Alþýðublaðið - 04.12.1987, Page 6
6
Föstudagur 4. desember 1987
SMÁFRÉTTIR
Jólabasar
JólabasarSjálfsbjargar, félags
fatlaöra í Reykjavík og ná-
grenni, verður haldinn laugar-
daginn 5. desemberog sunnu-
daginn 6. Basarinn verður í
Sjálfbjargarhúsinu, Hátúni 12,
1. hæð og hefst kl. 14.00 báða
dagana.
Margvíslegur varningur
veröur til sölu, þ. á m. nútíma-
legar jólaskreytingar og aö-
ventukransar, þurrskreytingar,
hannyrðir, púöar, svuntur, kök-
ur o. fl. Einnig verður happ-
drætti, lukkupakkar og kaffi-
hlaöborö.
Jólasveinar,
takið eftir
Nú er komin nýjung til þess
aö setja í skóinn. „Happa-
þrennuári“ Háskólans er nú
sennað Ijúka og hyggjast há-
skólamenn setja punktinn yfir
i-ið með því að setja á markaö
„Jólaþrennu". Henni er nú
verið að dreifa þessa dagana
og telja þeir sem að standa
þetta góðan grip í gluggaskó,
skemmtilegan viðaukaí jóla-
pakkana eða í jólakortin.
Viðtökur íslendinga viö
„Happaþrennunni" hafa farið
fram úr björtustu vonum há-
skólamanna. Sjötíu íslend-
ingar hafa fengið um hálfa
milljón í sinn vasa það sem
af er þessu ári og með til-
komu „Jólaþrennunnar" bæt-
ast enn fleiri í hópinn. Vinn-
ingum hefur fjölgað og þar
með vinningslíkum um leið.
Á sjötta hvern „Jólaþrennu-
miða“ fellur þvi vinningur.
Ágóða af sölu þrennunnar
er varið til framkvæmda viö
Háskóla Tslands og einmitt
nú er nauðsynlegt að auka
húsnæði og tækjabúnaö
skólans til þess að hann
standist menntunarkröfur
samtímans.
Trúnaðarbréf i
Chile og
Argentínu
Hinn 10. nóvember sl. af-
henti Ingvi S. Ingvarsson
sendiherra, Paul Ricardo
Alfonsin, forseta Argentínu,
trúnaðarbréf sitt sem sendi-
herra íslands í Argentínu
með aðsetri í Washington.
Ingvi S. Ingvarsson afhenti
jafnfram hinn 12. nóvember
sl. Augusto Pinochet Ugarte,
forseta Chile, trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra íslands í
Chile með aðsetri I Washing-
ton.
Ragnhildur Ófeigsdóttir skáld
t.v. og yinkona hennar Nína
Björk Árnadóttir.
Heimsmet í
sælgætisáti?
Eitt stærsta næringar-
vandamál íslendinga, sæl-
gæti og sælgætisát verður
til umfjöllunar á fræðslufundi
sem Náttúrulækningafélag
íslands heldur I kvöid kl.
20.30.
Á fundinum verða tveir
frummælendur, Jón Gísla-
son, formaður Manneldisfé-
lags íslands, talar um efna-
innihald I sælgæti og Rúnar
Ingibjartsson matvælafræð-
ingur segir frá sjónarmiði
sælgætisframleiðenda.
Meðal þeirra spurninga
sem verða til umfjöllunar á
fundinum eru: Eiga íslend-
ingar heimsmet í sælgætis-
áti? Er skaðlaust fyrir þjóð-
ina aö hver einstaklingur
borði að meðaltali 15—17 kg
af sælgæti á ári? Eru mörg
hættuleg og vanabindandi
efni notuð í sælgætisiðnaði?
Allir áhugamenn eru velkomn-
ir á fræðslufundinn.
Jazz
Það verður jazzað I Heita
pottinum á sunnudag eins og
undanfarið og í þetta sinn
eru það „Styttri" sem leika. í
„Styttri" eru Tómas R. Einars-
son bassi, Hilmar Jensson á
gítar, Kjartan Valdimarsson
píanó og Matthías Hemstock
á trommur. Tónleikarnir byrja
kl. 21.30. í Duus—húsi.
í minningu
móður
„Andlit ( bláum vötnum"
nefnist nýútkomin Ijóðabók
eftir Ragnhildi Ófeigsdóttur.
Elísabet Cochran hefur hann-
að útlit bókarinnar. Nafnið er
hins vegar komið frá vipkonu
skáldsins, Nínu Björk Árna-
dóttur.
Ragnhildur er Reykvíkingur
og er „Andlit í bláum vötn-
um“ önnur bók hennar. Áður
hefur komið út Ijóðabókin
„Hvísl" og einnig hafa birst
Ijóð eftir Ragnhildi I blöðum
og tímaritum.
„Andlit í bláum vötnum“ til-
einkar Ragnhildur móður
sinni, Ragnhildi Ásgeirsdótt-
ur. Ljóðin eru 73 og er hluti
þeirra eins konar harmljóð
sprottin af reynslu vegna
dauöa móðurinnar. Höfundur
leitar svara við því hvert sé
eðli guðdómsins og auk þess
eru flest Ijóðin með erótlsku
fvafi.
Setningu og umbrot ann-
aðist Leturval en Grafík sá
um filmuvinnu og prentun.
Félagsbókbandið sá um
band. „Andlit í bláum vötn-
um“ er (litlu upplagi og er
hluti þess tölusettur og árit-
aður af höfundi.
