Alþýðublaðið - 04.12.1987, Síða 4
4
Föstudagur 4. desember 1987
Kennarastörf
eftir-
sóknarverð
Hið íslenska kennarafélag,
HÍK, setti á stofn starfskjara-
nefnd með kjarasamningun-
um í mars sl. Nefnd þessi
hefur nú lokið störfum og
hefurafhent menntamálaráð-
herra, fjármálaráðherra og
formanni HÍK skýrslu sína
sem og tillögur undirritaðar
af öllum nefndarmönnum.
Launakerfi og vinnutilhög-
un kennara er tekin til gagn-
gerrar athugunar í skýrslunni.
I samningum frá f vor er gert
ráð fyrir að aðilar taki upp
samninga á grundvelli til-
lagna nefndarinnar og mun
stjórn HÍK fara fram á að við-
SMÁFRÉTTIR
ræður hefjist þegar í stað.
Kennarar binda miklar vonir
við að í þeim samningum
verði unnt að breyta kjörum
kennara þannig að störf
þeirra verði eftirsóknarverð
fyrir duglegt og vel menntað
fólk.
Frímerki
Fyrstu frímerkin á árinu
1988 koma væntanlega út í
febrúar. Verða það tvö fri-
merki í flokknum „Merkir ís-
lendingar“ og sýna þau
myndir af skáldunum Davlð
Stefánssyni og Steini Steinarr.
í maí koma út Evrópufrímerki
í tveimur verðgildum og
verða þau að þessu sinni
helguð nútíma flutninga- og
samskiptatækni. Tvö blóma-
og tvö fuglafrímerki koma út
á árinu 1988 og frímerki I til-
efni Olympiuleikanna í Seoul.
Þá hefur verið ákveðið að
gefa út frímerki með tileink-
un um „Heilbrigði, fyrir alla“
en það eru einkunnarorð Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnun-
arinnar 1988. Á degi frímerk-
isins kemur út smáörk, blokk
og auk þess er I undirbúningi
að gefa út í hefti frlmerki
með landvættunum, með
breyttu verðgildi.
FYRIRPEKI ÞnT
STENDUR BETUR
í STAÐGREÐSLU
- ef undirbúningurinn ergóðui
Staðgreiðsla opinberra gjalda kemur
til framkvæmda 1. janúar 1988. Frá þeim
tíma er launagreiðendum skylt að reikna út
og halda eftir staðgreiðslu af launum
starfsmanna sinna svo og eigin launum og
skila mánaðarlega til innheimtumanna
ríkissjóðs ásamt skilagrein.
Vegna þessa lykilhlutverks launagreið-
enda er mikilvægt að þeir þekki skyldur sín-
ar í staðgreiðslu til hlítar. Launagreiðendur
munu fá sendan sérstakan bækling með
ítarlegum upplýsingum um hlutverk þeirra.
Er þess vænst að þeir kynni sér efni hans
vel. Góð þekking í upphafi kemur fyrirtæk-
inu til góða við framkvæmd staðgreiðslu.
HVERJIRERU
LAUNAGREBENDUR?
Launagreiðandi telst sá vera sem greiðir
einhverjum laun. Þeir sem eru með sjálfstæðan
rekstur teljast launagreiðendur, hvort sem þeir
greiða öðrum laun eða ekki, og þeim ber að
reikna sér endurgjald af starfseminni.
Allir launagreiðendur eru á launagreið-
endaskrá og nýjum launagreiðendum ber að
tilkynna sig þangað. Þar með er tryggt að þeir
fái sendar upplýsingar sem við koma skyldum
þeirra og auðvelda þeim hlutverk sitt í stað-
greiðslu.
ÖLL LAUNERU
STAÐGREÐSLUSKYLD
Staðgreiðsia er reiknuð af öllum launum
og launatengdum greiðslum, svo og hvers
kyns fríðindum og hlunnindum.
Greiðslur til verktaka eru ekki stað-
greiðsluskyldar.
Af bílapeningum, dagpeningum og ferða-
peningum er ekki dregin staðgreiðsla ef
greiðslurnar eru sundurgreindar með færslu
akstursskýrslna, akstursbókaog annarra tilskil-
inna gagna, nema um sé að ræða fastar fjár-
hæðir á hverju launatímabili.
Athugið: Staðgreiðsla er dregin af
heildarlaunum að meðtöldu orlofsfé og í
hvert sinn sem laun eru greidd.
SJÁLFSTÆÐUR ATVINNUREKSTUR
Manni sem vinnur við eigin atvinnurekstur
ber að reikna sér endurgjald vegna starfsem-
innar og draga staðgreiðslu af því og skila
mánaðarlega. Sömuleiðis ef maki og böm inn-
an 16 ára aldurs vinna við starfsemina.
Ríkisskattstjóri ákveður lágmark reiknaðs
endurgjalds fyrir upphaf staðgreiðsluárs.
PERSÓNUAFSLÁTTUR
Sérhver launamaður fær árlegan persónu-
afslátt, sem kemur til frádráttar við útreikning
staðgreiðslu hans.
Persónuafslættinum er skipt jafnt á alla
mánuði ársins og á skattkortinu er þessi mán-
aðarlegi persónuafsláttur tiltekinn.
Ef launamaður afhendir launagreiðanda
skattkort maka síns ber launagreiðanda að
taka tillit til 80% þess persónuafsláttar sem
fram kemur á kortinu og draga f rá staðgreiðslu.
Athugið: Persónuafslátt má launa-
greiðandi aðeins draga frá staðgreiðslu
hafi hann skattkort launamanns í vörslu
sinni.
Ef laun eru greidd oftar en einu sinni í
mánuði þarf að taka tillit til einhvers hluta per-
sónuafsláttar í hvert sinn sem greitt er, þó fari
heildarafsláttur mánaðarins aldrei fram úr mán-
aðariegri heimild.
SJÓMANNAAFSLÁ TTUR
Sjómannaafsláttur kemur til frádráttar
staðgreiðslu á sama hátt og persónuafsláttur.
Upphæðin kemur ekki fram á skattkorti. Það er
því á ábyrgð launagreiðanda að sjómanna-
afsláttur komi réttilega til frádráttar.
Kynntu þérskyldurþínarí staðgreiðslu
-það margborgar sig
SKATTKORT
Fyrir upphaf staðgreiðsluárí
maður afhenda launagreiðanda sl
skattkortinu eru persónubundnai
ásamt skatthlutfalli staðgreiðslu (
legum persónuaíslætti sem kortið
Hafi launagreiðandi ekki sl
aukaskattkort) launamanns undir
hann ekki draga persónuafslátt frá
Launamaður greiðir þá fullt skatthl
Launagreiðandi ber fulte
skattkortinu meðan það er í hai
Launamaður getur afhent
anda skattkort (eða aukaskattkoi
ef makinn nýtir ekki persónuafslá
Þá tekur launagreiðandi tillit til £
persónuafslætti sem fram kemur i