Alþýðublaðið - 12.01.1988, Síða 4

Alþýðublaðið - 12.01.1988, Síða 4
4 Þriöjudagur 12. janúar 1988 SMÁFRÉTTIR Einar Kristján Einarsson gitarleikari. Háskólatónleikar: Einar K. Einarsson leikur Bach og Villa-Lobos Fyrstu háskólatónleikar á vormisseri verda haldnir í Norræna Húsinu miðvikudag- inn 13. janúar kl. 12:30— 13:00. Á tónleikunum mun Einar K. Einarsson flytja BWV998 eftir Bach og Æfingar nr. 8, 3, 5,11, og 12 eftir Villa- Lobos. Taliö er að BWV998 sé samið á tímabilinu 1717-1723 en þá starfaði Bach í Cöthen, þar sem ríkti Kalvinismi og tónlist lítt tíökuð í kirkjum. Ekkert orgel var á staðnum og aðalhlutverk Bachs var að sjá um veraldlega tónlist á heimili Leopolds prins. Villa-Lobos samdi „12 æf- ingar" í París 1929. í tónbók- menntum gítarsins eru Æf- ingarnareinn af bakfiskunum og Andrés Segovia komst efnilega svo að orði i formála sinum að þeim; „af ást á hljóöfærinu hefur Villa-Lobos gert það sama fyrir gítarinn og þeir Scarlatti og Chopin fyrir sín hljóðfæri". Einar Kristján Einarsson lauk burtfararprófi 1982 frá Tónskóla Sigursveins. Kenn- arar hans voru Gunnar H. Jónsson og Joseph Fung. Einar stundar nú framhalds- nám í Manchester hjá Gor- don Grosskey og Georg Hadjinikos. Einar hefur kom- ið fram á tónleikum á íslandi, Spáni og í Englandi. Skýrslur um markaðsmál Útflutningsráð íslands hef- ur gefið út nokkur upplýs- ingarit um þróun, horfur og tækifæri í markaðsmálum. Fyrst ber að nefna skýrslu um matvælamarkaðinn í Sví- þjóð. í skýrslu þessari er aðallega fjallað um mögu- leika íslenskra fiskafurða á Svíþjóðarmarkaði. Þar er m.a. gerð grein fyrir sænska neyt- endamarkaðnum, fiskmark- aðnum í Svíþjóð og sænska markaðnum fyrir fisk og fisk- afurðir. Önnur skýrsla fjallar um markaðsþróun tilbúinna sjávarrétta í Svíþjóð, Bret- Stjórnmálaskóli Alþýðuflokksins 22.-24. jan. 1988 í Kópavogi Dagskrá Setning Föstudag 22. jan. 1988 20.30-22.30 Saga Alþýöuflokksins Stutt ágrip/Umræður Sigurður Pétursson, sagntræðingur Lýðræðisjafnaðarstefnan á íslandi Karl Steinar Guönason, alþm. Léttar veitingar Stefna Alþýðuflokksins í sveitarstjórnarmálum. Magnús H. Magnússon, fyrrv. ráðherra Guðmundur Oddsson, bæjarfulltrúi Sunnudagur 24. jan. Aðild Alþýðuflokksins að ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar 10.00—12.30 Jón Baldvin Hannibalsson, form. Alþfl. Léttar veitingar í hádegi Skólaslit Staður: Skólinn verður haldinn að Hamraborg 14a í Kópavogi í fundarsal Alþýðuflokksins á 2. hæð. Þátttökugjald er 1.000 kr., en afsláttur er fyrir skólafólk. Skráning fer fram á skrifstofu Alþýðuflokksins í sima 29244, en einnig í síma 45051 (Helga) og 40538 (Þráinn). Verið með (fræðslustarfi Alþýðuflokksins! Fræðsluráð Alþýðuflokksins landi og Vestur-Þýskalandi. Þar er m.a. rakin almenn þró- un tilbúinna sjávarrétta í heiminum og fjallað er um helstu markaðssvæðin svo og um markaðssetningu á til- búnum sjávarréttum. Þriðja skýrslan af þessu tagi var unnin fyrir Markaðs- nefnd landbúnaðarins. Bandarískt markaðsathug- unarfyrirtæki var fengið til að framkvæma markaðsathugun