Alþýðublaðið - 04.12.1987, Side 5

Alþýðublaðið - 04.12.1987, Side 5
Föstudagur 4. desember 1987 5 UMRÆÐA !• ■ í Þorsteinn Siglaugsson skrifar HÚS ANDANNA r rr Staðgreiðsla er reiknuð af heildarlaunum jafnóðum og þau eru greidd. Launagreiðandi reiknar staðgreiðslu út samkvæmt þeim upp- lýsingum sem fram koma á skattkorti launa- manns um skatthlutfall og persónuafslátt. Hafi launamaður ekki afhent skattkort sitt skal draga skatthlutfall af launum hans en ekki tekið tillit til persónuafsláttar. Skatthlutfall er fastur hundraðshluti og breytist ekki hver svo sem launafjárhæðin verður. SKIL Á STAÐGREIÐSLU Launagreiðendum ber að gera skil á stað- greiðslu mánaðarlega fyrir næsta mánuð á undan. Þó svo að engin laun hafi verið greidd á tímabilinu ber að senda inn skilagrein. Mánað- arlega verða launagreiðendum sendar áritaðar skilagreinar. Gjalddagi er 1. dagur hvers mán- aðar og eindagi 14 dögum síðar. Athugið: Launamaður getur ekki sjálf- ur skilað staðgreiðslu vegna launa frá launagreiðanda. VANSKIL Strangt eftirlit verður haft með skilum. Skili launagreiðandi ekki á eindaga verða honum reiknuðviðurlög. LAUNABÓKHALD STAÐGREÐSLU öllum launagreiðendum er skylt að halda sérstakt launabókhald, þar sem fram komi launagreiðslur, starfstengdar greiðslur og hlunnindi. Einnig skal koma fram afdregin stað- greiðsla, svo og skatthlutfall staðgreiðslu og persónuafsláttur hvers launamanns. LAUNASEÐLAR Á launaseðlum skal auk annars sýna þá fjárhæð sem haldið er eftir af launum launa- manns. Einnig fjárhæð afdreginnar stað- greiðslu launamanns fyrir næst liðið ár. Athugið að á launamiðum skal frá og með 1. janúar nk. tilgreina kennitölu launa- manns en ekki nafnnúmer. Eftir alla þá umræðu sem átt hefur sér stað um fyrir- hugað „hús andanna", ráð- húsið við Tjörnina, get ég ekki á mér setið að leggja þar orð í belg. Raunar hefur verið mjög gaman að fylgjast með þessari umræðu. í byrj- un virtust velflestir á móti ráðhúsinu. Skoðanir manna komu mjög fram ( lesenda- um borgarstjóra er l(kt tario og húsinu á sandinum — sem hrundi. Tökum fyrst vatnsrökin: í því efni hefur borgarstjóri eflaust fallið fyrir einstaklega Ijóðrænum lýs- ingum arkitektanna á sköp- unarverki sínu (og þeirri vörn sem ákveðnir hlutar þess veita fólki þegar hált er.). Slik- ar lýsingar má finna í skjali „Borg sem er í örum vexti þarf stórt ráð- hús. Glæsilega og áberandi byggingu sem einfaldlega er ekki hœgt að koma fyrir í gamla miðbœnum,“ skrifar Þorsteinn- Siglaugsson m. a. í umrœðugrein sinni um fyrirhugað ráðhús við Tjörnina. dálkum Morgunblaðsins og voru yfirleitt á einn veg; ráð- húsið mátti alls staðar ann- ars staðar vera en á Bárulóð- inni. Rökin voru yfirleitt þau að húsið myndi skaða lífríki Tjarnarinnar eða þá að bréf- ritari bjó við Tjarnargötuna. Um tíma Svo kom Davíð sjálfur fram i sjónvarpi og tilkynnti alþjóð (Reykvíkingum?) að ráðhúsið væri fallegt, það hefðu út- lendingar sagt, það hlyti að vera rétt. Þeir sem væru á móti ráðhúsinu væru gamal- dags og á móti framþróun. Að baki þessu býr auðvitað hin gamla, en fáránlega kenn- ing: „tímarnir breytast og mennirnir með“. Þ.e.a.s. að okkar