Alþýðublaðið - 01.12.1987, Qupperneq 6
6
Þriðjudagur 1. desember 1987
SMÁFRÉTTIR
Flugleiðir
fá gjöf
í tilefni af 50 ára afmæli
áætlunarflugs Islendinga var
staddur hér á landi, nú fyrir
skömmu, Karel H. Hilkuysen
forstjóri Holiday inn hótels-
ins í Luxemburg. Hann færói
Flugleiðum hf., gjöf i tilefni
afmælisins. Ljósmynd af
Luxemburg á 19. öld. Sigurð-
ur Helgason forstjóri Flug-
leiða tók viö gjöfinni fyrir
hönd félagsins og lét þess
getið að samstarf íslendinga
Frá afhendingu Ijósmyndarinnar
sem tekin var var á 19. öld af
Luxemburg. Frá v. Sigurður
Helgason forstjóri Már Gunnars-
son starfsmannastjóri, Karel H.
Hilkuysen hótelstjóri frá Luxem-
burg og Björn Theodórsson fjár-
málastjóri.
og Luxemburgara hefðu frá
fyrstu tíð verið til mikillar
fyrirmyndar. Þau væru ekki
einungis viðskiptalegs eðlis
heldurværu menningarleg
samskipti þjóðanna sífellt að
aukast. Sigurður kvað það
vera ánægjulegt að vita til
þess að nú væri talað um ís-
land og Lúxemburg sem ná-
granna.
Listafyrirlestur
Bandaríski listmálarinn og
fyrirlesarinn Leland Bell held-
ur opinn fyrirlestur í dag í
húsnæði Hugvísindastofnun-
ar Háskóla íslands Odda,
stofu 101 kl. 17.00.
Fyrirlesturinn nefnist
„Mondrian, Giacometti og
staða Derain“ og fjallar um
tengsl þessara listamanna.
Sýndar verða litskyggnur af
verkum þeirra. Fyrirlesturinn
er haldinn á vegum Mynd-
lista- og handíðaskóla is-
lands, Máls og menningar og
Gallerís Borgar.
Vetrarlíf ’87
Landssamband, íslenskra
vélsleðamanna. LÍV, gengst
fyrir sýningu, Vetrarlíf 87,
dagana 4—6 desember n. k.
Sýningin verður í húsi Ford
umboðsins í Skeifunni I
Reykjavík og taka rúmlega 20
aðilar þátt í henni.
Á Vetrarlíf 87 gefur að líta
allt það sem nauðsynlegt er
til iðkunar vélsleðaíþróttar-
innar. Vélsleöaumboðin sýna
sleða sem þau flytja til
landsins. Auk þess verða til
sýnis talstöðvar, fatnaður,
viðlegubúnaður, lórantæki,
farsímar, skíðabúnaður, tjöld,
svefnpokar og fl.
BRÉFA SKIPTI
Alþýðublaðinu hefur borist
bréf frá Magnúsi Kristinssyni
i Þýskalandi, þar sem hann
segir frá korti sem honum
barst frá manni er óskaði eft-
ir að komast í bréfasamband
við einhvern á íslandi. Bréf-
ritari er frá Tékkóslóvakíu og
biður hann sérstaklega um
að komast sem pennavinur
einhvers sem er tilbúin til að
skiptast á við hann lands-
lagskortum. Josef, bréfritar-
inn, skrifar á ensku og segist
vilja vita allt um ísland. Hann
virðist þekkja eitthvað til ís-
lands því hann biður sérstak-
lega um kort af Akureyri.
Magnús Kristinsson segir
þetta ekki í fyrsta skipti sem
hann fær bréf sem þetta.
„Greinilega er mikill áhugi á
samskiptum við íslendinga
bæði í Tékkóslóvakíu, Pól-
landi og víðar I Austur-
Evrópu. Því þetta er ekki I
fyrsta skipti sem ég fæ
svona ósk frá ókunnu fólki í
gegnum kunningja mína þar,“
segir Magnús.
Þið sem viljið skrifast á við
Jósef, sendið bréfið til:
Josef Korinek
Voronezska 2./26
61600 BRNO
Czechoslovakia.
RAFEINDAVIRKJAR
Póst- og símamálastofnunin óskar eftir aö
ráöa rafeindavirkja til starfa í hinum ýmsu
deildum stofnunarinnar.
Við leitum aö duglegum og áhugasömum
mönnum meö full réttindi sem rafeinda-
virkjar og sem eru reiöubúnir aö tileinka sér
nýjustu tækni á sviði nútíma hátækni:
Símstöðvatækni
Fjölsímatækni
Radíótækni
Notendabúnaðar
Viö bjóöum fjölbreytt framtíöarstörf hjá
einu stærsta fyrirtæki landsins. Ráöning
nú þegar eöa eftir samkomulagi. Umsækj-
endur séu tilbúnir til frekara náms utan
og/eöa innanlands.
Laun samkvæmt launakjörum viökomandi
stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannadeild
og viðkomandi yfirmenn deilda í síma
91—26000 og í umdæmunum.
Umsóknareyöublöð fást á póst- og sím-
stöövum og hjá starfsmannadeild.
Póst- og símamálastofnunin.
Laus staða
Við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi er laus
til umsóknar staða kennara í stærðfræði frá 1. janúar
1988.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík, fyrir 15. desember 1987.
Menntamálaráðuneytið
Drögum úr hraða
-ökum af skynsemi!
50 ára afmæli
Kvenfélag Alþýðuflokksins í Reykjavík
Afmæliskaffi með glæsilegu hlaðborði í Holiday inn,
Sunnudaginn 6. desember kl. 15.
Dagskrá:
1. Hófið sett, Helga Gumundsdóttir
2. Ávarp, Jóhanna Sigurðardóttir
3. Sönghópurinn Lítið eitt kemur fram.
4. Saga félagsins, Helga Möller
5. Frumort Ijóð, Guðbjörg Ólafsdóttir
6. Ávörp gesta.
Jafnaðarmenn fjölmennið og takið með ykkur gesti, og tak-
ið þátt í að gera þennan dag ánægjulegan.
Stjórnin
Alþýðuflokksfélagar Hafnarfjarðar
Aðalfundur
Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 3.
desember n.k. kl. 21.30 i Alþýöuhúsinu við Strandgötu.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Staðgreiðslukerfi skatta.
Framsaga: Kjartan Jóhannsson
3. Önnur mál.
Stjórnin
Kratakaffi
Lítið inn í félagsmiðstöðina á Hverfisgötu 8-10 milli
kl. 17 og 19 í dag og drekkið með okkur kaffi.
Árni Gunnarsson þingmaður kemur og fær sér í
bolla og svarar fyrirspurnum um pólitíkina.
Alþýðuflokkurinn
Ferðahappdrætti Krata
Dregið hefurverið í nóvemberhappdrætti.
Upp komu þessi númer:
173 4237 9424 12009
1061 5748 9472 12809
1473 6392 9536 13010
2156 7002 10297 14087
3384 8362 11283 15175
3683 9329 11649 18427 19079