Alþýðublaðið - 12.11.1987, Page 4
4
Fimmtudagur 12. nóvember 1987
SMÁFRÉTTIR
Faðirinn 100
ára
Núna í nóvember, þann 14.
nóvember n.k. verður 19. sýn-
ing Leikfélags Reykjavlkur á •
Föðurnum eftir August
Strindberg. Þessi sýning er
markverðari en aörar fyrir það
að þennan dag eru liðin rétt
100 ár frá því að Faðirinn var
fyrst frumsýndum. Það var í
Kaupmannahöfn 14. nóvem-
ber 1887. Það eru aðeins ör-
fáar sýningar eftir á þessu
leikriti, sem er talið vera I
hópi auðskiljanlegustu og
aögengilegustu verka Strind-
bergs., og hefur sýning Leik-
félags Reykjavíkur hlotið mik-
ið lof fyrir vönduð vinnu-
brögð og sterka sýningu.
What is
Glasnost?
Dr. Mikhaíl Voslenski,
sagnfræðingur frá Munchen,
flytur fyrirlestur I boði heim-
spekideildar Háskóla íslands
er nefnist „What is Glas-
nosts“ n.k. sunnudag. Fyrir-
lesturinn verður í stofu 101 í
Odda, og hefst kl. 15.00.
„What is Glasnosts?“ fjall-
ar um þær breytingar sem nú
eru að verða í Sovétríkjunum
í sögulegu samhengi. Fyrir-
lesturinn verður fluttur á
ensku og er öllum opinn.
Mikhaíl Voslenski var fyrr-
um háttsettur embættismað-
ur í þjónustu sovétstjórnar-
innar. Hann hefur undanfarin
sjö ár staðið fyrir rannsóknar-
stofnun um sovétmálefni i
Munchen í Vestur-Þýskalandi.
Frægasta bók hans er
Nomenklatura sem kom út
1980. Þar lýsir hann valda-
kerfi Sovétríkjanna og styðst
við eigin reynslu.
DRAUGAR, 12
tommu
Hljómsveitin „Mamma var
rússi" gefur út hljómplötu 20.
nóvember n. k. Platan nefnist
DRAUGAR, er 45 snúninga
og inniheldur sjö frumsamin
lög. Platan er gefin út af
Rokkfræðsluþjónustunni í
samvinnu við Takt hf.
Meðlimir „Mamma var
rússi“ eru: Stefán Guðjóns-
son, trommur Arni Daníel
Júlíusson, bassi, Arnór
Snorrason, gítar, Tryggvi Þór
Tryggvason, gítar, Valgarður
Guðjónsson, söngur, Brynja
Arnardóttir, söngur og Dolly
Magnúsdóttir, söngur.
Tónleikar
Heitapottsins
Heiti potturinn, jazzklúbb-
ur, heldur tónleika í Duus-
húsi n.k. laugardag og sunnu-
dag. Á laugardaginn, 14.
nóvember, eru tónleikar er
kallast Píanójazz. Nokkrir
píanóleikarar vígja nýjan
Steinway flygil Heitapottsins.
Bein útsending verður á Rás
2 frá tónleikunum og þeir
hefjast kl. 17.00. Píanóleikar-
arnir sem taka þátt I tónleik-
unum eru: Kristján Magnús-
son, Karl Möller, Eyþór
Gunnarsson, Egill B. Hreins-
son og Kjartan Valdimarsson.
Tónleikarnir á sunnudaginn
15. nóvember, hefjast kl.
21.30. Það er JazzkvinteU
Sinfóníunar sem leikur. í
honum eru þeir Reynir
Sigurðsson, víbrafón,
Szymon Kuran, fiðla, Martial
Nardau, flauta, Þórður
Högnason, bassi og Árni
Ásgeirsson, trommur.
Listasýning í
Hafnarfirði
Stjóm Hafnarborgar, lista-
og menningarstofnun Hafnar-
fjarðar, hefur boðið finnsku
listakonunni Elinu Liikanen
að halda sýningu á verkum
sínum í sýningarsal stofnun-
arinnar, Strandgötu 34. Sýn-
ingin hefst laugardaginn 14.
nóvember kl. 15.00 og stend-
ur til 22. nóvember.
Elina Liikanen hefur dvalið
undanfarna þrjá mánuði í
norrænu gistivinnustofunni í
Hafnarborg, og eru verkin á
sýningunni öll unnin á þess-
um tíma.