á möguleikum íslensks lambakjöts á bandaríska markaðnum og hafði Útflutn- ingsráð íslands yfirumsjón með framkvæmdinni. Fjórða skýrslan fjallar um Grænland og skiptist hún í tvo hluta. Annars vegar er fjallað um þróun og horfur á Grænlandi og hins vegar eru teknar saman almennar upp- lýsingar um skipulag opin- berrar stjórnsýslu á Græn- landi, byggingaog mann- virkjagerð, tæknilega starf- semi og atvinnuvegi. Fimmta skýrslan fjallar um útflutning á vörum til fisk- veiða og fiskiðnaðar. Þar er að finna tölulegt yfirlit út- flutningsins, skýringar á sveiflum innan stuðnings- greinanna, fjallað er um út- flutning og útflutningsað- gerðir og einnig birt niður- staða könnunar meðal fyrir- tækja í þessari atvinnugrein. Sjötta skýrslan fjallar um markaðsmöguleika á austur- strönd Bandaríkjanna fyrir framleiðendur tæknivara fyrir sjávarútveg. Það er von útflutningsráðs að skýrslur þessar megi koma sem flestum aö notum og þeir sem áhuga hafa geta fengið eintök hjá Útflutnings- ráði að Lágmúla 5, Reykjavík. Hert eftirlit „Það kemur allt of oft fyrir að lögskráning áhafna á ís- lenskum fiskiskipum sé ekki í lagi. Einnig eru réttindalaus- ir skipstjórnarmenn allt of oft um borð í fiskiskipum okkar,“ segir m.a. i fréttatilkynningu frá Landhelgisgæslu íslands. Landhelgisgæslan mun f auknum mæli, eftir því sem aðstæður leyfa, aðstoða sýslumenn og bæjarfógeta KRATAKOMPAN Aðalfundur FUJ í Reykjavík Aðalfundur FUJ í Reykjavík verður haldinn í Litlu- Brekku klukkan 20.15 mánudaginn 18. janúar næst- komandi. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál. Félagar hvattir til þess að mæta. Stjórnin Flokksstjórn Alþýðuflokksins Fundur flokksstjórnarAlþýðuflokksins verður hald- inn laugardaginn 16. jan. n. k. kl. 11—16 á Hótel Sögu Dagskrá: Kl. 11 Stjórnmálaástandið — Jon Baldvin Hannibals- son formaður Alþýðuflokksins. Kl. 12. Léttur hádegisverður. Kl. 13—16 Verkefni til vors. 1. Dómsmál 2. Húsnæðismál 3. Fólk og fyrirtæki (launamál, gengi og vextir). Formaður Alþýðuflokksins. viö að framfylgja lögum um lögskráningu áhafna á fiski- skipum og fylgjast með rétt- indamálum skipstjórnar- manna. Fiskiskip, sem þannig eru ólögleg, geta því hvenær sem er átt von á því, að varð- skip fylgi þeim til þeirrar hafnar, sem Landhelgisgæsl- an gefur fyrirmæli um, með tilheyrandi veiöitöfum og sektum. Hildur Magnúsdóttir. Sendifulltrúi til Thailands. Hildur Magnúsdóttir, hjúkr- unarfræðingur, lagði af stað til Thailands nú fyrir skömmu, þar sem hún mun dvelja næsta hálfa árið við störf á sjúkrahúsi Alþjóða- ráðs Rauða krossins í flótta- mannabúðum í Khao-I-Dang, sem er við landamæri Kamputseu og Thailands. Hildur tók þátt í undirbún- ingsnámskeiði fyrir sendifull- trúa sem RKÍ hélt sl. vor og þar kynntist hún störfum og starfsreglum Alþjóðarauða- krossins og hlaut þjálfun í lausn vandamála sem upp geta komið viö hjálparstörf. Hildur Magnúsdóttir er tutt- ugasti sendifulltrúinn sem RKÍ sendir til starfa á vegum Alþjóðarauðakrossins í Thai- landi.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.