Alþýðublaðið - 12.11.1987, Síða 8
MÞYBUBUBIB
Fimmtudagur 12. nóvember 1987
Vöruþróunarpeningar Iðntœknistofnunar:
BITIST UM HVERJA KRONU
60 milljónir œtlaðar
til átaksins. Um-
sóknir námu 300
milljónum.
Fimm fyrirtæki bítast um
hverja krónu sem til ráöstöf-
unar er í sambandi við vöru-
þróunarátak Iðntæknistofn-
unar. Stofnunin hefur 60 mill-
jónir til ráðstöfunar vegna
þessa verkefnis en til að
anna öllum umsóknum sem
bárust þyrfti 300 milljónir.
Hér er um að ræða tveggja
ára verkefni í vöruþróun sem
nú er að fara af stað á vegum
stofnunarinnar. Markmiðið er
að aðstoða fyrirtæki og ein-
staklinga við að þróa vörur
sem eru samkeppnishæfar á
heimamarkaði og hæfar til
útflutnings.
Nýsköpun er eitt áhrifarík-
asta tækið í harönandi sam-
keppni. Einn veigamesti þátt-
urinn í fslenskri iðnþróun er
að hugvit og tækni sé nýtt til
aö þróa framleiðsluvörur og
koma á markað. Við vöruþró-
unarátakið verður stuöst við
þá reynslu og þekkingu, sem
erlendum og innlendum fyrir-
tækjum hefur nýst best.
Meginþáttur verkefnisins
er aöstoð við fyrirtæki og
einstaklinga til að vinna aö
vöruþróun og markaðssókn
og gera þátt til sýninga í
sjónvarpi um hvernig standa
ber að vöruþróun og um gildi
vöruþróunar fyrir aukna verð-
mætasköpun í atvinnulffinu
og bætt lífskjör í landinu.
Vöruþróunarátakið verður
fjármagnað af Iðntæknistofn-
un og lönlánasjóði. Valin
verða verkefni þar sem Ijóst
er að Ijúka má þróun og
markaðssetningu á tveimur
árum. Stefnt er að því að fag-
deildir Iðntæknistofnunar
taki þátt I sem flestum verk-
efnanna og skipulag og
stjórnun sé í höndum Rekstr-
artæknideildar ITÍ eða sam-
bærilegra aðila.
Alls bárust umsóknir fyrir
65 verkefni upp á nær 300
milljónir kr. Stjórn verkefnis-
ins áætlar að geta afgreitt
10—15 umsóknir miðað við
það fjármagn sem er til ráð-
stöfunar.
Ljóst er að stjórnendur fyr-
irtækja telja átakið kjörið
tækifæri til aö hefja mark-
vissa vöruþróun. Sarokvæmt
úttekt Félags islenskra iðn-
rekenda sem kynnt var á
fundi átaksins þann 22. sept-
ember sl. kom fram að is-
lenskum iðnaði er hindrun að
skorti á þekkingu á sviði
vöruþróunar og fjármögnun
slfkra verkefna.
Meþ átaki Iðntæknistofn-
unar íslands er tekið á þess-
um vanda. Eitt af megin
markmiðum átaksins er að
flytja þekkingu á vöruþróun
til fyrirtækjanna og gera þau
þannig sjálfstæðari hvað ný-
sköpun varðar.
Heildarkostnaður verkefna
sem sótt var um er frá rúm-
um fimmhundruð þúsund
krónurrrupp í um tvær mill-
jónir. /
RtMSÚTV'
HVERJU SINNI
Húsnæöislánin eru hagstæö lán, eins og vera ber.
En af þeim þarf að greiöa, jafnt sem af öörum lánum og dráttarvextir eru háir
ef ekki er greitt á réttum tíma.
Þegar innheimtukostnaöur bætist viö að auki, fer greiðslubyrðin
óneitanlega aö þyngjast.
Við minnum á þetta núna vegna þess að
haustgjalddagi var 1. nóvember sl. og greiðsluseðlar
hafa verið sendir gjaldendum.
Greiðslur er aö sjálfsögðu hægt að inna af hendi í
hvaða banka, bankaútibúi og sparisjóði sem er.
Á lán með lánskjaravísitölu leggjast
dráttarvextir þann 16. nóvember.
Á lán með byggingarvísitölu ieggjast
dráttarvextir þann 1. desember.
HAFÐU HÚSNÆÐISLÁNIÐ MTTEF5TA BLAÐI.
ÞAÐ BORGAR SIG.
Við viljum auk þess benda áað þú getur greitt lánið
upp.hafir þú tök á þvf. Þá greiðir þú eftirstöðvar þess,
ásamt verðbótum, frá upphafi lánstímans til
greiðsludags.
Á síðustu 12 mánuðum hafa 12 þúsund lán verið
greidd upp, áður en lánstíma lauk.
Einnig getur þú lækkað höfuðstól lánsins, viljir þú
greiða inn á hann. Þaö getur komið sér vel þegar til
lengri tíma er litið.
Húsnæðisstofnun ríkisins