Liikanen fæddist í Finn-
landi árið 1959 og stundaði
listnám við háskólann i
Helsinki 1978—79. Eftir það
fór hún til náms við listaaka-
demíuna i Helsinki, 1979—85.
Hún hefur ferðast viða og
dvalið á erlendum vinnustof-
um t. d. ítallu, Danmörku,
Spáni og nú á íslandi. Hún
hefur haldið þrjár einkasýn-
ingar og einnig tekiö þátt í
samsýningu ungra myndlist-
armanna i Finnlandi.
Kratakaffi á
Hverfisgötu
Á þrijudögum og fimmtu-
dögum, milli klukkan 17 og
19 er starfrækt kaffihús í fé-
lagsmiðstöð Alþýðuflokksins
við Hverfisgötu.
Kaffihúsareksturinn fór
fyrst af stað i haust og hefur
gefist vel, að sögn Guðmund-
ar Einarssonar framkvæmda-
stjóra Alþýðuflokksins.
Guðmundur sagði að
menn ræddu pólitíkinaog
leituðu frétta úr flokksstarf-
inu. Meðal góðra krata sem
þarna mæta eru þingmenn
og aörir úr flokksforystu.
ísland
fékk ekkert
Engin íslensk kvikmynd er
meðal þeirra niu sem
Norræna menningarmála-
nefndin veitir styrk til að
þýða yfir á önnur norræn
tungumál. Nefndin úthlutar
um 1,2 milljónum danskra
króna, árið 1987. í október
siðastliðnum fengu níu
myndir styrk samanlagt
201.500 danskar krónur. Meiri-
hluti myndanna er frá Svíþjóð
en engin frá íslandi.
Aðalfundur
Landverndar
Aðalfundur Landverndar,
landgræðslu- og náttúruvernd
arsamtaka Islands, var hald-
inn á Flúðum í Hrunamanna-
hreppi dagana 7.-8. nóvem-
ber. Aðallega var fjallað um
möguleika á endurvinnslu
sorps og úrgangs, einkum
brotamálma, úrgangspapplrs
og úrgangstimburs. Land-
vernd skorar á heilbrigðisyfir-
völd, bæja- og sveitarstjórnir
að stuðla að því að úrgangs-
efni þessi verði endurunnin
en ekki urðuð eða fleygt í sjó.
Fundurinn beinir þeim til-
mælum til viðkomandi stofn-
ana og eftirlitsaðila til sjós
og lands að bæta aðstöðu
við losun og eyðingu alls
konar úrgangsefna sem nú
valda mikilli mengun á
ströndum landsins.
Þrjú framsöguerindi voru
flutt um þetta mál. Það voru
þeir Birgir Þórðarson, um-
hverfisskipulagsfræðingur,
Sveinn Ásgeirsson, verkstjóri
hjá Sindrastáli og Skúli Ingi-
mundarson, viðskiptafræð-
ingur. Þá var einnig fjallað
um umhverfisvernd og upp-
byggingu ferðaþjónustu.
Framsögumaður í þeim efn-
um var Tryggvi Jakobsson,
landfræðingur.
BÓKAFRÉTTIR
æsku hér á landi sem braust
til sjálfstæöis í kjölfar þeirra
æskubyltingar sem, varð í
Evrópu með bítlatónlist og
Karnabæjartísku. Rætt er við
fjölda manns sem tóku þátt í
þessum atburöum s.s. Rúnar
Júlíusson, Rósku, Davfð
Oddsson, Bjarka Elíasson
o.fl.
„ÆTTERNISSTAPI OG
ÁTJÁN VERMENN“ eftir
Þorstein frá Hamri. Nltján
sagnaþéettir sem eiga margir
rót sina að rekja til þáttasam-
fellna sem höfundur bræddi
saman á kvöldvökum í ríkis-
útvarpinu.
„ÉG VIL LIFA“ sjö samtals-
þættir við fólk sem staðið
hefur auglitis til auglitis við
dauðann, í samantekt Guð-
mundar Árna Stefnánssonar
og Önundar Björnssonar.
Þetta er þriðja útgáfa bókar-
innar.
„LÁN ! ÓLÁNI" er sjálfs-
ævisaga leikarans Sir Alec
Guinnes. Hann hefur lifað
stormasömu llfi og telur að
örlaganornir hafi spunniö
honum vef sem hann hefur
verið flæktur í. Bókin kemur
út í annað sinn.
Rasmus fer á
flakk
Rasmus fer á flakk heitir
barnasaga eftir Astrid Lind-
gren sem Mál og menning
hefur nú gefið út í nýrri þýð-
ingu Sigrúnar Árnadóttur.
