Alþýðublaðið - 04.12.1987, Qupperneq 1
Kvótamál:
HALLDÓR GAF SIG
Öll fjögur áhersluatriði Alþýðuflokksmanna fóru inn i frumvarpið um stjórn fiskveiða.
Þeir mótuðu tillöqurnar, sem nú hafa fariö inn í kvótafrumvarpið. Sigh'vatur Björgvinsson, Jón Sigurðsson og Kjartan Jóhannsson, ásamt Eiði
Guðnasyni sem nú er í útlöndum, áttu sæti í þingmannanefnd sem mótaöi tillögur Alþýðuflokksins i kvotmalum.
Þau fjögur atriði sem þing-
flokkur Alþýðuflokks lagði
áherslu á að ná inn í frum-
varp um stjórn fiskveiða, hafa
öll náð fram að ganga og
verða því hluti af stjórnar-
frumvarpinu.
Á miðvikudag kynnti sjá-
varútvegsráðherra þingflokk-
um stjórnarinnar ný frum-
varpsdrög þar sem inn voru
tekin tvö atriði af fjórum sem
alþýðuflokksmenn hafa lagt
áherslu á. Á ríkisstjórnar-
fundi í gærmorgun lagði ráð-
herrann síðan fram tillögur
um ákvæði til bráðabirgða
um hina tvo efnisþættina, en
eftir hádegi í gær voru allir
punktarnir fjórir komnir inn í
frumvarpið í einhverri mynd.
í samtali við Alþýðublaðið í
gær sagðist Jón Sigurðsson
viðskiptaráðherra ekki sjá
neina ástæðu til að gera frek-
ari fyrirvara varðandi frum-
varpið, en einstaka þingmenn
stjórnarflokkanna kynnu að
hafa mismunandi skoðanir
varðandi ýmis atriði. Kjartan
Jóhannsson tók í svipaðan
streng og sagði alþýðuflokks-
menn mega þokkalega vel
við una. Halldór Ásgrímsson
sagði að búið væri að taka
inn ýmis atriði frá bæði sjálf-
stæðismönnum og alþýðu-
flokksmönnum: „Þess vegna
á ég von á, að um þetta verði
allgott samkomulag," sagði
sjávarútvegsráðherra.
Samkvæmt tillögu Alþýðu-
flokksins var tekið inn í frum-
varpið ákvæði, þar sem kveð-
ið er á um að fiskstofnarnir
séu sameign þjóðarinnar og
markmið laganna aö stuðla
að verndun og hagkvæmri
nýtingu þeirra og tryggja meö
því trausta atvinnu og byggð
í landinu. Ennfremur náðist
inn ákvæði um heimild til
þess að færa aflamark milli
skipa sömu útgerðar eða
skipa, sem gerð eru út frá
sömu verstöð eftir því sem
hlutaðeigandi útgerðaraöilar
koma sér saman um. í textan-
um segir einnig að sama
gildi um skipti á aflamarki
milli skipa, sem ekki eru gerð
út frá sömu verðstöð, sé um
jöfn skipti að ræða að mati
ráðuneytisins.
Samkvæmt nýju ákvæðun-
um verður skipuð nefnd,
samkvæmt tilnefningu þing-
flokka og helstu hagsmuna-
aðila í sjávarútvegi, til að
undirbúa tillögur um fyrir-
komulag fiskveiðistjórnunar
að loknum gildistíma lag-
anna. Nefndin á jafnframt að
móta tillögur um breytingar á
lögunum og gildistíma þeirra
eftir því sem tilefni verður til.
Hún skal m.a. kanna áhrif
laganna á afkomu og hag-
kvæmni í sjávarútvegi og
skynsamlega nýtingu fiski-
stofna. Einnig ber henni að
athuga tilhögun veiðiheim-
ilda, m.a. heimilda sem ekki
séu bundnar við skip. Nefnd-
in á aö skila fyrsta áliti eigi
síðar en haustið 1989.
Þá er kveðið á um að í lok
hvers árs setji sjávarútvegs-
ráðherra reglugerð um
meginþætti stjórnar botnfisk-
veiða á komandi ári og hafi
hann við það samráð við sjáv-
arútvegsnefndir Alþingis og
samtök helstu hagsmuna-
aðila í sjávarútvegi.
HÚSNÆÐISSAMNINGARNIR
VORU ALGJÖR MISTÖK
Sá hluti kjarasamninganna í febrúar 1986, sem leiddi til nýja hús-
næðiskerfisins, var algjör mistök af hálfu verkalýðshreyfingarinnar.
Þetta er álit Jóns Baldvins Hannibalssonar, fjármálaráðherra, og það
kemur fram í ítarlegu viðtali við Alþýðublaðið, sem birtist í helgarblaö-
inu á morgun. Ýmislegt fleira í viðtalinu er líklegt til að vekja athygli.
Missið því ekki af helgarblaði Alþýðublaðsins á morgun.
GULLBOK
®NÝIR VEXTIR
1. DESEMBER
ÍÚNADARBANKJ ÍSLANDS
TRAUSTUR BANKI