Alþýðublaðið - 19.11.1987, Síða 6
6
Fimmtudagur 19. nóvember 1987
SMÁFRÉTTIR
Guðni Bragason, varafréttastjóri.
Guðni
Bragason
ráðinn
fréttastjóri
Guöni Bragason hefurver-
iö ráðinn varafréttastjóri-er-
lendra frétta, á fréttastofu
Sjónvarpsins. Hann er fædd-
ur í Reykjavík 1957. Er
stúdent frá Menntaskólanum
í Reykjavík áriö 1977 og
stundaði síðan nám í bók-
menntum og fjölmiðlafræði
við Ludwig-Maximilianháskól-
ann í Munchen í Vestur-
Þýskalandi, 1977—83.
Eftir það tók hann M. A.
próf í fjölmiðlun 1985 frá
New York University í Banda-
ríkjunum. Er heim kom tók
hann til starfa sem frétta-
maður hjá Sjónvarpinu.
Guðni er kvæntur Hope Mill-
ington blaðamanni.
S.Í.T. öðlast
aðild að C.E.A.
Samband íslenskra trygg-
ingartélaga er nú orðið aóílí
að C.E.A., Sambandi
evrópskra tryggingarfélaga.
ísland er nítjánda þjóðin í
Vestur-Evrópu sem hefur
aðild að C.E.A. Eitt austan-
tjaldsríki, Júgóslavía, hefur
svokallaða áheyrandaaðild.
Tilgangur samtakanna er
m. a. að miðla upplýsingum
milli aðilanna um öll svið vá-
tryggingarmála, að stunda
rannsóknar- og fræðistörf á
sviði vátrygginga og vera ráð-
gefandi ýmsum alþjóðlegum
stofnunum og samtökum,
sem beint eða óbeint tengj-
ast vátryggingum.
Sigmar Armannsson, hjá
Sambandi íslenskra trygging-
arfélaga, sagði í samtali við
Alþýðublaðið að með aðild
að C.E.A. gæti S.Í.T. betur
fylgst með vátryggingarmál-
um i Evrópu og þróun vá-
trygginga- og skaðabótarétta.
Sigmar sagði það mjög mikil-
vægt að íslendingar fylgdust
meö þessum málum. Hann
tók sem dæmi framleiðendur,
t. d. matvöru eða iðnaðarvara,
sem flyttu út vöru sína. Ef
varan reynist síöan gölluð
eða hún veldur einhverjum
skaða er S.Í.T. betur í stakk
búið til þess að fara með
málið þannig aö allir fái sinn
rétta hlut.
Stjórnmála-
ályktun LSA
Landsfundur Sambands Al-
þýðuflokkskvenna, LSA, var
haldinn 30,—31. október sl. í
stjórnmálaályktun sem lands-
fundurinn hefur sent frá sér
segist LSA fagna því að nú
sé komin á ríkistjórn með
þátttöku Alþýðuflokksins, og
LSA lýsir yfir fullu trausti á
störf ráðherra flokksins. Sér-
staklega fagnar LSA þvf að
Jóhanna Sigurðardóttir hafi
valist í embætti félagsmála-
ráðherra og segja störf henn-
ar sýna hæfni til að stýra
þeim málaflokkum sem undir
þetta ráðuneyti heyra.
Einnig kemur fram í álykt-
uninni að alltof hægt miði í
jafnréttismálum og því er það
fagnaðarefni að félagsmála-
ráðherra skuli hvetja til auk-
inna áhrifa kvenna hjá hinu
opinbera og að jafnréttis-
áætlun til fjögurra ára verði
hrint í framkvæmd. LSA fagn-
ar einnig fjögurra ára áætlun
um framkvæmdir og fjár-
mögnun framkvæmdasjóðs
fatlaðra. LSA leggur áherslu
á styttingu vinnutíma án
skeróingar launa og telur það
m. a. mikilvægt til að draga
úr launamun karla og kvenna.
Fullum stuðningi er lýst yfir
við kröfur láglaunahópa fyrir
bættum kjörum.
LSA leggur einnig mikla
áherslu á samfelldan skóla-
dag, gæslu yngstu nemend-
anna, varar við síauknu er-
lendu afþreyingarefni og tel-
ur að bæta eigi innlent efni í
sjónvarpi og að nota þennan
miðil til fræðslustarfa, bæði í
skólum og fyrir almenning.
Vegna upplýsinga um kyn-
ferðislegt ofbeldi á börnum
segir LSA það nauðsynlegt
að taka á þeim málum með
einurð. Einnig er of litill
gaumur gefinn ávana- og
fíkniefnamálum segir í álykt-
uninni.
Al-Anon
fimmtán ára
Fimmtán ára afmælisfund-
ur Al-Anon samtakanna verð-
ur haldinn í Langholtskirkju
laugardaginn 21. nóvember
kl. 13.00 og eru allir velkomn-
ir.
í frétt frá samtökunum um
fundinn segir að Al-Anon hafi
einmitt verið stofnað í Lang-
holtskirkju 18. nóvember
1972. Síðan þá hefur deildum
fjölgað ört, eru 14 á Reykja-
víkursvæðinu og alls 42 á
landinu.
Al-Anon eru félagsdeildir
ættingja og vina alkóhólista
sem reyna f sameiningu aö
leysa vandamál sín. Al-Anon
samtökin eru opin hverjum
þeim sem telja að líf sitt hafi
orðið fyrir áhrifum af drykkju
einhvers annars. Það er að-
eins einn tilgangur með sam-
tökunum, að hjálpa aðstand-
endum alkóhólista, segir í til-
kynningunni.
