Alþýðublaðið - 12.11.1987, Síða 6
6
Fimmtudagur 12. nóvember 1987
SMÁFRÉTTIR
Guðni Franzon, klarínettuleikari.
Sinfóníutónleikar
Fjórðu áskriftartónleikar ís-
lands veröa haldnir í Há-
skólabíó í kvöld, fimmtudag
kl. 20.30. Guöni Franzson,
klarínettuleikari leikur einleik
meö hljómsveitinni, í fyrsta
skipti. Klarínettukonsert
nr. 2. eftir Weber. Auk þess
verða á dagskránni Vespurnar
eftir Vaghan-Williams og
Sinfónía nr. 5. eftir Tschai-
kovsky. Stjórnandi á tónleik-
unum verður Frank Shipway.
Hann stjórnanði fyrstu tón-
leikum sveitarinnar í haust
og mun stjórna þeim fimmtu
og sjöttu.
Aldarfjórðungur er nú sið-
an Sinfóníuhljómsveit ís-
lands flutti verk eftir
Vaughan-Williams. Vespurnar
er mjög langt verk og því
verður einungis forleikurinn
leikinn í kvöld.
Sinfónía nr. 5. er eitt þekkt-
asta verk Tschaikovskys. Það
hefur oft verið flutt áður og
notið mikilla vinsælda meðal
unnenda klassískrar tónlistar.
Guðni Franzson hefur öðl-
ast nokkra reynslu sem klarí-
nettuleikari. Hann kom fyrst
fram á Listahátið og á
Norrænu tónlistardögunum
1986. Hann hefur síðan hald-
ið tónleika bæði hér heima
og erlendis. Guðni lauk ein-
leikaraprófi frá Tónlistarskól-
anum i Reykjavík 1984 og
stundaði framhaldsnám í
Amsterdam í Hollandi. Guðni
hefur einnig samið nokkur
verk fyrir Þjóðleikhúsið. í
byrjun næsta árs er síðan
væntanleg fyrsta platan með
leik Guðna ásamt Þorsteini
Gauta píanóleikara. Tónverkið
sem verður flutt í kvöld gerir
miklar kröfur til klarinetts-
leikarans og koma allir
möguleikar hljóðfærisins
fram.
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboöum í eftir-
farandi:
RARIK—87008: Raflínuvír 180 km.
Opnunardagur: Fimmtudagur 10. desember 1987, kl.
14:00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, fyriropnunar-
tíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstöddum
þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
fimmtudegi 12. nóvember 1987 og kosta kr. 200,-
hvert eintak.
Reykjavík 11. nóvember 1987.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Laus staða
Dósentsstaða í byggingaverkfræði við verkfræðideild Há-
skóla íslands er laus til umsóknar. Dósentinum er ætlað
að hafa umsjón með og stunda rannsóknir og kennslu á
einhverjum eftirtalinna sviða: Aðveitur-fráveitur; byggðar-
skipulag; framkvæmdafræði; landmælingar; samgöngu-
mál; teiknifræði. Rannsóknavettvangur verkfræðideildar
er Verkfræðistofnun Háskóla íslands.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega
skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritstörf og
rannsóknir, svo og námsferil og störf. Jafnframt skulu þeir
látafylgjaeintök af vísindalegum ritum sínum, þrentuðum
sem óprentuðum.
Umsóknir skulu sendar'menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavík, fyrir 10. desember 1987.
Menntamálaráðuneytið,
10. nóvember 1987.
Laus staða
Staða framkvæmdastjóra Menntamálaráðs og Bókaútgfu
Menningarsjóðs er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil,
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, fyrir 10. desember 1987.
Menntamálaráðuneytið,
10. nóvember 1987.
Stjórnarfundur
SÍF
Á stjórnarfundi Sölusam-
bands íslenskra fiskframleið-
enda, SÍF, voru til umfjöllun-
px drög sjávarútvegsráðherra
um stjórn fiskveiða 1988—
1991. Stjórnarfundurinn sam-
þykkti ályktun er segir m. a.
að fundurinn sé í megindrátt-
um samþykkur frumvarpinu
og þá sérstaklega því atriði
er gerir ráö fyrir aukinni
kvótaskerðingu, vegna út-
flutnings á ferskum fiski.
Jafnframt lýsir fundurinn
áhyggjum sfnum vegna tolla-
mála saltfisks í Evrópubanda-
laginu. Stjórn SÍF skorar þvi
á stjórnvöld að beita sér fyrir
viðræðum um tollamál þessi.
