfreð Gíslason, Essen
Páll Ólafsson, Dusseldorf
Guðmundur Guðmundsson, Víkingur
Kristján Arason, Gummersbach
Geir Sveinsson, Valur
Sigurður Sveinsson, Lemgo
Atli Hilmarsson, Fram
Júlíus Jónasson, Valur
Jakob Sigurðsson, Valur
Bjarki Sigurðsson, Víkingur
Birgir Sigurösson, Fram
Árni Friðleifsson, Víkingur
150 (0 ki
103 le ki
32 le ki
150 le ki
146 le ki
154 le ki
201 le ki
37 le ki
108 le ki
112 le ki
138 le ki
142 le ki
150 le ki
92 le ki
111 le ki
94 le ki
65 le ki
106 ie ki
7 le ki
7 le ki
22 le ki
„Það er rétt, að Svíar hafa
haldið þessa keppni tvisvar
áður og sækja um hana í
þriðja sinn án samráðs við
handknattleikssamböndin á
hinum Norðurlöndunum.
Þetta er alveg eins og þeir
gerðu í sambandi við vetrar-
ólympíuleikana 1992. Síðan
koma þeir til hinna Norður-
landanna og biðja um stuðn-
ing, en spyrja ekki fyrst,
hvort eitthvert hinna Norður-
landanna vilji halda keppn-
ina.
Þetta lýsir Svíum nokkuð
vel í þessu svo kallaða nor-
ræna samstarfi. Þó svo að
Handknattleikssamband ís-
lands sé lítið, þá höfum við í
fullu samráði við ríkisstjórn
íslands sótt um þessa
kepþni, eftir að hafa fullviss-
að okkur um að ekkert hinna
Norðurlandanna aö Svium
undanskildum ætlaði að
sækja um heimsmeistara-
keppnina 1994.
Við höfum þegar fengið
viljayfirlýsingu um stuðning
fjölda þjóða við umsókn okk-
ar. Við munum vinna að því
að fá þessa kepþni hingað á
50 ára afmæli íslenska lýð-
veldisins.
Það er von mín, að Svíar
dragi umsókn sina til baka
að þessu sinni og það verður
okkur sönn ánægja að styðja
svo síðar við umsókn þeirra í
samráði við hin Norðurlönd-
in.“
— Er það ekki einsdæmi
að svona mál rísi upp milli
Norðurlandaþjóða? Getur
þetta dregið dilk á eftir sér
hvað varðar samskipti þjóð-
anna á handknattleikssvið-
inu?
„Eins og ég gat um áðan,
þá hafa Svíar víst ákveðnar
skoðanir á því, hvernig nor-
rænt samstarf eigi að fara
fram. Þeir um það. Ég tel að
afstaða þeirra til þessara
mála verói þá bara til þess,
að við munum auka sam-
skipti okkarvið hin Norður-
löndin.
Þess skal einnig getið að
HSÍ er núna búið að leggja
drög að föstum samskiptum
á sviði landsleikja fyrir yngri
landsliðin við Hollendinga,
Belgíu og Luxemborg. Þá er
veriö að vinna að auknum
samskiptum við austantjalds-
löndin og Spánverja á sviði
landsleikja fyrir karlalandslið-
ið.“
— Nú er íslandsmótið
komið á fullt skrið. Finnst
þér byrjunin lofa góðu þar
um?
„Já, svo sannarlega. Fé-
lagsliöin eru i góðri æfingu
og aðsókn að leikjunum hef-
ur stórlega aukist frá því í
fyrra svo og umfjöllun í fjöl-
miðlum.
Þá er ánægjulegt að nokkr-
ir af okkar bestu leikmönnum
hafa snúið aftur til íslands og
þeir setja svip á mótið."
— Fá leikmenn greiðslu
fyrir spilaða landsleiki eða
einhver önnur fríðindi?
„Landsliðsmenn okkar í
handknattleik hafa lagt alveg