hlutverk sé að elta þær breytingar sem timarnir skaffa okkur, án þess að mögla. Breytingarnar verði, hvort sem fólki líkar betur eða verr. Samkvæmt þessari kenningu eru áhrifavaldar mannkynssögunnar einhverjir monsterar sem heita „tímar“, menn koma þar hvergi nærri og skiptir sjálfsagt engu máli hvort þeir eru til staðar eða ekki. Það eru tímarnir sem breytast fyrst. Þessi kenning um framvindu sögunnar er inntakió í marxisma en borg- arstjórinn er að öðru leyti ekki illa haldinn af slíku. En nóg um það. Eftir sjónvarpsþáttinn virtust við- horf fólks til ráðhússbygging- arinnar gjörbreytast. Skyndi- lega voru allir orðnir fylgjandi ráðhúsinu. Staðsetningin varð nú sú besta sem hugs- ast gat. Það varð ótækt að byggja ráðhús annars staðar en á Bárulóðinni, annað hús en það sem borgarstjórn hafði samþykkt, kom ekki til greina. Svona er fegurðin af- stæð. Ljóðrænir arkitektar Ein helstu rökin í málflutn- ingi borgarstjóra eru þau, að ráðhús verði að staðsetja i hjarta bæjarins. Hin rökin eru þau að ekki sé ráðhús með ráðhúsum nema það standi i vatni. í gamalli bók er saga um tvo menn. Annar þeirra byggði hús sitt á sandi, það hús hrundi. Hinn maðurinn byggði á bjargi sem var hreint ekki svo vitlaust því hans hús hrundi ekki. En rök- sem fylgir með teikningunum og er í raun hinn stórhlægi- legasti samsetningur þar sem stílbrot eru jafn algeng og heilhveitibrauð hjá öðru fólki. í þessu skjali er það einmitt tekið fram að í sum- um Evrópulöndum séu ráð- hús byggð í eða við vatn. Þess vegna verði ráðhús Reykjavíkur líka aö vera i vatni. Eittfcvað er minnst á að þetta auki téngslin milli borg- arbúa og þeirra sem borginni stjórna, geri lýðræðið virkara. Verði ráðhús byggt í Tjörninni verður væntanlega frekar grunnt á þessum tengslum (ca 40 cm.) og eftir nokkra áratugi hverfa þau alveg, þeg- ar Tjörnin verður þornuð upp. .Þegar þar að kemur verður sjálfsagt fátt hægt að gera til að bjarga pollinum. Borgin verður farin á hausinn vegna kostnaðarvið ráðhúsbygging- una, líkt og Sydney í Ástralíu þar sem óperuhöllin fagra var byggð, og Reykvikingar búnir að éta allar endurnar útúr neyð. Ráðhús á að vera glæsilegt Hjarta Reykjavíkur er hjarta smábæjar sem alls ekki er hægt að líkja við erlenda stórborg. Hér eru byggingar lágar og ef samræmi á að nást verður ráðhús að vera málamiðlun. Ráðhús Davíðs er einmitt slik málamiðlun milli smábæjarog stórboi gar. En síðan miðbærinn byggó- ist hefur margt breyst. Reykjavfk er ekki lengur smá- bær, heldur borg. Borg sem er i örum vexti þarf stórt ráð- hús. Glæsilega og áberandi byggingu sem er einfaldlega ekki hægt að koma fyrir í miðbænum. Hið fyrirhugaða ráðhús fellur í skuggann af öðrum og miklu fegurri bygg- ingum og verður þar að auki fljótlega of lítiö. Það dugir ekki að bera saman ráðhús i miðbæjum erlendra stórborga sem eru byggð við allt aðrar aðstæður og landrými en við höfum, og reykvískt ráöhús. Það þarf að byggja ráðhús. En það á að vera stórt hús sem stendur á áberandi stað með nóg pláss i kring. Hús sem er tákn fyrir stórhug og framfarir en ekki stöðnun og smekkleysi.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.