Krataáhlaup á
Sauðárkrók
A föstudag og laugardag
ætla kratar að leggja undir
sig Sauðárkrók. Strax á föstu
dagsmorgun verður byrjað i
fyrirtækjunum á staðnum og
mun formaður flokksins Jón
Baldvin Hannibalsson heim-
sækja vinnustaði.
Sama dag klukkan 18.30
verður opnuð félagsmiðstöð
og klukkan 19.30 hefst Árs-
hátíð Alþýðuflokksfélaganna
á Norðurlandi—vestra, í
Hótel Mælifelli.
Á laugardag verður aðal-
fundur kjördæmisráðs hald-
inn í Safnahúsinu. Fundurinn
hefst klukkan 10. árdegis.
Klukkan 17. sama dag verður
síðan almennur stjórnmála-
fundur í Safnahúsinu með
Jóni Baldvin Hannibalssyni.
Hlutavelta og flóamarkaður
verður í Hljómskálanum
laugardaginn 14. nóv. kl. 14.
Lúðrasveitakonur
Blöð og
blaðamennska
í nútíð og
framtíð
Blaðamannafélag íslands
boðar til oþins fundar um
blöð og blaðamennsku í nú-
tíð og framtíð. Fundurinn
verður haldinn í Listasafni
alþýðu í dag, fimmtudag kl.
20.30, en þar í salnum stend-
ur nú yfir afmælissýning
Blaðamannafélagsins sem
lýkur um næstu helgi.
Á fundinum munu blaða-
mennirnirog ritstjórarnir,
Árni Bergmann Þjóðviljanum,
Björn Jóhannsson Morgun-
blaðinu, Elías Snæland Jóns-
son DV, Indriði G. Þorsteins-
son Timanum og Steinar J.
Lúðviksson Frjálsu framtaki
hafa stutta framsögu en
síðan verða almennar um-
ræður.
Blaðamenn og allt áhuga-
fólk um blöð og blaða-
mennsku er velkomið á fund-
inn.
RJÖLSRAimSXCUIIfi
BREIÐHQUI
Frá Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti
Innritun nemenda, sem ætla að hefja nám í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti ávorönn 1988, stendur
nú yfir. Athygli er vakin á því að enn er unnt að bæta
við nemendum einkum á heilbrigðissviði (sjúkralið-
ar), matvælasviði (matartæknar og matarfræðingar)
og tæknisviði (nám til sveinsprófs á málmiðna-, raf-
iðna- og tréiðnabrautum).
Sími skólans er 75600.
Skólameistari
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir október mánuð er 15.
nóvember. Ber þá að skila skattinum til innheimtu-
manna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
KRATAKOMPAN
Alþýðuflokksfélag Kópavogs
Aðalfundur verður haldinn mánudaginn 16. nóv. kl.
20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin
Kaffihús Reykjavíkurkrata
á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl. 17.—19. er
kaff i á könnunni og opið hús í félagsmiðstöð Jaf nað-
armanna á Hverfisgötu 8—10. Við hvetjum sem
flesta til að líta við til að ræða pólitíkina.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
Norðurland Vestra,
aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðuflokksins á Norð-
urlandi Vestra verður haldinn í Safnahúsinu á Sauð-
árkróki laugardaginn 14. nóv. n.k. kl. 10—16.30.
Dagskrá:
2. 1. Fundarsetning, skýrsla stjórnar.
2. Stjórnmálaviðhorfið, Jón Baldvin Hannibalsson,
fjármálaráðherra, Jón Sæmundur Sigurjónsson
alþingism.
3. Kosningarnar í vor. Kristján L. Möller, íþróttafull-
trúi.
4. Starfsemi flokksins. Guðmundur Einarsson fram-
kvæmdast.
5. Umræður og önnur mál.
6. Stjórnarkjör.
Kjördæmisráðiö
Árshátíð Norðurland Vestra
Árshátíð Alþýðuflokksfélaganna á Norðurlandi
Vestra verðurá Hótel Mælifelli, Sauðárkróki kl. 19.30
föstudaginn 13. nóv. 1987.
Gestir:
Jón Baldvin Hannibalsson, Fjármálaráðherra,
Bryndís Schram
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
Birgitt Henriksen.
Þátttaka tilkynnist til Björn Sigurbjörnssonar í síma
'95-6622 eða Péturs Valdimarssonar í síma 95-5132.
Alþýðuflokkurinn