Auglýsing
varðandi réttindi til
fasteigna- og skipasölu.
Samkvæmt 5. gr. reglugerðar nr. 520 24. nóvember
1987, skulu lögmenn sem reka fasteigna- og skipa-
sölu og ekki hafa hlotið leyfi til fasteignasölu sam-
kvæmt lögum nr. 47/1938 sækja um löggildingu sam-
kvæmt 2. gr. laga nr. 34/1986 fyrir 31. desember 1987
hyggist þeir stunda slíka starfsemi eftir þann tíma.
Þeir sern hlotið hafa leyfi til fasteignasölu sam-
kvæmt lögum nr. 47/1938 og stunda fasteignasölu
skulu sömuleiðis fyrir 31. desember 1987 framvísa í
dómsmálaráðuneytinu gögnum um að þeirfullnægi
ákvæðum reglugerðar nr. 520/1987 um tryggingar-
skyldu.
Jafnframt skulu fasteignasalar tilkynna ráðuneyt-
inu hvar starfsstöð þeirra er en samkvæmt 2. mgr. 6.
gr. laga nr. 34/1986 getur fasteignasali aðeins haft
eina starfsstöð, á sama stað og fasteingasalan er
rekin. Þá skulu fasteignasalar einnig senda ráðu-
neytinu til staðfestingar eyðublað það sem þeir
hyggjast nota fyrir söluumboð samkvæmt 9. gr. laga
nr. 34/1986 og 2. gr. reglugerðar nr. 520/1987.
Umsóknareyðublöð fást í dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu, Arnarhvoli.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 1. desember 1987.
Auglýsing um námskeið og próf vegna löggild- ingar fasteigna- og skipasala. Prófnefnd löggiltra fasteignasala auglýsir hér með námskeið og próf fyrir þá sem vilja öðlast löggild- ingu sem fasteigna-og skipasalarsamkvæmt lögum um fasteigna- og skipasölu nr. 34/1986, sbr. lög nr. 10/1987 og reglugerð nr. 519 24. nóvember 1987. Samkvæmt reglugerðinni skal prófið og undir- búningsnámskeið skiptast í þrjá hluta. Prófnefnd og dómsmálaráðuneytið hafa ákveðið að gefa þeim, sem óskaeftir að gangast undir próf skv. 4. tl. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 34/1986 kost á námskeiði og prófum sem hér segir: Námskeið Próf I hluti janúar-apríl 1988 maí 1988 II hluti september-des. 1988 janúar 1989 III hluti janúar-apríl 1989 maí 1989 Námskeiðið_ verður þó aðeins haldið að næg þátt- taka fáist. Á námskeiðinu verður farið yfir helstu réttarreglurog fjárhagsleg atriði sem á reynir í störf- um fasteinga- og skipasala, auk þess sem kennd verðurskjalagerð. Ekki erskyldaað sækja námskeið áður en gengist er undir próf og einnig getur próf- nefnd heimilað þeim, sem ekki óskaað gangast und- ir próf að sitja námskeiðið og skulu þeir sitja fyrir sem hafa starfsreynslu á sviði fasteigna- og skipa- sölu. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga nr. 34/1986 skal kostnaður vegna námskeiða og prófa greiðast með kennslu- og prófgjöldum og hefur dómsmálaráðu- neytið ákveðið að kennslugjöld vegna I. námskeiðs- hluta 1988 verði kr. 40.000 og prófgjald vegna I. próf- hluta 1988 verði kr. 10.000. Þeir, sem hyggjast taka þátt í námskeiðinu og / eða gangast undir próf skulu fyrir 21. desember n.k. bréf- lega tilkynna þátttöku sína til ritara þrófnefndar, Viðars Más Matthíassonar, héraðsdómslögmanns, Borgartúni 24, Reykjavík. Innritunargjald, kr. 5.000,00 skal senda með tilkynningunni en gjaldið er endurkræft, ef af námskeiðinu verður ekki eða ef til- kynnandi fellur frá þátttöku áður en I. hluti nám- skeiðsins hefst. Sérprentun reglugerðar nr. 519/1987 og kennsluáætlun fást í dómsmálaráðuneytinu, Arnarhvoli, Reykjavík. Reykjavík 1. desember 1987. Prófnefnd löggiltra fasteingasala Þorgeir Örlygsson Viðar Már Matthíasson Tryggvi Gunnarsson
Slys gera ekki boð á undan sér! d OKUM eiNS OO MCNNI
50 ára afmœli Kvenféiag Alþýðuflokksins í Reykjavík Afmæliskaffi með glæsilegu hlaðborði í Holiday Inn, Sunnudaginn 6. desember kl. 15. Dagskrá: 1. Hófið sett, Helga Guðmundsdóttir 2. Ávarp, Jóhanna Sigurðardóttir 3. Sönghópurinn Lítið eitt kemur fram 4. Saga félagsins, Helga Möller 5. Frumort Ijóð, Guðbjörg Ólafsdóttir 6. Ávörp gesta. Jafnaðarmenn fjölmennið og takið með ykkur gesti, og tak- ið þátt i að gera þennan dag ánægjulegan. Stjórnin
FUJ í Hafnarfirði Aðalfundur Aðalfundur FUJ í Hafnarfirði verður haldinn laugar- daginn 5. desember klukkan 14.00 í Alþýðuhúsinu við Strandgötu.