Alateen er hluti af Al-Anon
og er fyrir táninga sem orðið
hafa fyrir áhrifum vegna
drykkju t. d. vina eða ætt-
ingja. Það eru aöeins þrjár
Alateen deildir á landinu, ein
í Reykjavik ein á Akureyri og
ein á Olafsfirði.
ST. JÓSEFSSPÍTALI
Landakoti
Kvöldvaktir-Bítibúr
Óskum eftir starfsmanni á kvöldvaktir í býtibúr.
Vinnutími frá kl. 16.30—21.00. Unnið er í 7 daga í
senn og frí í 7 daga. Upplýsingar gefur ræstinga-
stjóri í síma 19600-259 frá kl. 10.00—14.00 daglega.
Reykjavík 18. nóvember 1987
TILBOÐ
Til sölu Þönglabakki 6, Reykjavík
Kauptilboð óskast í byrjunarframkvæmdir ásamt
lóðarréttindum eignarhluta ríkissjóðs í fasteigninni,
Þönglabakka 6, Reykjavík. Sökklar hafa verið steypt-
ir að um 800 fm. grunni.
Kaupandi erskuldbundinn ásamahátt og fyrri lóðar-
hafar af öllum bygginga og skipulagsskilmálum,
sem um ióðina gilda, þar með talin þátttaka í sam-
eiginlegum framkvæmdum með öðrum lóðarhöfum
í Mjódd.
Skrifleg kauptilboð er greini kaupverð og greiðslu-
skilmála berist skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykja-
vík fyrir kl. 11.30 f.h. fimmtudaginn 26. nóv. n.k., en þá
verða kauptilboð opnuð.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
Borgartuni 7, simi 26844
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, fööur okkar, sonar míns, bróður, mágs
og tengdasonar,
KRISTINS PÁLSSONAR,
Hryggjarseli 6.
Gerður Siguröardóttir,
Páll Kristinsson, Ingveldur Kristinsdóttir,
Páll Kristinsson,
Helga Pálsdóttir, Þórir Eyjólfsson,
Ingveldur Kjartansdóttir, Siguröur Jónsson.
REYKJMJÍKURBORG
'V Jlau&vi Stixáci
Sálfræðingar — unglingadeild
Unglingadeild félagsmálastofnunar Reykjavikur-
borgar auglýsir eftir sálfræðingi í fullt starf. Skilyrði
er að viðkomandi hafi að minnsta kost 2ja ára starfs-
reynslu sem sálfræðingur. Starfið felst meðal
annars í meðferð, ráðgjöf við starfshópa og þátttöku
í stefnumótun og skipulagningu unglingastarfs.
Umsóknarfrestur er til 8. des.
Upplýsingar veita Snjólaug Stefánsdóttir deildar-
stjóri unglingadeildar í síma 622760 og Gunnar
Sandholt yfirmaður fjölskyIdudeiIdar í síma 25500.
Umsóknum skal skilað til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar á umsóknareyðublöðum sem þar fást.
Kjararannsóknanefnd opinberra starfsmanna óskar
eftir að ráða mann til starfa fyrir nefndina.
Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun eða
reynslu á sviði hagfræði, viðskiptafræði, tölfræði
eða talnavinnslu.
Um getur orðið að ræða ráðningu í hlutastarf eða
fullt starf. Umsóknarfrestur er til 24. nóvember n. k.
Umsóknum skal skilað til:
Kjararannsóknanefnd opinberra starfsmanna
b/t fjármálaráðuneytið
Arnarhvoli
Reykjavík
KRATAKOMPAN
Afmælishátíð
kvenfélags Alþýðuflokksins í Hafnarfirði verður
haldin í Skútunni 21. nóvember n.k. kl. 20.00.
Dagskrá: Húsið opnað kl. 19.00 með fordrykk
Hátíðin sett
Matur
Nokkrar góðKpnnar Alþýðuflokkskonur
flytja sögu félagsins
Einsöngur: Kristín Viggósdóttir, undirleikari
Sigurður Jónsson
Hátíðarræða: Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráð-
herra.
Gamanvisur: Sérstaklega ortar um fimmtugar krata-
konur eftir Hörð Zophaníasson sungnar
af Guðmundi Einarssyni
Ávörp gesta
Dans: Hljómsveitin Kaskó, leikur til kl. 02.00.
Tryggið ykkur miða þeir eru til sölu hjá eftirtöldum
aðilum: Skrifstofu Alþýðuflokksins, sími 29244. Vala
sími 51920, Bára sími 651515, Maggý sími 651529,
Jonný sími 50967, María Ásgeirsdóttir, 51527. Miða-
verð kr. 2.300.00.
Kvenfélag Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði
Ferðahappdrætti krata
Dregið var 10. nóvember. Söluaðilar hafa ekki allir
se.nt inn uppgjör., þess vegna voru vinningsnúmer
innsigluð og verða birt 24. nóvember n. k.
Skrifstofa Aiþýðuflokksins.
Kaffihús Reykjavíkurkrata
á þriðjudögum og fimmtudögum milli ki. 17.—'19. er
kaffi á könnunni og opið hús I félagsmiðstöð Jafnað-
armanna á Hverfisgötu 8—10. Við hvetjum sem
flesta til að lita við til að ræða pólitíkina.
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur