Alþýðublaðið - 10.12.1987, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1919
Fimmtudagur 10. desember 1987 237. tbl. 68. árg.
Guðmundur J. Guðmundsson:
SVORT MYND FRAMUNDAN
VEGNA VERDHÆKKANA
— Verkamannasambandið skorar á sambandsfélögin að knýja fram leiðréttingar
fyrir þá sem ekki hafa notið launaskriðs síðustu mánaða.
Guðmundur J. Guðmunds-
son formaður Verkamanna-
sambandsins segir ískyggi-
lega mynd vera framundan
vegna verðhækkananna sem
dynja yfir og hafa dunið yfir
frá þvi laun hækkuöu síðast
1. október. í samtali við Al-
þýðublaðið i gær sagði hann
að búast mætti við því að um
áramót hafi framfærsluvísi-
talan hækkað um 10% frá
síðustu launahækkunum.
Framkvæmdastjórn Verka-
mannasambands hefur skor-
að á félögin innan sambands-
ins að láta á það reyna, hvort
atvinnurekendur neita með
öllu að leiðrétta laun þess
fólks, sem hefur orðiö undir í
launaskriði undanfarinna
mánaða. Guðmundur segir
hins vegar að formenn sam-
bandsfélaganna verði ekki
kallaðir saman fyrr en fyrri
hluta janúar, til þess að ræða
heildarkjarasamninga.
Kjarasamningar verða laus-
ir um áramót. Fram að þeim
tíma koma engar launahækk-
anir til og þær verðlagshækk-
anir sem framundan eru
verða ekki metnar inn ( laun-
in nema til komi samkomu-
lag við vinnuveitendur. Að
Guðmundur J. Guömundsson
mati Framkvæmdastjórnar
Verkamannasambandsins
hefur kaupmáttur lægstu
launa þegar lækkað um allt
að 5% frá því laun hækkuðu
síðast i október.
Guðmundur sagði Ijóst að
verðbólgan væri á ferðinni og
vitað að nokkrar opinberar
stofnanir færu á næstunni
fram á töluverðar gjaldskrár-
hækkanir. „Þróunin er þvi
ískyggileg og allsvört mynd
framundan ef ekki verður
gripið í taumana." Guð-
mundur sagði ennfremur að
þegar væri umræða í gangi á
milli ýmissa sambandsfélaga
og vinnuveitenda.
Á fundi framkvæmda-
stjórnar VMSÍ, s.l. mánudag,
var mótmælt öllum fyrirhug-
uðum skattabreytingum, sem
koma til með að valda hækk-
unum á matvælum og öðrum
brýnustu nauðsynjum. Guð-
mundur sagði að þessi mót-
mæli bæri ekki að túlka sem
allsherjarmótmæli við tolla-
breytingar og skattkerfis-
breytingar rikisstjórnarinnar,
heldur út frá því grundvallar-
atriði að ekki væri verið að
skattleggja brýnustu nauð-
synjar heimilanna.
Geðdeild Landspítalans:
MISMUNANDI LAUN FYRIR SÖMU VINNU
Ófaglært starfsfólk geð-
deilda er i tveimur verkalýðs-
félögum og með þrjú starfs-
heiti og er launamismunur
verulegur. Starfsfólk er farið
að huga aö aðgerðum. For-
maður annars félagsins seg-
ist vonast til að bilið verði
brúað um áramótin. Hjúkrun-
arforstjóri geðdeilda Lands-
spítalans segir að ekkert rétt-
læti þennan mun í launum
og það sé réttlátt að fólk hafi
sömu laun fyrir sömu vinnu.
Á geðdeildum Landspítal-
ans er ófaglært starfsfólk i
tveimur verkalýðsfélögum
BSRB og Sókn. Töluverður
munur er á launum þessa
fólks þó það vinni sömu störf
hlið við hliö. Meðlimir BSRB
bera starfsheitið gæslumenn,
en Sóknar starfsmenn. Raun-
ar bætist enn eitt starfsheit-
ið inn í meðferðarfulltrúar og
eru þeir á hæstu laununum.
Alþýðublaðið hafði sam-
band við launadeild ríkis-
sþítalana og kom þar í Ijós
að byrjunarlaun hjá starfs-
mönnum eru 29.975 á mánuði
en gæslumenn hafa 30.941.
Bilið eykst síðan jafnt og
þétt, og eftir 6 ára starf hafa
starfsmenn i Sókn 32.754, en
gæslumenn í BSRB 35.818.
Þetta eru grunnlaun, en auka-
vinna miðast við 1% af
mánaðarlaunum, þannig að
með aukavöktum verður bilið
enn meira.
Meðferðarfulltrúar á barna-
geðdeild fá byrjunarlaun
31.869, en geta komist í
37.999.
í samtali við blaðið sagði
starfsmaður á geðdeild
Lands.'pítalans að undir-
skriftasöfnun væri í gangi til
að knýja á um úrbætur.'Fólk
ynni hlið við hlið en bæri
mjög misjafnt úr býtum.
Þetta kæmi verst niður á
konum í Sókn þar sem þær
eiga verra með að vinna eins
mikið og karlarnir og nauð-
synlegt sé að vinna töluverða
aukavinnu til að hafa mann-
sæmandi laun. Leiðrétting
þessara mála væri líka hags-
munamál fyrir stofnunina,
þar sem hæft starfsfólk héld-
ist betur í vinnu ef laun væru
skárri og mismununin ekki
slik sem raun ber vitni.
Þórunn Sveinbjörnsdóttir
formaður Sóknar sagði það
vera rétt að þeirra félags-
menn hefðu lægri laun en
BSRB fólk í sömu störfum.
Vonaðist hún til að bilið yrði
brúað nú um áramótin. Varð-
andi það að fólk sé í tveimur
stéttarfélögum við sömu
störf, sagði hún að skiþtingin
væri frá þeim tíma er stéttar-
félög voru kyngreind. Síðar
hafi veriö ákveðið að nýtt
starfsfólk yrði ráðið í Sókn,
burtséð frá kynferði, en mis-
brestur hafi orðið á í þeim
ráðningum. Þeir sem einu
sinni hafi verið i BSRB séu
ráðnir sem slíkir aftur. „Það
má líka segja að það sé mjög
skrýtið af ríkisins hálfu að
semja við tvo hópa og mis-
muna þeim.“
í máli hennar kom einnig
fram að lífeyrissjóður BSRB
væri mun betri en þeirra. Á
móti kæmi að Sóknarfólk
ætti kost á mun fleiri og fjöl-
breyttari námskeiðum sem
Bættu kjörin nokkuð. í samn-
ingum i sumar bættist við
námskeið upp á 100 stundir, í
umönnun geðsjúkra, vangef-
inna og aldraðra sem vinni
upp mismuninn í launum.
Vonaði hún að námsgögn
yrðu tilbúin fljótlega og gætu
þá námskeiðin hatist.
„Það er ekkert sem réttlæt-
ir þetta, mér finnst það rétt-
lát krafa að einstaklingar séu
á sömu launum við sömu
störf,“ sagði Þórunn Pálsdótt-
ir hjúkrunarforstjóri er Al-
þýðublaðið innti hana álits.
Sér þætti mun eðlilegra að
semja við eitt félag, en þetta
væri á milli þessara tveggja
félaga.
Varðandi meðferðarfulltrúa
starfsheitið sagði hún að
enginn munur væri á þeim
störfum, og störfum gæslu-
manna og starfsmanna. Að
sínu mati væri ekkert sem
réttlætti launamismuninn.
Þetta væru leifar frá því að
Hringurinn stofnaði barna-
geðdeild, þá hafi starfsfólkið
sótt námskeið er gaf þetta
starfsheiti, en það sé ekki til
staðar lengur.
.flí , r ■ , .
UPPELDI TIL FRIÐAR
8
SJÓBÍLARNIR AUÐKENNDIR?
3
RAÐHERRANN
SAMÞYKKTI
ÁN SKOÐUNAR