I bókinni segir frá
Rasmusi, niu ára strák sem
dvelur á munaðarleysingja-
hæli. Hann er búinn að fá
nóg af vistinni og eftir við-
burðaríkan dag strýkur hann
þegar allir eru farnir að sofa.
Hann er svo bráðheppinn að
í fyrstu hlöðunni sem hann
gistir í hittir hann Óskar —
Utigangs-Óskar, landshorna-
flakkara og guðs útvalda
gauk!
Rasmus fer á flakk er 211
bls., prentuö i Prentsmiðj-
unni Odda hf. Eric Palmquist
teiknaði myndirnar í bókina
en kápumyndin er eftir Brian
Pilkington. Bókin er gefin út
með styrk frá Norræna þýð-
ingarsjóðnum.
Nýjar
Stínubækur
Mál og menning hefur
gefið út tvær nýjar Stínu-
bækur fyrir yngstu börnin.
Stina og leyndarmálið
segir frá því þegar Kalli og
Stina fengu að vita um litla
barnið sem var að vaxa inni í
maganum á mömmu. Og svo
þegar litli bróðir fæðist. í
hinni bókinni, sem heitir
Stina stóra systir, fylgjumst
við með hvernig Stínu tekst
upp í nýja hlutverkinu.
Áður hafa komið út tvær
bækur um Stínu, Stlna og
árstiðirnar og Frá morgni til
kvölds meö Stínu. Höfundur
Stínubókanna er Kristiina
Louhi en Olga Guðrún Árna-
dóttir þýðir.
Ritnefnd Ljóðaárbókar 1988 ásamt fulltrúum Almenna bókafélagsins:
Standandi eru þau Jóhann Hjálmarsson, Sigurður Valgeirsson, fram-
kvæmdastjóri AB og Berglind Gunnarsdóttir, en sitjandi frá vinstri
Kjartan Árnason og Eiríkur Hreinn Finnbogason.
Ljóðaárbók 1988
Almenna bókafélagið
hyggst gefa út Ijóöaárbók
1988 á vegum Ijóðaklúbbs
félagsins, nú á næsta ári. Er
siðan gert ráð fyrir að fram-
hald verði á útgáfunni undir
samheitinu Ný skáldskapar-
mál... Tildrög þessara bókar
eru þau að Almenna bókafé-
lagið telur að það vanti bók
er sýnir hvað hin ýmsu skáld
eru að gera í dag. í fréttatil-
kynningu um bókina segir, að
skáld yrki hver meö sinum
hætti, eldri skáld senda frá
sér bækur sem margar hverj-
ar eru nýir áfangar (list
þeirra. Arbækur sem þessi
geta því gefiö sem heilsteypt-
asta mynd af íslenskri sam-
timaljóðlist.
Eingöngu verða valin Ijóð
sem ekki hafa birst i bók og
Ijóðaþýðingar jafngilda frum-
sömdum Ijóðum. Höfundar-
laun verða greidd samkvæmt
samningum Rithöfundasam-
bandsins og Félags íslenskra
bókaútgefenda. Skilafrestur
Ijóða er til 31. desember og
skulu þau send til Almenna
bókafélagsins með upplýs-
ingum um höfund, póstfang
og símanúmer. Ljóðin sem
verða i bókinni velur ritnefnd
sem skipuð er Berglindi
Gunnarsdóttur, Jóhanni Hjál-
marsyni og Kjartani Arna-
syni.
Fimm nýjar frá
Tákn
Bókaútgáfan TÁKN verður
með fimm bækur á jólabóka-
markaði ársins og koma þær
út á næstu dögum hver af
annarri.
Bækurnar eru: „GAGN-
NJÓSNARINN" eftir Peter
Wright. Þetta er ævisaga
breska leyniþjónustumanns-
ins Peter Wright. Wright
greinir frá starfsaðferðum
bresku leyniþjónustunnar um
tveggja áratuga skeið 1956-
76. Söguefnið er miklu leyti
óþekkt en fjallað er um fjölda
atburða sem bryddað hefur
verið á í heimsfréttum. Bókin
var bönnuð í Bretlandi en
bandaríska útgáfan hefur
verið seld þar með leynd I
hundruð þúsundum eintaka.
„68-HUGARFLUG ÚR VIÐJ-
UM VANANS" eftir Gest Guð-
mundsson og Kristinu Ólafs-
dóttur. Samtimasaga þeirrar